Morgunblaðið - 03.03.1998, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Lagt til að byggð verði tvö stór íþróttamannvirki fyrir haustið
Tillaga um knattspyrnu-
hús og skautahöll
VERÐI tillaga fjögurra fulltrúa í bæjarstjóm
Akureyrar um byggingu tveggja stórra íþrótta-
mannvirkja samþykkt er stefnt að því að bjóða
verkefnin út í vor og ljúka þeim fyrir næsta
haust.
Þórarinn E. Sveinsson og Oddur Helgi Hall-
dórsson, Framsóknarflokki, Gísli Bragi Hjart-
arson, Alþýðuflokki, og Þórarinn B. Jónsson,
Sjálfstæðisflokki, lögðu tillöguna fram á fundi
bæjarráðs og vísaði það henni áfram til af-
greiðslu í bæjarstjóm. Verður hún tekin til um-
ræðu á fundi í dag, þriðjudag.
Annars vegar er lagt til að hafin verði bygg-
ing fjölnota íþróttahúss - knattspyrnuhúss - á
svæði Iþróttafélagsins Þórs og stefnt að því að
það verði tilbúið síðar á árinu. Hins vegar leggja
þeir til að hafin verði bygging skautahúss á
svæði Skautafélags Akureyrar og er einnig
stefnt að því að það verði tilbúið á árinu.
Þórarinn E. Sveinsson, forseti bæjarstjórnar
Akureyrar og formaður íþrótta- og tómstunda-
ráðs, sagði að umræða um hús af þessu tagi
hefði staðið yfir síðustu tvö kjörtímabil en nú
væri málið komið á skrið. Að fenginni sterkri
viljayfirlýsingu bæjarstjórnar Akureyi’ar væri
ekkert að vanbúnaði að hefja framkvæmdir.
Verkefnin yrðu þá boðin út í vor og unnið að
þeim í sumar þannig að bæði húsin yrðu tilbúin
næsta haust.
Kostnaður um
250 milljónir
Lagt er til að í framkvæmdanefnd sitji
íþrótta- og tómstundafulltrúi, formaður íþrótta-
og tómstundaráðs og formaður framkvæmda-
nefndar bæjarins en auk þess er gert ráð fyrir
að byggingastjóri verði ráðinn.
Fyrirhugað er að húsin verði keypt á kaup-
leigu og nefnt að það gæti orðið gegmim við-
skiptabanka bæjarins, Landsbanka íslands á
Akureyri. Áætlað er að kostnaður nemi um 250
milljónum króna og kaupleigan verði greidd á
næstu 10 árum eftir því hvernig öðrum fram-
kvæmdum íþrótta- og tómstundaráðs miðar
áfram. Einnig er gert ráð fyrir að_ sótt verði um
styrk frá Vetraríþróttamiðstöð Islands vegna
þessara framkvæmda. Akureyi’arbær verður
eigandi bygginganna en lagt er til að rekstrar-
samningar verði gerðir við Þór og Skautafélag-
ið.
Vinsælar
íþróttagreinar
Þórarinn nefndi að knattspyrna og skautaí-
þróttir væru með vinsælustu íþróttagreinum í
heimi. Með tilkomu húsanna myndi aðstaða
batna til mikilla muna til að iðka þessar íþróttir
allan ársins hring og gera yrði ráð fyrir aukn-
um árangri í kjölfarið. Benti hann einnig á að
húsin gætu nýst á ýmsan annan hátt og yrðu
mikil lyftistöng t.d. hvað varðar ferðaþjónustu
og eins gætu skólarnir í bænum haft af þeim
not.
Mj ólkursamlag
KEA
Leyfi til að
flytja af-
urðir til
ESB-landa
MJÓLKURSAMLAG KEA á
Akureyri verður að líkindum
fyrst mjólkursamlaga í land-
inu til að fá leyfi til að flytja
mjólkurafurðir til Evrópusam-
bandslanda, en samlagið er nú
komið á lista yfir þau mjólkur-
samlög sem hafa leyfi til að
flytja afurðir sínar inn til
þessara landa. Leyfið verður
væntanlega gefið út formlega
næsta vor.
