Morgunblaðið - 09.04.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
}
VIÐ afhendingu sjóðsins, f.v. Eiríkur Þorgeirsson og Ágúst Sigurðs-
son fulltrúar Kiwanismanna, Eiríkur Ágústsson, Samúel Eyjólfsson og
Loftur Þorsteinsson, fulltrúar eigenda félagsheimilisins.
Kiwanismenn stofna
hljóðfærasjóð
Hrunamannahreppi - Félagar í
Kiwanisklúbbnum Gullfossi, sem
starfar hér í Hreppum, gáfu nýlega
100 þúsund krónur til að endurnýja
mætti hljóðfæri Félagsheimilisins
á Flúðum.
*
Fært í Arneshrepp
Áriieshreppi. Morgunblaðið.
BYRJAÐ var að moka veginn frá
Bjarnarflrði og norður í Árnres-
hrepp 2. apríl og lauk Kristján Guð-
mundsson ýtustjóri störfum
seinnipart 5. apríl, en hann sagði
þetta hafa verið leiðinlegan snjó að
moka, harðfenni enda oft búið að
blotna í snjónum og margsíga.
Vegurinn verður aðeins fær fjór-
hjóladrifsbflum fyrst um sinn og er
vegurinn fær um mánuði fyrr nú en í
fyrra.
Agúst Sigurðsson gjaldkeri þeirra
Kiwanismanna sagði, er hann af-
henti fulltrúum eigenda Félags-
heimilisins gjöfina, að þessi litla
upphæð ætti að vera vísir að sjóði,
sem duga myndi til að kaupa nýjan
og fuUkominn flygil í húsið. Allir
sem vildu leggja eitthvað til þessa
málefnis gætu snúið sér til af-
greiðslu Búnaðarbankans á Flúðum,
innansveitarmenn sem burtfluttir.
Það hljóðfæri sem nú er í notkun
var keypt árið 1961 og því farið að
fella fjaðrirnar, fullnægði ekki
þeim kröfum sem skyldi og gerðar
eru nú til slíkra hljóðfæra. Þar sem
nýtt hljóðfæri myndi kosta nokkr-
ar milljónir króna væri það nokk-
urt átak að fjárfesta í því og vildu
þeir Kiwanismenn því hafa þennan
háttinn á.
Slátrun páska-
lamba á
Hvammstanga
Hvammstanga - Hjá sláturhúsinu
Ferskum afurðum á Hvamms-
tanga var um helgina slátrað um
400 dilkum sem Ferskir fjár-
bændur selja til Hagkaups í
Reykjavík.
Að sögn Eyjólfs Guðmundsson-
ar á Bálkastöðum, formanns
Ferskra fjárbænda, var slátrað
tæpum fjögur hundruð dilkum
sem eru smálömb frá liðnu hausti.
Flest féð kom úr Vestur-Húna-
vatnssýslu en 50 dilkar komu úr
Saurbænum í Dölum. Kjöt af
þessari slátrun var í verslunum
Hagkaups nú fyrir páskana. Að
söng Eyjólfs stendur til að slátra
aftur dilkum fyrir hefðbundinn
sauðburð.
Guðmundur Þorbergsson, kjöt-
matsmaður hjá Ferskum afurð-
um, sagði Morgunblaðinu að nú
væri í þessu sláturhúsi í fyrsta
sinn metið dilkakjöt eftir nýjum
ESB-reglum. Nú væri ekki flokk-
að í DI-DIII með undirnúmerum
sem segði til um þyngd. Nýju
flokkarnir tilgreina annars vegar
holdbyggingu skrokkanna og hins
vegar beina fitumælingu.
Holdafar skrokkanna flokkast í
E-U-R-0 og P, þ.e. hágæða-
flokkkur væri E, næsti gæða-
flokkur er U og lakasti er
P. Guðmundur sagðist sann-
færður um að hið nýja gerði kaup-
endum auðveldara að finna kjöt
að sínum óskum.
Morgunblaðið/Silli
BRÆÐURNIR Indriði og Ivar skoða fæðingarskrár, dánarskrár
og bændatöl á 19. öld skráð af afa þeirra, Indriða Þórkelssyni.
Héraðsskjalasafnið
á Húsavík 50 ára
Húsavík - Héraðsskjalasafn Suð-
ur-Þingeyinga og Húsavíkur-
kaupstaðar er nú 40 ára og tók á
veglegan hátt þátt í kynningu
Héraðsskjalasafnsins síðastliðinn
laugardag, enda hefur það margt
að sýna.
Hvatamaður að stofnun safns-
ins var Páll H. Jónsson, þá kenn-
ari að Laugum. Hann hvatti
sýslunefnd Suður-Þingeyjarsýslu
1955 til að koma á fót Héraðs-
skjalasafni skv. lögum 1947 og
reglugerð 1951. Ari síðar eða
1956 var mál þetta rætt á sýslu-
nefndarfundi og þar samþykkt að
hefjast handa. Það var síðasti
sýslunefndarfundurinn sem Júlí-
us Havsteen stýrði. Ári síðar
gerðist bæjarstjórn Húsavíkur
aðili að málinu og síðan hefur ver-
ið gott samstarf milli sýslu og
bæjar.
Safnið fékk fyrst aðstöðu í eld-
traustu herbergi í nýlega byggðu
húsi Kaupfélags Þingeyinga, en
þar var ekki aðstaða fyrir hendi
svo að almenningur gæti nýtt sér
safnið, en sífellt fjölgaði skjala-
gögnum, sem til þess bárust.
