Morgunblaðið - 14.02.1998, Page 16
16 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Hæstiréttur
Dómur vegna kyn-
ferðisbrots staðfestur
Dótturfé-
lög sam-
einast
Samherja
ÁKVEÐIÐ hefur verið að bæði
dótturfélög Samherja hf. hér á
landi, Fiskimjöl og lýsi í Gr-
indavík og Friðþjófur á Eski-
firði, sameinist móðurfélaginu.
Sameiningin miðast við 31. des-
ember sl.
Samherji á öll hlutabréf í
báðum þessum félögum og eftir
sameiniguna er öll starfsemi
Samherja hf. innanlands í einu
félagi og undir einni stjórn.
Aðalfundur Samherja verður
haldinn fimmtudaginn 2. apríl
nk. en ráðgert er að birta af-
komutölur móðurfélagsins
föstudaginn 27. febrúar nk.
Tilboð yfír
kostnaðar-
áætlun
TVÖ tilboð bárust í fram-
kvæmdir við Sundlaug Akur-
eyrar, útboð 3 og voru þau bæði
yfir kostnaðaráætlun. Lægra
tilboðið var frá SJS verktökum
og hljóðaði upp á rúmar 117,7
milljónir króna, eða 101,5% af
kostnaðaráætlun.
Tilboð SS Byggis hljóðaði
upp á rúmar 124,6 milljónir
króna, eða 107,5% af kostnaðar-
áætlun sem var upp á rúmar
116 milljónir króna. Helstu
framkvæmdir eru utanhússfrá-
gangur nýbyggingar, innan-
hússfrágangur, vinna við úti-
klefa og fleira.
Framkvæmdin sldptist á tvö
ár en nýja laugarkerið verður
tekið í notkun næsta sumar.
Stefán Örn
leikur á selló
STEFÁN Örn Amarson selló-
leikari heldur einleikstónleika í
Listasafninu á Akureyri sunnu-
dagskvöldið 15. febrúar kl.
20.30 en þeir eru á vegum Tón-
listarfélags Akureyrár.
Á efnisskránni verða svítur
fyrir einleiksselló eftir Bach og
Benjamin Britten auk serenöðu
eftir Hans Werner Hanze.
Stefán Örn er fæddur í
Reykjavík árið 1969 og hóf
nám í Tónmenntaskólanum sjö
ára. Að loknu einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík, þar sem kennari
hans var Gunnar Kvaran, hélt
hann til framhaldsnáms til
Bandaríkjanna. Þar tók hann
mastersgráðu frá University of
Michigan þar sem aðalkennari
hans var Erling Blöndal
Bengtsson.
Konsert-
uppfærsla á
Show Boat
LEIKHÚSKÓRINN, Kór
Leikfélags Akureyrar, heldur
tónleika í Lóni við Hrísalund í
dag, laugardaginn 14. febrúar,
og á morgun, sunnudaginn, kl.
17 báða dagana.
Flutt verður konsertupp-
færsla af hinum vinsæla söng-
leik „Show Boat“ eftir Jerome
Kern og Oskar Hammerstein
II. Einsöngvarar eru Valgerður
Guðnadóttir, Guðlaugur Vikt-
orsson og félagar úr leik-
húskórnum. Sögurmaður er
Sunna Borg, undirleikari Ric-
hard Simm og stjórnandi Roar
Kvam.
Pelle
rófulausi
SÆNSKA kvikmyndin Pelle
Svanslös verður sýnd á vegum
Norræna félagsins í dag kl. 11
á Amtsbókasafninu á Akur-
eyri.
Myndin er með sænsku tali.
Á bóndabæ einum fæðast fimm
kettlingar og er einn þeirra
rófulaus. Tilviljanir ráða því að
einn dag er hann staddur í stór-
borginni og lendir þar í ýmsum
ævintýrum.
Snjór í
matinn
VINKONURNAR Auður Sif
og Tinna, sem eru á leik-
skólanum Flúðum, voru úti að
leika sér í snjónum í gærdag.
Þær renndu sér á snjóþotu
niður brekkumar en brögð-
uðu líka örlítið á snjónum.
Ekki tekur snjóinn upp í dag,
spáð er vestan stinnings-
kalda og vægu frosti.
HÆSTIRÉTTUR staðfesti á
fimmtudag dóm gegn sextíu og
tveggja ára kai’lmanni í Suður-Þing-
eyjarsýslu sem var dæmdur í fimmt-
án mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Norðurlands fyrir að hafa þrívegis í
byrjun árs 1997 framið kynferðisbrot
gagnvart stúlku. Stúlkan var tæplega
fimm ára þegar brotin voru framan.
Áreitnin átti sér stað á heimili
mannsins en þar hafði stúlkan verið
vistuð af barnavemdarnefnd Hafn-
arfjarðar. Maðurinn og eiginkona
hans hafa um árabil tekið við fjöl-
mörgum börnum til skammtímavist-
unar fyrir félagsmálayfirvöld.
Ríkissaksóknari skaut máhnu til
Hæstaréttar og krafðist þess að refs-
ing yrði þyngd. I dómi Hæstaréttar
segir að því sé réttilega lýst í dómi
Héraðsdóms hvers beri helst að gæta
við ákvörðun viðurlaga vegna brot-
anna og til þess litið meðal annars að
ákærði hafði átt flekklausan feril
fram að því er atvik málsins gerðust.
