Morgunblaðið - 28.10.1998, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998 37,
AÐSENDAR GREINAR
STEFÁN Már Stef-
ánsson prófessor ritar
grein í Mbl. 13. október
sl. með þessari fyrir-
sögn, sem mig langar til
að velqa athygli á, þótt
seint sé.
Hann getur álits fjög-
urra lögfræðinga sem
komust að því að EES-
samningurinn færi ekki
í bága við íslensku
stjórnarskrána, en hann
var einn af fjórmenn-
ingunum. Petta álit ít-
rekar hann en segh- að
fáum blandist nú hugur
um að EES-samningur-
inn (og fylgisamningar)
„fól í sér víðtækar breytingar á ís-
lenskri löggjöf og í nokkrum tilvik-
um framsal á stjómskipulegu valdi“,
en þetta framsal hafi þó að mati fjór-
menninganna verið „talið falla innan
þess ramma sem stjómarskráin
heimilaði í þeim efnum“.
Oftúlkun stjórnarskrárinnar
Þessa túlkun dró ég í efa á sínum
tíma og lét Alþingi vita af því. Ein-
faldast er að orða skoðun mína um
þessa almennu staðhæfingu þannig
að stjómai-skráin, sem er að stofni til
nær óbreytt frá 1874, heimilaði ekki
eitt eða neitt í þessum efnum, t.d.
vegna þess að á þeim tíma var ekki
gert ráð fyrir að svona aðstaða kæmi
til. I öllum stjómarskrám Norður-
landaþjóðanna, nema Islands, er sér-
stakt ákvæði sem heimilar slíka
þjóðréttarsamninga að vissum skil-
yrðum fullnægðum. Ég hef haldið
því fram og stend við það enn, að
fjórmenningamir hafi túlkað ís-
lensku stjómarskrána eins og slíkt
ákvæði væri í henni, sem ekki er, því
miður.
I greininni er látið að því liggja að
Hæstiréttur hafi með tilteknum úr-
skurði um að leita ráðgefandi álits
EFTA-dómstólsins að því er best
verði séð „lagt til grundvallar að
EES-samningurinn og fylgisamn-
ingar fái samrýmst ákvæðum stjóm-
intra
arskrárinnar, „þó að
ljóst sé að rétturinn
fjallaði ekki beinlínis
um þetta atriði“. Samt
dregur höfundur þessa
ályktun af orðum sjálfs
sín: „Má nú væntanlega
líta svo á að öll æðstu
stjómvöld ^sic) lands-
ins, forseti Islands, Al-
þingi og Hæstiréttur
hafi komist að þeirri
niðurstöðu, að EES-
samningurinn og fylgi-
samningar fari ekki í
bága við stjómar-
skrána.“ Hér er enn
einu sinni djarflega
ályktað að mínu viti og
gæti ég haft um það mörg orð, en
læt það bíða.
Málsvari stjómarskrárgjafa
Vík ég þá beint að því sem rekur
mig fyrst og fremst tO að stinga nið-
Hlutverk Hæstaréttar
er og á aðeins að vera,
segir Björn Þ.
Guðmundsson, að
kveða upp dóma á
grundvelli þeirra rétt-
arreglna sem hann tel-
ur gilda í þjóðfélaginu
á hverjum tíma.
ur penna, en það er að hvetja til
frekari umræðu, bæði meðal leikra
og lærðra um það, sem fram kemur í
niðurlagi greinarinnar. Þar segir
höfúndur að stjómarskrárgjafinn
eigi sér engan málsvara og á því
þurfi að ráða bót. Undir þau orð tek
ég heilshugar og hefði slíkur aðili
betur verið til áður en lögin um stað-
festingu EES-samningsins vora
samþykkt.
Höfundur varpar fram þeirri hug-
mynd, hvort setja ætti á fót sérstak-
an stjómarskrárdómstól, eða að
Hæstarétti yrði falið að kveða á um
það fyrirfram, hvort þjóðréttar-
samningar stæðust ákvæði stjórnar-
skrárinnar. Þetta em ekki nýjar
hugmyndir og margræddar meðal
lögfræðinga og þarfnast því ekki
fjölyrða. Hins vegar er jafnvíst að í
þessu efni er þörf einhverra úrræða
og á því höfundur þakkir skildar fyr-
ir að hefja máls á því.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunar
að hvorugur kosturinn, sem hann
nefnir, sé góður. Stofnun sérdóm-
stóla í okkar fámenna landi er neyð-
ai’brauð, enda held ég að flestir lög-
fræðingar séu því mótfallnir, þ.á m.
dómsmálaráðherra. Ég dreg einnig í
efa að hinn kosturinn, að fela Hæsta-
rétti einhvers konar úrskurðar- eða
umsagnarvald í þessum efnum, sé
ákjósanlegur. Það get ég, a.m.k. að
svo komnu, rökstutt með því að ég
tel að hlutverk Hæstaréttar sé og
eigi aðeins að vera eitt - að kveða
upp dóma á grundvelli þeirra réttar-
reglna sem hann telur gilda í þjóðfé-
laginu á hverjum tíma.
