Morgunblaðið - 09.04.1998, Síða 39

Morgunblaðið - 09.04.1998, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 39 Morgunblaðið/Árni Sæberg KOR Seltjarnameskirkju ásamt píanóleikaranum Pavlinu Pasmovu, bassaleikaranum Michal Pasma og stjórnanda tónleikanna Vieru Gulazsiovu Manásek. Tónlist og myndlist í Seltjarnarneskirkju LISTAHÁTÍÐ á Seltjamarnesi er tvíæringur sem nú er haldinn fjórða sinni í Seltjarneskirkju og hefst á páskadag. Yfirskrift hátíð- arinnar er Gleði trúarlífsins. 16 listamenn sýna saman verk sín í kirkjunni ásamt verkum nemenda í Mýrarhúsaskóla. Að kvöldi annars í páskum, kl. 20, verða tónleikar í kirkjunni þar sem fram kemur fjöldi listamanna; bæði hljóðfæra- leikara og söngvara, undir stjórn organista Seltjamarneskirkju, Vi- em Gulazsiovu Manásek. Myndlistarmennimir sem sýna í Seltjarnameskirkju era allir bú- settir á nesinu. Hrafnhildur Schram listfræðingur hefur haft umsjón með framkvæmd sýningar- innar og segir að þátttakendunum hafi verið send bréf í fyrrasumar þar sem þeim var kynnt þema listahátíðarinnar að þessu sinni, gleði trúarlífsins. „Listamennirnir hafa því haft talsverðan tíma til að vinna myndefni fyrir sýninguna,“ segir Hrafnhildur. „Verkin era mjög fjölbreytt; bæði glerlist, textíll, grafík, vatnslitamyndir og olíumálverk, teikningar og leirlist." Myndlistarsýningin verður sett upp í safnaðarheimilinu, inni í kirkjuskipinu og við innganginn. Á jarðhæð sýna nemendur á aldrin- um 7 til 12 ára í Mýrarhúsaskóla verk sín. Á annan í páskum verða tón- leikar í Seltjarnarneskirkju undir stjórn Viera Gulazsiovu Manásek organista. Þar syngur kirkjukór- inn ásamt einsöngvaranum Alinu Dubik frá Póllandi. Strengjasveit leikur á tónleikunum og hana skipa þau Szymon Kuran, Zbigni- ew Dubik, Jóhanna Valsdóttir, Lovísa Fjeldsted og Pavel Maná- sek auk ungra hjóna, Pavlinu Pa- smovu og Michal Pasma sem koma hingað til lands frá Tékk- landi gagngert til þess að leika á tónleikunum. Þau leika á píanó og kontrabassa og eru meðlimir í Sin- fóníuhljómsveit Zlínborgar. Þá leika á trompet með sveitinni þeir Guðjón Leifur Gunnarsson og Ei- ríkur Örn Pálsson. Auk Alinu og kirkjukórsins syngja Svava K. Ingólfsdóttir og P.J. Buchan sam- an dúett og kvartett Seltjarnar- neskirkju. Frumflutningur Ijóðs Tónleikarnir hefjast á efnisskrá gestanna frá Tékklandi, þeirra Pa- vlinu Pasmovu píanóleikara og Michal Pasma, bassaleikara. Þar verða fluttar sónötur eftir Eccels og Marcello, konsert eftir Hof- meister og sálmur 23 eftir Dvorák. Þá flytur sópransöngkonan Alina Dubik aríu úr Mattheusarpassíu J.S. Bachs. Eftir hlé tekur við kór og strengjahljómsveit. Haldið verður áfram að flytja verk eftir Bach. Þá tekur við Páskakantata D. Buxtehude, kafli úr Messa Dolorosa eftir A. Caldara og loks verður frumflutt ljóð eftir einn kór- meðlimanna, Egil Gunnarsson, stjórnanda Háskólakórsins. Tón- leikamir hefjast kl. 20. Listahátíð á Seltjamarnesi lýkur hinn 26. apríl með tónleikum Selkórsins. Morgunblaðið/Aðalheiður ÞAÐ var mikið fjör á æfingu leikhóps grunnskólabarna í Þykkvabæ . Börn í Þykkvabæ setja upp leikrit Hella. Morgunblaðið. VERIÐ er að selja upp leikritið „Stóra klunnalega blórann með uppsnúnu uggana“ í samkomuhús- inu í Þykkvabæ eftir danska kennarann Björge Hanson en þýð- andi verksins er Emil Emilsson. 