Morgunblaðið - 19.09.1998, Page 26
26 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bretadrottning í Brunei
Reuters
ELÍSABET Bretadrottning skoðar eina stórfenglegustu moskuna í
heimi í Bandar Seri Begawan, höfuðborg Brunei, í gær. Drottningin
er berfætt, enda stranglega bannað að bera skófatnað í guðshúsum
múslima.
Friðarumleitanir Israels og Palestínu
Ross er ekki
úrkula vonar
Jerúsalem. Reuters.
ELÍSABET Bretadrottning er
nú í fjögurra daga opinberri
heimsókn í soldánsdæminu Bru-
nei. Breska konungsfjölskyldan
og Bolkiah-fjölskyldan í Brunei
eru meðal elstu þjóðhöfðingja-
ætta í heimi, og byggjast tengsl
þeirra á sögulegum grunni.
Soldáninn af Brunei, Hassanal
Bolkiah, tók á fímmtudag á móti
drottningunni í höll sinni, sem
er stærri en Vatíkanið og Buck-
inghamhöll samanlagt. I gær
skoðaði Elísabet meðal annars
stærstu mosku landsins, sem
byggð var til að fagna 25 ára
valdatíma soldánsins, og heim-
sótti þorp á Brunei-fljóti, þar
sem þúsundir manna búa í kof-
um sem standa á súlum í fljót-
inu.
Eftir fráfall Díönu prinsessu
hefur kongungsíjölskyldan í
Bretlandi legið undir ámæli fyr-
ir að vera fjarlæg þjóðinni. Und-
anfarið hefur drottningin reynt
að gera bragarbót á, og í heim-
sókninni til Brunei mun hún
meðal annars fara á götumark-
aði í höfuðborginni Bandar Seri
Begawan og hitta alþýðufólk að
máli. Elísabet mun einnig eiga
fundi með ýmsum framákonum í
samfélaginu, sem er fastheldið á
í'slamska siði og venjur.
Konungleg vandræði
Brunei er lítið land að flatar-
máli en afar ríkt af auðlindum.
Stórar gas- og olíulindir hafa
gefíð af sér gríðarlegan auð og
soldáninn er talinn meðal rík-
ustu manna heims. Efnahag-
skreppan í Asíu ásamt lækkun
olíuverðs hefur þó sett strik í
reikninginn á síðustu mánuðum,
og efnahagur landsins er nú í
nokkurri lægð.
Soldánsfjölskyldan hefur held-
ur ekki átt sjö dagana sæla und-
anfarið ár, fremur en kóngafólk-
ið í Bretlandi. Jefri prins, bróðir
soldánsins, sem er alræmdur
glaumgosi og kvennamaður,
hefur nú stungið af eftir að fjár-
festinga- og verktakafyrirtæki
hans, Amedeo, varð gjaldþrota
fyrr á árinu. Soldáninn hefur
fyrirskipað rannsókn á fjárreið-
um Jefris, en skuldir Amedeo,
sem var eitt stærsta fyrirtæki
landsins, eru taldar nema millj-
örðum króna.
Jefri notaði fé fyrirtækisins til
að festa kaup á glæsihótelum
víða um heim, og hann er meðal
annars talinn eiga fímm lúxusí-
búðir í London. Hann sankaði að
sér einkaþotum og sportbílum
og fékk heimsfrægar popp-
stjörnur til að skemmta í afmæl-
um barna sinna. Risastór lysti-
snekkja Jefris ber hið smekk-
lega nafn „Túttur“, auk þess
sem hann á minni skútur sem
bera nöfnin „Geirvarta 1“ og
„Geirvarta 2“.
DENNIS Ross, sendimaður
Bandaríkjastjómar, frestaði í gær
heimfór sinni frá Mið-Austurlönd-
um til að gera lokatilraun til að ná
samkomulagi milli Israela og Pa-
lestínumanna um framhald friðar-
viðræðna.
Ross átti í gær fund með Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna.
Hann sagði fréttamönnum að þeir
hefðu átt gott samtal og að hann
teldi að friðarumleitunum sínum
hefði miðað nokkuð áfram. FyiT
um daginn hafði hann hitt Benja-
min Netanyahu, forsætisráðherra
Israels, að máli. Ross mun halda til
Washington í kvöld.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði á
fimmtudag að hún myndi eiga við-
ræður við Arafat og Netanyahu er
þeir sætu allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna í New York í næstu
viku.
