Morgunblaðið - 09.04.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 13
FRÉTTIR
AA-samtökin halda afmæl-
isfund í Laugardalshöll
RAUÐI krossinn á Norðurlöndum
og í Eystrasaltsríkjunum hefur
skorað á forsætisráðherra landanna
að eiga frumkvæði að mótun al-
þjóðalaga um verndun barna undir
18 ára aldri gegn þátttöku í vopnuð-
um átökum.
í bréfi formanna landsfélaganna
er því fagnað að ríkisstjórnir á
Norðurlöndum og í Eystrasaltslönd-
um skuli hafa átt þátt í starfi starfs-
hóps mannréttindanefndar Samein-
uðu þjóðanna um drög að valfrjálsri
bókun við samning Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi barnsins og þátt-
töku barna í hernaðarátökum um
leið og hannað er að ekki hafi tekist
að ná fram einingu á fundi starfs-
hópsins í febrúar um það að aldurs-
mark verði hækkað úr 15 árum í 18
ár til að tryggja að börn séu ekki
kvödd til herþjónustu.
Alþjóðasamtök Rauða krossins og
Rauða hálfmánans leggja áherslu á
fjögur meginatriði í þessu máli:
Hvers konar bein eða óbein þátttaka
barna yngri en 18 ára í hernaðará-
tökum verði bönnuð, lágmarksaldur
við herskráningu verði vera 18 ár,
þessar reglur skuli gilda jafnt um
her sem ríkið rekur eða aðrir og
þær skuli gilda bæði um hernaðará-
tök milli ríkja og önnur vopnuð átök.
„Eitt brýnasta mannúðarmál
heimsins nú á tímum er að koma í
veg fyrir þátttöku barna í hernaðar-
átökum,“ segir í bréfinu til forsætis-
ráðherranna. „Hermaður á barns-
aldri er fórnarlamb sem þarfnast
verndar. Allir kannast við tómlegt
augnaráð hermanns á barnsaldri -
augu sem hafa orðið vitni að of
mörgum hryðjuverkum á fólki og
skilja ekki og geta ekki gert sér í
hugarlund sorglegar afleiðingar
þeirra."
AFMÆLISFUNDUR AA-sam-
takanna verður haldinn að venju
föstudaginn langa, 10. apríl 1998, í
Laugardalshöllinni kl. 21, og eru
allir velkomnir. Þar tala nokkrir
AA-félagar og gestur frá Al-Anon
samtökunum, sem eru samtök að-
standenda alkóhólista. Kaffiveit-
ingar verða að fundi loknum.
Fundurinn verður túlkaður fyrir
heyrnarlausa.
AA-samtökin á Islandi voru
stofnuð föstudaginn langa 1954 eða
fyrir 44 árum. Síðan hefur þessi
dagur verið hátíðar- og afmælis-
dagur samtakanna, alveg sama
hvaða mánaðardag hann ber upp á.
Undanfarin ár hefur fundurinn rið
haldinn í Háskólabíói en nú er bíóið
orðið of lítið vegna mikils fjölda
fundargesta.
I dag eru starfandi 262 deildir
um allt land, þar af er á Reykjavík-
ursvæðinu 131 deild, erlendis eru 8
íslenskumælandi deildir. Hver
þessara deilda heldur að minnsta
kosti einn fund í viku og er fundar-
sókn frá 5-10 manns og upp í 150
manns á fundi.
Upplýsingar um fundi og fund-
arstaði er hægt að fá á skrifstofu
AA-samtakanna, Tjarnargötu 20,
101 Reykjavík. Skrifstofan er opin
alla virka daga milli kl. 13-17 og er
síminn 551 2010. Einnig hafa AA-
samtökin símaþjónustu alla virka
daga milli kl. 13-20, laugardaga og
sunnudaga milli kl. 17-20. Síminn
er 551 6373.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
MAGNÚS B. Jóhannesson og Sighvatur Pálsson frá fyrirtækinu Hug-
fangi hf. sýna Nínu Hjaltadóttur, formanni Parkinsonsamtakanna, tjá-
ritann, nýtt hjálpartæki fyrir þá sem eiga erfitt með að fjá sig með tali.
Parkinsonsamtökin á íslandi
Fræðslurit og
nýtt tjáskiptatæki
PARKINSONSAMTÖKIN kynntu
nýlega útgáfu fræðslurits um Park-
insonveiki og nýtt tjáskiptatæki fyrir
málhamlaða. Alþjóðlegi Parkinson-
dagurinn er laugardaginn 11. apríl.
