Morgunblaðið - 19.09.1998, Side 24
24 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
BURMA-búar, sem nú eru í útlegð í Bangladesh, föru í gær fram á að
herforingjastjórnin í Burma færi frá og að Aung San Suu Kyi, leiðtogi
Lýðræðishreyfingarinnar (NLD), tæki við stjórn í landinu.
Lýðræðishreyfingin
storkar stjórnvöldum
Rangoon. Rcuters.
HERFORIN GJ ASTJORNIN í
Burma sakaði stjómai-andstæð-
inga í Lýðræðishreyfingunni
(NLD) í gær um að reyna að
storka stjómvöldum til harka-
legra viðbragða, því að fyrst þá
gæti hún rökstutt málstað sinn
gegn stjórnvöldum í Burma á Alls-
heijarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Lýðræðishreyfingin tilkynnti í
gær að tíu manna nefnd sem hún
skipaði í vikunni myndi koma
fram sem framkvæmdavald
þingsins sem kosið var til 1990
en sem sljórnvöld leyfðu aldrei
að taka til starfa.
NLD segist nú hafa skipað for-
seta þings og lýsti því jafnframt
yfir að lög sem sett hefðu verið í
landinu síðan herforingjastjórnin
hrifsaði til sín völd í september
1988 væm úr gildi fallin, nema
þingið samþykkti þau sérstak-
lega.
Fréttaskýrendur segja að til-
kynning NLD sé mestmegnis
táknræn en afar vel tímasett sem
slík því ekki aðeins er Allsherjar-
þing SÞ framundan heldur vom í
gær tíu ár liðin siðan herfor-
ingjastjórnin hrifsaði til sín völd í
landinu.
Hart deilt um mynd-
bandið með Clinton
UMRÆÐUR í dómsmálanefnd
Bandaríkjaþings um það hvort gera
eigi myndband með vitnisburði Bill
Clintons Bandaríkjaforseta frá 17.
ágúst sl. opinbert eða ekki ein-
kenndust af hörðum deilum milli
demókrata og repúblikana í nefnd-
inni. Repúblikanar lögðu ríka
áherslu á að myndbandinu ásamt
öðrum fylgiskjölum skýrslu Kenn-
eth Starrs saksóknara yrði dreift til
allra þingmanna og fjölmiðla.
Demókratar reyndu hins vegar að
leggjast gegn því án árangurs.
Rök demókrata voru þau að
skynsamlegra væri fyrir þingið að
yfirfara öll gögn áður en þau yrðu
gerð opinber og að nefndin hefði
frest til 28. september til að vinna
úr fylgiskjölum Starrs. Þá lögðu
þeir í nokkmm tilvikum til að upp-
lýsingar, til dæmis mjög nákvæmar
kynlífslýsingar, yrðu strikaðar út.
Yar samþykkt að hluti vitnisburðar
Monicu Lewinsky yrði ekki gerður
opinber af tillitssemi við fjölskyldu
hennar.
Demókratar segja ljóst að það
sem vaki fyrir repúblikönum sé að
niðurlægja forsetann með því að
reyna að koma út sem mestu af efni,
sem er honum óhagstætt, sem allra
fyrst. Talsmenn Hvíta hússins segja
repúblikana hafa lagst gegn tillög-
um eigin starfsmanna um að reynt
yrði að koma að einhverju í leyti í
veg fyrir að efni er inniheldur ná-
kvæmar kynlífslýsingar verði gert
opinbert.
Repúblikanar hafa á móti lagt
áherslu á mikilvægi þess að almenn-
ingur sjái myndbandið til að geta
mótað sér skoðun á því hvort forset-
inn hafi framið meinsæri. Heimild-
armenn bandarískra fjölmiðla, er
hafa séð myndbandið, segja að for-
setinn verji margsinnis fyrri orð sín
með lagalegum flækjum og með því
að skilgreina þröngt hvað felist í
kynferðislegum samskiptum.
Nokkrum sinni neiti hann að svara
nærgöngulum spurningum og í eitt
skipti rjúki hann á dyr. Þá er það
sagt hafa komið á óvart að oft hafi
það ekki verið fulltrúar saksóknar-
ans heldur einstaklingar úr rann-
sóknarkviðdómnum er spurðu beitt-
ustu spurninganna.
Umræður fóru fram fyrir luktum
dyrum allan fimmtudaginn og fram
yfir hádegi á föstudag. Munu þær
hafa verið mjög harðar á köflum og
ljóst frá upphafi að engin leið væri
að ná málamiðlun milli flokkanna.
