Morgunblaðið - 09.04.1998, Qupperneq 72
- >72 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir Kundun sem er nýjasta mynd leikstjórans Martins Scorseses.
Myndin fjallar um fyrstu 24 árin í lífi Dalai Lama sem varð að flýja land sitt eftir innrás Kínverja.
Líf leiðtogans
LEIKSTJÓRlNN Martin Scorsese leiðbeinir leikurura í myndinni.
ÁRIÐ 1950 réðst kommúnistaher Maós inn í Tíbet og-
gerði kröfu um að landið yrði sameinað Kína.
Frumsýning
ARIÐ 1937 var tveggja og
hálfs árs gamall drengur að
nafni Tenzin Gyatso úr al-
þýðufjölskyldu í Tíbet viðurkennd-
ur sem fjórtánda endurholdgun
Búddha og var honum skapað það
hlutskipti að verða andlegur og
pólitískur leiðtogi þjóðar sinnar. I
Kundun færir leikstjórinn Martin
Scorsese raunverulega sögu Dalai
Lama á hvíta tjaldið en söguna
segir hann út frá sjónarhorni Dalai
Lama sjálfs. Fylgst er með því
þegar drengurinn er búinn undir
forustuhlutverk sitt með aðstoð
helstu vísdómsmanna í Tíbet og er
brugðið upp mynd af þjóðfélagi
sme verið hafði einangrað um
margra alda skeið. Arið 1950 þegar
Gyatzo var 15 ára gamall réðst
kommúnistaher Maós inn í Tíbet
og gerði kröfu um að landið yrði
sameinað Kína og þrátt fyrir bænir
Dalais Lama aðhöfðust vestui’veld-
in ekkert og varð hinn ungi leiðtogi
því að standa einn og óstuddur.
Allan þann tíma sem hann hefur
veitt andspymu gegn innrásinni
hefur hann hins vegar aldrei hvik-
að frá þeirri hugmyndafræði að
beita ekki ofbeldi undir neinum
kringusmtæðum.
Martin Scorsese segir að það
sem hafi heillað hann við sögu
Dalai Lama hafi verið spurningin
um það hvemig ungur maður, sem
bjó í þjóðfélagi sem byggðist á and-
TVEGGJA og hálfs árs gömlum
var Tenzin Gyatso skapað það
hlutskipti að verða andlegur og
pólitískur leiðtogi Tíbets.
legum verðmætum, tækist á við
trúlausa kommúnista Kínaveldis.
Til þess að koma myndinni um trú-
arleiðtogann á hvíta tjaldið fékk
Scorsese Tíbeta sem búsettir em í
Indlandi, Kanada og Bandaríkjun-
um til að fara með hlutverkin í
myndinni. Þeir höfðu annaðhvort
fæðst í útlegð frá heimalandi sínu
eða þá að þeir höfðu verið í útlegð
stærstan hluta lífs síns. Enginn
þeima er hins vegar atvinnuleikari
og um fjögurra mánaða skeið tóku
þeir sér frí frá vinnu sinni eða námi
til þess að leika í myndinni um
hans heilagleika Dalai Lama, en
það fannst þeim hinn mesti heiður.
Höfundur handrits myndarinnar
er Melissa Mathison sem lengi hef-
ur haft áhuga á Dalai Lama. Hún
byrjaði að vinna að þessu verkefni
fyrir sjö árum og eftir miklar rann-
sóknir var uppkast að handritinu
sent Dalai Lama til umsagnar og
samþykkti hann að myndin yrði
gerð. Fór hún síðan í boði hans í
heimsókn til hans ásamt eigin-
manni sínum, leikaranum Harrison
Ford, en alls heimsótti Mathison
Dalai Lama í fímmtán skipti á
meðan hún vann að kvikmynda-
handritinu.
Mataróregla
Ertu með mat á heilanum?
Naldið verður námskeið fyrir iólk með bulimiu, anorexiu
og ofátsvandamál.
Á námskeiðinu verða kenndar ábyrgar aðferðir til þess að
ná valdi á þyngd sinni og lífstíðarprógrammi til bata.
Upplýsingar í 552 3132 símsvari, (skilaboð) Inga Bjarnason.
Fjórða námskeið fullt. Nokkur pláss laus á fimmta námskeið,
sem hefst 21. apríl.
Smiðjuvegi 14, ‘Kppavogi, sími 587 6080
r i i
a* .. f
★ Föstudagurinn langi
Opið frá kl. 24.00-04.00
★ Laugardagskvöld
Opið frá kl. 22.00-03.00
★ Páskadagskvöld
Opið frá kl. 24._00-04.00
Galabandið ásamt Önnu Vilhjálms
leikur fyrir dansi öll kvöldin
★ Annar í páskum
Opið frá kl. 22.00 — ?
Hljómsveit Hjördísar Geirs
leikur gömlu og nýju dansana
CjkðiLega pásfca
Næturgalinn
Fyrsta sendingin af pallhús-
um frá Starcraft kemur í maí.
Getum boðið mikið úrval fyrir
pallbílaeigendur af einum
insælustu pallhúsum frá USA.
iVinsamlegast staðfestið
ipantanir hið fyrsta.
fÓNSSON ehf
Bíldshöfða 14
112 Reykjavík
S. 587 6644
AVIK
Opið um páskana!
Skírdagur: opíð fró ki. 15.00 tii 23.30 stór 350 kr.
Föstudagurinn langi:
Opið fró kl. 24.00 til 04.00
Hljómsveitin Knrma leikur fyrir dansi.
Lnugardngur 11. upríl:
Opið fró kl. 15.00 til 03.00
Hljómsveitin Knrma leikur fyrir dansi.
Púskadagur: Opið fró ki. 24.00 tii 04.00
Hljómsveitin Hólft í hvoru leikur fyrir dansi.
Annar í páskum: Opið frá ki. 18.00 tii 03.00
Hljómsveitin Hálft í hvoru leikur fyrir dansi.
Snyrtilegur klæðnaður.
Kaffi Roykjavík— þar sem stuðið er!