Morgunblaðið - 27.01.1998, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 27.01.1998, Qupperneq 49
i MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1998 49 I : í 1 1 I i I I I J I i : < ;i I i 4 4 \ 4 4 : 4 4 4 4 J FRÉTTIR Ur dagbók lögreglunnar Fimmtán ökumenn grunaðir um ölvun 23. til 26. janúar FIMMTÁN ökumenn voru um helgina teknir grunaðir um ölvun við akstur. Einn þeirra reyndi að stinga af á hlaupum en náðist og annar ók frá árekstrarstað en náðist fljótlega. Þá voru 43 stöðv- aðir vegna hraðaksturs og ein- hverjir þeirra misstu ökuskírteini sín. Lögreglan hafði afskipti af fjöldamörgum ökumönnum vegna annarra umferðarlagabrota svo sýnilega hafa margir ökumenn fengið punkta í ökuferilsski-á sína um þessa helgi sem endranær. Nokkur innbrot voru um helg- ina. Brotist var inn í kjallaraíbúð í austurborginni og stolið mörgum verðmætum tækjum. Úr Grafar- vogskirkju vai’ stolið geislaspilara og sáust tveir piltar við kirkjuna. Húsleit var gerð hjá tveimur kon- um sem nokkuð hafa komið við sögu lögreglu og fannst þar tals- vert magn af þýfi og smávegis af fíkniefnum. Þá var bíll stöðvaður á laugardag og fannst í honum mikið af þýfi. Þrennt sem í bílnum var viðurkenndi gripdeildir í verslun. Dyravörður sleginn Dyravörður í Perlunni var sleg- inn í andlitið á laugardagskvöldið þegar hann hugðist vísa manni út sem hafði kastað af sér vatni á gólfið þar innan dyra. Maðurinn bar fyrir sig minnisleysi vegna ölvunar. Aðfaranótt sunnudags var ráðist á mann á þrítugsaldri í Austurstræti. Hann hlaut skurð á höfði. Arásarmaðurinn var hand- tekinn en hann er á svipuðum aldri. Maður, sem hljóp hvað eftir annað fyrir sjúkrabílinn sem var að flytja þann slasaða af vett- vangi, var handtekinn. Þá varð sambýlisfólk í austurborginni ósátt snemma á sunnudagsmorgni og varð að flytja konuna á slysa- deild eftir að maðurinn hafði að hennar sögn lumbrað á henni með stólfæti. Stúlka fór í sjóinn við Faxagarð aðfaranótt sunnudags en henni var bjargað fljótlega af nærstödd- um. Lögi’eglan flutti hana á slysa- deild til aðhlynningar. Þá fór öku- maður frá bensínstöð aðfaranótt sunnudags án þess að greiða fyrir bensín sem hann fékk. Hann náð- ist stuttu síðar og greiddi skuld sína. Aðfaranótt sunnudags þurftu lögreglumenn einnig að fara inn í mannlausa íbúð í Engja- hverfi vegna hunds sem þar gelti stanslaust. Var hundurinn fluttur á hundahótel. Helgin var annars tiltölulega róleg en fremur fátt fólk var í miðborginni aðfaranætur laugar- dags og sunnudags. Tilkynnt var um slagsmál á Lækjartorgi snemma á sunnudagsmorgni en þar nægði að fjarlægja einn óróa- segg til að allt yrði rólegt. Hreyfíþroski barna og íþróttavísindi DR. Rolf P. Ingvaldsen, prófessor við Tækni- og náttúruvísindaháskól- ann í Þrándheimi, og Hermundur Sigmundsson M.Ed., í doktorsnámi í taugasálfræði við sama skóla, flytja fyrirlestur á vegum Rannsóknar- stofnunar Kennaraháskóla íslands, miðvikudaginn 28. janúar kl. 16.15, um skertan hreyfiþroska barna og íþróttavísindi. „Dr. Rolf mun fjalla um grundvöll íþróttavísinda og kenningar um stjórnun og þróun hreyfinga. Her- mundur mun aftur á móti kynna rannsóknir sínar sem hafa beinst að 5-8 ára gömlum börnum sem eiga í erfiðleikum með samhæfingu hreyf- inga. Rannsóknir hans byggjast á kenningum um skynheildun (sens- ory integration) og starf heilahvela (hemispheric competence). Mun hann kynna doktorsverkefni sitt sem fjallar um þátt skynjunar og starfs heilahvela í samhæfingu hreyfinga hjá börnum," segir í fréttatilkynningu frá KHÍ. Rolf og Hermundur starfa báðir við íþróttafræðideild Tækni- og náttúruvísindaháskólans í Þránd- heimi. