Morgunblaðið - 28.10.1998, Síða 20

Morgunblaðið - 28.10.1998, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Sjöundi kanslari Þýskalands effcir stríð kjörinn á þýska þinginu Stafar Schröder hætta af „leyni- kanslar anum “ ? Gerhard Schröder tók við stjórnar- taumunum í Þýskalandi af í gær en nýi fjármálaráðherrann, Oskar Lafontaine, er svo valdamikill í Jafnaðarmanna- flokknum að fréttaskýrendur eru þegar farnir að kalla hann „leynikanslarann“. GERHARD Sehröder var kjör- inn kanslari Pýskalands, þriðja mesta efnahagsveldis heims, á þingi landsins í gær með 351 atkvæði gegn 287. Þetta er í fyrsta sinn eftir síðari heimsstyrjöld- ina sem kanslari fær öll atkvæði stjórnarflokkanna í kanslarakjöri á þýska þinginu. Schröder fékk sex at- kvæði til viðbótar og fréttaskýrend- ur töldu að þau hefðu komið frá Flokki hins lýðræðislega sósíalisma, arftaka kommúnistaflokksins í aust- urhluta Þýskalands. Nýi kanslarinn mun stjórna land- inu með 21 sætis þingmeirihluta jafnaðarmanna og græningja, sem fengu þrjú af 15 ráðuneytum nýju stjómarinnar - utanríkis-, umhverf- is- og heilbrigðisráðuneytin. Schröder tekur við af Helmut Kohl, sem gegndi embættinu í rúm 16 ár. Kohl verður áfram þingmaður en Wolfgang Scháuble hefur tekið við af honum sem leiðtogi kristilegra demókrata. Erfíð úrlausnarefni bíða Schröders á sviði efnahagsmála. Fjórar milljónir Þjóðverja eru án at- vinnu, um 10% vinnuaflsins, hag- vöxturinn hefur minnkað og velferð- arkerfið er orðið svo dýrt að óhjá- kvæmilegt er að stokka upp í því. Schröder segir að atvinnumálin verði forgangsverkefni sitt og kveðst ætla að draga úr atvinnuleysinu með því að koma á varanlegu samstarfi milli stjórnarinnar, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar. Marg- ir hagfræðingar hafa gagnrýnt þessi áform og sagt að þau dugi ekki til að leysa kerfisvandann. Oskar Lafontaine fjármálaráð- herra fær það verkefni að blása nýju lífi í efnahaginn og þýskir fjölmiðlar hafa spáð því að hann verði í reynd sá sem mestu ráði í nýju stjórninni. Schröder og Lafontaine hafa þó báð- ir sagt að enginn fótur sé fyrir þeim vangaveltum. Schröder höfðaði til „nýrrar miðju“ í þýskum stjórnmálum í kosningabar- áttunni og framganga hans þótti minna mjög á Tony Blair og „Nýja Verkamannaflokkinn" í Bretlandi. Schröder er þó ólíkur breska forsæt- isráðherranum að því leyti að hann stjórnar ekki flokki sínum. Lafontaine er formaður Jafnaðar- mannaflokksins og hefur flokksvélina á bak við sig. Hann hefur lengi verið kallaður „Napóleon", þar sem hann er smávaxinn og þykir hugfanginn af valdinu og öllu því sem franskt er, en hann hefur nú fengið ný gælunöfn og er ýmist kallaður „leynikanslarinn" eða „skuggi Schröders". Stafar mest hætta af innanflokksdeilum Lafontaine var kanslai-aefni jafn- aðarmanna í kosningunum árið 1990 en beið ósigur fyrir Kohl. Hann íhugaði að gefa aftur kost á sér í embættið fyrir síðustu kosningar en ákvað að gera það ekki þegar ijóst var að sósíalískar skoðanir hans myndu fæla frá kjósendur á miðj- unni sem jafnaðarmenn þurftu að á að halda til að bera sigurorð af Kohl. Lafontaine hélt þó áfram að treysta tök sín á flokksvélinni og átti ríkan þátt í kosningasigri Schröders. Fréttaskýrendur segjast sjá fingraför hans út um allan stjómar- sáttmála jafnaðarmanna og Græn- ingja og á þeim mánuði, sem liðin er frá kosningunum, hefur honum tek- ist að hindra að hugsanlegir keppi- nautar hans komist í áhrifastöður og auka völd ráðuneytis síns á kostnað efnahagsráðuneytisins. Fyrir kosningarnar töldu margir að stjóm Schröders myndi stafa mest hætta af Græningjum, sem hafa lofað að loka kjarnorkuveram Þýskalands og hækka skatta á elds- neyti og bíla. Wichard Woyke, stjórnmálaskýr- andi við Munster-háskóla, telur þó að Schröder þurfí ekki að hafa mild- ar áhyggjur af ágreiningi við Græn- ingja. „Þeir kyngdu nánast öllu sem Reuters HELMUT Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, óskar Gerhard Schröder, eftirmanni sínum, til hamingju eftir kanslarakjörið á þýska þinginu í gær. Oskar Lafontaine, Ijármálaráðlierra og for- maður Jafnaðarmannaflokksins, stendur á milli þeirra. jafnaðarmenn ki-öfðust í stjórnar- myndunarviðræðunum,“ segir hann og spáir því að deilur innan Jafnað- armannaflokksins eigi eftir að valda nýja kanslaranum meiri vandræðum. Ólík viðhorf í efnahagsmálum Talið er að innanflokksdeilurnar muni fyrst og fremst snúast um efna- hagsstefnuna. Hugmyndir Lafont> aine um aðgerðir til að minnka at- vinnuleysið þykja bera keim af hag- stjómarkenningum