Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAJÐIÐ
ANNA BIRNA
BJÖRNSDÓTTIR
+ Anna Birna
Björnsdóttir
fæddist á Stóra-
Steinsvaði í Hjalta-
staðaþinghá 28.
september 1921.
Hún lést á Landspít-
alanum hinn 30. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Grím-
laug Margrét Guð-
jónsdóttir og Björn
Björnsson frá
Rangá. Þau eru
bæði látin. Þau eign-
uðust 15 börn og ólu
að auki upp dótturdóttur. Systk-
ini Önnu Birnu eru: Pétur, lát-
inn, Sigmar, látinn, Guðbjörg,
látin, Björn Hólm, búsettur aust-
ur á Héraði, Elsa Petra, búsett á
Siglufirði, Aðalbjörg, búsett í
Jökulsárhlíð, Einar Sigurjón,
látinn, Helga, látin, Sigurborg,
látin, Jóna, búsett í Reykjavík,
Skúli, látinn, Guðjón Valur, bú-
settur á Eskifirði, Birgir, búsett-
ur á Höfn í Hornafirði, Birna,
uppeldisdóttir, dóttir Unnar
Margrétar, hún býr í Vopnafirði.
Anna Birna var fjórða í röð
systkinanna.
Anna Birna fór í fóstur að
Klúku til Ólafs Þorkelssonar frá
sjö ára aldri til 12 ára. Þá fór
hún til foreldra sinna sem voru
flutt að Eyrum við Seyðisfjörð.
Þar kynntist hún eiginmanni
sínum Jóhanni Jónssyni kenn-
ara, f. 27. sept. 1918, d. 1. apríl
1994. Þau hófu búskap 1. júní
1940, skömmu eftir trúlofun sína
að Sjávarborg, Eyrum við Seyð-
isfjörð. Þar var líka til heimilis
móðir Jóhanns, Sesselja Sigur-
Elskuleg móðir mín, Anna
Birna Björnsdóttir, er látin. Þeg-
ar Magga systir hringdi í mig út
til Tulsa þá brá mér svolítið, en ég
vissi að hverju stefndi. Síðasta
skiptið er ég sá þig þá varst þú yf-
ir komin af þrautum og orðin
þreytt en samt fór ég út. Jú, mín
kæra, þú lést mig lofa þér að ég
skyldi halda mínu striki og ekki
hætta við að flytja til Bandaríkj-
anna því ég væri löngu búin að
ákveða að flytja og þú færir ekki
fyrr. Eins og alltaf þá hlustaði ég
þig. Nú erum við báðar land-
nemar í nýju landi.
Þú varst góð móðir, ákveðin og
borg, sem var ekkja.
Síðar keyptu þau hús-
ið Háeyri á sama stað
og bjuggu þar til árs-
ins 1960. Þá fluttu þau
suður. Fyrst lá leiðin í
Garðabæ en skömmu
síðar suður í Garð.
Fyrstu árin voru þau
á efri hæð Gerða-
skóla, en byggðu síð-
an Sunnubraut 9 í
Garði en þangað
fluttu þau árið 1964
og áttu heimili sitt
þar meðan heilsa
leyfði.
Börn Önnu Birnu og Jóhanns
eru: 1) Ásta Borg, f. 5.7. 1940,
gift Ragnari Christiansen, búsett
í Hveragerði, og eiga þau fjögur
börn: Önnu Birnu, Lárus Þór, Jó-
hann Guðna, og Fanneyju Elísa-
betu. 2) Björn Bergmann, f. 6.3.