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu M-301 í Kennaraháskóla ís- lands og er öllum opinn. Rolf mun flytja mál sitt á ensku en Hermund- ur á íslensku. Frönsk kvik- myndasýning KVIKMYNDAKLÚBBUR Alliance Frangaise, Austurstræti 3 (gengið inn frá Ingólfstorgi), sýnir frönsku gamanmyndina „La Vocation d’Adrienne“ eða Köllun Adrienne miðvikudagskvöldið 28. janúai’ kl. 21. Myndin er frá árinu 1997 eftir Joél Santoni. Myndin segir frá Adrienne, fimm- tugri konu, sem ekur strætisvagni í París. Hún er tveggja barna móðir, gift verkamanni sem vinnur í verk- smiðju. Vegna umferðaróhapps tek- ur frægur tískufrömuður eftir Adrienne og býður henni að vera að- alsýningarstúlkan í sýningu á sinni fyrstu seríu af fjöldaframleiddum fatnaði. Myndin er ekki venjuleg saga um Óskubusku og ævintýri hennar heldur gamansöm en um leið raunsönn lýsing á ólíkum heimi verkamannafjölskyldu og hátísku Parísar. Myndin er á frönsku og sýnd án texta. Efth’ sýningu aðalmyndarinnar verður sýnd ótalsett stuttmynd; „Le Réveil" eða Vekjaraklukkan með Je- an-Claude Dreyfus í aðalhlutverki sem margir þekkja í hlutverki slátr- arans í „Delicatessen". Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Afmælisdagskrá í Sólheimasafni FIMMTÍU ár eru liðin í dag, þriðju- daginn 27. janúar síðan Borgar- bókasafn Reykjavíkur Útibú III að Hlíðarenda við Langholtsveg var opnað. Safnið var fljótlega flutt í Efstasund og þaðan í Sólheima 27 þar sem það var opnað í janúar 1963 og þar er safnið í dag. Sólheimasafnið var fyrsta hús- næðið 1 eigu Borgarbókasafns sem var hannað og byggt sem bókasafn. í tilefni þessara tímamóta verður kvölddagskrá í safninu í kvöld, þriðjudagskvöld kl. 21.15. Til skemmtunar verður upplestur, tónlist og dans. Gyrðir Elíasson rit- höfundur les úr nýrri bók sinni, Vatnsfólkinu, Ögmundur Jónsson leikur á gítar Æfingu nr. 11 eftir Leo Brouwer og Kristín Bjömsdótt- ir og Gígja Sæbjörg Kristinsdóttir leika á þverflautur, Menúett eftir Haydn og Chaconne eftir Pachelbel. Börn úr Danssmiðju Hermanns Ragnars sýna dansa. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Fyrirlestur um umhverfismál VÉLADEILD Tækniskóla íslands gengst á þessari önn fyrir fyririestra- röð um umhverfismál. Miðyikudaginn 28. janúar fjallar Hugi Ólafsson, deildarstjóri í um- hverfisráðuneytinu, um áherslur Is- lands í umhverfismálum. Fyrirlesturinn er opinn öllum áhugamönnum um málefnið, en að honum loknum verður opnað fyrir umræðum. Fyrirlesturinn er hald- inn í húsnæði Tækniskóla íslands, Höfðabakka 9, stofu 339, 2. hæð, og hefst kl. 17. Heimahlynning með opið hus HEIMAHLYNNING verður með samverustund fyrir aðstandendur í kvöld, þriðjudaginn 27. janúar, ld. 20-22 í húsi Krabbameinsfélags Is- lands, Skógarhlíð 8. Gestur kvöldsins, Sæmundur Stefánsson, deildarstjóri fræðslu- og útáfudeildar Tryggingastofnun- ar ríkisins, veitir upplýsingar um tryggingamál. Kaffi og meðlæti á boðstólum. Lýst eftir stolnum bflum LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir nokki-um bílum sem stolið hef- ur verið að undanförnu. Biður hún þá sem einhverjar upplýsingar geta gefið að hafa samband sem fyrst. Um er að ræða Saab 900 sem stolið var 3. janúar frá Dúfnahólum 2, árgerð 1986, blár að lit með núm- erið HP 171; Pajero langur, IB 964, árgerð 1987, hvítur, stolið af bíla- stæði við Heklu 20. janúar; Saab 900, árgerð 1987, rauður að lit, nr. IA 628, en honum var