Morgunblaðið - 27.01.1998, Síða 36

Morgunblaðið - 27.01.1998, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 - ......... AÐSENDAR GREINAR Hver er að of- ’ sækjahvern? ÞAÐ er óvænt hlut- skipti að sitja undir ásökunum fyrrverandi samstarfskonu um póli- tískar ofsóknir og hefndarhug. Stóiyrðin eru öll á aðra hlið, og hér verður ekki svarað í sömu mynt. Misskiln- ing og rangar fullyrð- ingar er hins vegar ^ihjákvæmilegt að leið- rétta. Að öðru leyti verður hver að liggja svo sem hann hefur um sig búið. Það hvarflar ekki að kvennahstakonum að hafa af fyrrverandi þingkonu sinni neitt sem hún á lög- mætan rétt á. Við hljótum hins vegar að spyrja um ástæður og túlkun Iagatexta, þegar stjórnskipuð nefnd gerir tillögu um skiptingu fjárfram- laga til stjórnmálaflokkanna á allt öðrum forsendum en fyrir þremur árum, þegar nákvæmlega sama staða var uppi. v Forræði flokkanna Alið er á þeim misskilningi, að „þingmenn fái í sinn hlut“ svo og svo margar krónur til eigin nota. í raun hafa þeir lítið um ráðstöfun fjárins að segja. Hlutur Kvennalistans hef- ur ævinlega runnið beint til samtak- anna, og svo mun vera um aðra. Fjárframlög til þingflokka/stjórn- málaflokka koma af tveimur liðum fjárlaga. I fyrsta lagi er sérfræðiað- stoð þingflokkanna, sem heyrir und- ir þingið og er skipt miðað við fjölda þingflokka og tölu þingmanna. I "’öðru lagi er liður, sem heyrir undir fjármálaráðuneytið og er skipt „... samkvæmt tillögum stjórnskipaðrar nefndar og skriflegri umsókn þing- flokka“. Þótt vísað sé á þennan hátt til ábyrgðar þingflokka er reyndin sú, að forræðið er að öllu leyti í höndum stjórnmálaflokkanna. Allt er þetta hugsað til að jafna aðstöðu og styrkja lýðræðið. Undirstaðan kostar sitt kona, sem segir sig úr Kvennalistanum árið 1997, ætti að fá fjár- magn til útgáfumála, en ekki þingkona, sem gekk úr Alþýðuflokkn- um þremur árum fyrr? Hver er munurinn? Hefur Alþýðuflokkur- inn annan rétt en Kvennalistinn? Hvað býr hér að baki? Eina raunhæfa fordæmið Vísað hefur verið til nokkurra fordæma, en merkilegt nokk ekki tfl Jóhönnu Sigurðardótt; ur, sem er nærtækasta dæmið. í raun er þó ekki hægt að vísa til neinna fordæma. Astæðan er sú, að lagatextanum á bak við þessa úthlut- un var breytt fyrir tveimur árum á þá leið, að nú er úthlutun skilyrt við umsókn þingflokka. Að þeirri breyt- Við spyrjum um ástæð- ur og túlkun lagatexta, segir Kristín Halldórs- dóttir, þegar gerð er tillaga um skiptingu fjárframlaga til stjórn- málaflokkanna á öðrum forsendum en fyrir þremur árum. ingu stóðu formenn allra þingflokka annarra en Kvennalistans og því eðlilegt að þeir kynni sér meðferð málsins. Staðreyndir um tilgreind fordæmi eru þessi: Kristín Kvaran var ein á báti örfáa mánuði árið 1986. Úgáfustyrknum var skipt í upphafl árs eins og venjan Kristín Halldórsdóttir er, og þá fékk Bandalag jafnaðar- manna allt sitt miðað við fjóra þing- menn. Þrír þeirra gengu í Alþýðu- flokkinn nokkru síðar, og haustið 1986 gekk Kristín í Sjálfstæðisflokk- inn. Hafi hún fengið eitthvað af út- gáfustyrk, sem ekki verður séð af gögnum, hlýtur það að hafa verið á milli hennar og Bandalagsins. Fordæmið um Borgaraflokkinn er ekki sambærilegt. Hann klofnaði í tvo þingflokka, en skv. lögum er þingflokkur samtök tveggja eða fleiri þingmanna, sem eru fulltrúar stjórnmálaflokks. Stefán Valgeirsson var ekki utan flokka. Hann var kjörinn í