1945, kvæntur Önnu Svein-
björnsdóttur, búsettur að Lyng-
ási Rangárþingi, og eiga þau
tvær dætur: Kolbrúnu, sambýlis-
maður hennar er Helgi Guð-
mundsson, og eiga þau eina dótt-
ur Sigríði Önnu; Hrafnhildi gifta
Gils Jóhannssyni og eiga þau
tvær dætur, Unni Bergmann og
Kolbrúnu Bergmann. Áður átti
Björn tvo syni með Bergþóru
Guðbergsdóttur; Björn Viðar en
sambýliskona hans er Birna
Björnsdóttir og eiga þau þrjú
börn, Bergþóru, Björn Sævar og
Berglindi; Guðberg en hann á
einn son, ísak Frey, með Hafdísi
Sigurðardóttur. Unnusta Guð-
bergs er Kristín Birna. 3) Mar-
grét, f. 13.9. 1946 gift Guðmundi
Haraldssyni, búsett í Keflavík og
eiga þau tvö börn; Jóhann Birni
hreinskiptin og vildir hafa reglu á
hlutunum. Oft lenti okkur saman
en yfirleitt vorum við fljótar að
jafna okkur. Þú varst frábær hús-
móðir, þú bakaðir mjög góðar
kökur, sérstaklega var perutertan
þín vinsæl og um hana var jafnvel
slegist. Einnig kemur vatn í
munninn þegar ég hugsa um vín-
arbrauðin og vegabrauðið. Einnig
varst þú góður kokkur. Sunnu-
dagssteikin þín var sú besta og af-
gangar á mánudögum drógu
barnabörnin til þín í mat. Blóm
voru í miklu uppáhaldi hjá þér,
enda stofan full af blómstrandi
blómum, t.d. Hawai-rósir og
og Unni Lindu, gifta Finnbirni
Finnbjörnssyni, eiga þau eina
dóttur, Kristu Maríu. 4) Guðný
Helga, f. 18.9. 1947, gift Unn-
steini Agli Kristinssyni, búsett
í Garði, eiga þau þrjú börn:
Egil kvæntan Gunnrúnu Theó-
dórsdóttur og eiga þau einn
son fvar; Önnu og Þóri. Áður
átti Guðný Jóhönnu Berglindi
með Kristjáni Hermannssyni.
Hún á þijú börn: Guðnýju Rós,
Lenu Margréti og Valgeir Örn
Hinriksbörn. 5) Ólafur Ómar,
f. 31.12. 1951, sambýiiskona
hans er Gudny Rannveig Reyn-
isdóttir, þau eru búsett í
Reykjavík. Áður átti Ómar
eina dóttur, Sesselju Sigur-
borgu, með Ingu S. Stefáns-
dóttur. Unnusti Sesselju er
Halldór Eyjólfsson. Uppeldis-
sonur Ómars, sonur Guðnýjar,
er Lúðvík Kjartan. 6) Unnur, f.
7.6. 1953, sambýlismaður
hennar er Guðmundur I. Birg-
isson, þau eru búsett að Núp-
um í Ölfusi og eiga eina dótt-
ur, Eddu Sonju. Áður átti Unn-
ur Kára, faðir Steinn Kárason,
og Önnu Birnu, faðir Björn
Sveinsson. 7) Þórný, f. 9.11.
1960, gift Ólafi Ólafssyni, bú-
sett í Bandaríkjunum, hún á
einn son, Jón Bergmann Heim-
isson.
Auk húsmóðurstarfa vann
Anna Birna um árabil við
ræstingar í Gerðaskóla en frá
árinu 1985 til 1992 vann hún
við eldhússtörf á hjúkrunar-
heimilinu Garðvangi. Anna
Birna lét félagsstörf til sín
taka og var hún lengi félags-
kona í kvenfélaginu Gefn. Hún
var gerð að heiðursfélaga þess
1997. Anna Birna fluttist á
Garðvang 1996 og átti heimili
þar síðustu æviár sín.
Utför Önnu Birnu verður
gerð frá Útskálakirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
begóníur sem voru í blóma lengur
en hjá flestöllum öðrum. Þú undir
þér tímunum saman við garðrækt,
fórst út um víðan völl að ná í blóm
og var garðurinn þinn mjög fal-
legur. En svo herjaði á þig astmi
og þú gast ekki lengur haft blóm
eða hugsað um garðinn þinn. Það
fékk mikið á þig. Þú varst hlé-
dræg kona sem barst ekki tilfinn-
ingar þínar á torg. Þegar pabbi
lést fluttir þú til mín. Oft var
gaman, en líka erfitt. Þú varst
orðin mjög lasin og það tók á
taugarnar hjá okkur báðum, en
Nonni þinn hjálpaði þér við að
halda áfram.
