Morgunblaðið - 04.11.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.11.1998, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ororkulífeyrir taki mið af aldri öryrkja ORYRKJABANDALAG Islands vill að grunnlífeyiár þeirra sem verða fyrir varanlegri örorku á yngri árum verði hærri en hjá þeim sem verða fyrir varanlegri örorku síðar á ævinni. A þennan hátt vill Öryrkjabandalagið rjúfa þá teng- ingu sem verið hefur milli örorkulíf- eyris og ellilífeyris. Garðar Sverrisson, varaformaður Öryrkjabandalagsins, sagði að í gegnum árin hefði kröfum öryrkja um hækkun á lífeyrisgreiðslum ver- ið mætt með þeim rökum að breyt- ingarnar kosti svo mikið vegna þess að örorkulífeyrir og ellilífeyrir hafa byggst á sama grunni. Hann sagði að með eflingu lífeyrissjóða lands- manna væri meiri ástæða en áður til að rjúfa þessa tengingu. A Norður- löndunum væri kerfið þannig upp- byggt að öryrkjar fengju hærri bætur þeim mun yngri sem þeir væru þegar þeir yrðu fyrir sinni ör- orku. Öryrkjar hafa sérstöðu „Þótt hluti aldraðra búi svo sann- arlega við mjög bágan fjárhag þá hefur staða öryrkja um margt sér- stöðu. Alla jafnan hefur öryrkinn ekki átt þess kost að ávinna sér full- an lífeyrissjóðsrétt né eignast skuldlaust húsnæði og njóta þeirra launa og lífsfyllingar sem heil- brigðri starfsævi fylgir. Þvert á móti hefur hann, oft frá unglings- aldri, búið við þrengstu fjárhags- skorður sem nokkrum manni eru settar og borið margvíslegan kostn- að af fötlun sinn, kostnað sem nú- gildandi almannatryggingar taka ekkert tillit til. Við leggjum því til verulega hækkun fyrir þá sem verða yngstir fyrir örorku og síðan gerum við ráð fyrir að grunnlífeyrir lækki um 1,4% fyrir hvert ár sem er umfram tvítugt uns ellilífeyrisaldri er náð. Lífeyrir hvers og eins einstaklings mun þó ekki lækka með hækkandi aldri heldur gerum við ráð fyiir að lífeyrisgreiðslurnar byggist á því hvenær ævinnar viðkomandi varð fyrir varanlegri örorku," sagði Garðar. Garðar sagði að Öryrkjabanda- lagið væri þarna að benda á einfalda leið til að bæta stöðu þeirra öryrkja sem verst stæðu. Hann sagðist trúa því að stjórnvöld tækju þetta til al- varlegrar athugunar. «» <*•. r -'w Langir skuggar Morgunblaðið/Ásdís Breyting á tillögu um kjördæmaskipan Siglufjörður verði í Norðaust- urkjördæmi KJORDÆMANEFND hefur sent forsætisráðherra bréf þar sem gerðar eru breytingar á fyrri aðal- tillögu nefndarinnar um breytta kjördæmaskipan. Samkvæmt bréf- inu telur nefndin vel koma til greina að Norðurlandskjördæmi vestra til- heyri óskipt Norðvesturkjördæmi ásamt Vesturlandi og Vestfjörðum og að horfíð verði frá því að skilja A-Skaftafellssýslu frá Austurlands- kjördæmi. Formenn stjórnarflokkanna hafa nýlega rætt kjördæmamálið á fundi sínum og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er búist við því að frumvarp um svo breytta aðaltillögu nefndarinnar verði lagt fram fljót- lega. Töluverðrar óánægju gætti í Norðurlandskjördæmi vestra og Austurlandskjördæmi með þá aðal- tillögu kjördæmanefndarinnar að skipta kjördæmunum upp. Friðrik Sophusson, formaður kjördæmanefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að nefndin hefði komið saman 28. október sl. og rætt endurskoðun kjördæmaskipun- ar og tilhögun kosninga með hlið- sjón af þeim umræðum og ábending- um sem fram hafa komið frá því skýrslu nefndarinnar var skiiað. Siglufjörður í eystra kjördæminu í framhaldi af því hefði nefndin skrifað forsætisráðherra bréf og lagt eindregið til að formenn stjórn- málarlokkanna legðu sameiginlega fram frumvarpið. I bréfínu komi fram að nefndin telji vel koma til greina að þær breytingar verði gerðar á aðaltillgöu nefndarinnar