23 börn á aldrinum sex tii þrettán ára úr Grunnskólanum í Þykkvabæ leika í verkinu undir stjórn G. Mar- grétar Óskarsdóttur. Að sögn Margrétar er þetta söng- og ævintýraleikur með brúðuleik í fimm leikmyndum sem eru m.a. hafið ofan- og neðansjáv- ar, indíánaþorp og skógur. Leik- myndirnar unnu bömin sjálf í myndmenntatímum í skólanum. Verkið fjallar um nokkur börn sem fara að leita að „Blóranum" en lenda í alls konar ævintýrum. Mar- grét sagði þetta afar fjörlega fantasíu sem hægt væri að laga að næstum hvaða leikhóp sem er hvað varðar stærð og samsetningu, með eða án hljómsveitar. Frumsýning „Blórans" verður kl. 15, 10. apríl í samkomuhúsinu f Þykkvabæ. Nýjar bækur • ÚT er komið ritið Nátt- úrufar á Seltjarnarnesi. Hér er á ferðinni rit sem segir í máli og myndum frá jarð- myndun, lífríki og náttúra Seltjarnarness. Bókin er ætl- uð áhugafólki og fræðimönn- um um þessi efni. í bókinni er að finna niður- stöður úr ítarlegum rann- sóknum sem unnar voru af sérfræðingum hjá Náttúru- fræðistofnun Islands og Líf- fræðistofnun Háskólans á ár- unum 1987-1997. Meðal efnis í bókinni eru kaflar um jarð- myndanir á Seltjarnarnesi, gróðurfar, fugla og spendýi’ auk kafla um fjöralíf. Margar litmyndir eru í bókinni auk jarðfræðikorta og skýringamynda af lífríki Seltjarnarness. Einnig er þar að finna skrá yfir flóru Sel- tjarnarness, tegundir plantna og dýra í fjörum Seltjarnar- ness auk skráa yfir varpfugla og fugla sem hafa þar við- komu. Bókin er alls 112 síð- ur. Seltjarnarnessbær stendur að útgáfu bókarinnar og ann- aðist umverfisnefnd Seltjarn- arness útgáfu hennar. Hægt er að nálgast bókina á bæjar- skrifstofum Seltjarnarnes- bæjar. Sýning í Hruna OPNUÐ hefur verið sýning í safn- aðarheimilinu Hruna. Systurnar Jóhanna og Þórdís Sveinsdætur sýna. Jóhanna sýnir grafíkmyndir, stálætingu og dúkristur. Verkin fjalla um hringferð jarðar, birtu og lit. Dúkristurnar era unnar sér- staklega með náttúru Islands í huga. Þórdís sýnir textflverk, hand- þrykkta dúka og silkislæður. Hún notar mynstur af gömlum tréút- skurði í verk sín. Sýningin stendur til 1. júní. HLUTI úr mynd eftir Jóhönnu Sveinsdóttur. BOKASALA í mars Rðð Var Titill/Höiundur/Úlgefandi 1 SÁLMABÓK ÍSLENSKU KIRKJUNNAR/ Lögin valdi Róbert A. Ottósson/Kirkjuráð 2 ÍSLENSK ORÐABÓK/ Ritstj. Árni Böðvarsson/Mál og menning 3 EINAR BENEDIKTSSON/Guðjón Friðriksson/lðunn 4 ALMANAK HÁSKÓU ÍSLANDS/ /Háskóli Isiands 5 STAFAKARLARNIR/ Bergljót Arnalds/Skjaldborg 6 FLÝTTU ÞÉR EINAR ÁSKELL/ Gunilla Bergström/Mál og menning 7 SVEI ATTAN EINAR ÁSKELL/ Gunilla Bergström/Mál og menning 8 ÓÐURINN UM EVU/ Manuela Dunn Mascetti/Forlagið 9 AF BESTU LYST/ Ritstj. LaufeySteingrímsdóttir/Vaka-Helgafell 10-11 ALMANAK HÁSKÓLA ÍSLANDS/ /Háskóii (slands 10-11 ENSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-ENSK ORÐABÓK/ Ritstj. Sævar Hilbertsson/Orðabókaútgáfan Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 HIBYLI VINDANNA/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning 2 ENGLAR ALHEIMSINS/ Einar Már Guðmundsson/Mái og menning 3 SJÁLFSTÆTT FÓLK/ Halldór Kiljan Laxness/Vaka-Helgafell 4 í SKOTLÍNU/ Max Allan Collins/Frjáls fjölmiðlun 5 ISLANDSFORIN/ Guðmundur Andri Thorsson/Mál og menning 6 FAÐIR OG MÓÐIR OG DULMAGN BERNSKUNNAR/ Guðbergur Bergsson/Forlagið 7 SKELFING/ Margit Sandemo/Reykholt 8 BRENNUNJÁLSSAGA/ Halldór Laxness annaðist útgáfuna/Vaka-Helgafell 9 RÉTTLÆTI FULLNÆGT//Ásútgáfan 10 SNORRA EDDA/ Snorri Sturluson/Mál og menning ÆVISOGUR OG ENDURMINNINGAR 1 EINAR BENEDIKTSSON/Guðjón Friðriksson/lðunn 2 ERRO - MARGFAL.T LÍF/ Aðalsteinn Ingólfsson/Mál og menning 3 GUÐBERGUR BERGSSON METSÖLUBÓK/ Þóra Kristín Ásgeirsdóttir/Forlagið 4 LÍFRÓÐUR ÁRNA TRYGGVASONAR LEIKARA/ Ingólfur Margeirsson/Örn og Örlygur 5 ÞAÐ VAR ROSALEGT/ Hákon Aðalsteinsson/Hörpuútgáfan ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 STAFAKARLARNIR/ Bergljót Arnalds/Skjaldborg 2 FLYTTU ÞÉR EINAR ÁSKELL/ Gunilla Bergström/Mál og menning 3 SVEI ATTAN EINAR ÁSKELL/ Gunilla Bergström/Mál og menning 5 HEIMA ER BEST/ Margit Ravn/Hildur 5-6 FÍN FARARTÆKI/StuartTrottermyndskreytti/Mál og menning 5-6 ÚLFURINN OG SJÖ KIÐLINGAR/ Richard Scarry/Björk 7 DOLLI DROPI ARKAR UM AKUREYRI/ Jóna Axfjörð/Fjöivi 8 ÍSLENSKU DÝRIN/ Halldór Pétursson/Setberg 9 DÝR - PÚSLUBÓK//Útg. Mál og menning 10 BRÉF TIL TÍGRISDÝRSINS/ Janosch/Bjartur ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 SALMABOK ISLENSKU KIRKJUNNAR/ Lögin valdi Róbert A. Ottósson/Kirkjuráð 2 ÍSLENSK ORÐABÓK/ Ritstj. Árni Böðvarsson/Mál og menning 3 ÓÐURINN UM EVU/ Manuela Dunn Mascetti/Forlagið 4 AF BESTU LYST/ Ritstj. Laufey Steingrímsdóttir/Vaka-Helgafell 5-6 ALMANAK HÁSKÓU ÍSUNDS//Háskóli islands 5-6 ENSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-ENSK ORÐABÓK/ Ritstj. Sævar Hilbertsson/Orðabókaútgáfan 7 ENSK-ÍSLENSK ORÐABÓK/ Sigurður örn Bogason/Mál og menning 8 INTERNET FYRIR ALLA/ Benedikt Friðbjörnsson/Tölvuskóli Reykjavikur 9 NYJA ISUND/ Guðjón Arngrímsson/Mál og menning 10 NOSTRADAMUS - HORFT TIL FRAMTÍÐAR/ Peter Lorie/Forlagið Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Bóksala stúdenta v/Hringbraut Penninn-Eymundsson, Austurstræti Eymundsson, Kringlunni Penninn, Hallarmúla Penninn, Kringlunni Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavikur, Keflavik Bókval, Akureyri Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum KÁ, Selfossi Samantekt Fólagsvísindastofnunar á sölu bóka á sölu bóka í febrúar 1998 Unnið fyrir Morgunbíaðið, Félag íslenskra bókautgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennsíubækur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.