Það var erfitt að láta þig fara á
Garðvang, þinn gamla vinnustað,
en þar hafðir þú umönnun allan
sólarhringinn. Þú veiktist mikið og
oft héldum við að nú væri komið að
kveðjustund. En lífsvilji þinn kom
okkur oft á óvart, alltaf komst þú
heim aftur, sem betur fer. En síð-
ast þegar þú fórst, komstu ekki
heim, heldur kom pabbi loksins að
sækja þig. Kannski ræktið þið stór-
ar Hawai-rósir handan við lífshlið-
ið.
Þegar ég hugsa til þín þá sakna
ég þess að heyra ekki í þér og fá
ráðleggingar, en samt gleðst ég í
hjarta mínu yfir því að þú ert laus
úr þjáningunni og getur hlaupið
um án þess að hafa súrefniskútinn
við hlið þér, því ég veit að hvert
andartak var kvalarfullt, en þú
kvartaðir ekki.
Það var mér mikið gleðiefni er
ég heiðraði þig fyrir hönd kvenfé-
lagsins 9. desember sl. Þú varst
stolt þegar þú tókst við heiðurs-
skjalinu, en samt fannst þér þú
ekki verðug, alltaf jafn hógvær.
Eg, Olli og Nonni erum með
ykkur í huganum og sendum ykkur
kærleiksljós.
Ég vil þakka starfsfólki Garð-
vangs, starfsfólki Vífilsstaðaspít-
ala, lungnadeild, og starfsfólki á
deild 12G á Landspítalanum fyrir
frábæra umönnun og hlýhug til
mömmu og okkar allra, einnig hin-
um góðu vinum hennar fyrir um-
hyggju og að þeir gáfu sér tíma til
að koma og heimsækja hana. Hún
mat það mjög mikils.
Guð blessi ykkur öll.
Elsku mamma mín, far þú í friði.
Þín dóttir,
Þórný.
Mamma mín, loksins kom pabbi
að sækja þig, þú varst orðin lang-
þreytt á að bíða eftir því. Þetta
sagðir þú okkur systrum er við sát-
um hjá þér síðustu dagana á Land-
spítalanum, þú tengdir okkur alltaf
saman: „Magga og Lóa,“ sagðir þú
sífellt og rifjuðust upp gamlar
minningar þegar við vorum litlar
stelpur heima á Eyrunum.
Við munum alla kjólana sem þú
saumaðir á okkur en minnisstæð-
astir eru hvítu náttkjólamir, skó-
síðir með púffermum. Okkur
fannst við eins og englar þegar við
vorum komnar í þá. Ékki má
gleyma „bænapilsunum" sem við
fengum íyrir páska. Við skírðum
öll okkar föt; húsakjólamir, próf-
kjólar og fleira í þeim dúr. Og
stundum laumuðust tvær litlar
stúlkur í stígvélum og náttkjólum
út í sumarblíðuna eldsnemma þeg-
JLAxel Guðjónsson
| fæddist í Byggð-
arholti á Búðum á
Fáskrúðsfirði 17.
janúar 1928. Hann
lést í Landspítalan-
j um 3. febrúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Guðjón
Bjarnason og Ólafía
Björg Jónsdóttir í
Byggðarholti á Búð-
um á Fáskrúðsfirði.
Guðjón og Ólafía
eignuðust 12 börn
saman en tvö börn
átti Ólafía fyrir.
Árið 1956 flutti Axel á Hell-
issand þar sem hann kynntist eft-
Friðsæld í heimi þagnar
; er varir án orða
oghugfanginauguhorfa
á glitrandi geisla sólar
1 silfra öldur hafsins
sleikja brimsorfna kletta
meðan andvarinn Ijúfi
syngur mildum tónum
á morgundögg blóma
viðræturjökuls.