Mál Hydes vekur reiði
Fréttir af þriggja áratuga gömlu
framhjáhaldi Henry Hydes, for-
manns dómsmálanefndarinnar, hef-
ur heldur ekki orðið til að bæta and-
rúmsloftið milli demókrata og
repúblikana. Newt Gingrich, forseti
fulltrúadeildarinar, hefur ásamt
leiðtogum repúblikana á þingi ritað
alríkislögreglunni FBI bréf þar sem
þess er krafist að hafm verði rann-
sókn á sögusögnum sem komið hef-
ur verið á kreik um þingmenn
repúblikana á undanfömum dögum.
Segja þeir í bréfinu að svo virðist
sem skipulögð rógsherferð sé í
gangi.
Margir repúblikanar hafa lýst því
yfir að þeir telji Hvíta húsið bera
ábyrgð á þessum sögum og að til-
gangurinn sé að hafa áhrif á störf
þingmanna með því að grafa upp at-
riði úr fortíð þeirra. Þingmaðurinn
Ray LaHood sagðist telja víst að
einn aðstoðarmanna forsetans, Sid-
ney Blumenthal, bæri ábyrgð á
þessu. Þegar hann var spurður
hvaða sannanir hann hefði fyrir því
sagði hann það vera „útilokimarað-
ferðina". „Blumenthal er naðra.
Markmið hans er að eyðileggja
starfsferil manna og það ætti að
reka hann,“ sagði LaHood.
Hvíta húsið brást hart við og
sagði að ef LaHood hefði einhverjar
sannanir ætti hann að leggja þær á
borðið en halda skoðunum sínum
fyrir sig ella.
Erskine Bowles, skrifstofustjóri
Hvíta hússins, sagði að hver sá er
yrði uppvís að því að dreifa sögum
um þingmenn yrði rekinn. Hann
sagði Hvíta húsið hafa tjáð fjölmiðl-
um að ekki yrði farið fram á að
blaðamenn héldu hlíflskildi yfir
heimildamönnum sínum.
I fréttum sjónvarpsstöðvarinnar
ABC á fimmtudagskvöld var haft
eftir tveimur ónafngreindum blaða-
mönnum að háttsettur starfsmaður
Hvíta hússins hefði reynt að koma
þeirri sögu á framfæri að Hyde
hefði haldið framhjá.
„SVÍAR þurfa forystu, ekki síst á
umbrotatímum í alþjóðamálum,"
segir jafnaðarmaðurinn Erik Ás-
brink, fjármálaráðherra Svía, og
vísar meðal annars til kauphallar-
sviptinga undanfarna daga. Boð-
skapurinn er að þá forystu geti eng-
ir aðrir en jafnaðarmenn veitt. En
þrátt fyrir góðan árangur í efna-
hagsmálum hefur flokki fjármála-
ráðherrans ekki tekist að sannfæra
kjósendur um réttmæti þess að
hann ríki áfram. Fjármálaráðherr-
ann á það til að vera með hýrri há,
en þegar hann hitti erlenda blaða-
menn í gær virtist hann mæddur og
þreytuiegur. Hann hefur sjálfur
gert sitt til að benda kjósendum á
að Vinstriflokkurinn sé óábyrgur
kostur, en það virðist ekki hafa bor-
ið tilætlaðan árangur, ef marka má
skoðanakannanir.
„Það er ekkert sem bendir til að
við fáum hreinan meirihluta, en það
ættu að vera góðir möguleikar á að
við fáum alla vega 49 prósent í sam-
starfi við annan flokk eða aðra
flokka." Nánar vill Ásbrink ógjarn-
an fara út í hugsanlegt stjómarsam-
starf. Hann segist gera sér grein
fyrir að Miðflokkurinn sé óáreiðan-
legur samstarfskostur, því flokkur-
inn er í fallhættu, svo orð hans um
stjómarsamstarfið eru heldur óljós.
„En það er heldur ekki hægt að
velta sér upp úr tölum nú, hvorki
jafnaðarmanna né annarra,“ segir
ráðherrann, heldur verði að bíða
kosningaúrslitanna.
