Morgunblaðið - 03.03.1998, Page 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa-
langafi,
ÁRSÆLL GRÍMSSON,
Suðurbraut 16,
] Hafnarfirði,
sem andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði, 23. febrúar
sl., verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 4. mars kl. 13.30.
Grímur Ársælsson,
Maggý Jórunn Ársælsdóttir,
Erla Ársælsdóttir,
Ragnar Gíslason
og afabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
FJÓLA JÓNSDÓTTIR,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar-
daginn 28. febrúar.
Útförin fer fram frá Höfðakapellu, Akureyri,
föstudaginn 6. mars kl. 15.00.
Georg Tryggvason,
Hersteinn Tryggvason,
Bjarki Tryggvason
og fjölskyldur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
SKÚLA MAGNÚSSONAR
verkstjóra,
Geitlandi 12,
andaðist á Landakoti fimmtudaginn 19. febrú-
ar síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Þökkum góða umönnun og hjúkrun starfsfólks á deild 2-B, Landakoti.
Ágústa Þórðardóttir,
Guðlaug R. Skúladóttlr, Kristján G. Þorvaldz,
Skúli K. Þorvaldz,
Ólafur S.K. Þorvaldz.
. +
'Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA KR. HANSEN,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 4. mars kl. 15.00
Gyða Hansen, Úlfar Guðmundsson,
Jón Kr. Hansen, Ingibjðrg Júlíusdóttir,
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður minnar og tengdamóður,
SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR
frá Siglufirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Siglufjarðar fyrir alúð og góða umönnun.
Anton V. Jóhannsson, Inger Kr. Jensen.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er
sýndu okkur samúð og hlýhug við útför
eiginmanns míns, stjúpföður okkar og afa,
TRYGGVA GUÐMANNSSONAR
vélstjóra,
Skólagerði 65,
Kópavogi.
Stefanía Bjarnadóttir,
Gunnar R. Jónsson og fjölskylda,
Hilmar H. Jónsson og börn.
MAGNÚS RAFN
MAGNÚSSON
+ Magnús Rafn
Magnússon
Miroslav R. Mikulcak
- var fæddur í Zlín í
Móravíu, Tékkóslóv-
akíu, 10. september
1927. Hann lést á
Landspítalanum 23.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Anna Maria og Josef
MikulCak, skóverk-
smiðjueigandi.
Einkabróðir Magn-
úsar er Vladimir,
kvæntur Jarmilu.
Magnús kvæntist
7.6. 1952 Elínu Kristjánsdóttur.
Þau slitu samvistum. Dætur
þeirra eru: Anna Kristine, f. 7.3.
1953. Dóttir hennar er Eh'sabet
Elín, f. 13.3. 1975. Ingunn, f.
23.9. 1955. Eiginmaður hennar
er Trausti Bragason. Synir
þeirra eru Daníel og Róbert.
Eh'sabet, f. 28.12. 1958. Eigin-
maður hennar er Jón Ágúst Ei-
ríksson. Börn þeirra eru Katrín
Þóra, Eiríkur Egill og Ingunn
Anna. Magnús kvæntist 21.7.
1967 Eh'nu Jónu Ólafsdóttur, f.
11.9. 1946. Börn þeirra eru:
Björg, f. 1.8. 1966. Eiginmaður
hennar er Þorsteinn Guðmunds-
son. Þau eiga einn
son, Guðmund.
Magnús Jaroslav, f.
21.4. 1969. Eigin-
kona hans er Hug-
rún Linda Guð-
mundsdóttir. Synir
þeirra eru Guð-
mundur Orn og
Bjarki Rafn. Dag-
mar, f. 25.5. 1970.
Magnús lauk
stúdentsprófl frá
„Tomás Bata
Academy of For-
eign Trade“ í Zlín í
júní 1946. Hingað til
lands kom hann 2. janúar 1947.
Á fyrstu árum eftir komu Magn-
úsar til íslands starfaði hann hjá
Th. Beqjami'nsson, sem annaðist
innflutning á skóm frá fyrirtæki
föður hans, Hip-op f Zlfn. Sfðar
varð Magnús forstjóri Sænsk-ís-
lenska frystihússins. Sfðustu ár-
in, meðan heilsa hans leyfði,
starfaði hann við sjálfstæðan at-
vinnurekstur. Magnús fékk ís-
lenskan ríkisborgararétt áríð
1958.
títför Magnúsar Rafns verður
gerð frá Bústaðakirkju f dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Það getur engan órað fyrir hvað
brýst um í huga manns, sem ákveð-
ur að yfirgefa ættjörð sína, fjöl-
skyldu og ástvini. Pabbi okkar var
aðeins nítján ára þegar hann yfir-
gaf heimaland sitt, Tékkóslóvakíu.