að Skagafjarðarsýsla verði í Norðvest- urjördæmi ásamt Vestfjörðum og Vesturlandi. Einnig að A-Skafta- fellssýsla flytjist úr Suðurkjördæmi í Norðausturkjördæmi ef talið verð- ur að betri samstaða megi nást um þá skipan enda sé þessi lausn í sam- ræmi við meginmarkmið nefndar- innar. I töflu sem íylgir bréfi nefndar- innar er að sögn Friðriks þó gert ráð fyrir að Siglufjörður verði í Norðausturkjördæmi, eins og aðal- tillagan gerði ráð fyrir. Hann sagði þetta rökstutt með því að Siglu- fjörður hefði frá fornu fari tilheyrt Eyjafjarðarsýslu og í seinni tíð hefðu atvinnufyrirtæki í bænum fyrst og fremst átt samstarf við Olafsfjörð. ----------------- Hálfs árs fangelsi fyrir skjalafals ÞRJÁTÍU og þriggja ára gömul kona var í gær dæmd í hálfs árs fangelsi skilorðsbundið fyrir þjófn- að og skjalafals. Hafði hún falsað skuldabréf að upphæð 200 þúsund krónur í Búnaðarbankanum og sömuleiðis víxil í Landsbankanum að upphæð 45 þúsund krónur. Þá komst ákærða yfír tékkhefti frá Landsbankanum og gaf út tékka fyrir 28 þúsund krónur og stal fatn- aði fyrir um 30 þúsund krónur. Fangelsisdómurinn er skilorðs- bundinn og var ákærða dæmd til að greiða fímm aðilum skaðabætur vegna tékkafalsins. Ingibjörg Benediktsdóttir hér- aðsdómari við Héraðsdóm Reykja- víkur kvað upp dóminn. Svar dómsmálaráðherra um flutning geðsjúkra af sjúkrahúsi í fangageymslur Fjögur tilfelli á þremur árum Svör ráðherra ófullnægjandi, að mati Astu R. Jóhannesdóttur Tillaga um skattfrádrátt meðlags- greiðenda endurflutt ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA um skattft'ádrátt meðlagsgreiðenda hefur verið endurflutt á Alþingi, en fyrsti flutningsmaður hennar er Guðni Ágústsson, þingmaður Fram- sóknarflokks. Meðflutningsmenn eru Guðmundur Hallvarðsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, og Ólafur Örn Haraldsson, þingmaður Fram- sóknarflokks. Sá síðarnefndi mælti fyrh' tillögunni á Alþingi í gær í fjar- veru Guðna Ágústssonar. Meginefni tillögunnar er að Al- þingi álykti að fela fjármálaráðherra að skipa nefnd sem kanni hvort rétt sé að setja reglur sem heimili að meðlagsgreiðslur foreldra gangi til lækkunar á tekjuskattstofni þeirra. I greínargerð tillögunnar segir að þar séu fyrst og fremst hafðir í huga þeir foreldrar sem hafí gengið í hjónaband eða hafíð sambúð að nýju. Þegar þannig hátti til hafí við- komandi framfærsluskyldu gagnvart nýju fjölskyldunni sem þeim gangi oft á tíðum illa að fullnægja vegna greiðslubyrði sinnar af meðlags- greiðslum. í umræðunum í gær sagðist St- urla Böðvarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, vera andvígur því að meðlagsgi-eiðslur sköpuðu forsendur til skattaafsláttar. Sagði hann m.a. að með því væri verið að skapa öðru foreldri meiri réttindi en hinu. Svan- fríður Jónasdótth', þingmaður jafn- aðarmanna, tók í sama streng og Sturla. ALÞINGI Alþingi Úrræði fyrir ungmenni í vímu- efnaneyslu ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13 í dag með utandag- skrárumræðu um úrræði fyrir ungmenni í vímuefnaneyslu. Málshefjandi er Rannveig Guðmundsdóttir, formaður þingflokks jafnaðarmanna, en Páll Pétursson félagsmálaráð- lierra, Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Ingi- björg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra verða til andsvara. Reiknað er með að umræð- an verði í um eina og hálfa klst. Að því loknu eða um kl. 14.30 verða teknar fyrir und- irbúnar fyrirspurnir til ráð- herra. LÖGREGLAN í Reykjavík hefur fjórum sinnum þurft að færa sjúk- linga geðdeildar Landspítalans í fangageymslur lögreglunnar á und- anförnum þremur árum. í öll skipt- in var það gert á grundvelli beiðni frá Landspítalanum, þrisvar