Morgunblaðið - 09.04.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 9
FRÉTTIR
Óánægja íbúa við Kirkjusand vegna hljóðmengunar frá Kjötumboðinu við Laugarnesveg
BALLY
SWITZERLAND
SKÚVERSLUN
KÓPAVOGS
HRIViKftBORS 3 • SIH/II 5S4 1/Sft
Næstu daga munum við rýma
fyrir nýjum sendingum af
Bally skóm. Þess vegna
býðst nú það einstæða
tækifæri að kaupa eldri gerðir á
verulega niðursettu verði.
Athugið!
Stendur aðeins í örfáa daga.
Hávaði frá viftum
verður minnkaður
KJÖTUMBOÐINU hf., sem rekur
kjötvinnslu við Laugarnesveg í
næsta nági'enni við þrjú ný íbúðar-
hús við Kirkjusand, hefur verið gert
að minnka hávaða frá fyrirtækinu
vegna kvartana íbúa við Kirkjusand
og hefur Heilbrigðiseftirlit Reykja-
víkur gefið fyrirtækinu frest til úr-
bóta til 1. maí nk. og til 15. apríl nk.
til að leggja fram framkvæmdaá-
ætlun um endanlega lausn hávaða-
vandamálsins.
Hávaði úr 70 í 60 dB
Hljóðmæling var gerð við glugga
á efstu hæð húss númer 1 við
Kirkjusand í lok nóvember sl. og
mældist hávaði frá viftum Kjötum-
boðsins vera 70 desibel og yfir-
gnæfa önnur umhverfishljóð. Þessi
hávaði var verulega yfir leyfilegum
mörkum og var fyrirtækinu gert að
ráða bót á því hið fyrsta.
Forsvarsmenn Kjötumboðsins
brugðust við með því að minnka
snúningshraða á viftum og mældist
hávaði þá 60,1-60,5 dB. Samhliða
þeirri mælingu var umhverfishávaði
einnig mældur með slökkt á öllum
tækjum í Kjötumboðinu og reyndist
hann þá vera 53,1-56,5 dB, sem er
langt yfir þeim mörkum sem krafa
er gerð um í hreinni íbúðabyggð
skv. mengunarvarnareglugerð.
Einn til tveir frystiklefar verða
teknir úr notkun hjá fyrirtækinu í
Unnið að flutningi
fyrirtækisins í
samvinnu við
borgaryfirvöld
sumar og mun hávaði minnka í sam-
ræmi við það.
Að sögn Helga Óskars Óskars-
sonar, framkvæmdastjóra Kjötum-
boðsins hf., hafa forsvarsmenn fyr-
irtækisins margítrekað að lóð þess
sé iðnaðarlóð og hávaðinn hafi verið
á svæðinu þegar skipulagi nágrenn-
isins var breytt.
„Við erum hins vegar meðvitaðir
um þær breytingar sem verða á um-
hverfinu og lokum ekki augunum
fyrir því sem hér er að gerast. Við
viljum vera góðir grannar þeirra
sem eru í kringum okkur og koma
til móts við óskir þeirra eftir því
sem mögulegt er innan skynsam-
legs kostnaðar. Þar skiptir sköpum
að minnka hraða á kæliviftum. En
ég minni á að við höfum aldrei við-
urkennt að það eigi að vera þögn í
þessu fyrirtæki og menn máttu vita
að svo yrði ekki,“ segir Helgi.
Hann segir að kostnaður vegna
ráðstafana til að draga úr hávaða í
fyrirtækinu hlaupi nú þegar á hund-
ruðum þúsunda og hann segist ekki
lVú er vor í loftí
vita hvað þær komi til með að kosta
fyrirtækið þegar upp verði staðið.
Flutningsmál
skýrast fljótlega
Helgi segir að reiknað hafi verið
með því undanfarið að breyting yrði
á húsnæðismálum fyrirtækisins í
framtíðinni og með breytingu á
skipulagi hverfisins úr iðnaðar-
hverfi í íbúðar- og þjónustuhverfi
komi það af sjálfu sér.
Fyrirtækið hafi verið í viðræðum
við Reykjavíkurborg um nýjan stað
og segist Helgi reikna með að nið-
urstaða fáist í því máli fljótlega.
Flutningur sé hins vegar ekki fyrir-
sjáanlegur á næstu vikum eða mán-
uðum. Þar séu menn frekar að tala
um misseri eða ár.
Morgunblaðið/RAX
FRA athafnasvæði Kjötumboðsins hf. Kælivifturnar umtöluðu ber við
himin á myndinni en með því að minnka snúningshraða þeirra má draga
verulega úr liljóömengun. Til vinstri sést í íbúðarhúsin við Kirkjusand
þar sem íbúar hafa kvartað vegna hávaða frá Kjötumboðinu hf.
Og retti timinn fyrir
Vor og sumarlistinn frá Simo er kominn.
l'ífa Klapparstíó 27, .Sínii 552 2522
FRAKKLAND
París
Flogið tvisvar í viku
Verð frá 19.900 án flugvallargjalda.
Bjóðum einnig hótel og bílaleigubíla á góðu verði.
ÞYSKALAND
Dusseldorffiogið 18. júní-31. ág. (fim. sun.)
Munchen flogið 26 júlí-13. sept. (sun)
Flug og bíll í viku m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2-12 ára
Verð frá 23.750 á mann til Dusseldorf.
Verð frá 25.300 á mann til Munchen.
Innif: Flug og bíll í B-flokki ótakm. akstur,
tryggingar, skattur bókunargjald v/alferð.
Bjóðum einnig sumarhús og hótel í Þýskalandi á góðu verði.
AUSTURLANDS
TRAVEL
Stangarhyl 3a
Sími 567 8545 - 587 1919
IIMTERNATIONAL AIRWAYS
Við fljúgum fyrir þig
FRUMSYNING 25. APRIL
Nýsöngsk
IBRQADWAE
HÓTEL ÍSLANDI
MiBa- og borðapantanir í síma 533 1100.
Verð 4.900, matur og sýning. 1.950, sýning. 950, dansleikur.
mgskemmtun u.
Broadway
*
F[öldi söngvara,
hl|óöfæraleikara
og dansara koma
fram í sýningunni.
Læknastofa
mín hefur verið flutt
í Domus Medica, Egilsgötu 3,
sími 363 1012.
Ellen Mooney,
sérgrein húðlækningar og háðmeinafræði.
S I N C E 18 5 1
RÝMUN FYRIR NÝJUM
S
30%
AFSLÁTTUR