Þessi brottför var vandlega undir-
búin, því það var hægara sagt en
gert að fá vegabréf til að komast úr
landinu. Vladimir, stóri bróðir
pabba, hafði fyrir tilstilli vinar síns
í utanríkisráðuneytinu í Prag tök á
að fá vegabréfsáritun fyrir einn.
Honum hefur þótt frelsið skipta
pabba meira máli.
Pabbi kom hingað í janúar 1947
og frá fyrstu stundu fannst honum
hann hafa verið hér áður. Hann var
fljótur að aðlagast íslenskum hátt-
um. Hann kvartaði aldrei yfir veðr-
áttunni, matnum eða íslenskum sið-
um og þoldi illa útlendinga sem
gagnrýndu allt sem hér var.
Island tók pabba opnum örmum
og í huga sínum var hann Islend-
ingur. Það var honum þó sárt að
þurfa að afsala sér nafni sínu og
taka íslenskt nafn þegar hann fékk
íslenskan ríkisborgararétt árið
1958, sérstaklega þar sem margir
af bestu vinum hans hér báru er-
lend ættamöfn. En hann var stolt-
ur af að vera íslendingur.
Vissulega var pabbi allt öðruvísi
en íslenskir pabbar. Engan annan
pabba þekkjum við sem hvarf úr af-
mælisveislum dætra sinna og birtist
aftur í gervi skúringakonu eða
töframanns. Engan annan pabba
þekkjum við sem elskaði
„hrekkjalómabúðir" og lét verða sitt
fyrsta verk þegar við vorum í út-
löndum að fara í slíkar verslanir og
kaupa eitthvað til að stríða fólki
með. Engan annan pabba þekkjum
við sem nennti að horfa ótal sinnum
á „Summer Holiday" í skoskum
þorpum og láta sig hafa það að
ganga um í netabol eins og Cliff
Richard til að uppfylla óskir dætra
sinna. Engan annan pabba þekkjum
við sem stríðir dætrum sínum með
því að segjast ætla að kaupa sér
skotapils og hjóla í því í vinnuna.
Pabbi átti líka „betlaraskó“, þar
sem stóra táin stóð út úr rifnum
plastskó og átti það til að mæta í
honum í veislur, vitandi að enginn
þorði að segja orð. Pabbi var
húmoristi af guðs náð og kímnigáf-
an yfirgaf hann ekki síðustu stund-
imar.
Við metum það mikils við pabba
að hafa kennt okkur alla téklaiesku
siðina. Ef við gerum eitthvað
„óhefðbundið" sem fólk verður
hissa á segjum við án þess að
blikna: „Þetta er tékkneskur sið-
ur.“
Pabbi lagði áherslu á hversu auð-
ugir Islendingar væru að hafa
fæðst hér og sagði að við Islending-
ar mætum iðulega ekki það frelsi
sem hér ríkir. Hann þekkti vel til
valds Kommúnistaflokksins, sem
hegndi foreldrum hans og einka-
bróður fyrir flótta pabba. Helming-
ur íbúðar þeirra í Zlín var tekinn af
þeim og skóverksmiðja afa þjóð-
nýtt, sem og húsið þeirra í Prag.
Skólaganga Vladimirs bróður hans
við verslunarháskólann í Prag fékk
líka snöggan endi. Fegurð heima-
lands pabba er stórkostleg - en
hann sá ekki þessa fegurð daginn
sem hann yfirgaf ættjörð sína. Þeg-
ar hugurinn er heftur og einstak-
lingsfrelsið ekkert er erfitt að sjá
fegurðina sem umlykur okkur.
Honum fannst ekkert land í heim-
inum jafnast á við ísland. Hér vildi
hann lifa og hér vildi hann deyja.
Þegar hann fór síðustu ferðina til
heimalands síns árið 1996, til að
hitta bekkjarbræður sína á 50 ára
stúdentsafmælinu, tók hann það
loforð af okkur ef hann myndi
deyja í Tékklandi að við flyttum
hann „heim til íslands" og jörðuð-
um hann í íslenskri mold.