vegna þess að sjúklingar höfðu verið óvið- ráðanlegir og einu sinni í samráði vM sjúkling sjálfan. í fyi-rnefndu þremur tilfellunum var um að ræða aðstæður sem starfsmenn deildanna töldu sig ekki ráða við. Tvisvar var sjúklingur tal- inn hafa neytt fíkniefna, en um sama sjúkling var að ræða í bæði skiptin, og einu sinni hafði sjúkling- ur hótað lækni sínum sem reyndi að útskrifa hann af geðdeild. Þetta kemur fram í skriflegu svari Þor- steins Pálssonar dómsmálaráð- herra við íyrirspurn Ástu R. Jó- hannesdóttur, þingflokki jafnaðar- manna. „Jafnframt voru á þessu tímabili 17 einstaklingar, ekki sjúklingar, fluttir í fangageymslu lögi-eglu samkvæmt beiðnum frá geðdeild- um, í fjögur skipti frá Kleppi og í 13 skipti frá Landspítala. I mörgum tilvikum var um að ræða ölvaða ein- staklinga sem höfðu valdið starfs- fólki og sjúklingum deildanna ónæði og voru þeir vistaðir í fanga- geymslu vegna ölvunarástands síns. Einnig var í nokkrum tilvikum um að ræða ölvaða einstaklinga sem höfðu leitað til geðdeilda eftir lyfjagjöf eða óskað eftir innlögn," segir í svarinu. Því er síðan bætt við að lögreglan í Reykjavik hafí einnig haft afskipti af ýmsum öðr- um málum er upp hafa komið á geð- deildum svo sem þegar óskað hafí verið eftir leit að sjúklingum. Beiðnum um aðstoð fer fækkandi á Akureyri Þá kom fram í svari ráðherra að ekki væri vitað um dæmi þess að óskað hefði verið eftir því að sjúk- lingar væru fluttir af geðdeild Fjórðungssjúkrahúss Akureyi-ar (FSA) í fangageymslur. Fangar í afplánun hafi hins vegar verið flutt- ir á geðdeild og síðan þaðan aftur í fangelsi. „Samkvæmt dagbók lög- reglunnar [á Akureyri] hefur starfsfólk geðdeildar FSA sjaldan óskað aðstoðar lögreglunnar. Þess eru þó dæmi og þá vegna þess að sjúklingur hafi verið erfiður þá stundina og starfsfólk ekki talið sig ráða við ástandið. Enn fremur eru dæmi um að lögreglumenn hafí ver- ið fengnir til að vaka yfir sjúkling- um deildarinnar sem taldir voru sjálfum sér og öðrum hættulegir, en þá voru þeir ekki einkennis- klæddir. Langt er um liðið síðan leitað hefur verið eftir slíkri aðstoð. Þá er í upplýsingum frá lögreglu- stjóranum á Akureyri tekið fram að beiðnum um aðstoð frá geðdeild FSA hafi farið fækkandi undanfar- in ár þar sem deildin sé orðin mjög vel mönnuð." Mun spyrjast aftur fyrir vegna ófullnægjandi svara Ásta R. Jóhannesdóttir er ósátt við svör dómsmálaráðherrans og segist munu spyrja ráðherrann aft- ur um málefni geðsjúkra fanga þar sem hún telur sig alls ekki hafa fengið fullnægjandi svör. „í fyrsta lagi svaraði ráðherrann ekki nema annarri spurningunni sem ég lagði fram og í öðru lagi er svarið við hinni spurningunni mjög ýfullkomið og reyndar rangt,“ sagði Ásta. ,Ástæðan fyrir því að ég kom með þessa fyrirspurn var vegna sjúk- lings sem hafði verið lagður inn á Borgarspítalann og tekinn þaðan út og færður í fangageymslu lögregl- unnar um miðja nótt þegar hann fékk kast,“ sagði Ásta. „í svari ráðherra kemur hvergi fram að geðsjúklingur hafí verið tekinn af Borgarspítalanum. Þó segja læknar af Borgarspítalanum mér að slíkt gerist „sjaldan“, en það kemur ekki fram í svari ráðherra að það hafí nokkurn tíma gerst, þótt það hefí gerst fyrir þremur vikum.“ Ásta gagnrýnir líka harðlega svör sem bárust frá Akureyri þar sem lögreglustjórinn á Akureyri var spurður hversu oft geðsjúkir hefðu verið fluttir af sjúkrahúsum og sett- ir í fangageymslu. „Þeir sögðust ekki hafa tök á að fletta dagbókum af þessu tilefni. Þetta eru engin svör og ég mun fylgja fyrirspurn minni eftir strax og ráðherra kemur til landsins í næstu viku,“ sagði Ásta R.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.