Morgunblaðið - 14.02.1998, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Síldarvinnsla Ei th/ f
Úr reikmngum ársins 1997
Rekstrarreikningur Miiijonir króna 1997 1996 Breyting
Rekstrartekjur 4.122 3.539 +16,5%
Rekstrarqjöld 3.308 2.913 +13.6%
Hagnaður fyrir afskriftir 814 626 +30,0%
Afskriftir 342 233 +46,8%
Fjármagnsgjöld 143 50 +186.0%
Haqnaður af reqluleqri starfsemi 329 343 -4.1%
Hagnaður ársins 332 475 -30.1%
Efnahagsreikningur 31. des.: 1997 1996 Breyting
| Eignir: | Milljónir króna
Veltufjármunir 1.044 920 +13,5%
Fastafjármunir 4.366 3.577 +22,0%
Eignir samtals 5.410 4.497 +20.3%
I Skuldir oa eiaiO fé: I
Skammtímaskuldir 745 1.009 -26,2%
Langtímaskuldir 2.003 1.828 +9,6%
Tekjuskattsskuldbinding 168 20 +740,0%
Eigiðfé 2.494 1.640 +52,1%
Skuldir og eigið fé samtals 5.410 4.497 +20.3%
Kennitölur og sióðstreymi 1997 1996 Breyting
Eiginfjárhlutfall 46% 36%
Arðsemi eigin fjár 17% 47%
Veltufé frá rekstri Milljónirkróna 631 497 +27,0%
Rekstrartekjur Síldarvinnslunnar
hækkuðu um 16% milli ára
Hagnaðurinn nam
332 milljónum króna
Allianz sækir um leyfi til að reka séreignarlífeyrissjóð hérlendis
Slysa- og söfnunarlíf-
trygging í einum pakka
Morgunblaðið/Ami Sæberg
GREINILEGT er að Allianz ætlar sér stóran hlut á íslenska trygginga-
markaðnum. F.v.: Jiirgen-Bernd Schiemann, svæðisstjóri Allianz á ís-
landi, Atli Eðvaldsson og Guðjón Kristbergsson, framkvæmdastjórar
Allianz á Islandi.
HAGNAÐUR af rekstri Sfldar-
vinnslunnar hf. nam 332 milljónum
króna, samanborið við 475 milljónir
árð áður og minnkar hagnaðurinn
um 30% á milli ára. Mismunur í af-
komu milli ára liggur íyrst og
fremst í auknum skattskuldbinding-
um, að því er fram kemur í frétt frá
fyrirtækinu.
Hagnaður fyrir skatta nam 494
milljónum króna í fyrra en var met
árið 1996, 498 millj. króna. Reiknað-
ur tekjuskattur og eignaskattar
hækkuðu hins vegar úr 29 millj. kr.
árið 1996 í 164 millj. kr. fyrir árið
1997.
Rekstrartekjur námu alls 4.122
milljónum króna í fyrra og hækk-
uðu þær um 16% frá árinu áður. Að
meðtöldum innlögðum eigin afla
nam heildarvelta félagsins um 4,8
milljörðum króna.
Eigið fé félagsins í árslok var
2.494 milljónir króna. Eiginfjárhlut-
fallið jókst á árinu úr 36% í ársbyrj-
un í 46% í árslok. Arðsemi eigin fjár
á árinu var 17%.
Veltufé frá rekstri var 631 milljón
króna samanborið við tæpar fímm
hundruð millj. kr. árið áður. Veltu-
fjárhlutfall í árslok var 1,4.
Aðalfundur félagsins verður hald-
inn laugardaginn 14. mars og þar
mun stjóm félagsins leggja til að
greiddur verði 7% arður til hlut-
hafa. Hluthafar í árslok voru 964.
Launagreiðslur námu rúmum
milljarði í fyrra
Hjá félaginu starfa að meðaltali
360 starfsmenn. Heildarlauna-
greiðslur til þeirra námu 1.020 millj-
ónum króna á sl. ári og er það í
fyrsta skipti í sögu félagsins sem
launagreiðslur nema meira en ein-
um milljarði króna.
Síldarvinnslan hf. gerir út einn ís-
fisktogara, tvo frystitogara og tvö
nótaskip og í landi rekur félagið
frystihús, loðnuverksmiðju, saltfisk-
verkun og sfldarsöltun auk stoð-
deildar.
ÞÝSKA tryggingasamsteypan Alli-
anz hyggst reka séreignarlífeyris-
sjóð hér á landi þegar ný lög um
starfsemi lífeyrissjóða taka gildi 1.
júlí næstkomandi og bjóða einstak-
lingum að ávaxta frjáísan lífeyris-
spamað í honum. Hingað til hefur
söluumboð Allianz hérlendis eink-
um selt söfnunarlíftryggingar en
það býður einstaklingum nú einnig
að fjárfesta í verðbréfasjóðum Alli-
anz. Að auki býður það einstakling-
um slysatryggingu og spamað í
einum pakka.
Allianz var stofnað í Þýskalandi
árið 1890 og er nú rekið sem sam-
steypa tryggingafélaga, banka,
fjárfestingarfélaga og lífeyris-
sjóða en sérstakt umboð annast
sölu á þjónustu þess hérlendis.
