Morgunblaðið - 03.03.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 29
•'"ntanjfln ei sa Ga ■> y m ^ é m <L*u'faaaas
KVÍGAN í ævintýri Elsu Dóróteu Gísladóttur „Sólsetra á milli“, í sýningarsalnum Tuttugu fermetrum.
Land numið og málað
MYiVDLIST
Tuttugu fermetrar
INNSETNING
ELSA DÓRÓTEA GÍSLADÓTTIR
Opið alla daga nema mánudaga og
þriðjudaga frá 15-18. Til 8. mars. Að-
gangur ókeypis.
OFT er gripið til myndlíkinga
þegar verið er að lýsa afrekum
listamanna, eins og t.d. að þeir hafa
numið ný lönd, fært út landamæri
listarinnar, helgað sér svæði o.s.frv.
En ég man ekki eftir því að mynd-
listarmaður hafi útfært slíka mynd-
líkingu á jafn bókstaflegan hátt og
Elsa Dórótea Gísladóttir (sem mun
hafa iokið námi frá listaskólanum í
Ensehede í Hollandi árið 1994) í
gemingi sínum „Sólsetra á milli“.
Laugardaginn 21. febrúar fór hún
að fornum fyrirmælum Landnámu-
bókar og leiddi kvígu milli allra
helstu sýningarstaða höfuðborgar-
svæðisins og nam land í íslenskum
myndlistarheimi.
í Landnámu segir að ekki megi
nema stærra land en svo að kona
geti leitt velfóðraða tvævetra kvígu
kringum það vorlangan dag sól-
setra á milli. Elsa hefur farið eftir
þessum tilmælum, að vísu ekki með
því að leiða lifandi kvígu, heldur
smíðaði hún sér eina úr krossviði
og blikki, setti á hana beisli og dró
hana á staðina. Á sýningunni getur
að líta þessa forláta kvígu, með
hala og eyru á hjörum, auk Ijós-
mynda sem teknar voru á gönguför
þeirra.
Fyrirmæli Lándnámubókar voru
upphaflega til þess ætluð að setja
hinum ágjörnu einhver takmörk, en
ekki er ljóst hvar Elsa ætlar að láta
staðar numið, þar sem hún hefur
helgað sér alla helstu sýningarstaði
á þessum slóðum. Kannski er kvíg-
an trójuhestur hennar inn í íslensk-
an myndlistarheim!
Gallerf Fold
MÁLVERK
ÞORFINNUR
SIGURGEIRSSON
Opið daglega frá 10-18, laugardaga
10-17 og sunnudaga 14-17. Til 8.
mars. Aðgangur ókeypis.
Á máiverkasýningu sinni „Þögn“
í Galleríi Fold reynir Þorfinnur Sig-
urgeirsson að lýsa trúarlegri íhugun
og sálrænni ró. Margir hafa reynt
að feta sömu leið, en hvernig á að
sækjast eftir djúpu, trúarlegu inn-
taki í myndlist? Með áhrifaríkri frá-
sögn, með táknmáli, eða dulmagni
lita og forma? Þorfinnur reynir að
feta einhvem milliveg án þess að
finna viðunandi úrlausn.
Öll málverkin fimmtán, utan eitt,
eru dumbrauð og sýna blóðrautt,
draumkennt landslag í hálfrökkri.
Stórir hringlaga steinar og egg
svífa um í tómlegri óravíðáttu. I
flestum þeirra koma fyrir tákn-
myndir sem ráða má í, eggið tákn
lífs og frjósemi, mávurinn tákn
frelsis og stigi sem liggur upp á
æðra plan. Formin eru þó mörg
hver á mörkum hins óhlutbundna,
sem gerir það að verkum að mynd-
irnar vega salt á mörkum súrreal-
ískrar myndlýsingar og óhlutbund-
innar sýnar. Táknmyndirnar og
fígúrurnar þröngva sér inn í þetta
landslag sem boðberar merkingar,
en fljóta um í hálfgerðu reiðileysi.
Hlutfóllin í myndum virðist stund-
um handahófskennd, því auð svæði
á myndunum verða útundan eins og
eyður sem á eftir að fylla út í.
Til að trúarlegt inntak komist til
skila þarf ekki síður að huga að eig-
inleikum hins málaða yfirborðs,
samhijómi efnis og anda, ef svo má
að orði komast. Það var einna helst í
myndum nr. 13, „Stöðnun", sem
skar sig úr öðram vegna hins djúpa
blágræna litar, og nr. 14, „Roði“,
þar sem ríkir jafnvægi og kyrrð,
bæði í myndbyggingu og áferð.
Gullsiniðja
IIansiiiii Jens
MÁLVERK
ÓLAFUR MÁR
GUÐMUNDSSON
Opið á verslunartíma. Til 7. mars.
Aðgangur ókeypis.
í herbergi inn af Gullsmiðju
Hansínu Jens við Klapparstíg er nú
að finna útstillingu á sautján akrýl-
myndum á pappír eftir Ólaf Má
Guðmundsson. Állt eru þetta litlar
vinalegar myndir af landslagi og
fígúram í landslagi, unnar af hóf-
stillingu og natni. Landslagið er
stílfært og litríkt, oft samhverft um
miðju eins og kyrralífsuppstilling.
Hér er ekki verið að leita eftir há-
leitum boðskap eða dýpt í innihaldi,
heldur eiga þær meira skylt við
myndskreytingar og myndu sóma
sér vel sem myndlýsingar í bók,
veggspjöld eða póstkort. Ekki man
ég eftir að hafa séð verk eftir Ólaf
Má áður, en mér sýnist að sá fínlegi
og Iitríki stíll sem hann temur sér
gæti komið vel út í myndskreyting-
um.
Gunnar J. Árnason.
Utvarp, segulband
og 4 Ifátalarar
\ Litað gler
" Fimm höfuðpúðar
Tvöfaldir
styrktarbitar í hurðum
Stillanleg hæð
bílstjórasætis
Frjókornasía
Bílbeltastrekkjarar
8 ára ryðvarnarábyrgð
Bja ára ábyrgð
■0-
Bilheimar ehf
Sævarhöföa 2a Sími:52S 9000