þingkosn- ingum 1987 fyrh' Samtök um jafn- rétti og félagshyggju. Hann fékk út- gáfustyrk fyrir sín samtök. Dæmið um Jóhönnu Sigurðardótt- ur er eina raunhæfa viðmiðunin. Hún fékk aldrei framlag af þessum fjárlagalið og bar sig heldur ekki eft- ir því. Af einhverjum ástæðum vh-ð- ist það ekki henta sem fordæmi. Sníðum stakk eftir vexti Það væri hræsni að segja að sú fjárupphæð, sem um er að ræða, tæpar 2 millj. kr., skipti ekki máli í sjálfu sér. Auðvitað sldptir hún máli. Kvennalistinn sendir mánaðarlegt fréttabréf til fjölda áskrifenda og gefur út VERÚ, tímarit um konur og kvenfrelsi. Auk þess rekur Kvennalistinn skrifstofuþjónustu fyrir kvennalistakonur um allt land, heldur fundi og ráðstefnur, styrkir starfsemi úti í kjördæmunum, greið- ir ferðakostnað kvenna á samráðs- fundi, vorþing og landsfundi, styrkir konur til framboðs, og fleira mætti telja. Og rétt er að benda á, að Sam- tök um Kvennalista urðu fyrst stjórnmálaafla til að opna reiknings- hald sitt og hafa um nokkurra ára skeið falið löggiltum endurskoðanda að tryggja að öll fjármál séu sam- kvæmt góðum reikningsskilavenj- um. Það munar því auðvitað um hverja krónu. En Kvennalistinn hefur alltaf kunnað að sníða sér stakk eftir vexti og mundi ekki flækja sig í skuldavef þótt klipið yrði af ríkisframlagi. Slík lækkun ráðstöfunarfjár kæmi þó vit- anlega illa niður á allri okkar starf- semi. Það gleður efalaust einhverja. Höfundur er þingkona Kvennalistans. Lítilsvirðandi ummæli bók- menntafræðings um alþýðufólk Á JÓLADAG sá Gunnar Stefánsson um minningarþátt í Ríkis- útvarpinu um Hannes Sigfússon skáld. Þátt- urinn var endurfluttur föstudagskvöldið 9.jan- úar. Gunnar vék að end- urminningabókum Hannesar „Flökkulífi" og „Framhaldslífi föru- manns“ og sagði: „Það sem eftirminnilegast er úr þeim bókum er blátt áfram það undur að slíkt skáld skuli vera sprottið úr jarðvegi eins og þeim sem hann lýsir. Það er fátt í uppeldi hans og mótun sem gefur tilefni til að ætla að þar vaxi mikið skáld úr grasi. Hannes Sigfússon er vissulega dæmi um að óvenjulegar gáfur geta komið upp hvar sem er...“ Eg vil ekki vera ósanngjam í garð Gunnars eða gera honum rangt til. En mér finnst hin tilfærðu orð mikil lítilsvirðing í garð óbreytts alþýðu- fólks. Fjölskylda Hannesai' Sigfús- sonar og uppeldi allt virðist vera æði litilsigld og ómerkileg í augum bók- menntafræðingsins. Annars hefði hann ekki tekið svona leiðinlega til orða. En hvers konar fólk og um- hverfi hefði þurft að vera til staðar á þessum tíma til að fram kæmu „óvenjulegar gáfur“ án þess að nokkra undrun vekti? Hinar fáu fjöl- skyldur embættis- og menntamanna sem til voru í landinu? Komu ekki flestir þeir sem fram úr hafa skarað af kynslóð Hannesar, hvað þá þeir sem eldri voru, ekki einmitt af ósköp venjulegu alþýðufólki þar sem fátt var um andlegar fyrh’myndir og lítið um listræna uppörvun í „uppeldi" og „mótun“ barna og ung- linga? Fátækt fólk fyrri tíma hafði oftast um annað og þarfara að hugsa en bókmenntir og listir jafnvel þó upp- lag sumra hafi hnigið í þær áttir og þeir stolið stundum til einhvers konar listiðkana. Þegar að er gætt kemur nefnilega ennþá betur í ljós hve ummæli Gunnars eru vanhugs- uð. Hann hefur greini- lega ekki kynnt sér málið út fyrir endur- minningabækur Hann- esar og virðist auk þess hafa gleymt ýmsu sem í þeim stend- ur. Faðir Hannesar Sigfússonar var til dæmis