stolið frá Flókagötu 67 22. janúar og loks Daihatsu, árgerð 1991, rauður að lit, nr. LK 479 sem stolið var 26. janúar í Hafnarfirði. Þorrablót á Flúðum ÞORRABLÓT verður haldið í Fé- lagsheimilinu á Flúðum laugardag- inn 31. janúar nk. Húsið verður opnað kl. 19.30. Jóhannes Krist- jánsson, eftirherma og grínisti, kemur og skemmtir og hljómsveitin Hjónabandið leikur fyrir dansi. Verð 2.500 kr. LEIÐRÉTT Gunnlaugur P. NAFN höfundar greinar í ferða- blaði síðasta sunnudag, um sól- skinseyjar á Tælandsflóa, misritað- ist í kynningu. Rétt nafn er Gunn- laugur P. Erlendsson og er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Tæknideild Vestmanna- eyjabæjar MISSAGT var í Morgunblaðinu sl. sunnudag í frétt um tilraun með eldfjallavöktunarkerfi í Eyjum að Bæjarveitur Vestmannaeyja væru meðal stofnana sem stæðu að verk- efninu. Rétt er að Tæknideild Vest- mannaeyjabæjar er ein þeirra stofnana sem standa að þessu verk- efni. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. Morgunblaðið/Kristinn - Goshverinn gýs á hverjum degi GOSHVERINN í Öskjuhlíð sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri opnaði fyrir síð- astliðinn laugardag verður í gangi milli kl. 11-12 og 15-16 á hverjum degi næstu mánuði. Ekki hefur hvernum verið gef- ið nafn. Til stendur að efnt verði til samkeppni um nafn á hann. Vilja Fróðárheiði inn í vegaáætlun MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun: „Stjórn heilsugæslustöðvar Ólafs- víkurlæknishéraðs mótmælir þings- ályktun um vegaáætlun fyrir árin 1998-2002 er liggur fyrir Alþingi þar sem ekki er gert ráð fyrir fjár- magni til uppbyggingar Ólafsvíkur- vegar, Fróðárheiðar, sem nýs verk- efnis eins og gert var ráð fyrir í langtímaáætlun um vegagerð 1991, með samkomulagi allra þingflokka og fjárveitinganefnd Alþingis. Stjóm heilsugæslustöðvarinnar krefst þess að bætt verði á verk- efnalistann sem nefnist „nýverk- efni“ Ólafsvíkurvegar; Fróðárheiði 200 mkr. til framkvæmda árin 1998-2000. Þessi vegur er mjög mikilvæg þjónustu- og öryggisteng- ing heilsugæslustöðvarinnar í Ólafs- vík við íbúa læknishéraðsins sunnan heiðar, það er Staðarsveit og Breiðuvík. Vegurinn um Fróðárheiði, sem er aðeins 13-14 km, er aðaltengivegur íbúa Snæfellsbæjar við hringveg- inn. Þessi leið styttir einnig leið íbúa Snæfellsbæjar um 55 km að hringveginum. Þegar sameining sveitarfélaganna á utanverðu Snæ- fellsnesi fór fram 1994 hafði yfirlýs- ing stjómvalda um forgang í sam- göngumálum þar sem sameining yrði samþykkt jákvæð áhrif á af- stöðu íbúanna varðandi sameiningu. Því miður hafa stjómvöld ekki stað- ið við þessi fyrirheit; uppbyggingu vegar yfir Fróðárheiði, sem var að- alatriði, auk þess að leggja bundið slitlag á veginn um Staðarsveit og Breiðuvík til Arnarstapa. Stjórnin skorar á þingmenn Vest- urlands að hafa forgöngu um þessa leiðréttingu á vegaáætlun fyrir árin 1998-2002. Samþykkt þessi verður send sam- gönguráðherra, samgöngunefnd Al- þingis, fjárlaganefnd og vegamála- stjóra.“ ÞRIGGJA sæta sófum af þessum gerðum var stolið úr vörugámi í Síðumúla í vikunni. Sófasettum stolið úr gámi BROTIST var inn í vöragám við verslunina Öndvegi í Síðumúla 20 í Reykjavík aðfaranótt miðvikudags 21. janúar og stolið þaðan húsgögn- um að verðmæti nokkuð á aðra milljón króna. Stolið var þremur þriggja sæta sófum og sex stólum. Lögreglan óskar eftir því að þeir sem geta gef- ið upplýsingar um innbrotið eða hvar umrædd húsgögn era niður komin snúi sér til hennar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.