Morgunblaðið - 09.04.1998, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 67 '' -
KIRKJUSTARF
Heimssýningin í Portúgal og
kristnitökuafmælið 2000
GAIJA fór mikla frægðarför sumarið 1991 í minningu Ameríkulanda-
fundar Leifs Eiríkssonar. Landtakan á Heimaey minnti á komu Gissurs
hvíta og Hjalta Skeggjasonar, íslandstrúboða, árið þúsund, þar sem
fyrsta kirkjuviðnum var landað að boði Ólafs konungs Tryggvasonar.
Frá Jóhanni Friðfinnssyni:
í FERÐABLAÐI Morgunblaðsins,
sunnudaginn 5. apríl voru Lissabon
gerð góð skil í ágætri grein Einars
Fals Ingólfssonar.
Það styttist í opnun Heimssýn-
ingarinnar, sem að þessu sinni
verður í Portúgal. Þar á bæ ætla
þeir m.a. að tengja Ar hafsins við
sýninguna og opna stærsta sæ-
dýrasafn heimsins með 25.000 teg-
undum úr undirdjúpunum. Maður
hélt, að toppnum væri náð á safn-
inu í Boston, en þar gefur að líta
aðeins yfir 12.000 tegundir, svo nú
á aldeilis að gera betur.
En fyrst og fremst ætla þeir að
minna á afrek sæfarenda sinna,
þar sem Vasco de Gama, Indiafari,
trónar á toppnum.
Mikið er lagt uppúr því að
Bandaríkjamenn fjölmenni á sýn-
inguna, sem á að standa í 100 daga.
Þess má geta, að fyrir 50 árum
komu um 200 þúsund til Evrópu en
eru nú orðnir um 10 milljónir á ári.
Og vegna stöðu dollarans er vonast
eftir stóraukningu.
Þetta leiðir hugann að því,
hvernig við kynnum ísland á
heimssýningunni.
Er ekki kjörið tækifæri að
minna á íslensku sæfarendurna, er
voru á ferðinni 500 árum á undan
Vasco de Gama og Kólumbusi?
Frá Umferðarráði:
PÁSKAR og bænadagar eru eitt
lengsta samfellda frí sem Islend-
ingar njóta á árinu. Þess vegna er
ekki ólíklegt að margir leggi land
undir fót og njóti þess að vera úti í
náttúrunni ef veður leyfir eða
heimsæki vini og kunningja sem
búa í öðrum landshlutum.
Undirbúningur ferðalags skiptir
verulegu máli til að vel takist.
Huga þarf að veðurspá á þeirri leið
sem fyrirhugað er að aka um og
einnig þarf að leita upplýsinga um
færð og akstursaðstæður. Enda
þótt komið sé fram í apríl getur
verið allra veðra von á Islandi og
því skiptir máli að hafa á hrað-
bergi upplýsingar um akstursskil-
yrði. Upplýsingar koma frá þjón-
ustudeild Vegagerðarinnar og er
Einhverntíma á árunum hafði ég
orð á því við herra Sigurbjörn Ein-
arsson biskup, hvað mér fyndist
kirkjan vera hljóðlát um kristniboð
Ólafs Tryggvasonar, Leifs Eiríks-
sonar til Grænlands sem varð upp-
haf Vínlandsfundar og Gissurs
hvíta, og Hjalta Skeggjasonar, Is-
landstrúboðanna. Biskup kvaðst
stundum minnast þess, þökk sé
fyrir það.
símaþjónusta þar í síma 563-1500
og í grænu númeri 8006315 og
8006316 (símsvari). Opið er frá
klukkan 7 til 22. Þá eru upplýsing-
ar tiltækar á textavarpi í númer
470 og áfram. Veffang Vegagerð-
arinnar er www.vegag.is
Utvai’p Umferðarráðs veitir
einnig einnig upplýsingar, en út-
sendingar verða þar á flestum út-
varpsstöðum bæði á skírdag og á
laugardaginn fyrir páska, nálægt
hádegi og síðdegis á annan dag
páska.
Að undanförnu hefur töluvert
borið á miklum hraða og er ástæða
til að hvetja ökumenn til að stilla
honum í hóf. Einnig þarf að sýna
mikla aðgæslu við framúrakstur
og reyna hann aldrei nema að fólk
sé öruggt um að leiðin sé greið.
Höldum hátt á lofti afrekum ís-
lensku siglingakappanna og boð-
bera trúarinnar um Norðurhöf fyr-
ir 1000 árum.
Er það ekki gott innlegg í und-
anfara kristnitökuafmælisins árið
2000?
JÓHANN FRIÐFINNSSON,
safnstjóri byggðasafns Vestmanna-
eyja og sóknarnefndarformaður.
Þegar langt er liðið á vetur eins
og nú er hætt við að yfirborðsmerk-
ingar á vegum séu famar að láta á
sjá. Þess vegna þurfa ökumenn að
sýna mikla varúð og treysta merk-
ingum ekki nema þeir séu vissir um
að þeir geti lesið í þær með full-
nægjandi hætti. Eins og alltaf þurfa
ökumenn að aka eftir aðstæðum,
hafa ferðaáfanga hæfilega langa og
fara út úr bílnum og teygja úr sér
með reglulegu millibili.