Það er líftryggingafélag sam-
steypunnar, Allianz Lebens-
versicherungs-AB sem hefur sótt
um leyfi til að reka séreignalífeyr-
issjóð hérlendis í samræmi við
ákvæði nýrra laga um starfsemi
lífeyrissjóða, sem taka gildi 1. júlí
næstkomandi. Samkvæmt lögun-
um er öllum skylt að greiða fram-
lög í lífeyrissjóð.
Fyrir nokkmm árum bryddaði
Allianz upp á þeirri nýjung á
þýskum tryggingamarkaði að
flétta saman spamað og slysa-
tryggingar. Með slysatryggingu
fyrirtækisins er hægt að tryggja
sig gegn fjárhagsörðugleikum,
sem verða vegna afleiðinga slysa,
en jafnframt að spara fjármuni til
framtíðar.
Iðgjaldið
endurgreitt
Atli Eðvaldsson og Guðjón
Kristbergsson, framkvæmdastjór-
ar söluumboðs Allianz á Islandi,
segja að viðskiptavinir geri samn-
ing við félagið um greiðslur í tiltek-
inn tíma og með iðgjaldinu safni
hinn tryggði einnig í séreignarsjóð
til framtíðar. „Við lok samningsins
endurgreiðist allt iðgjaldið þannig
að tryggingartaki fær séreignar-
sjóð sinn endurgreiddan ásamt
vöxtum í formi skattfrjálsrar ein-
greiðslu og gildir þá einu hvort
greiddar hafa verið út slysabætur
einu sinni eða oftar. I tryggingunni
felast örorkubætur, sem em allt að
fjórfaldar á við örorkubætur ís-
lenska tryggingakerfisins, sjúkra-
húsdagpeningar, greiðslur til að-
lögunar eftir sjúkrahúsvist og
aukagreiðslur vegna fjarvem úr
vinnu. Engin aldurstakmörk em á
tryggingunni og hún fellur ekki úr
gildi við slys eða örorku. Þá býður
Allianz sérstaka viðbót við trygg-
inguna sem nefnist eiginfjármögn-
un. Hún hentar einkum ungu fólki
og einstæðingum því að við alvar-
legt slys tekur Allianz við greiðsl-
um á iðgjaldi hins tryggða til loka
samnings. Ekki þarf því að draga
úr tryggingavemd eða spamaði
þótt slys verði. Endurgreiðsla ið-
gjaldsins og ávöxtunin er áfram
tryggð og inneignin heldur áfram
að aukast.“
Góð ávöxtun verðbréfasjóða
Nýlega hóf Allianz einnig að
bjóða kaup í verðbréfa- og hluta-
bréfasjóðum hérlendis. Fram-
kvæmdastjórarnir segja að þessir
sjóðir hafi náð góðum árangri á
undanfórnum ámm. „Fjárfesting-
arbanki fyrirtækisins, Allianz
Kapitalanlagegesellschaft, hefur
nú yfirumsjón með yfir 30 millj-
örðum þýskra marka (1.200 millj-
arðar króna) og með aðild að sjóð-
um þess veitum við viðskiptavin-
um aðgang að fæmstu fjármála-
sérfræðingum Evrópu. Avöxtun
sjóðanna er misjöfn eftir áhættu
en þeir skiluðu mjög góðri rauná-
vöxtun á síðasta ári eða allt að
45%.“
Islendingar að vakna
til vitundar um
mikilvægi líftrygginga
Júrgen-Bernd Schiemann svæð-
isstjóri Allianz á Baden-Wurtem-
berg svæðinu, sem ísland heyrir
undir, segir að honum lítist vel á ís-
lenska tryggingamarkaðinn. „Sölu-
umboð okkar hérlendis var opnað
árið 1995 og á þeim tíma höfum við
gert 1.500 samninga. Hlutfall líf-
trygginga er mun lægra á íslandi
en í Þýskalandi en ég tel að íslend-
ingar séu nú í ríkum mæli að vakna
til vitundar um mikilvægi líftrygg-
inga og ekki síður kosti söfnunar-
trygginga. Talið er að um 60%
Þjóðverja hafi líftryggingu en hlut-
fallið er líklega aðeins um 15% hér-
lendis."
Aðeins era þrjú ár síðan Allianz
hóf að bjóða slysatryggingu með
innifóldum spamaði í Þýskalandi
að sögn Schiemanns. „Henni hefur
verið tekið afar vel og nú em um
5% Þjóðverjar með slíka trygg-
ingu.“
Samheiji hf.
Dótturfélög sameinuð
móðurfyrirtækinu
DÓTTURFÉLÖG Samherja,
Fiskimjöl og lýsi í Grindavík og
Friðþjófur á Eskifirði, hafa verið
sameinuð móðurfélaginu. Samein-
ingin miðast við 31. desember sl.
Samherji hf. á öll hlutabréfin í
báðum félögunum, að því er kem-
ur fram í frétt frá fyrirtækinu.
Eftir sameininguna er öll starf-
semi Samherja innan lands í einu
félagi og undir einni stjóm.
Aðalfundur Samherja verður
haldinn fimmtudaginn 2. apríl
næstkomandi.
»1998
9 9 8