Israelar Ioka fyrir
umferð Palestínumanna
Israelar lokuðu í gær fyrir um-
ferð Palestínumanna frá Vestur-
bakkanum og Gazasvæðinu til
ALLIR stjómmálaflokkar í Kam-
bódíu hafa samþykkt að mæta til
viðræðna um úrslit þingkosning-
anna 26. júlí sl., að sögn Norodom
Sihanouk konungs. Leiðtogar
stjórnarandstöðuflokkanna,
Norodom Ranariddh prins og Sam
Ramsay, hafa neitað að viðurkenna
niðurstöður kosninganna og sakað
Hun Sen og Kambódíska þjóðar-
flokkinn um kosningasvindl. Flokk-
ur Hun Sen hlaut meirhluta at-
kvæða í kosningunum en hann
nægir ekki til myndunar nýrrar
ísraels, í kjölfar aukinnar spennu
undanfarna daga. A sunnudag
hefst nýárshátíð gyðinga, Rosh
Hashana, og verður umferð Palest-
ínumanna hindruð þar til hátíðinni
lýkur við sólsetur á þriðjudag.
Israelar lokuðu einnig vegum frá
Vesturbakkanum og Gazasvæðinu
tímabundið í síðustu viku, eftir að
ísraelskar öryggissveitir réðu tvo
háttsetta meðlimi Hamas-skæru-
liðahreyfíngarinnar af dögum í
borginni Hebron á Vesturbakkan-
um. Dagblöð í Israel skýrðu frá því
í gær að herinn óttaðist að Hamas-
skæruliðar kynnu að hefna morð-
anna með sprengjutilræðum eða
mannránum yfir hátíðamar.
Mikil spenna skapaðist á Vestur-
bakkanum á fimmtudag, eftir að
ísraelskur landnemi skaut 17 ára
palestínskan dreng til bana.
Hundruð manna fylgdu drengnum
til grafar í gær og hrópuðu slagorð
gegn Israelsmönnum. Maðurinn
sem grunaður er um morðið hefur
verið dæmdur í varðhald þangað til
á morgun, en landnemar halda því
fram að hann hafi hleypt af skoti í
sjálfsvöm er hann var grýttur.
ríkisstjórnar, sem krefst samþykk-
is tveggja þriðju hluta þingmanna.
Stjómarandstöðuleiðtogarnir sögð-
ust einnig hættir við að sniðganga
hið nýja þing, sem verður kallað
saman á fimmtudag í næstu viku,
sama dag og ráðgert er að halda
fund stjórnmálaflokkanna.
Hun Sen og Ranariddh prins
hafa ekki hist augliti til auglitis síð-
an sá fyrrnefndi rændi völdum í
stjórn, þ.e. þeir tveir fóru sameigin-
lega með embætti forsætisráð-
herra.
Kosningarnar í Kambódíu
Stj órnarandstaðan
samþykkir viðræður
Siem Reap í Kambódíu. Reuters.
Ársfundur ráðgjafarfyrirtækisins Oxford Analytica um efnahagsvandann sem við blasir í heiminum
Oxford. Keuters. ““
Forystuleysi eykur
á kreppuóttann
Bandaríkin lömuð vegna Lewinsky-
málsins og Evrópumenn og Japanir
uppteknir af eigin vandamálum
ÖRUGG leiðsögn leiðtoga og seðla-
banka í helstu iðnríkjunum er nauð-
synleg til að koma í veg fyrir að
kreppuóttinn valdi enn meiri usla á
fjármálamörkuðum heimsins. Engin
vissa er þó fyrir því, að hún verði
veitt. Var þetta niðurstaða árlegs
fundar fræðimanna og manna úr við-
skiptalífinu á vegum ráðgjafarfyrir-
tækisins Oxford Analytica en það
veitir fyrirtækjum og ríkisstjórnum
um allan heim þjónustu sína. Hefur
það meira en 1.000 fræðimenn í Ox-
ford og öðrum háskólum á sínum
snærum.
Samdráttur í Japan, efnahagshrun
í Rússlandi, kreppa í Suðaustur-Asíu
og ótti við, að ríkin í Rómönsku Am-
eríku séu á sömu leið. Þetta er
myndin, sem við blasir. Alþjóðlegar
fjármálastofnanir ráða ekki lengur
við vandann og leiðtogar iðnríkj-
anna, G7-ríkjanna, eru ráðalausir og
uppteknir af vandamálunum heima-
fyrir.
Beðið eftir vaxtalækkun
í Bandaríkjunum
Margir fyrirlesaranna á fundinum
spáðu þvi, að ýmis ríki myndu reyna
að takmarka frjálst fjármagnsflæði
eins og Malasíustjórn hefur þegar
gert og töldu einnig líklegt, að ein-
hver færu að dæmi Rússa og
greiddu ekki af eða frestuðu greiðsl-
um á skuldum sínum. Eins og nú er
komið eru mestar vonir bundnar við,
að vextir verði lækkaðii- í Bandaríkj-
unum þótt Alan Greenspan seðla-
bankastjóri hafi lýst yfir sl. miðviku-
dag, að ekki væri nein samræmd
vaxtalækkun á döfinni hjá G7-ríkjun-
um. Hagvaxtarhorfui- í Bandaríkjun-
um og raunar Vestur-Evrópu einnig
eru enn nokkuð góðar en Greenspan
hefur áhyggjur af, að vaxtalækkun
muni leiða til aukinnar verðbólgu og
lækkunar á gengi dollarans. Ljóst er
þó, að svo miklar væntingar eru um
vaxtalækkun í Bandaríkjunum, að
verði ekkert af henni, mun það mjög
alvarlegar afleiðingai-.
