Morgunblaðið - 09.04.1998, Síða 35
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 35
AF SÝNINGU Ólafs Elíassonar á Kjarvalsstöðum.
í Hellisgerði
hugmyndanna
MYIVDLIST
Kjarvalsstaðir
INNSETNINGAR
ÓLAFUR ELÍASSON
Opið 10 til 18 alla daga. Aðgangseyr-
ir 300 kr. Stendur til 12. aprfl.
SÝNING Ólafs Elíassonar á
Kjarvalsstöðum er að mörgu leyti
umfangsmeiri en flestar þær inn-
setningarsýningar sem áður hafa
verið settar upp hér á landi. Þar
hafa verið byggð heil umhverfí fyr-
ir áhorfendur: Skáli fyrir utan sem
breytist fyi’ir tilverknað vatns og
kulda, mannhæðarhá kviksjá og
heil grasflöt hefur verið lögð á
gangi safnsins með hlöðnum
brunni sem sýgur vatn ofan í sig.
Auk alls þessa tilheyrir sýningunni
bókverk með ljósmyndum úr
Hellisgerði, lystigarðinum í hraun-
inu í Hafnai-firði. Sýningin er jafn-
framt nokkuð sláandi fyrir það að á
henni blandast vandaðar útfærslur
og viss grófleiki sem felst í því að
áhorfandinn verður vel var við það
hvernig hlutirnir á sýningunni eru
byggðir - það sést í bakhlið þein-a,
ef svo má segja, og ekkert er gert
til að fela þá hluti sem ekki er
gengið frá. Verkin veita áhorfend-
um sterka sjónræna upplifun en
eru um leið nokkuð hrá svo blekk-
ingin er aldrei alveg fullkomnuð.
Þetta er tilbúin veröld. Verk Ólafs
eru líka allólík því sem við eigum
að venjast frá íslenskum lista-
mönnum að yfirbragði og maður
finnur nokkuð sterkt að umhverfi
hans og bakgnmnur eru meginland
Evrópu en ekki Island. Ekki svo að
skilja að listamenn sem hér starfa
hafi einangrast á einhvern hátt eða
séu sér ómeðvitandi um strauma í
meginlandslistinni - langt í frá. En
samanburðurinn sýnir glögglega
að í íslensku listaumhverfi hafa
mótast efnistök sem eru að ein-
hverju leyti sérstök og er það vel.
Engu að síður er það náttúran
sem er helsta viðfangsefni Ólafs á
þessari sýningu - íslensk náttúra -
og samband mannsins við hana. I
verkunum er mikill leikur og það
má jafnvel segja að þar gæti ein-
hverrar bjartsýni þótt meðfram
henni megi líka gi’eina efasemdir
um þátt mannsins í náttúrunni og
hugmyndalega afstöðu hans til
hennar. Skálann sem Ólafur hefur
byggt utan við safnið má til dæmis
lesa sem eins konar tákn fyrir
manngerða hluti, hús okkar og
bæi. Vatnsúðari sér til þess að
sprauta vatni yfir þak skálans sem
er úr vímeti svo að þegar kalt er í
veðri verða til grýlukerti sem
hanga niður úr þakinu. Skilaboðin
eru að vísu langt frá því afdráttar-
laus, en verkið virðist segja hvort
tveggja í senn, að náttúran sé og
eigi að vera snar þáttur í umhverfi
okkar og að hún sé aldrei fullkom-
lega byggileg, að hún sé alltaf að
einhverju leyti andsnúin okkur.
Þetta mótsagnakennda samspil
manns og náttúru er líka greinilegt
á kviksjánni þar sem gestir sjá
sjálfa sig og trén fyrir utan í marg-
földuðum speglum, líkt og lista-
maðurinn efist um að þeir geti í
raun upplifað náttúruna öðru vísi
en í gegnum einhvers konar eftir-
myndun - einhvern manngerðan
leik. Aftur á móti virðist bjartsýnin
ríkja ein í bókverkinu með mynd-
um frá Hellisgerði því þar eru á
ferðinni fallegar ljósmyndir af
þessum kyixláta garði í miðjum
Hafnarfirði þar sem úfið hraunið
og manngerðar viðbætur virðast
harmónera fullkomlega. I myndun-
um ríkir einhver unaðslegur friður
sem virðist benda til þess að Ólafur
trúi því eftir allt saman að við séum
fær um skilja og lifa með okkar
náttúrulega umhvei’fi.
Það sem fyrst og fremst ein-
kennir þessa sýningu er leikurinn
sem er ráðandi í öllum verkunum
og það af hve miklu öryggi Ólafur
virðist útfæra þau. Þótt honum sé
gi-einilega nokkuð mikið niðri fyrir
með þessari sýningu lætur hann
áhorfendum eftir að ljúka verkun-
um með þátttöku sinni og draga
sínar eigin ályktanir.
Jón Proppé
í ANDDYRI Hallgrímskirkju
stendur nú yfir sýning á stórum
blýteikningum eftir Valgerði
Bergsdóttur undir heitinu Passíu-
teikningar. Myndirnar eru unnar
sérstaklega fyrir Hallgiímskirkju
og lýsa atburðum dymbilvikunnar,
aðallega föstudagsins langa. Það
eru Listasafn Hallgiímskirkju og
Listvinafélag kirkjunnar sem
standa að sýningunni, en henni
lýkur 14. maí nk.