tónelskur. Harmoníum var til á heimilinu og síðar píanó og Egg- ert Gilfer kenndi Grétu systur Hannesar á hljóðfærið, en hún varð síðar þekkt skáldkona og bjó yfir ýmsum „óvenjulegum gáfum“, var til dæmis drátthög og músikölsk. Hannes ólst upp við verk Beet- hovens, Schuberts og Schumanns og annarra meistara tónanna eins og hann lýsir í æskusögu sinni. Slíkt var sjaldgæft á þessum tíma enda höfum við orð Hannesar fyrir því að tilfinn- ingalíf hans öðlaðist „dýpri hljóm- grunn“ fyrir vikið. Ljóðlist og tónlist eru nánast tvær hliðar á sama ten- ingi, þó það virðist vefjast mikið fyr- ir mörgum bókmenntafræðingum og reyndar skáldum einnig. Það er áreiðanlega engin tilviljun að mörg bestu ljóð Hannesar minna mjög á tónlist, ekki endilega laglínur hennar þó endurtekningar stefja séu alltíðar í ljóðum skáldsins, heldur einkum hrynjandi og hljómbrigði tónlistar- Sigurður Þór Guðjónsson Þegar Kvennalistinn kom til sög- unnai- árið 1983 var úthlutun þessa fjár á þann veg að nær helmingnum var skipt jafnt milli flokka, sem áttu fulltrúa á Alþingi, en hinum helm- ingnum eftir atkvæðastyrk. Á síð- •V ústu árum hefui’ úthlutun þróast í þá átt að 12,5% er skipt jafnt á milli flokkanna, en 87,5% eftir atkvæða- fjölda hvers flokks í síðustu þing- kosningum. Það skýrir hvers vegna samtök með fáa þingmenn fá hlut- fallslega hærri upphæð en flokkur með marga þingmenn og byggist á því að starfsemi kostai- sitt, hvort sem um fleiri eða fæn’i fulltrúa er að ræða. Víða erlendis er gengið miklu lengra í þessum efnum, og m.a. er flokkum í stjórnarandstöðu úthlutað hærri upphæðum en stjórnarflokk- um vegna mikils aðstöðumunar. Kvennalistinn hefur gagnrýnt nú- verandi hentistefnu við skiptingu þessa fjár og tvívegis flutt tillögu á Álþingi um setningu laga og reglna *um fjárframlög til stjórnmálaflokk- anna. Sömu aðstæður - önnur afgreiðsla í janúar 1995 var skiptingin ákveðin með ofangreindum hætti og ekkert tillit tekið til þess að Alþýðu- flokkurinn hafði misst einn liðsmann, Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún fékk ekki krónu af þessum fjárlagalið, enda ekki talið að hún „ætti“ tiltek- inn hluta atkvæða frá síðustu kosn- ingum. Fulltrúi Kvennalistans vakti . <máls á því, hvort Jóhanna ætti rétt á framlagi af þessum lið. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki. Alþýðuflokkurinn hélt því fullkomlega sínum hlut. Með tilliti til þessa kom afstaða meirihluta sömu nefndar á fundi 21. jan. sl. fulltrúa Kvennalistans í opna skjöldu, og lái okkur hver sem vill, ^þótt við spyrjum, hvers vegna þing- Afrakstur að loknu Víkartinds(f)ári ÞAD VAR talsvert í tísku á mín- um ungdómsárum að fara í kaffihús og hlusta á kaffíhúsaspekingana ausa af bnmni visku sinnar. Þeim var gjarnt að tala tæpitungulaust eins og þeir gjarnan gera sem ekki þurfa að bera ábyrgð á eigin orð- um. Til að mynda sló einn þeirra eftirfarandi fram: Meðan allir eni að raka sama heyinu er enginn til að skrifa bækur, menn nema ekki lönd eða stunda vísindi - framfarir verða engar. Þrátt fyrir að með sönnu megi segja að svarið sé dæmigerð kaffíhúsaklisja er tals- verður sannleikur í þessum orðum. Sérhæfing er nauðsynleg til margra verka, og henni verður að viðhalda, ef ekki á að tapa þeim ár- angri sem þegar hefur náðst. Fámennið hér á Islandi gerir það að verkum að verulega vantar á að menn geti sérhæft sig til ýmissa starfa. Þetta