Losaraleg tök á peningamálunum
urðu til að kynda undir verðbólgu
eftir markaðshrunið 1987 en stjórn-
málamenn og hagfræðingar vilja ekki
síður forðast mistökin í kjölfar
hrunsins í Wall Street 1929. Þá var
brugðist við með afar ströngu aðhaldi
í peningamálunum og það átti ekki
minnstan þátt í kreppunni miklu.
Lewinsky
lamar Bandaríkin
Ef litið er til þess forystuhlut-
verks, sem iðnríkin hafa á hendi,
blæs þar ekki mjög byrlega. Stór-
veldið Bandaríkin er lamað vegna
Lewinsky-málsins og Evrópumenn
og Japanir sjá ekki út fyrir túngarð-
inn heima hjá sér. Bandaríska full-
trúadeildin hafnaði í fyrradag tillögu
Bills Clintons forseta um aukin
framlög til IMF, Alþjóðagjaldeyris-
sjóðins, vegna erfíðleika Suður-Am-
eríkuríkjanna og eins og ástatt er
þarf hann varla að gera sér vonir
um, að þingið veiti honum aukið
samningavald í alþjóðlegum við-
skiptaviðræðum.
Ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fær
ekki meira fjármagn er auðvitað
Ijóst, að hann mun ekkert geta gert
til að koma I veg fyrir veruleg vand-
ræði í Brazilíu. Mexíkó og Venesúela
og margir óttast, að brátt muni
verndarstefnan fara sem eldur um
sinu víða um lönd.
Litlar líkur eru á, að önnur iðnríki
taki að sér forystuna í efnahagsmál-
unum. Japanska ríkisstjómin virðist
máttvana frammi fyrir eigin vanda
og í Evrópusambandsríkjunum er
aðhaldssemi í peningamálum ein-
kunnarorð dagsins vegna tilkomu
myntbandalagsins í janúar næst-
komandi.
Neyðast til að rumska
Hans Tietmeyer, seðlabankastjóri
Þýskalands, útilokaði nú í vikunni
allai- sameiginlegar, alþjóðlegar
vaxtalækkanir og sérfræðingar Ox-
ford Analytica segja, að líklega sé
baráttan við verðbólguna ofar í huga
Wim Duisenbergs, yfirmanns Evr-
ópska seðlabankans, en áhyggjur að
efnahagsmálum heimsins. Þrátt fyrir
þetta spá því margir, að ástandið
muni að lokum neyða leiðtoga G7-
ríkjanna til að taka höndum saman
um ákveðnar aðgerðir.
Terry O’Shaughnessy, einn kunn-
asti hagfræðingurinn hjá Oxford
Analytica, sagði á fundinum, að ljóst
væri, að stjómmálamenn hefðu
hvorki reynslu né tæki til að takast á
við „verðhjöðnunarfárið“ í Japan,
samdráttinn í efnahagslífmu og lækk-
andi verðlag. Sagði hann, að slíkt
ástand í einu af G3-efnahagsheildun-
um, sem eru Bandaríkin, Evrópusam-
bandið og Japan, væri allt að þvi
óbærilegt en kæmi það upp í annarri
væri mikil vá fyrir dyrum.
Skammsýnir seðlabankastjórar
Richard Erb, sem starfar fyrir
Oxford Analytica og var áður aðstoð-
arframkvæmdastjóri Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, sagði, að viðbrögð ijár-
málamarkaðanna við atburðunum í
Rússlandi hefðu verið allt of mikil og
fyrst og fremst stafað af ótta. Sagði
hann, að í skuldakreppunni eftii-
1980 hefðu seðlabankastjórar eins og
til dæmis Paul Volcker í Bandaríkj-
unum sýnt, að þeir voru til forystu
fallnir en síðasta áratuginn hefði
þetta breyst og nú horfðu seðla-
bankastjórar sjaldan lengra en til
ástandsins í eigin landi.
Sagði Erb, að mestu skipti, að
seðlabankastjórar og stjórnvöld í
G7-ríkjunum kæmu til skjalanna
strax og vandræði kæmu upp í ein-
hverju ríki. Ef það væri ekki gert,
breiddist vandamálið út eins og sjúk-
dómur, sem yrði að lokum óviðráð-
anlegur.