Svo virðist sem drjúgur hluti
þeirra tæplega átta prósenta, sem
flokkurinn hefur misst samkvæmt
skoðanakönnunum miðað við kosn-
Efnahagsbati nægir
jafnaðarmönnum ekki
Þrátt fyrir ágæta stöðu efnahagsmála í
Svíþjóð, segir Sigrún Davíðsdóttir,
sænska kjósendur ekki vera sannfærða um
tök jafnaðarmanna á efnahagsmálum.
ingarnar 1994, hafi farið til Vinstri-
flokksins. Aðspurður hvort það sé
vegna betri hugsjóna eða gjöfulli
loforða Vinstriflokksins svarar Ás-
brink hikstalaust að það sé tvimæla-
laust vegna betri loforða. Sjálfir
hafa jafnaðarmenn þó ekki legið á
sínu í loforðunum. Síðasta loforðið
kom nú í vikunni, þar sem lofað var
að veita börnum atvinnulausra pláss
í dagvistun, en hingað til hafa börn
vinnandi fólks gengið fyrir.
Jafnaðarmenn ljáðu Vinstri-
flokknum trúverðugleika
Ásbrink hefur lagt sig fram um
það undanfarið að afhjúpa lýðski'um
Vinstriflokksins, sem lofi án nokk-
urs tillits til raunveruleikans. Sú af-
hjúpun hefur ekki verið jafn árang-
ursrík og kosningabarátta Vinstri-
flokksins, en jafnaðarmenn eiga líka
sinn þátt í að Vinstriflokkurinn hef-
ur dafnað vel. Framan af kjörtíma-
bilinu studdist jafnaðarmanna-
stjórnin við Vinstriflokkinn og ljáði
honum um leið trúverðugleika, sem
hefur dugað flokknum vel. Sam-
starfið svipti flokkinn gömlu
kommahulunni og kom honum inn í
stjórnarhlýjuna.
En það er heldur ekki auðvelt
fyrir kubbslega og alvörugjarna
karlkyns stjórnmálamenn með tök á
tölum og staðreyndum að kveða
hina tilfinningaríku og sjálfsöruggu
Gudrun Schyman formann Vinstri-
flokksins í kútinn. Þegar hún ræddi
við erlenda blaðamenn í vikunni fór
hún létt með að vísa frá öllum full-
yrðingum um að hún færi hagfræði-
legar villur vegar. Gott gengi
franskra sósíalista er henni stöðugt
ívitnunarefni.
Það kemur ekki í ljós fyrr en á
sunnudaginn hvort kjósendur fyrir-
REUTERS
GUDRUN Schyman, formaður
Vinstriflokksins.
gefa Schyman að hafa notað hús-
hjálp án vitundar skattayfirvalda,
en viðbrögð á útifundum hjá
Schyman undanfarna daga benda til
að einhverjir hafi reiðst. „Þú pré-
dikar eitt og gerir annað,“ sagði
kona, nötrandi af réttlátri reiði, við
Schyman í miðborg Stokkhólms og
Schyman var greinilega brugðið.
„Hræsni" er orð, sem oft hefur
heyrst um hana undanfarna daga.
Hún hafnar öllu slíku og hefur skýr-
ingar á reiðum höndum. En hún
hefur líka neitað að ræða málið í
sjónvarpi, sem bendir til að henni sé
umræðuefnið ekki kært.
Léleg kosningaþátttaka stefnir
jafnaðarmannastjórn í tvísýnu
„Kjósendur okkar eru kannski
hallir undir Vinstriflokkinn, en þeg-
ar í kjörklefann kemur verður ann-
að uppi á teningnum,“ segir Ás-
brink kokhraustur. Hér vísar hann
til reynslu, sem jafnaðarmenn þykj-
ast hafa, að þó kjósendur þeirra geti
hótað flokknum í skoðanakönnunum
muni þeir þó á endanum rata með x:
ið á réttan stað á kjörseðlinum. I
þessu hafa þeir við nokkra reynslu
að styðjast, en frávikin eru ekki
nauðsynlega mikil. í síðustu kosn-
ingum var frávikið milli síðustu spá
Sifo fyrir kosningar og svo kosn-
ingaúrslitanna rétt innan við tvö
prósent, svo ef spáin er um 38 pró-
sent þá gætu jafnaðarmenn hugsan-
lega náð 40 prósentum, sem er
snarlækkun frá 45,2 prósenta fylgi
við síðustu kosningar.
Ef svo fer að veikburða Jafnaðar-
mannaflokkur verður að stjórna
með styrktum Vinstriflokki þá mun
það samstarf mæða mest á Ásbrink
fjármálaráðherra, sem vísast mun
sitja áfram eftir kosningar. Mætt
yfirbragð hans þessa dagana er
skiljanlegt því það verður honum
vart létt verk að koma undirstöðu-
atriðum nútímahagfræði inn í koll-
inn á Schyman í stað 19. aldar kenn-
inga Marx, blöndnum kvenvænum
sjónarmiðum.