Ólafur Jónsson dýralæknir
og gæðastjóri hjá Mjólkur-
samlagi KEA sagði að fyrir
síðustu jól hefði samlagið ver-
ið tekið út af þar til bærum að-
ilum og uppfyllti það öll þau
skilyrði sem sett eru fyrir slík-
um útflutningi. Meðal annars
er innan fyrirtækisins rekið
fullkomið innra eftirlit og eng-
inn mjólkurframleiðandi á
samlagssvæðinu leggur inn
mjólk með frumum yfír 400
þúsund í hverjum millilítra
mjólkur að staðaldri en það er
eitt skilyrðanna sem samlögin
þurfa að uppfylla. Þá hefur
samlagið uppfyllt öll skilyrði
mjólkurreglugerðar sem í
gildi er hér á landi.
Öflugt vopn
„Þetta er öflugt vopn í
þeirri útflutningsumræðu sem
verið hefur í gangi síðustu
misseri," sagði Ölafur. „Þetta
opnar þann möguleika að
mæta innflutningi með út-
flutningi þannig að við getum
haldið okkar hlutdeild. Inn-
flutningur á mjólkurafurðum
er fyrirsjáanlegur, ef ekki
kæmi til einhver útflutningur
á móti verður bara um að
ræða skerðingu á heildar-
kvóta innanlands. Ef okkur
tekst að sýna fram á gæði
okkar fi-umframleiðslu opnast
einnig möguleikar á útflutn-
ingi til viðbótar við innflutn-
inginn, en öll lítil viðbót skil-
ar sér fljótt, því við þurfum
ekki stóran markað,“ sagði
Ólafur.
70 ár frá upphafí mjólkurvinnslu á Akureyri
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
FJÖLBREYTT úrval osta laðaði marga að borðinu.
ÞÓRDÍS, dóttir Þórarins E. Sveinssonar
mjólkursamlagssljóra,
Fjölmargir kynntu
sér mjólkursamlagið
ÞAÐ VAR mikið fjör í Mjólkursamlagi Kaupfélags
Eyfirðinga á laugardag en í tilefni þess að 70 ár eru
um þessar mundir liðin frá því mjólkurvinnsla hófst
á Akureyri vai’ gestum boðið að koma og skoða sam-
lagið. Starfsfólk kynnti þá íjölbreyttu starfsemi sem
þar fer fram en auk samlagsins er Smjörlíkisgerð
KEA og Safagerð KEA einnig til húsa þar. Bömin
fóru ekki tómhent heim, allir fengu glös með slag-
orðinu „Mjólk er góð“ og tannbursta og þá fengu
gestir að bragða á framleiðsluvömm samlagsins.
Kirkjuvika
Fyrirlest-
ur um
fjölskylduna
FJÖLSKYLDAN og heimilið er
efni fyrirlestrar sem Sigtryggur
Jónsson sálfræðingur flytur í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju í
kvöld, þriðjudagskvöld.
Yfirskriftin er fjölskyldan sem
hópur og verður m.a. fjallað um
fjölskyldugerðir og
valdapýramídana innan hennar.
Foreldrar fermingarbama era sér-
staklega boðnir velkomnir. Kór
Akureyrarkirkju syngur nokkur
lög.
Halla Jónsdóttir ræðir um sjálfs-
styrkingu kvenna á mömmumorgni
sem verður á morgun, miðvikudag
frá kl. 10 til 12. Föstuguðsþjónusta
verður svo um kvöldið kl. 20.30.
Séra Magnús Gamalíel Gunnars-
son, sóknarprestur á Dalvik,
predikar. Kór Dalvíkurkirkju
syngur, organisti og kórstjóri er
Hlín Torfadóttir.
Jeppi og sjúkrabfll rákust á
Morgunblaðið/Þór Gíslason
Tvö börn á slysadeild
TVÖ böm vora flutt á slysadeUd
Fjórðungssjúkrahússins á Ákureyri
í gærmorgun, en þau voru í jeppa
sem lenti í áreksti við sjúkrabfl aust-
an megin í Víkurskarði. Meiðsl
þeirra voru samkvæmt upplýsingum
varðstjóra lögreglunnar á Ákureyri
minniháttar.
