Morgunblaðið - 04.11.1998, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 04.11.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 51 FRÉTTIR Fjölmenni á ársfundi Náttúruverndar ríkisins NÝVERIÐ var ársfundur Náttúru- vendar n'kisins með umhverfis- og náttúruverndarnefndum um allt land haldinn á Hótel Selfossj í sam- vinnu við umhverfísnefnd Arborg- ar. Um 70 nefndarmenn sóttu fund- inn sem stóð í tvo daga. Tilgangur fundarins var m.a. að kynna fyrir nýkjörnum umhverfis- og náttúruverndarnefndum sveitar- félaga þau lög og reglugerðir sem gilda í málaflokknum, um fræðslu í náttúruvernd, eftirlit með mann- virkjagerð og efnistöku og lífríkis- mál svo eitthvað sé nefnt. Umhverfisnefnd Árborgar bauð fundannönnum í fræðsluferð um sveitarfélagið. Byrjað var á því að fara í ferð um Selfoss og eftir það var haldið til Stokkseyrar þar sem umhverfisskipulag, sem var unnið samhliða aðalskipulagi, var kynnt. Einnig var farið til Eyi-arbakka þar sem fluttur var fyrirlestur um friðland fugla og endurheimt vot- lendis í landi Árborgar við Eyrar- bakka. Ferðin endaði í Húsinu á Eyrarbakka þar sem gestum var boðið upp á veitingar. Ársfundinum lauk með því að fundarmenn fóru í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel- fossi þar sem þeim var kynnt um- hverfisstefna skólans en skólinn er sá eini á landinu sem hefur sam- þykkt sérstaka umhverfisstefnu. Ákveðið hefur verið að næsti árs- fundur Náttúruverndar ríkisins verði haldinn á Akureyrí í lok sept- ember 1999, segir í fréttatilkynn- ingu. FULLTRÚAR umhverfis- og náttúruverndarnefnda sem sóttu ársfund Náttúruverndar ríkisins. Barnaverndarstofa og Fangelsismálastofnun ríkisins Samkomulag um vistun fanga yngri en 18 ára FANGELSISMÁLASTOFNUN og Barnavemdarstofa hafa gert með sér samning um vistun fanga yngri en 18 ára. Markmið samkomulags- ins er að dómþolar yngri en 18 ára verði að jafnaði vistaðir á meðferð- arheimilum sem rekin eru sam- kvæmt ákvæðum laga um vernd barna og ungmenna þar sem fram fer sérhæfð meðferð, enda sé talið að það sé viðkomandi dómþola fyrir bestu, segir í fréttatilkynningu. Fangelsismálastofnun mun til- kynna Barnaverndarstofu um alla óskilorðsbundna fangelsisdóma sem berast til fullnustu þar sem dómþol- ar eru yngri en 18 ára, en Barna- verndarstofa ákveður á hvaða með- ferðarheimili ungir fangar eru vistaðir hverju sinni. Áður en ákvörðun um vistun í meðferð er tekin mun Barnai'verndarstofa kanna afstöðu viðkomandi barna- verndarnefndar til málsins. Dóm- þoli mun þó ekki vei'ða vistaður í meðferð gegn vilja sínum og gert er ráð fyrir því að samið verði við við- komandi dómþola og forsjáraðila hans um vistun og meðferð í að minnsta kosti 6 mánuði, óháð lengd refsitímans, segir ennfremur. Verðtrygging á útlánum verði bönnuð FORMANNAFUNDUR Verka- mannasambands Islands, sem hald- inn var á Akureyri 28.-29. október 1998, skorar á stjórnvöld að banna nú þegar verðtryggingu á útlánum. Það er orðið löngu tímabært að fella niður þessar viðbótarálögm' sem valdið hafa ómældum skaða hjá launafólki þessa lands, segir í álykt- uninni. „Verðtrygging er ávísun á ranga efnahagsstefnu og vinnur gegn því að menn beri ábyrgð á gerðum sin- um. Hún viðheldur háum vöxtum og leggur drápsklyfjar á launafólk. Verðtrygging hvetur lánveitendur til að meta ekki áhættu eins og þeir ættu að gera. Bankar og sparisjóðir hafa allt sitt á þuiTU. Fundurinn skorar á öll samtök launafólks að taka upp baráttu fyrir tafarlausu afnámi verðtrygginga á útlánum," segir í ályktuninni. Fræðslufundur um vímuefni og uppeldisaðferðir FJÖLBRAUTASKÓLINN í Garða- bæ efnir til fræðslufundar fyrir for- ráðamenn nemenda skólans, nem- endur svo og íbúa Garðabæjar og Bessastaðahrepps. Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor mun fjalla um nýjustu rannsóknir sínar á áfengis- og vímu- efnaneyslu reykvískra ungmenna og hvernig neysla þeirra getur tengst uppeldisaðferðum. í rann- sókn Sigrúnar er m.a. athugað hvemig ýmsir félagslegir, uppeldis- legir og sálfræðilegir þættir tengj- ast áhættuhegðun unglinga. Erindi sitt nefnir dr. Sigrún „Við emm bæði feðgin og vinir.