breska hagfræð- ingsins Johns Maynards Keynes. Schröder er hins vegar lýst sem raunsæismanni, er aðhyllist ekki neina ákveðna hugmyndafræði í efna- hagsmálum. Kanslarinn er hallari undir mai'k- aðshyggju en fjármálaráðherrann, sem hefur gagnrýnt þýska seðla- bankann, brjóstvörn íhaldssamrar peningastefnu, sem hann segir hafa verið of tregur til að lækka vexti. Lafontaine telur að þýska efnahagn- um stafi nú mest hætta af samdrætti en ekki verðbólgu. „Lafontaine hefur skýra efnahags- lega hugsjón en skoðanir Schröders byggjast meira á kredduleysi," sagði Dietmar Herz, við Bonn-háskóla. „Eg er viss um að það verða átök milli þessara tveggja viðhorfa. Við vitum ekki enn hvemig þau verða leidd til lykta.“ Fréttaskýrendur spá því að rimm- an hefjist fyrir alvöru ef efnahags- umbætur og skattalækkanir Lafontaines duga ekki til að minnka atvinnuleysið. Fjármálaráðherrann boðaði í vikunni sem leið að skattar yrðu lækkaðir um 10 milljarða marka, tæpa 420 milljarða króna, en hagfræðingar segja það of lítið. Þeir vara ennfremur við því að boðaðar umbætur á velferðarkerfinu kunni að koma of seint til að hlífa þýska efnahagnum, sem byggist að miklu leyti á útflutningi, við kreppunni í Asíu og víðar í heiminum. „Það eru engar líkur á að baráttan gegn atvinnuleysinu beri skjótan og sýnilegan árangur,“ sagði Ulrieh Alemann, við Heinrich Heine-há- skóla í Dusseldorf. Metingnum haldið í skefjum? Alemann telur þó að Schröder og Lafontaine muni gæta þess að halda metingnum í skefjum og bendir á að Lafontaine geti verið sveigjanlegri en ætla mætti af fjölmiðlaímynd hans sem kreddufasta sósíalistans. Woyke er ekki eins viss um að Schröder og Lafontaine geti starfað saman í sátt og samlyndi eins og í kosningabaráttunni. „Eg myndi ekki ganga svo langt að segja að Lafontaine sé í reynd kanslarinn en hann hefur styrkt stöðu sína svo mikið að það gerir Schröder erfitt fyrir,“ sagði hann. Vilai Permchit SCHRÖDER var viðstaddur kvöldverðarboð í Hannover fyrir um tveimur árum þegar sýning á málverkum Errós var opnuð þar í borg, en hann var þá forsætisráðherra Neðra-Saxlands. Með honum á mynd- inni eru Valgerður Valsdóttir, sendiherrafrú í Bonn, (t.v.) og Guðrún Jónsdóttir arkitekt (t.h.). / Islandsvinur á kanslarastóli ÞEGAR Gerhard Schröder, sem í gær var formlega kjörinn kanslari Þýskalands, var í heim- sókn á íslandi í nóvember í fyrra sem forsætisráðherra Neðra- Saxlands orðaði Ingimundur Sigfússon, sendiherra íslands í Þýskalandi, það við hann að þeim hjónum, Ingimundi og Val- gerði Valsdóttur, myndi þykja gaman að gefa honum einhvern lítinn grip til minningar um fs- landsförina. Það var siðan fyrir tveimur mánuðum eða svo sem Ingimundur afhenti Schröder litla styttu eftir Hallstein Sig- urðsson listamann. Ingimundur sagði í samtali við Morgunblaðið að stuttu síðar hefði Schröder skrifað sér vin- samlegt þakkarbréf þar sem m.a. kom fram að Schröder þætti styttan, sem kallast „Mað- ur og kona“, afar falleg og að hún hefði hlotið fastan sess á skrifborði hans. Það fékkst rækilega staðfest í sjónvarps- þættinum „Was nun herr Schröder" í þýska sjónvarpinu stuttu fyrir sambandsþingskosn- GERHARD Schröder í sjónvarpsþættinum „Was nun, herr Schröder" skömmu fyrir sambandsþingskosning- amar í Þýskalandi. Mitt á milli spyrjandans og Schröders má sjá styttuna „Mann og konu“ sem Ingimundur Sigfússon og Valgerður Valsdóttir gáfu Schröder, og sem Hallsteinn Sigurðsson listamaður gerði. ingarnar í Þýskalandi í síðasta mánuði en þar mátti sjá að styttan hefur hlotið veglegan sess í skrifstofu kanslarans nýja. Ingimundur var í gær við- staddur kjör Schröders á sam- bandsþinginu og segir það hafa verið ánægjulega stund og að merkilegt hafi verið að heyra þegar Wolfgang Thierse, forseti þingsins, ávarpaði Schröder í fyrsta sinn sem „herra kanslara“ enda þar um að ræða tímamót eftir sextán ára kanslaratíð Helmuts Kohls. „Við hjónin höfum nú hitt Schröder nokkrum sinnum eftir íslandsheimsókn hans, síðast á sameiningardaginn, 3. október, í Hannover og þá sýndi hann okk- ur mjög mikla vinsemd, eins og hann gerir reyndar alltaf. Hann minnist iðulega á íslandsheim- sókn sína og ég veit það líka í gegnum annað fólk, sem stendur honum nærri, hve mikils hann metur ferð sína,“ sagði Ingi- mundur. „Það er náttúrlega óskaplega jákvætt að hafa fengið Schröder heim til íslands því fyrir vikið veit hann meira um Island og er velviljaður Islendingum. Og nú er þessi maður orðinn valdamesti maður Þýskalands!"

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.