„Ber að staðfesta ákvörðun héraðs-
dómara um refsingu með skírskotun
til forsendna hennar og á dómurinn
að vera óraskaður."
HMIMI i 1 > 1'iM1 iii |
HAB ) fimán 1 - í fímbulkulda
- Nýjung ffá HA6 saumastofii
- Svar útivistarmanns- ins viö vetrinum
- fimm notkunar- möguleikar
Flísfatnaður í úrvali, s.s. jakkar, buxur, vinnupeysur, treflar, lúffur, eyrnabönd, margar gerðir af húfum, ungbarna- pokar og gallar o.m.fl., bæði einlitt og munstrað. „Aladín töfrateppiö" er teppi sem breyta má í púða (og öfugt). Hestaábreiður og hettur undir hjálma. Póstsendum hvert á land sem er. Ath.: Saumum jafnt fyrir ein- staklinga, hópa og verslanir.
Saumastofan HAB Árskógsströnd, 621 Dalvík
sími 4661052, fax 4661902.
Messur
AKUREYRARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun,
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11,
biblíudagurinn, barnakór syngur.
Æðruleysismessa kl. 20.30, en hún
er tileinkuð 12 spora leið AA og
æðruleysisbæninni, molasopi og
biblíusýning í safnaðarheimili eftir
guðsþjónustu, tekið við framlög-
um til Biblíufélagsins. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 17 í kapellu.
Biblíulestur í safnaðarheimili kl.
20.30 með séra Guðmundi Guð-
mundssyni héraðspresti.
Mömmumorgunn í safnaðarheimili
kl. 10 til 12 á miðvikudag, fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 17.15 í
kirkjunni.
DALVÍKURPRESTAKALL:
Barnamessa í Dalvíkurkirkju kl. 11
á morgun í Dalvíkurkirkju. Guðs-
þjónusta í Tjarnarkirkju kl. 13.30 á
sunnudag.
GLERÁRKIRKJA: Kirkjuskóli
bamanna er kl. 13 í dag, laugar-
dag. Guðsþjónusta kl. 14 á sunnu-
dag. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl.
18 á þriðjudag. Hádegissamvera kl.
12 til 13 á miðvikudag, léttur máls-
verður í safnaðarsal að helgistund
lokinni.
H.IÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, almenn
samkoma kl. 17 og unglingasam-
koma kl. 20. Heimilasamband kl.
15 á mánudag, hjálparflokkur kl.
20.30. Á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag í næstu viku verða sam-
komur með sænsku hjónunum Ma-
isan og Ingemar Myrin.
HRISEYJARPRESTAKALL:
Æskulýðsmót fer fram í Hrísey um
helgina. Helgistund verður kl. 10 í
dag, laugardag. Hugleiðingur flyt-
ur Carlos A. Ferrer og unglingar
frá æskulýðsfélagi Blönduóskirkju
syngja. Helgistund verður einnig
kl. 22. Sr. Gunnlaugur Garðarsson
flytur hugleiðingu. Guðsþjónusta
verður kl. 10.30 á sunnudag. Sr.
Kristján Björnsson predikar og sr.
Hulda Hrönn M. Helgadóttir þjón-
ar fyrir altari. Unglingar frá æsku-
lýðsfélagi Hvammstangakirkju
lesa ritningarlestra og unglingar
frá æskulýðsfélagi Stærra-Ar-
skógskirkju flytja helgileik. Yfir-
skrift mótsins er ,Á sama báti“.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brau
ðsbrotning kl. 11 á morgun, Stella
Sverrisdóttir predikar. Fjölskyldu-
samkoma kl. 14, G. Theódór Birg-
isson predikar, krakkakirkja og
barnapössun. Bænastundir alla
daga, krakkaklúbbur miðvikudag
kl. 17.15, unglingasamkoma kl.
20.30 á föstudag og karlamorgunn
kl. 10. Vonarlínan: 462-1210.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11 á Eyrarlandsvegi
26.
KFUM og K: Bænastund kl. 20 á
sunnudag. Fundur í yngri deild kl.
17.30 á mánudag.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
'Mfessa í Grundarkirkju kl. 10.30 á
sunnudag og sama dag er messa í
Kristnesspítala.
Bæjarmálafundu Bæjarmálafundur verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 16. febrúar kl. 20.30. Bæjarmálafundir eru öllum opnir. BtejarmálaráS Sjálfstaðisflokksins. r
Til sölu
við Mývatn
Til sölu er húsnæði það sem áður hýsti skólann
á Skutustöðum á bökkum Mývatns.
Húsið var byggt árið 1959 og er steinsteypt.
Flatarmál hússins er 805 fm og rúmmál þess er
2460 rúmmetrar. Lóðin sem húsið stendur á er
skipulögð sem stofnana eða þjónustusvæði.
Tilboðum skal skilað til sveitarstjóra
Skútustaðahrepps, Hlíðarvegi 6, 660 Reykjahlíð
fyrir 12. mars n.k.
Tilboðin skulu merkt Skútustaðaskóla.
í tilboðunum komi fram hugmyndir um verð og
greiðslutilhögun. Ennfremur komi fram hug-
myndir um notkun húsnæðisins í framtíðinni.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu sveitarstjóra
þann 12. mars kl. 13.30. Skútustaðahreppur
áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í símum
464 4163 (vs) og 464 4454 (hs).
Sveitarstjóri Skútustaðahrepps.