Stærst teikninganna er myndin
I loftsal sem lýsir síðustu kvöld-
máltíð Jesú með lærisveinunum
ásamt Maríu Magdalenu að kvöldi
skírdags. Önnur verk fela í sér
táknrænni tilvísanir í titlunum;
Bænin, Miskunnin, Dimman,
Fórnin, Fullkomnunin og Birtan.
Mannslíkaminn er í forgrunni
verka sem í hringiðu blýantsstrika
renna saman í symmetrískt
mynstur er byggist á grunn-
formunum þremur; hringnum, þrí-
hyrningnum og ferhyrningnum.
Valgerður hefur haldið einka-
sýningar hér heima og erlendis frá
árinu 1981. A síðustu sýningu
hennar árið 1993 voru teikningar
við Sólarljóð sem Valgerður vann
til undirbúnings glugga fyrir
Reykholtskirkju og tengist sú
vinna talsvert verkum Valgerðar í
Hallgrímskirkju. Síðan þá hefur
Valgerður verið skólastjóri Mynd-
listarskólans í Reykjavík og ekki
sýnt verk sín opinberlega fyrr en
nú, þegar hún hefur látið af þeim
störfum.
„Hluti teikninganna á sýningunni
er unninn í beinu framhaldi af hug-
leiðingum mínum um Sólarljóð
fyrii’ Reykholtskirkju. Þarna fann
ég mikið viðfangsefni sem ég nýti
mér í þessari sýningu í Hallgríms-
kirkju,“ segir Valgerður.
Aðspurð hvort hún hafi áður
leitað í trúarleg þemu við mynd-
sköpun sína svarar Valgerður neit-
andi. „Ekki á annan hátt en ég
býst við að þeir sem fást við list-
sköpun geri. Þegar mér hafði verið
falið þetta verkefni tók ég það hins
vegar mjög alvarlega. Ég las Biblí-
una og reyndi að setja mig inn í
margbrotinn heim allegórískra og
guðspekilegra tákna og leitaði m.a.
til séra Árna Bergs Sigurbjörns-
sonar. Verkin hér eru niðurstaða
Morgunblaðið/Ásdís
MYNDLISTARKONAN Valgerður Bergsdóttir sýnir passíuteikningar
í anddyri Hallgrímskirkju í tilefni dymbilvikunnar.
úr þessari könnun og vitnisburður
um upplifun mína á viðfangsefninu
á þeim tíma.“ Án þess að skýra
nánar frá hugmyndum sínum að
baki verkunum segir Valgerður að
það sé hverjum manni gefið að
leggja sína huglægu merkingu í
tungumálið þó að þau orð sem hún
hafi valið í titla verkanna gefi
ákveðna hugmynd um það sem
verið er að lýsa.
Henni þykja tímamir kalla á
andsvar. „Öldin okkar er mörkuð
af óheftum tækniframfömm og
það er ekki óeðlilegt að við lok
hennar leitum við svara við hinum
margvíslegu siðferðislegu spurn-
ingum sem hafa vaknað. í þessu
sambandi held ég að það sé okkur
nauðsynlegt að kenna börnum
okkar bænir í öllu því ofbeldisflóði
sem á okkur dynur. Þá er ekki síð-
ur mikilvægt að börn fái að njóta
undirstöðumenntunar í myndlist
og tónlist og lesnar séu fyrir þau
vandaðar bækur. Allt þetta og
miklu meira af hinum góðu gildum
er nauðsynlegt mótvægi við ógnir
heimsins, ræktun hugans og hjart-
ans hefur gleymst."
Umsóknir um styrki
til dagskrárgerðar
STJÓRN Menningarsjóðs út-
varpsstöðva auglýsti eftir umsókn-
um um styrki úr sjóðnum til dag-
skrárgerðar í janúar sl. Umsókn-
arfrestur rann út 16. febrúar.
Hlutverk sjóðsins er skilgreint
þannig í útvarpslögum að hann
skuli..veita framlög til eflingar
innlendri dagskrárgerð, þeirri er
verða má til menningarauka og
fræðslu".
Umsóknir um styrki til 264
verkefna bárust, alls að fjárhæð
500 milljónir króna, kostnaðará-
ætlun verkefnanna er 1.250 millj-
ónir króna. Til úthlutunar verða
tæplega 50 milljónir króna.
Stjórn sjóðsins er nú fullskipuð
og getur því hafið vinnu við úthlut-
un.
Vegna hins mikla fjölda umsókna
er ekki ljóst hvenær niðurstöður
stjórnar sjóðsins munu liggja fyr-
ir. Þó er ljóst að það getur ekki
orðið fyiT en í fyrsta lagi seint í
maí nk.
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíLL - hannaður fyrir íslenskar aðstæður
.Innifaiið í verði bílsins
-v 2.01 4 strokka 16 ventla léttmálmsvél
v Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
■/ Rafdrifnar rúður og speglar
S ABS bremsukerfi
v Veghæð: 20,5 cm
p'
s Fjórhjóladrif
v 15" dekk
v” Samlæsingar
v Ryðvörn og skráning
■/ Útvarp og segulband
V Hjólhaf: 2.62 m
V Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
Verð á götuna: 2.285.000.- með abs
Sjálfskipting kostar 80.000,
HONDA
Slmi: 520 1100
Tímarnir kalla á andsvar