“ Fundurinn verðm- haldinn fimmtu- daginn 5. nóvember nk. í húsakynn- um skólans á Skólabraut 2 og hefst hann kl. 20.30. Kaffiveitingar. Forsætisráð- herra á fundi á Hellu DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra verður ræðumaður á almennum fundi í Laugafelli á Hellu nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Einnig er ræðumaður á fundinum Óli Rúnar Ástþórsson hjá Atvinnu- þróunarsjóði Suðurlands ásamt Árni Johnsen alþingismanni, en fundurinn er einn af 25 fundum sem hann stendur fyrir á Suðurlandi um þessar mundir. 40 ára afmæli Litlulaugaskóla NÚ í haust era liðin 40 ár síðan Barnaskóli Reykdæla, eins og hann hét þá, fékk fastan samastað en í ágúst 1958 bauð Dagur Sigurjóns- son, þáverandi skólastjóri, Reyk- dælahreppi hluta af jörð sinni Litlu- Laugum ásamt húsum að gjöf til að þar risi heimavistarskóli fyrir sveit- ina. Áður hafði farskóli verið til skiptis á ýmsum bæjum í hreppnum. Nemendur Litlulaugaskóla halda afmælisfagnað fyrir skóla sinn fímmtudaginn 5. nóvember en þar verður til sýnis sitt af hverju úr skólagöngunni, gömlu kennslubæk- urnar og margvíslegt skóladót, ljós- myndir og söguleg skjöl. Þá verða seldar veitingar til ágóða fyrir ferðasjóð nemenda og fram fara stutt skemmtiatriði og ávörp. Þá verður kennslustofan og skólahúsnæðið í gamla Litlulauga- bænum til sýnis og gefst þar gott tækifæri fyrir eldri nemendur að rifja upp gamlar minningar og fyrir yngri kynslóðina að skynja liðna tíð. Vonast er til að sem flestir gamlir nemendur á öllum aldri úr Reyk- dælaskólahverfi sjái sér fært að skreppa í heimsókn kl. 20.30 um kvöldið en tekið verður á móti gest- um eins og húsrými og aðstaða leyf- ir, segir í fréttatilkynningu. Heimdallur ræðir lögleið- ingu fíkniefna HEIMDALLUR heldur fund í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 21 á Sóloni Islandusi undir yfirskriftinni: Lögleiðing íikniefna. Framsögumenn verða: Guðlaug- ur Þór Þórðarson, Gunnlaugur Jónsson og Margi'ét Frímannsdótt- ir. í fréttatilkynningu segir að reynt verði að finna svör við spurningun- um: Mun lögleiðing fækka glæpum? Hvað kostar að framfylgja banni við fíkniefnum? Hverjir eiga hagsmuna að gæta með banni á fíkniefnum? Er lögleiðing raunhæf eða einungis blautm- draumur frjálshyggju- manna? Málstofa um jarð- og orku- auðlindir Islands MÁLSTOFA umhverfis- og bygg- ingarverkfræðiskorar verður hald- in fimmtudaginn 5. nóvember kl. 16.15 í stofu 157 í VR-II, Hjarðar- haga 2-6. Birgir Jónsson, jarðverk- fræðingur, ræðir um jarð- og orku- auðlindir Islands og nefnir erindi sitt: Nýting í sátt við annað tilkall til lands. í fréttatilkynningu segir: „Stað- setning Islands á Mið-Atlantshafs- hryggnum hefur í fór með sér mun fleiri kosti en galla fyrir íbúana. Ekki hefur þó tekist sem skyldi að nýta kostina eða forðast gallana m.a. vegna skorts á heildstæðu skipulagi. Hverjar era helstu nátt- úruvár á íslandi og hvemig er hægt að forðast þær? Er ekki hægt að staðsetja byggðakjarna þannig að þeir séu ekki í hættu af náttúru- hamfórum? Geram við okkur grein fyrir verðmæti jarð- og orkuauðlinda landsins? Nýtum við nógu vel þá jarðfræði- og jarðtækniþekkingu sem til er í landinu við gerð byggðaskipulags og uppbyggingu þjónustu- og orkumannvirkja nú- tímaþjóðfélagsins? Er hægt að nýta jarð- og orkuauðlindir okkar í sátt við náttúrana? Er hægt að bæta samgöngur innanlands og efla ferðaþjónustu án þess að spilla náttúruperlum? Reynt verður að svara þessum spurningum og skýra svörin með íslenskum dæmum. Auk þess mun Birgir koma inn á reynslu sína af umhverfismálum, verkefnastjórn- un og verkeftirliti sem starfsmaður Orkustofnunar og síðar VSÓ Ráð- gjafar við eftirlitsstörf við Sultar- tangavirkjun.