Undir bláum himni
sveima hvítir fuglar
irlifandi konu sinni,
Jóhönnu Davíðsdótt-
ur frá Neðri-Harra-
stöðum í Skaga-
hreppi, A-Hún. For-
eldrar hennar voru
Davíð Sigtryggsson
og Anna Gísla- dótt-
ir. Axel og Jóhanna
eignuðust þrjá syni
saman en fyrir átti
Jóhanna dóttur, sem
Axel gekk í föður-
stað. Barnabörn
þeirra eru 13.
Útför Axels fer
fram frá Ingjalds-
hólskirku í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
eins og litlir englar
á vængjum morpnroðans
í heimi friðsældar
(Agnar H.)
Á kveðjustundum sem þessari
verður okkur oft orða vant. Hugur-
inn geymir svo margt er leitar
fram og tregt verður tungu að
hræra. Harmur er að huga kveðinn
þegar kær tengdafaðir minn er
burt kallaður eftir hetjulega bar-
áttu við lungnasjúkdóm. Minning-
armyndir kærra kynna skjóta upp
kolli ein af annarri. Fyrsta ferðin á
heimili tilvonandi tengdaforeldra
minna á Hellissandi. Hlýjar mót-
tökur með sterkri tilfinningu um að
þetta væri minn staður, mitt fólk.
Þétt handtak Axels, sem bauð
borgarbamið hjartanlega velkomið
í kyrrðina undir Jökli. Þessa vold-
ugu kyrrð sem Island á svo mikið
af fyrir þá sem skynja, kyrrð sem
gerir okkur kleift að heyra okkar
eigin hjartslátt. Ég fann kyrrðina
sem hann talaði um og fluttist um
tíma á Hellissand og stofnaði mitt
heimili hjá tengdaforeldrum mín-
um. Þar vantaði ekki stuðninginn
og hjálpina, enda eðlisþættir Axels
hjálpsemi, vinátta og þrautseigja.
Mér var alla tíð veitt ljúft liðsinni
þar sem þess var mest þörf og
aldrei um endurgjald spurt. Omet-
anlegt var það ungum manni sem
þar var að hefja lífsbaráttu sína að
hafa svo góðan stuðning sem
tengdafaðir minn var mér. Þar
sannaðist, hvað ungur nemur gam-
all temur. Þannig var Axel mér alla
tíð í vináttu, sem aldrei bar skugga
á.
Axel bar tilfinningar sínar ekki á
torg, en þeir sem þekktu hann vel
fundu hjá honum hlýtt og gjöfult
hjarta. Lífshamingja Axels var eig-
inkona hans Jóhanna, böm þeirra
og bamabörn. Hvergi undi hann
sér betur en á heimilinu sínu í
þeirra hóp. Eftir langt og gott ævi-
starf til sjós og lands fór heilsu
hans hrakandi hin síðari ár. I veik-
indum sínum sýndi Axel eins og
alltaf áður mikla þrautseigju og
lífsvilja. Aðdáunarvert var að fylgj-
ast með tengdamóður minni, sem
með einstakri umönnun og hjúkrun
gerði honum kleift að dveljast á
heimili þeirra þar sem hann undi
sér best allt fram á síðustu daga.
Óhætt er að segja að þar hafi hún
unnið mikið kraftaverk.
Kæri tengdapabbi. Þú vannst
margar orrastur í stríði, sem í raun
gat ekki endað nema á einn veg
þrátt fyrir hetjulega baráttu, lífs-
vilja þinn og kraft. Ég mun ætíð
minnast þín með virðingu sem mik-
illar hetju. Við, sem eftir sitjum,
geymum minningu þína í hjörtum
okkar alla tíð. Hafðu þökk fyrir
allt.
Agnar Hannesson
Sumarið líður. Sumarið líður.
Pað kólnar og kemur haust.
Bylgjumar byija að ólga
og brotna við naust.
Afliminufýkurlaufið.
Bömin breyta um svip.
Fuglamir kveðja. í festamar toga
hin friðlausu skip...