Fræðsluritið er ætlað sjúklingum,
aðstandendum og þeim sem annast
þá sem þjást af sjúkdómnum. Það
inniheldur allar tiltækar upplýsingar
um Parkinsonveiki, hugsanlegar or-
sakir sjúkdómsins, sjúkdómsein-
kenni og læknisfræðilega meðhöndl-
un. Parkinsonsamtökin standa að út-
gáfu ritsins sem þýtt er úr dönsku
og sáu Arnfríður Ammundsdóttir og
Jónas Gíslason um þýðinguna. Sig-
urlaug Sveinbjömsdóttir taugasér-
fræðingur veitti faglega ráðgjöf og
Ásgeir Ellertsson taugasérfræðing-
ur lagði til grein um lyfið Tasmar.
Tjáritinn er hjálpartæki fyrir ein-
staklinga sem eiga erfitt með að tjá
sig með tali, en geta lesið og skrifað.
Fyrirtækið Hugfang hf. hefur þróað
tækið á undanfórnum þremur áram
í nánu samstarfi við talmeinafræð-
inga og aðra sem hagsmuna eiga að
gæta. Notandi Tjárita ritar inn það
sem hann vill segja og birtast færsl-
urnar á skjá hjá þeim sem rætt er
við. Tækið má einnig tengja við tal-
gervil, sem talsetur innsleginn
texta. Tjáriti er ætlaður til nota alls
staðar þar sem fólk þarf hjálpartæki
til að tjá hugsanir sínar og þarfir og
er nú þegar í notkun á ýmsum heim-
ilum, sjúkrahúsum, stofnunum og
fyrirtækjum. Tjáritann má einnig
tengja við einkatölvur. Hönnun hans
og hugbúnaður eru alíslensk.
Á fundinum kom fram að á ís-
landi hafi milli 430 og 450 manns
greinst með Parkinsonsjúkdóminn.
I rannsókn sem Sigurlaug Svein-
bjömsdóttir taugasérfræðingur hef-
ur unnið að undanfarin tvö ár kem-
ur fram að um 30% Parkinsonsjúk-
linga eiga nákomna ættingja sem
einnig ganga með sjúkdóminn.
Hlutfallið er mun hærra en í öðram
löndum og hefur verið tekið til nán-
ari rannsóknar. Algengast er að
þeir sem greinast með Parkinson
séu á milli fimmtugs og sjötugs, en
æ fleira yngra fólk hefur greinst
með sjúkdóminn undanfarið, sem
stafar af því að greining er orðin
betri og nákvæmari.
Sigurlaug hefur skoðað 250 sjúk-
linga á Islandi vegna rannsóknar-
innar og er enn að. Þeir sem áhuga
hafa á að taka þátt í rannsókninni
snúi sér til endurhæfingardeildar
Landspítalans og býðst sjúklingum
að vera skoðaðir heima hjá sér.
Meðferðarmöguleikar við Parkin-
sonsjúkdómnum era tveir. Annars
vegar lyfjameðferð þar sem reynt er
að bæta fyrir skort á dópamíni í
heilanum og hins vegar skurðað-
gerðir og er nýtilkomið að beita þrí-
víddartækni sem felst í rafertingu
utan frá. Era slíkar aðgerðir ein-
ungis gerðar erlendis. Læknar
beina jafnframt þeim tilmælum til
sjúklinga að stunda heilsurækt og
hreyfa sig eftir fremsta megni.
Fræðsluritið Parkinsonveiki er til
sölu hjá Parkinsonsamtökunum og
kostar 1.250 kr.
Áskorun Rauða krossins
Norðurlönd taki
forystu gegn þátt-
töku barna í hernaði
Viðbótarsæti til
Benidorm
i Barcelona
i sumar
með Heimsferðum
Viðtökur við ferðum Heimsferða í sumar hafa verið
ótrúlegar og uppselt er nú í fjölda brottfara.
Við höfum nú tryggt okkur fleiri sæti í sólina og
bjóðum nú viðbótarsæti í maí, júní, júlí og ágúst til
Benidorm og Barcelona á frábæru verði og að
sjálfsögðu nýtur þú tryggrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann.
Aðeins 200
viðbótarsæti.
Bókaðu mesan enn er lausl.
Benidorm
Barcelona
Viðbótargisting í hjarta Benidorm
á Levante ströndinni.
Verð
k, 39.932
Acuarium, 12. maí, 22 nætur, hjón með
2 börn 2-11 ára.
Verð kr.
56.660
M.v. 2 í stúdíó, Acuarium.
Beint flug allt í sumar.
Verðkr. 31*532
Flugsæti til Barcelona, m.v. hjón með
2 börn 2-11 ára.
Verðkr. 49*760
M.v. 2 í herbergi, hótel Adagio í viku
m. morgunverð, júlí, ágúst.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600