“ Umræður og fyrirspumir í lok erindisins. Fundarstjóri: Ragnar Sigbjörnsson, prófessor. Lögreglan lýsir eftir stolnum ökutækjum LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir eftirfarandi stolnum ökutækj- um: hvítum Skoda Favorit ZM-295 árg. ‘94, sem stolið var 1. október frá Hátúni 10 a, svörtum og gráum Daihatsu Rocky NN-093 árg. ‘90, sem stolið var frá JR bílasölunni við Bíldshöfða 24. október, svörtu Suzuki léttu bifhjóli RT-903 TS 50, sem stolið var 27. október frá Háa- gerði 67 og hvítum, númerslausum Bronco árg. 74, sem stolið var 15. október frá Neshyl 3. Þeir sem gætu gefið upplýsingar um þessi ökutæki snúi sér til lögreglunnar í Reykjavík. Hádegisfundur um þróun mála í Rússlandi MIKLAR sviptingar eru nú í rúss- neskum stjórnmálum og þjóðmál- um almennt og virðist ástandið síst fara batnandi, segir í fréttatilkynn- ingu. Félag stjórnmálafræðinga heldur hádegisverðarfund fimmtu- daginn 5. nóvember kl. 12 á efri hæð veitingastaðarins Lækjar- brekku þar sem spáð verður í þró- un mála. Frammælandi verður Gunnar Gunnai'sson, fyiTverandi sendi- herra íslands í Rússlandi, og Urð- ur Gunnarsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, sem er nýkomin frá Rússlandi. Allir velkomnir. Rætt um veiðar á ríkisjörðum RABBFUNDUR Skotveiðifélags íslands verður haldinn á Ráðhús- kaffi í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Gestur fundarins er Jón Erling- ur Jónasson, aðstoðarmaður land- búnaðarráðherra, og er efni fund- arins veiðar á ríkisjörðum en eins og kunnugt er vora nokkrar jarðir opnaðar fyrir skotveiðimenn á dög- unum. Fyrirlestur um botndýr á ís- landsmiðum JÖRUNDUR Svavarsson, prófess- or, flytur fyrirlestur um nýjar rannsóknir á botndýralífi í lögsögu Islands fimmtudaginn 5. nóvember nk. í Lögbergi, stofu 101, kl. 20. I fyrirlestrinum verður fjallað í máli og myndum um rannsóknar- verkefnið Botndýr á íslandsmiðum (BIOICE) og nýlegar niðurstöður kynntar. Rætt verður um fjöl- breytileika dýi-alífs á íslandsmið- um, útbreiðslu tegunda og ýmis sérkennileg dýr sem fundist hafa í tengslum við verkefnið. Ennfrem- ur verða til sýnis fáeinar furðuver- ur úr undirdjúpunum. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Skákþing í yngri flokkum KEPPNI í drengja- og telpna- flokki (fædd 1983 og síðar) á Skák- þingi íslands 1998 vei'ður dagana 7. og 8. nóvember nk. Tefldar verða 9 umferðir eftir monradkerfi og er umhugsunartími 30 mín. á skák fyrir keppanda. Umferðartaflan er þannig: Laugardagur 7. nóvember kl. 13-18 1., 2., 3., 4. og 5. umferð. Sunnudagur 8. nóvember kl. 13-18 6., 7., 8. og 9. umferð. Teflt verður í 'Faxafeni 12, Reykjavík. Þátttöku- gjöld eru 800 kr. Innritun fer fram á skákstað laugardaginn 7. nóvem- ber kl. 12.30-12.55. Flytur fyrirlest- ur um Goya FÉLAG íslenskra háskólakvenna heldur opinn fund fimmtudaginn 5. nóvember í Odda stofu 101 kl. 20.15. Guðbergur Bergsson, rithöfund- ur, flytur fyi-irlestur um spænska listmálarann Goya og nýútkomna bók sína og sýnir litskyggnur. Fundurinn er haldinn í samvinnu við heimspekideild Háskóla ís- lands. Allir velkomnir. ■ VEGNA flutnings og fyrirhug- aðra framkvæmda verða skrifstof- ur Þjóðminjasafns Islands lokaðar miðvikudaginn 4. nóvember til föstudagsins 6. nóvember. Skrif- stofur safnsins verða opnaðar að nýju að Lyngási 7 í Garðabæ mánudagsmorguninn 9. nóvember kl. 8. Nýtt símanúmer safnsins verður 530 2200 og nýtt faxnúmer 530 2201. LEIÐRÉTT Þtjú orð féllu niður í Morgunblaðinu í gær féllu niður féllu þrjú orð úr samtali við Eyjólf Sveinsson, útgáfu- og fram- kvæmdastjóra DV og útgáfustjóra Dags, vegna hækkunar á áskrift blaðanna tveggja. Standa átti að hækkanirnar mætti rekja til launa- hækkana, sem orðið hefðu á einu og hálfu ári. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Ekki dóttir heldur frænka RANGHERMT var í frétt blaðsins í gær af kröfum um framsal Augu- stos Pinochets, að Isabel Allende, dóttir fyrrum forseta Chile væri rithöfundur. Alnafna hennar, Skáldkonan Isabel Allende, er frænka Salvadors Allende, sem Pinochet steypti af forsetastóli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.