Enginn veit hvaða áhrif það hafði
á pabba að yfirgefa landið sitt og
fólkið sitt. Það hlýtur óhjákvæmi-
lega að hafa sett mark sitt á sál
þessa 19 ára unglings þótt hann
hafi aldrei viljað ræða það. Það
hlýtur að vera sárt að geta ekki hitt
foreldra sína og einkabróður árum
saman. Hann ræddi aldrei hvort
hann væri með heimþrá, en stoltið
ljómaði úr augum hans þegar hann
var beðinn að bera tékkneska fán-
ann við móttöku Havels forseta á
Islandi í febrúar 1990. Það skein
líka stolt úr augum hans siðasta
morguninn sem hann lifði þegar
hann horfði á landa sína verða
ólympíumeistara í ísknattleik;
íþrótt sem hann hafði sjálfur keppt
í á unglingsárunum.
Við systurnar viljum fá að þakka
einstöku starfsfólki deildar 11-E á
Landspítalanum fyrir hann pabba.
Þau sýndu honum hlýhug og virð-
ingu sem aldrei gleymist. Það var
honum ómetanlegt að læknirinn
hans, Þórarinn Sveinsson, skyldi
vera nálægur síðustu stundimar
hans. Þeim manni treysti hann og
virti.
Við kveðjum elsku pabba okkar í
þeirri vissu að nú hafi hann samein-
ast foreldrum sínum að nýju. Hálfr-
ar aldar aðskilnaður er að baki og
ekkert getur heft hann framar;
ekki stjómarfar, landamæri eða
veikindi. Auðvitað eigum við alltaf
eftir að sakna hans pabba, en við
vitum að hann hefur orðið hvíldinni
feginn eftir margra ára þrauta-
göngu.
Sofðu vært, elsku pabbi. Við hitt-
umst aftur. Guð geymi þig.
Þínar
Anna, Inga og Eb'sabet.
Elsku afi minn, nú ertu loksins
búinn að fá hvíldina, eftir langa og
erfiða baráttu við krabbamein. Það
er sárt að sjá á eftir þér, en það er
huggun harmi gegn að nú ertu aft-
ur orðinn frískur, finnur hvergi til
og getur gengið um Paradís með
langömmu og langafa. Þú varst
ekki nema nítján ára þegar þú flúð-
ir heimalandið; landið sem var lok-
að í fjörutíu ár vegna stjómar
kommúnista, varst aðskilinn frá
þínum nánustu og byrjaðir nýtt líf
hér á íslandi, tókst upp nýtt nafn,
lærðir nýja siði og nýtt tungumál.
Þegar syrti að hefurðu eflaust oft
notað bragðið sem þú kenndir mér
þegar illa stóð á hjá mér: að loka
augunum, sjá allt svart, ímynda sér
lítinn, grænan depil sem verður
stærri og stærri unz allt verður
grænt.
Nú er allt grænt í kringum þig
elsku afi og þér líður loksins vel.
Guð geymi þig og við sjáumst aftur.
Þín
Lízella.
Skömmu eftir lok síðustu heim-
styrjaldar kom hingað ungur flótta-
maður fiá borginni Zlín í
Tékkóslóvakíu að nafni Miroslav
Randolph Mikulcak. Hann hafði
flúið undan kommúnistum sem þar
höfðu rænt völdum og uppnefnt
fæðingarborg hans Gottwaldov. ís-
lensk löggjöf um nafngiftir útlend-
inga sem öðluðust ríkisfang kostaði
hann síðar nauðugan viljugan
skfrnamafnið og hér hét hann
Magnús Rafn Magnússon. Hann
var þekktur meðal vina og kunn-
ingja sem Mikki.
Leiðir okkar Magnúsar lágu
saman eftir að hann gekk í hjóna-
band með Elínu Kristjánsdóttur,
fóstursystur konu minnar, Elsu.
Dætur þeirra þrjár, Anna Kristine,
Ingunn og Elísabet, sem og þeirra
fólk, urðu því og verða einnig hluti
okkar fjölskyldu. En faðir þeirra
fjarlægðist okkur nokkuð seinni ár
ævinnar. Hér er Magnúsar minnst
einkum frá því fyrr í tíðinni, en síð-
an era reyndar liðnir fjórir áratug-
ir. Það slær birtu gleðinnar yfir
endurminningar um samverustund-
ir í mörgum heimilisfagnaði í
Reykjavík, laxveiðum og heimsókn-
um til okkar í útlöndum.
Magnús átti vissulega sterkar
rætur á íslandi, en engum gat
skjátlast um hversu heimalandið
Tékkóslóvakía var honum kært.
Vonbrigðin vegna þess að fjöl-
skyldutengslin rofnuðu um langt
árabil vom að sjálfsögðu mikil. Þó
fór svo að lokum að foreldramir
fengu heimild til stuttrar dvalar á
Islandi í eitt skipti og þá hvort um
sig í aðskildum ferðalögum. En að