Morgunblaðið - 14.02.1998, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Borgarnes
10% lækk-
un heita
vatnsins
BÆJARSTJÓRN Borgarbyggðar
hefur ákveðið að lækka vatnsgjald á
heitu vatni frá Hitaveitu Borgarness
um 10% frá 1. mars næstkomandi.
Lækkun vatnsgjaldsins er ákveðin
í framhaldi af 5% lækkun á vatni frá
Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar
sem annast heitavatnsöflun og rekst-
ur aðveituæða fyrir Akranes og
Borgames. Sú lækkun tók gildi um
síðustu áramót. „Tekið var myndar-
lega á þessum málum þegar veitu-
málin voru endurskipulögð árið 1995.
Hitaveita Borgarness er skuldlaus og
reksturinn hefur gengið með þeim
hætti að þessi lækkun er möguleg,"
segir Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri
í Borgamesi.
Hitunarkostnaður hefur
lækkað umtalsvert
Hitunarkostnaður í Borgamesi
hefur lækkað umtalsvert frá því
skipulagsbreytingar voru gerðar á
veitumálum í Borgarnesi en þá var
hitaveitan í hópi dýmstu veitna á
landinu. Vatnsgjaldið er nú tæpar 67
kr. rúmmetrinn og að mati bæjar-
stjórans er kostnaður einstaklinga
orðinn mjög viðráðanlegur.
Kosið um
sameiningu
í Mýrasýslu
ÍBTJAR sveitarfélaganna í Mýra-
sýslu, Alftaneshrepps, Borgarbyggð-
ar, Borgarhrepps og Þverárhlíðar-
hrepps, ganga til kosninga um sam-
einingu sveitarfélaganna í dag, laug-
ardag.
I Borgarnesi hefst atkvæða-
greiðsla klukkan 10 og er kosið í
grunnskólanum. Annars staðar hefst
kjörfundur klukkan 12. íbúar Borg-
arbyggðar í Hraunhreppi kjósa í
Lyngbrekku en íbúar í Norðurárdal
og Stofholtstungum í Þinghamri.
I Alftaneshreppi er einnig kosið í
Lyngbrekku en kjörstaður íbúa
Borgarhrepps er í Valfelli. íbúar
Þverárhlíðarhrepps kjósa í sam-
komuhúsinu við Þverárrétt.
Kjörfundi á öllum stöðunum lýkur
eigi síðar en klukkan 22 og hefst taln-
ing eftir að kjörfundi lýkur. Atkvæði
íbúa Borgarbyggðar verða öll talin á
bæjarskrifstofunni í Borgarnesi en
atkvæði í öðmm hreppum verða talin
á kjörstöðum.
Um síðustu áramót vom 2.384 íbú-
ar í sveitarfélögunum fjómm. I
sveitahreppunum þremur búa 70 -
130 manns, fæstir í Þverárhlíð, en
2.083 íbúar era í Borgarbyggð, sveit-
arfélaginu sem varð til þegar Borgar-
nes, Hraunhreppur, Stafholtstungna-
hreppur og Norðurárdalshreppur
sameinuðust íyrir fjórum áram.
---------------------
Sjálfstæðismenn
Uppstill-
ing í Isa-
fjarðarbæ
PULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélag-
anna í Isafjarðarbæ hefur ákveðið að
hætta við auglýst prófkjör flokksins
vegna næstu bæjarstjómarkosninga.
Prófkjörið átti að fara fram 21.
þessa mánaðar og var við það miðað
að kjósendur gætu valið á milli að
minnsta kosti tólf frambjóðenda. Að-
eins fjórir gáfu kost á sér og ákvað
fulltrúaráðið þess vegna að hætta við
prófkjörið og kjósa sjö manna upp-
stillingarnefnd til að gera tillögu að
skipan listans.
LAUGARDAGUR 14. FEBRUAR 1998
PHILIPS
- alltaf ódýrast hjá okkur
■■■■■■■■■■■■ ' - ■■■■
KpiltS®Sf}##)ítl^|ílSSÍil
PHILIPS 28“ PT 7103-100Hz
Með Black Line S og Incredible Sound
Kr. 99.900 stgr.
PHILIPS 29“ PT 8303 100Hz
Með Black Line S, Digital Scan og Incredible Sound
Kr. 142.500 stgr.
PHILIPS VR 665
NICAM STEREO myndbandstæki
Með Long Play
Kr. 47.400 stgr.
Kauptu núna!
Borgaðu seinna!
Heimilistæki og Visa ísland bjóða viðskiptavinum
sínum einstök kjör á raðgreiðslum:
Ef þú greiðir vöruna með VISA raðgreiðslum
getur þú samið um að greiða fyrstu greiðsluna í júní.
V7SA
RAÐGREIÐSLUR
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
umboðsmenn um land allt
ATH! Ef greitt er með raðgreiðslum bætist kostnaður við verð tækjanna.
■■■