Allt frá upphafsárunum hafa
safninu borist skjalagögn sem
sveitarfélög og ýmis félagasam-
tök verða að skila samkv. lögum.
Einnig hefur safninu borist mikið
frá einstaklingum, bréfasöfn,
dagbækur, bændatöl og fleira.
Héraðsskjalasafnið er nú allt
tölvuskráð, sem auðveldar mjög
alla leit að gögnum. Hefur sú
vinna staðið yfír í 5 ár. Nú er haf-
in skráning á ljósmynda- og
filmusafni.
Sameiginlega mynda þessi söfn
grunn fyrir rannsóknir á sögu
héraðsins, ásamt þeim gögnum
sýslumannsembættisins sem
samkv. lögum er skilað til Þjóð-
skjalasafnsins.
Miklar heimildir til
frá 19. öld
Það vekur eftirtekt við skoðun
skjalasafnsins, hve mikið er til af
dagbókum, bændatölum og fæð-
ingarskrám frá 19. öldinni og er
þar margar merkar heimildir að
finna.
Sýnishorn úr dagbók Jóns
Jóakimssonar, Þverá í Laxárdal,
frá 28. mars 1854 er í safninu en
stafrétt segir þar svo:
„28di drifahláka ekki þó mjög
kvass, um Morgunin tók Herdís
mín ljettasótt - eftir að hafa verið
lánsamlega mjög velsæl - og
fæddi Piltbarn kl. 9V2 mátt heita
að það geingi alt vel til er barnið
14 1/1 mörk, var Þorgerður í Hól-
um hjá henni, sem búin er að vera
hjer í 3 vikur, - kom hjer Krist-
ján í Grímshúsum í Sníkjugerð,
fjekk eg honum Sauðarskamrif,
kýrmagál, 12 Spaðbita og 2 fiska,
lofaði hann mjer að ljá mjer hest?
ef ég þyrfti.“
Grunnskólinn
á Hellu
Hafið
til um-
fjöllunar
Hellu - Hefðbundin kennsla
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
BOÐIÐ var upp á ýmis skemmtiatriði er tengdust hafinu.
var brotin upp í síðustu viku
fyrir páskafrí hjá nemendum
og kennurum Grunnskólans á
Hellu en í liennar stað fengu
börnin að vinna að margvísleg-
um verkefnum í tengslum við
hafið.
Yngstu börnin höfðu farið í
fjöruferð og útbúið margt og
skemmtilegt úr því sem þar
safnaðist en önnur útbjuggu
plaköt eða líkön og margvís-
íegar myndir sem síðan voru
sýndar á vorhátíð skólans sem
haldin var í lok þemavikunnar.
Gestum var boðið til hátíðar-
innar en á dagskrá voru fjöl-
breytt skemmtiatriði nemend-
anna sem öll tengdust hafinu á
einn eða annan hátt. Foreldrar
og aðrir velunnarar skólans
fjölmenntu en í hléi gæddu
gestir sér á tertum af hlað-
borði 10. bekkinga.
Dráttarvél af
vatnsbotni
Hvammstanga - Björgunarsveit-
inni Káraborg á Hvammstanga
tókst fyrir nokkru að bjarga drátt-
arvél úr Vesturhópsvatni. Eins og
mörgum er í fersku minni lentu
hjónin Ragna Sigurbjartsdóttir og
Konráð Jónsson á Böðvarshólum í
þeim hremmingum í febrúar að
festa stóra jeppabifreið í vök á
vatninu og við björgun hennar fór
dráttarvél þeirra niður um ísinn.
Dráttarvélin, sem var með stórum
ámoksturstækjum, stóð á hrygg á
vatnsbotninum á um 5-6 metra
dýpi.
Við könnun á aðstæðum virtist
vonlítið að draga mætti vélina til
lands þegar ísinn leysti og bauðst
björgunarsveitin til að ná vélinni
upp á ísinn. Söguð var vök í ísinn og
byggður sterkur rammi úr raf-
magnsstaurum í kring. Tveir gálgar
voru reistir á rammann og settar
krafttalíur á hvorn gálga. Kafarar
losuðu ámoksturstækin af vélinni
niðri í vatninu og festu taugar á
hana. Vélin var síðan hífð upp og
stungið undir hana trjám, dregin
með jeppum í landi út á ísinn og síð-
an í land. Loks voru ámoksturstæk-
in hífð upp á sama hátt. Verkið tók
marga klukkutíma en um kvöldið
var dráttarvélin gangsett og virtist
ekki hafa orðið mjög meint af volk-
inu.
Konráð og Ragna eru með bút-
ryggingar sínar hjá Tryggingamið-
stöðinni og í tilefni þessarar sér-
stæðu björgunar afhenti Trygg-
ingamiðstöðin og umboð hennar á
Hvammstanga björgunarsveitinni
40.000 kr. sem viðurkenningu fyrir
vel heppnaða björgun og einnig fyr-
ir önnur óeigingjörn störf sem
sveitin hefur unnið. Vélar og bif-
reiðar eru hins vegar ekki tryggðar
við slíkar aðstæður og hefði tjón
hjónanna geta orðið verulegt.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
LYFTIBUNAÐUR á ísnum, dráttarvélin í kafi. Gálgarnir minntu á
heimaslátrun að sögn viðstaddra.
UMBOÐSMAÐUR Tryggingamiðstöðvarinnar, Sigurður Þorvaldsson,
afhenti Guðmundi Jóhannessyni, formanni Káraborgar, viðurkenningu.