Löggjafarnefnd Alþingis
Þá hvílir að sjálfsögðu á mér sú
skylda að benda á aðrar lausnir. Þær
hef ég ekki fastmótaðar. Ég hef hins
vegar oft vakið máls á því að alþing-
ismenn skorti sérfræðilega aðstoð
um löggjafarmálefni, að ekki sé talað
um stjómarskrárefni og að við í vel-
megun okkar mættum vel leggja
eitthvað af mörkum til að tryggja
rétta og góða meðferð lagafrum-
varpa, sérstaklega ef þau kynnu að
varða ákvæði stjórnarskrárinnar.
Hugmyndir mínar I þessu efni lúta
þess vegna íremur að því að styrkja
Alþingi í löggjafarstarfinu. Mætti
hugsa sér að Alþingi kæmi á fót sér-
stakri löggjafamefnd með þetta af-
markaða hlutverk og heyrði hún
beint undir forseta Alþingis. Þetta
segi ég vegna þess að Alþingi á sjálft
að bera ábyrgð á lagasetningu sinni
og dómstólar eiga aðeins að dæma
eftir lögunum, hér eftir eins og hing-
að til.
Höfundur er prófessor í lögum.
Hlífðarefni undir
borðdúka
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74, sími 552 5270.
„EES-samning-
urinn og
stj <5rnarskráin“
Björn Þ.
Guðmundsson
Eg mótmæli!
ÉG ER 19 ára og
útskrifaðist vorið 1997
úr Oskjuhlíðarskólan-
um. Ég var með
þroskaheftum krökk-
um í bekk í 11 ár. Ég
vil fara í framhalds-
skóla, með ófötluðum í
bekk, því ég kann að
lesa, skrifa og reikna.
Ég vildi fara í Borgar-
holtsskóla og sótti um
hann strax um vorið,
en komst ekki inn og
fékk hvergi annars
staðar pláss. Ég byrj-
aði í Fullorðinsfræðslu
fatlaðra haustið eftir.
Hún er með námskeið í
Borgarholtsskóla sem
er mjög gott en þau er bara fyrir
fatlaða og bara 9 tímar á viku. Ég
var hissa að sjá bara krakka úr
Öskjuhlíðarskólanum þegar ég
kom í Borgarholts-
skóla.
Mér finnst það
óréttlátt að fá ekki að--
fara í framhaldsskóla
Mér fínnst
óréttlátt, segir
Ása Björk
Gísladóttir, að
fá ekki að fara ..
í framhalds-
skóla.
eins og allir aðrir ung-
lingar. Mig langar til að ófatlaðir
og þroskaheftir séu líka vinir.
Höfundur er nemi.
Ása Björk
Gísladóttir
Hádegisveröarfundur
á Hotel Sögu, Sunnusal
föstudaginn 30. október kl. 12—13.30
Vægi tungumála í
alþ j óðaviðskiptum
Þar sem öll jörðin er að verða einn markaður mun aukin
þekking á mismunandi menningarsvæðum og tungumálum
geta ráðið miklu um forskot fyrirtækja í heimi síharðnandi
samkeppni.
Sagt verður frá breskri könnun um vægi tungumála í við-
skiptum og kynntar niðurstöður könnunar á tungumála-
þekkingu og notkun hennar hjá 20 íslenskum fyrirtækjum.
Ræðumenn
• Prófessor Stephen Hagen, aðalráðgjafi breska iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytisins um tungumál í viðskiptum.
• Guðjón Svansson, BA í notkun tungumála í viðskiptum
(Intercultural Communication).
Þátttökugjald er 1.200 kr.
Léttur hádegisverður og kaffi er innifalið.
Prófessor Stephen Hagen verður með fyrirlestur á Intemetinu
í boði Samvinnuháskólans á slóðinni www.fjamam.is
kl. 9.15 sama dag.
Fimdurinn er haldinn í samvinnu iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis,
utanríkisráðuneytis, Útflutningsráðs íslands, Samtaka iðnaðarins, ÍMARK
og MIDAS-NET sem annast MLIS margtyngiáætlun ESB og EFTA.
Skolvaskar
Intra skolvaskamir eru framleiddir
á vegg eða innfelldir í borð.
Stærðir:
48 x 38 x 19 cm
54 x 45 x 23 cm
Heildsöludreifing:
Smíðjuvegi II.Kópavogi
■cjlQlehf. Simi564 1088.lax564 1089
Fæst í byggingavöruverslunum um land allt.
SÍMI 533 1818 • FAX 533 1819
Stutt námskeið fyrir
trúnaðarmenn stéttarfélaga
MENNTUN FYRIR ALLA
MLIS
CTIfiPHnetl
ÚTFLUTNINGSRÁÐ
ÍSLANDS
IVR
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
\mn$r
jje/uojjolí óetar