Morgunblaðið - 09.04.1998, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 15
AKUREYRI
Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
Skíðað á stuttbuxunum
EINMUNA blíða var í Hlíðarfjalli við Akureyri um helgina, logn og
heiðskírt og skíðafæri eins og best verður á kosið. Þessi ungi maður
var ekkert að tvínóna við hlutina, hann fækkaði fötum og renndi sér á
stuttbuxunum um brekkurnar.
Passíu-
sálmarnir
lesnir í
Grímsey
PASSÍUSÁLMAR Hallgríms Pét-
urssonar verða lesnir í Grímseyjar-
kirkju á morgun, föstudaginn langa.
Lesturinn hefst kl. 10.00 og lýkur
seinni part dags. Þetta mun vera í
fyrsta sinn sem sálmarnir eru lesnir
í Grímey.
Lesturinn er í minningu Einars
Einarssonai', sem var djákni í
Grímsey, og hjónanna Matthíasar
Eggertssonar og Guðnýjar Guð-
mundsdóttur, en Matthías var
prestur í eynni um áratugaskeið og
Guðný var þar ljósmóðir. Þeir sem
lesa eru Grétar Einarsson, sonur
Einars, og Karl H. Sigurðsson.
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld
hefur samið sjö smáverk fyrir fiðlu
og selló sem eru hugsuð sem hug-
leiðing milli kaflaskila í sálmunum.
Flytjendur eru Gunnar Kvaran
sellóleikari og Guðný Guðmunds-
dóttir fiðluleikari, en hún er sonar-
dóttir Matthíasar Eggertssonar og
Guðnýjar, konu hans.
Aksjón
Fimmtudagur 9. apríl.
20.25^Sjónvarpskringlan -
Akureyri
MYiun zi.ooMiíubíó ottó-
lll IIVU Tina og Otto eru ungir
elskendur sem vantar nefnilega
þak yfu' hjónarúmið. Amor er
með í spilinu enda er fyrsta ást-
in allt of alvarlegt mál til að láta
hana slíkum byrjendum eftir.
Hollensk 1992.
Búist við miklum fjölda gesta til
Akureyrar um páskana
Einn besti vet-
urinn í ferða-
þjónustunni
GERT er ráð fyrir að mikill fjöldi
gesta heimsæki Akureyri um
páskana og reyndar hefur þegar
orðið vart við mikinn fjölda ferða-
fólks. Guðmundur Birgir Heiðars-
son, forstöðumaður Ferðamála-
miðstöðvar Eyjafjarðar Akureyri,
sagðist ekki hafa ástæðu til að
ætla annað en páskarnir framund-
an yrðu með þeim bestu í ferða-
þjónustunni í langan tíma. „Við
höfum reyndar verið að horfa upp
á einhvern langbesta vetur sem
Akureyri hefur átt í ferðaþjón-
ustu.“
Guðmundur Birgir sagði erfitt
að gera sér grein fyrir því hversu
margir gestir kæmu til bæjarins,
þeir gistu á hótelum, gistiheimil-
um, í orlofsíbúðum, sem væru á
annað hundrað í bænum eða hjá
vinum og ættingjum í heimahús-
um. Hann taldi þó ekki fjarri lagi
að hingað kæmu 4000-5000
manns.
„Það er augljóst að fólk sem býr
í þeim landshlutum þar sem ekki er
skíðafæri um þessar mundir, hefur
mikinn áhuga á að koma hingað og
nota eitt af þessum síðustu tæki-
færum vetrarins til að komast á
skíði. Auk þess er boðið hér upp á
mjög metnaðarfulla dagskrá yfir
páskana, sinfóníutónleika, ýmiss
konar listsýningar, dansleiki og
fleira. Þá er veðurspáin ekki til að
skemma fyrir okkur.“
Akureyri eða Evrópa
Guðmundur Birgir sagði að með
Skíðamóti Islands um síðustu helgi
og Fis-mótinu í kjölfarið hefði
þetta verið mjög gott tímabil. „Það
hefur því verið gífurlegur fjöldi
fólks hér síðustu viku og við erum í
raun að fá tvöfalda páska. Mér
skilst líka á þeim sem til þekkja að
annað eins skíðamót og fram fór
hér hafi ekki sést síðustu áratugi."
I fyrsta skipti í mörg ár var í
fyrra mjög mikið af ferðafólki á
Akureyri og sagði Guðmundur
Birgir að bærinn væri aftur að
verða vinsæll áningarstaður um
páska. Einnig hefði orðið mikil
aukning á fyrirtækjaferðum til
Akureyrar yfir vetrartímann.
