Morgunblaðið - 14.02.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 13
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
SKIPVERJI á Faxa dælir vatni í neysluvatnstanka áður en haldið er úr höfn klukkan 23 síðastliðinn miðvikudag þegar verkfalli var frestað.
sem þjóðréttarsamingar hafa ekki
sjálfkrafa gildi innanlands, líkt og
önnur Norðurlönd og Þýskaland
svo dæmi séu nefnd. Til þess að
þjóðréttarsamningar gildi innan-
lands þarf að leiða þá í lög eins og
gert hefur verið með mannréttinda-
sáttmála Evrópu og samninginn
um Evrópska efnahagssvæðið.
Fyrrgreindir þjóðréttarsamningar
sem tryggja verkfallsréttinn hafa
hins vegar ekki hlotið þessa með-
höndlun. Dómstólar geta því í
mesta lagi vísað til þeirra til skýr-
ingar á íslenskum lögum en ekki
vikið lögum til hliðar á grundvelli
þeirra.
Þetta er sagt í ljósi sögunnar en
FRÉTTIR
án spádóma um það hvort íslenskir
dómstólar muni einhvern tímann í
framtíðinni taka upp aðra stefnu.
Og rétt er að taka fram að áður en
mannréttindasáttmáli Evrópu var
lögleiddur voru íslenskh- dómstólar
í raun farnir að beita honum líkt og
hann hefði fullt gildi í innanlands-
rétti.
Mótsagnir
í þessu samspili milli innanlands-
réttar og þjóðaréttar er fólgin
ákveðin mótsögn sem erfitt er að
leysa úr. Annars vegar hefur Island
margskuldbundið sig á alþjóðavett-
vangi til að virða verkfallsréttinn
og takmarka hann ekki nema brýna
nauðsyn beri til. Hins vegar hafa
borgararnir engin lagaleg úrræði
til að láta á það reyna innanlands
hvort lög sem takmarka verkfalls-
réttinn fái staðist.
Það er líka spurning hvort það sé
yfirleitt mikill pólitískur vilji á Is-
landi til að gera verkfallsréttinum
hátt undir höfði. Annars vegar hef-
ur það verið allalgengt undanfama
áratugi að sett séu lög sem skerða
verkfallsréttinn. Hins vegar var
stjórnarskráin endurskoðuð árið
1995 og samþykkt með mikilii sam-
stöðu þingmanna í breyttu formi
með ítarlegum mannréttindakafla
án þess að verkfallsréttarins væri
þar getið. Hugsanlega er þarna á
ferðinni djúpstæð heimspekileg af-
staða Islendinga til verkfallsréttar-
ins í þá veru að hann sé ekki jafn-
mikilvægur og önnur svokölluð
mannréttindi.
En er ekki almennt talað við slík-
ar aðstæður heiðarlegi'a að gera þá
fyrirvara við alþjóðasamninga sem
menn telja nauðsynlega í stað þess
að skrifa umyrðalaust undir hvaða
skuldbindingar sem er sem menn
ætla svo kannski ekki að fara eftir?
I alþjóðasamvinnu er ekkert hvers-
dagslegra en að gera fyrirvara við
ákvæði sáttmála og má taka sem
dæmi Frakka sem gera við hvert
tækifæri fyrirvara við alþjóðasátt-
mála um vernd minnihlutahópa
enda eru þeir ekki tilbúnir að veita
þeim sérstaka vernd. Slík sam-
kvæmni er lofsverð sem slík þótt
tilefni hennar sé ekki til eftir-
breytni.
Af ofangreindu má álykta að ís-
lensk stjórnvöld hafa í raun mjög
frjálsar hendur um lagasetningu á
þessu sviði en þurfa eins og alltaí
að meta hin pólitísku áhrif innan-
lands og ennfremur ef því er að
skipta hversu þungt hugsanleg við-
brögð á alþjóðavettvangi eigi að
vega.
uxjmtpS
ISLENSK
knattspyrna
1994
Sértllbeðl!
SértilboðH
matreidslubækur Upphaflegt verð
Stóra pastabókin
Itölsk matreiðsla
Kínverskar uppskriftir
Mexíkósk matseld
Pastauppskriftir
2.880,-
980,-
980,-
980,-
980,-
inaslsekjarsett I
Uppnaflegt verS: 19.195,
Sértilboð:
4.975#-*
(allar bækurnar)
j\0
þ
Samtals
6.760,
Sértilboð:
2.950r*
allar bækurnar!!
0O«4/
Pasta
boKIN
íslensk knattspyrna
#90-#94
Upphaflegt verð: 17.920,-
Sértilboð:
| 2.490,-*
(allar bækurnar)
íslensk knattspyrnd
#85-#89
|| Upphaflegt verð: 14.420,-
Sértilboð:
-LAGE
2.490,-*
(allar bækurnar)
r ÁltM'JLl 23
Luuyurdu'j 14. íau. lU-lú
^ j'JiiiiyJuy 15. íab. 13-16
^^AlluvirkutluyuU-IU
ÍAJ^AIVJBOI J 'J3
Luuyurtluy 14. íait. IU-14
Allu virku duyu
Armula 23 og Laugavegi 103
Sími 588-2400 • Fax 588-8994