AXEL
GUÐJÓNSSON
ar enginn var vaknaður nema sólin
og blómin. Ekki fengum við
skammir þótt kjólarnir væra ekki
tandurhreinir. Við fengum að leika
okkur alls staðar inni. Þá lögðum
við undir okkur stofuna í spýtu-
kalla- eða dúkkulísuleik. Eða þeg-
ar amma sendi okkur gömlu
saumavélina, hvað við voram
heppnar að hafa góðan kennara
sem kenndi okkur vandvirkni. Ófá-
ir voru hlutirnir sem þú gafst okk-
ur í búið okkar, svo að það yrði nú
fínt hjá okkur.
Það var gaman að fara með þér í
heimsóknir. Þú klæddir þig upp og
við krakkamir voram öll fín og
snyrtileg til fara. Eða hvað það var
gaman að koma úr berjamó, þá var
slegið upp veislu með berjaskyri
eða bara mjólk og sykri.
Þú varst ekkert með óþarfa
blíðuhót við okkur en gott var að
leita huggunar í fangi þínu. Eitt
sinn varstu spurð hvort þú hefðir
aldrei orðið hrædd um okkur
heima, sjórinn, fossinn, áin og
klettarnir örskammt frá húsinu. Þá
var svarið: „Nei aldrei, Guð passaði
krakkana mína.“ Elsku mamma,
við þökkum þér og pabba fyrir
yndislega æsku.
Pví aðeins færð þú heiðrað og metið þína
móður
aá minning hennar verði þér alltaf hrein og
skýr
og veki hjá þér löngun til að vera öðrumgóð-
ur
og vaxa inn í himin - þar sem kærleikurinn
býr.
(Davíð Stefánsson.)
Starfsfólki Garðvangs, á lungna-
deild Vífilsstaðaspítala og á deild
G12, Landspítalanum, þökkum við
góða umönnun og elskulegt viðmót í
garð móður okkar. Guð blessi ykkar
störf.
Margrét og Guðný Helga.
í dag er borin til grafar
frænka mín, Anna Bima Bjöms-
dóttir. Hún lést eftir erfiða
sjúkralegu og er nú komin til
hans Jóa síns sem hún missti svo
skyndilega fyrir nokkram áram.
Það er mér kærkomið að skrifa
nokkrar línur um þessa góðu konu
sem reyndist okkur „bömunum
hennar Rúnu“ ávallt svo vel.
Fyrsta minning mín af fjölskyld-
unni er þegar þau fluttu suður,
austan frá Seyðisfirði. Það var
mjög spennandi að vita til þess að
ég væri að fá í nágrennið svo stór-
an hóp frændsystkina, en við höfð-
um átt fáa ættingja á suðvestur-
hominu fram að því.
Fjölskyldan flutti fyrst til Garða-
Ég iýt hinum mikla mætti.
Pað leiðir mig hulin hönd,
og hafið, - og hafið kallar.
- Pað halda mér engin bönd.
Ég er fuglinn, sem flýgur,
skipið, sem bylgjan ber.
Kvæði mín eru kveðjur.
Ég kem, og ég fer.
(Davíð Stefánsson.)
Elsku afi.
Nú er komið að kveðjustund.
Eftir langa og harða baráttu við
veikindi þín varðstu að láta undan.
Það var þó ótrúlegt hve seigla þín
var mikil og baráttuviljinn sterkur.
Það hlaut þó að koma að því að
kraftur þinn yrði á enda.
Við systumar nutum þess alltaf
að koma að heimsækja ömmu og
afa á Hellissand. Alltaf voru við-
tökumar jafn innilegar. Farið á
hestbak í fjallaloftinu undir jökli og
náttúran teyguð í sig. Aldrei brást
það afi minn þín miklu íþróttaá-
hugamál enda varla sú íþrótt sem
þú fylgdist ekki með. Við gátum
setið og spjallað og þú spurt okkur
í þaula um þær. Fyrir allar þessar
góðu stundir viljum við þakka þér,
elsku afi, og minningamar um þig
munu lifa með okkur um ókomna
tíð. Elsku amma, missir þinn er
mikill og biðjum við góðan Guð um
að gefa þér styrk.
Jóhanna Harpa og
Ásta Björk.