á ekki síst við í stjóm- málum, stjómsýslunni og í fjölmiðlum. Ég leyni því ekki að mér hefur oft bragðið sú vanþekking sem kem- ur fram í umræðum stjómmálamanna, raunar stjórnsýslunni almennt, og í umíjöllun fjölmiðla um þann málaflokk sem ég hefi unnið við til skamms tíma og er: Vamir gegn mengun hafsins. Þetta er ekki sagt af hroka og yfirdrepsskap heldur lít ég svo á að fámennið bjóði einfald- lega ekki upp á að margir geti sér- hæft sig í þessum málaflokki til að fjalla um viðfangsefnið af þekkingu. Þó kastaði tólfunum, að mínu viti, þegar Víkartindur strandaði og fjölmiðlai’ fóra að gagnrýna seina- gang á björgun og um- hverfisráðherra var, að ósekju, gerður ábyi-gur fyrir honum. Megnið af þeirri um- fjöllun var gert af van- kunnáttu og yfirborðs- kenndum slagorðum eins og „þriðja heims strand“, sem einkenna því miður mikið frétta- flutning þegar slíkir atburðir verða. Hin ís- lenska rannsóknar- blaðamennska var oft mjög illa unnin og snerist upp í and- hverfu sína sem kalla má fjölmiðlavaðal, enda gerð með hraði og væntanlega hafa fjármunir verið litlir til að greiða fyrir þá vinnu sem þarf til að fjalla um við- fangsefnið með aðferðum rann- sóknarblaðamennsku. Davíð Egilson Viðfangsefni Lög Framkvæmdaaðili Ráðuneyti Björgun skips Skipströnd og vogrek Sýslumaður Dómsmálaráðuneyti Löggæsla á strandstað Skipströnd og vogrek Sýslumaður Dómsmálaráðuneyti Björgun farms Skipströnd og vogrek Sýslumaður Dómsmálaráðuneyti Hættulegur farmur Eftirl. m. skipum/mengun Hollustuvernd/ Umhverfisráðuneyti (IMDG) sj ávar/E iturefnalögin Sighngast?/ Vinnueftirlit? Samgönguráðuneyti Félagsmálaráðuneyti Rusl Hollustuháttarlögin Heilbrigðisnefnd Umhverfísráðuneyti Hættulegur varningur, sem rusl Hollustuháttarlögin Heilbrigðisnefnd Umhverfisráðuneyti Olía Mengun sjávar Hollustuvernd Umhverfisráðuneyti Skipið sem flak Náttúruverndarlögin Sveitarstjóm Umhverfísráðuneyti Ætla má að sá sem fjallaði um viðfangsefnið með viðurkenndum aðferðum rannsóknai’blaða- mennsku, og hefði haft þann tíma sem þurfti til að greina viðfangsefn- ið, hefði dregið fram að veralegar tafír urðu vegna veðurs, en einn megindragbíturinn var gildandi löggjöf sem er sundurleit og dreifir ábyrgð á fjölmarga aðila, samanber meðfylgjandi töflu. Tafla sem sýnir lagaumhverfi og aðkomu mismunandi opinbeira að- ila að við björgun verðmæta og í að- gerðum til að koma í veg fyrir mengun og óhöpp, eftir að strand er orðið. Sjá töflu. Ath.: Taflan sýnir einungis „björgunaraðila" en ekki þátt toll- gæslu. Gæslan kemur væntanlega ekki lögfonnlega að málum eftir að strand hefur orðið - nema hugsan- lega sem verktaki. Þar fyrir utan leggur löggjöfin skyldur á opinbera aðila til aðgerða án þess að nokkur ti-ygging sé fyrir greiðslu á útgjöldum sem kunna að verða þegar brugðist er við. Hinn gagnrýni rannsóknarblaða- maður hefði spurt surninga eins og: • Hver er gildandi löggjöf og hvernig skiptist ábyrgðin á mis- munandi stjórnvaldsstofnanir? • Hvernig er uppbyggingu þessa málaflokks háttað, (mannafli, tækjabúnaður, áætlanir)? • Er nægjanlegu fjármagni veitt til málaflokksins? Síðast en ekki síst hefði hann spurt: Er líklegt að unnt verði að bregð- ast við óhappi af svipaðri stærð- argráðu, eða meiri, miðað við nú- verandi uppbyggingu viðbúnaðar, eða þarf að gera betur? Hvernig er unnt að draga úr lík-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.