Allir í bílnum eiga að nota bíl-
belti eða annan öryggisbúnað. AU-
ir vita hve miklu hann getur
breytt. Áfangi og akstur er lífs-
hættuleg blanda og enginn ætti að
láta sér detta til hugar að aka bfl
eftir að hafa neytt áfengis. Það á
við um ökumenn allra faratækja,
jafnt á vegum og utan vega.
Ökumenn vélsleða eru beðnir
um að sýna göngu- og skíðafólki
fulla tillitssemi og aka aðeins þar
sem aksturinn er leyfður.
Umferðan-áð óskar ferðafólki
góðrar ferðar og ánægjulegi-ar
heimkomu.
Allir aki eftir að-
stæðum um páskana
Hand-
lyfti-
vagnar
Eigum fyrirliggjandi
handlyftivagna á
frábæru verði.
Á tvöföldum hjólum,
2500 kg. lyftigeta.
Verð frá
kr. 37.842.- með vsk.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Nv
y.
jjl senaing
Stuttar og
11 B \ ' síðar kápur
L, . 1 I \ Sumarhattar
1 Páskatilboð 1
| Sumarúlpur kr. 7.900. |
k Opiö laugardag 10 — 16.
w \<#HM5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Safnaðarstarf
Páskamessa
.. íHoltií
Önundarfirði
Á PÁSKADAG, 12. apríl næstkom-
andi, verður sungin hátíðarmessa í
Holtskirkju í Önundarfirði kl. 14.
Sóknarpresturinn, sr. Gunnar
Björnsson, prédikar og þjónar fyi’-
ir altari. Organisti er Bi-ynjólfur
Ámason á Vöðlum.
Talið er að kirkja hafi verið reist
í Holti fljótlega eftir að kristni var
lögtekin á íslandi. Kirkja og graf-
reitur hafa hlotið endurbætur á
undanförnum árum. Sumarið 1994
var garðurinn sléttaður og leg-
steinar hreinsaðir. Síðsumars 1996
var kirkjan máluð utan og að hluta
innan. Fyi’irhugað er að reisa nýja
vörn um garðinn og stækka hann
um leið.
Kirkjunni hafa borist margar
góðar gjafir að undanförnu, m.a.
altarisklæði, spennubreytii’ í
kirkjugarð, gólfflísar og vinna í
forkirkju, kaleiksdúkur, korporals-
hús og brauðöskjur.
Helgihald í
Hafnarfjarðar-
kirkju
í KYRRUVIKU og um páska
verður fjölbreytt helgihald í Hafn-
ai’fjarðarkirkju að venju. Tónlistin
skipar veglegan sess og mun leiða
kirkjugesti í íhugun og bænahaldi.
Að kvöldi skírdags verður sungin
gregorsk messa. Á föstudaginn
langa er guðsþjónusta kl. 14 og
syngur þá allur kór kirkjunnar .
undir stjórn Natalíu Chow en Ár-
mann Helgason leikur valin verk á
klarinett. Prestur er sr. Gunnþór
Ingason. Á páskadag verður upp-
risu Jesú Krists fagnað með hátíð-
arguðsþjónustu kl. 8. Eftir guðs-
þjónustuna er boðið upp á morgun-
verð í safnaðarheimilinu og kl. 14
er hátíðarguðsþjónusta. Prestur í
báðum guðsþjónustum páskadags
er sr. Þórhildur Ólafs. Vonandi sjá
sem flestir sér fært að njóta íhug-
unar kyrruviku og gleði páska
saman í kirkjunni.
Safnaðarstarf þriðjud. 14. apríl:
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu í dag kl.
18.30. Bænaefnum má koma til
sóknarprests í viðtalstímum hans.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-
10 ára kl. 17.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar.
Opið hús kl. 13.30. Föndrað, spilað
og sungið. Kaffiveitingar. KFUM,
drengir 9-12 ára, kl. 17.30-18.30.
Æskulýðsfélag, yngri deild, fyrir 8.
bekk kl. 20-22. '
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. _•
10-12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 8-10 ára börn kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu. ‘
KEFAS, Dalvegi 24. Brauðsbrotn- í
ing og helgistund í umsjá Magnús- |
ar Björnssonai’ laugardaginn 11. t
apríl kl. 14. Allir velkomnir.
OTRULEC
PÁSKATILBOÐ
OPIÐ ALLA
PÁSKANA
FTökum
mm Sm m
notadan
skíðabúnað
iiop í nýian
^Kioaieiga
njóbrettáleiga
Carvíng-
skíðaleiga
stgr
Barnapakki
frá kr. 12.990 stgi
Unglingapakki
frá kr. 16.567 stgr.
•ullorðinspakki frá kr. 19.
Gönguskíðapakki kr.
Stórútsala á skíða-
og vetrarfatanði.
UTIVISTARBUÐIN
VIÐ UMFERÐAMIÐSTÖÐINA - SÍMAR 551 9800 OG 551 3072
http://www.mmedia.is/~sporti
Blað allra landsmanna!
i
'~'' "*A ,.v!. -• ‘V W Mt'F.