Hann sagði dæmi um að starfs-
menn fyrirtækja sem stæði til
boða að fara í helgarfrí til stór-
borga í Evrópu eða Akureyrar,
veldu frekar að fara til Akureyrar.
„Eg held að það verði að teljast al-
veg nýtt.“
Föstudagur 10. apríl
20.25ÞSjónvarpskringlan -
Akureyri
21.00Þ-Níubíó - Hudsucker
Proxy Ungur maðm- nær undra
skjótum frama innan stórfyrir-
tækis, en það er ekki allt sem
sýnist og næðingssamt á toppn-
um. Aðalhlutverk: Tim Robbins,
Jennifer Jason Leigh og Paul
Newman. 1993
Laugardagur 11. apríl
17.00^-Helgarpotturinn,
helgarþáttur bæjarsjónvai'psins
í samvinnu við Dag.
Sunnudagm• 12. apríl
17.00^Helgarpotturinn (e)
18.00^-Páskasamkoma í Hvíta-
sunnukirkjunni á Akureyri
Mánudagui• 13. apiil
20.25PSjónvarpskringlan á
Akureyri
21.00PHelgarpotturinn (e)
Þriðjudagur 14. aprfl
20.25PSjónvarpskringlan -
Akureyri
21.00>Fundur er settur
Fundur í bæjarstjórn Akureyr-
ar.
Álftagerðisbræður
í Sjallanum
BRÆÐURNIR syngjandi frá Álfta-
gerði í Skagafirði, Sigfús, Pétur,
Gísli og Óskar Péturssynir,
skemmta í Sjallanum á Akureyri í
kvöld, skírdagskvöld, og verða þeir
með söng, grín og gleði.
Hugsanlega verða þeir bræður
kveðnir í kútinn, því með þeim í fór
eru margslungnir skagfirskir hag-
yrðingar, bræðurnir frá Frostastöð-
um, Gísli Rúnar og tvíburarnir Kol-
beinn og Þorleifur Konráðssynir.
Undirleikarar eru Stefán R. Gísla-
son og sveiflukóngurinn Geirmund-
ur Valtýsson. Húsið verður opnað
kl. 20.30.
---------------
Messur
ÓLAFSFJÖRÐUR: Skírdagur,
messa í safnaðarheimilinu kl. 20.30.
Föstudaginn langi, krossljósastund í
safnaðarheimilinu kl. 20.30. Páska-
dagur, hátíðarmessa kl. 8.00, morg-
unverður í Sandhóli eftir messu.
Helgistund á skíðasvæðinu kl. 13.30.
Annar í páskum, hátíðannessa á
Hombrekku kl. 14.00.
Iff
Vöru- og þjónustusýning
í íþróttahöllinni á Akureyri 15.-17. maí 1998
Nú gefst fyrirtækjum, stofftunum,
félagasamtökum og öðrum sem áhuga
hafa kostur á að kynna starfsemi sína á
fjölbreyttri sýningu.
YGr4í)------------------------------------
aðilar hafa nú tryggt sér sýningarpláss.
Hvað með fyrirtæki þitt?
Aðalskipulag
Akureyrar 1998-2018
Kynningarfundir
Skipulagsnefnd Akureyrar boðar til almennra kynningarfunda um
aðafskipulag Akureyrar 1998—2018 í féiagsmiðstöðinni við Víðilund.
Dagskrá:
Miðvikudagur 15. apríl kl. 20.30:
Markmið, umhverfis- og byggingarmál, félags- og fræðslumál. Meg-
inefni verður umfjöllun um opin svæði, bæjarumhverfi og bæjarmynd.
Þriðjudagur 21. aprfl kl. 20.30:
Atvinnu- og tæknimál. Meginefni verður umfjöllun um umferðarmál.
Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar.
Sýnendur eiga þess kost að kaupa
sýningar pláss í aðalsal íþróttahallar-
innar, hliðarsölum, anddyr, eða á mal-
bikuðu útisvæði.
Allar nánari upplýsingar:
Fremri kynningarþjónusta
Símar 461 3666 og 461 3668. Bréfasími 461 3667. Netfang:fremri@nett.is
Ferðamálamiðstöð
Eyjafjarðar,
Akureyri
!©J:;
Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar
Atvlnmimálaskrifstofa
Akureynarbsjar
PirðnnliliiMð