Tildrög óhappsins voru þau að
snjóruðningstæki var á ferðinni og
myndaðist mikið kóf umhverfis það.
Sjúkrabíl frá Húsavík sem var að
koma úr ferð til Akureyrar var ekið
á eftir tækinu. Jeppa var ekið á
móti og að sögn varðstjóra fipaðist
ökumanni aksturinn er hann kom út
úr kófinu og sá sjúkrabílinn skyndi-
lega. Missti ökumaður stjórn á bíln-
um og ók framan á sjúkrabflinn.
Jeppinn er því sem næst ónýtur
eftir áreksturinn, en skemmdir á
sjúkrabflnum urðu ekki verulegar.
Lögreglan
Glugga-
gægir
gómaður
KVARTAÐ var til lögreglu
laust eftir miðnætti aðfaranótt
mánudags yfir manni sem lá á
gægjum á Brekkunni. Hafði
lögregla uppi á manninum
sem enga skýiángu gat gefið á
háttsemi sinni en lofaði að láta
af iðju sinni.
Þá var tilkynnt um innbrot í
Skíðaþjónustuna í gærmorg-
un, en þar hafði verið spennt-
ur upp gluggi og stolið skipti-
mynt og einu snjóbretti.
Nokkur erill var hjá lög-
reglu aðfaranótt laugardags
vegna ölvunar og tveir voru
handteknir vegna grans um
neyslu fíkniefna.
Allharður árekstur varð á
laugardagsmorgun á Drottn-
ingarbraut en þar var ekið aft-
an á bifreið við flugvallarveg.
Þrír kvörtuðu um eymsli í
hálsi og baki og vora fluttir á
slysadeild.
Okumenn í ófærð
Ökumenn lentu í erfiðleik-
um á Víkurskarði á sunnudag,
en þá versnaði veður mjög.
Kvaddi lögregla til Flugbjörg-
unarsveit til aðstoðar öku-
mönnum og fór bíll frá sveit-
inni ásamt félögum í Hjálpar-
sveit skáta á Akureyri og að-
stoðuðu ökumenn í Víkur-
skarði og Ljósavatnsskarði
sem þar höfðu lent í mikilli
ófærð.
Námskeið
um börn
með athyglis-
brest/ofvirkni
KRISTJÁN M. Magnússon,
sálfræðingur hjá Reyni-ráð-
gjafastofu á Akureyri, í sam-
vinnu við Þroskahjálp á Norð-
urlandi efnir til námskeiðs um
börn með athyglisbrest/of-
virkni eða „hreyfi-, athygli-, og
skynjunartruflanir". Það verð-
ur haldið í Hvammshlíðarskóla
á Akureyri næstkomandi laug-
ardag, 7. mars og einnig laug-
ardaginn 4. aprfl og er það ætl-
að öllum þeim sem hafa með
þessi börn að gera.
Fyrri hluti námskeiðsins
kallast Börn með athyglis-
brest/ofvirkni, einkenni og
greining, en þar er einkennum
þessara barna lýst, alþjóðleg
greiningarviðmið kynnt og far-
ið yfir atriði sem skipta máli
við greiningu. Síðari hlutinn
kallast Börn með athyglis-
brest/ofvirkni, aðgerðir og þar
verður fjallað um hvernig
vinna þarf með þessi börn
heima og í uppeldisstofnunum,
þannig að komið sé til móts við
eðli þeirra og þarfir.
Að auki er ráðgert að fara af
stað með stuðningshóp fyrir
foreldra barna með athyglis-
brest/ofvh'kni þar sem við-
fangsefnið er uppeldi þeirra og
munu foreldrar deila frásögn-
um af uppeldi eigin barna og
leita leiða til að styðja hvert
annað. Leiðbeinendur era Kri-
stján Már Magnússon og
Magnea Jónsdóttir sálfræðing-
ar. Hópurinn mun hittast í
Bröttuhlíðarskóla á Akureyi'i í
nokkur skipti á miðvikudags-
kvöldum, fyrst 11. mars næst-
komandi.
Þátttökutilkynningum þaxf
að koma til Reynis-ráðgjafa-
stofu, Hafnarstræti 95 á Akur-
eyri, þar sem einnig fást nánari
upplýsingar um námskeiðin.