Morgunblaðið - 04.11.1998, Síða 21
MORGUNB LAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 21
Reggiani, sem ítölsku fjölmiðl-
amir kalla „Svörtu ekkjuna", sagði,
að Auriemma hefði skipulagt morð-
ið á manni hennar en síðan komið
með reikninginn til sín.
„Fyrst leit ég á það sem fjárkúg-
un en síðan áttaði ég mig á því, að
þau höfðu gert það, sem mig hafði
langað til að gera. Ég borgaði 21
millj. ísl. kr. fyrir þennan draum
minn,“ sagði Reggiani fyrir réttin-
um. Auriemma hélt því hins vegar
fram, að Reggiani hefði boðið sér 85
millj. kr. fyrir taka alla sök á sig.
Vildi lifa í lúxus
Maurizio Gucci, barnabarn
stofnanda tískufyrirtækisins, virti í
engu óskir fjölskyldu sinnar þegar
hann kvæntist Reggiani á sínum
tíma. Er hún af fátæku fólki komin
en hún var lagleg, þótti minna heil-
mikið á Elizabeth Taylor. Skólafé-
lagar hennar segja hins vegar, að
hún hafí aðeins verið á höttunum
eftir ríkum manni og hún fann
hann í Maurizio Gucci. Haft hefur
verið eftir Reggiani, að hún vildi
heldur vera vansæl í Mercedes en
hamingjusöm á reiðhjóli og hún
kunni að meta lúxusinn. Þau lifðu í
vellystingum praktuglega, áttu ótal
hús, bæði í St. Moritz og Manhatt-
an, og ef hún brá sér af bæ hafði
hún ekki minna en 100 ferðatöskur
með sér.
Um miðjan síðasta áratug var
farið að kólna verulega á milli
Reggiani varð óð. Hún níddi nið-
ur mann sinn opinberlega, sagði
hann getulausan og brjálaðan, og
hafnaði skilnaðarsátt, sem hefði
fært henni um 70 millj. ísl. kr. Sagði
hún það bara vera smáaura og fór
nú að tala um það við Pétur og Pál,
að hún vildi mann sinn feigan.
Sá draumur rættist í mars 1995
þegar vopnaður maður skaut
Maurizio Gucci þremur skotum fyr-
ir framan skrifstofur hans í Mílanó.
Eí'tir tæplega tveggja ára rannsókn
komst lögreglan að þeirri niður-
stöðu, að um samsæri hefði verið að
ræða og Reggiani var handtekin í
janúar á síðasta ári. Aðrir sakbom-
ingar em Auriemma, Benedetto
Ceraulo, sem er sagðm- hafa skotið
Gucci, Orazio Cicala, bílstjóri hans,
og Ivano Savioni, sem á að hafa haft
milligöngu um verknaðinn.
Auriemma, Savioni og Cicala játuðu
á sig samsærið um að myrða Gucci
og sögðu, að Reggiani hefði skipu-
lagt morðið til að tryggja arfshlut
dætra sinna tveggja. Reggiani og
Ceraulo kváðust saklaus.
Skorin vegna heilaæxlis
Reggiani var skorin upp fyrir
heilaæxli 1992 og lögfræðingar
hennar sögðu, að það hefði haft al-
varlegar afleiðingar fyrir andlega
getu hennar. Hún væri ekki fær
um að skipuleggja morð. Þrír sál-
fræðingar, sem rannsökuðu hana,
voru þó á öðru máli.
Discovery iimbyrðir
rannsóknahnött
Houston. Reuters.
ÁHÖFN geimferjunnar Discovery
vann að því í gær að endurheimta
gervihnött, sem hún hafði komið á
braut tveimur dögum áður, en með
honum hefur verið unnið að ýmsum
rannsóknum á sólinni.
Við að ná inn gervihnettinum,
sem kallast Spartan, var notaður
50 feta langur armur en hnötturinn
verður fluttur aftur til jarðar.
Áhöfn ferjunnar Kólumbíu reyndi
að koma honum á braut á síðasta
ári en þá fór allt í handaskolum hjá
henni. Urðu henni á þau ótrúlegu
mistök, að hún gleymdi að kveikja
á hnettinum áður en honum var
sleppt og ekki tókst betur til þegar
átti að nota arminn við að ná hon-
um aftur. í stað þess að grípa
hnöttinn með arminum var ýtt
hastarlega við honum þannig að
hann fór að snúast eins og snælda.
Neyddust þá tveir geimfarar til að
fara út í tjóðri og draga hnöttinn
inn.
Áhöfn Discovery tók sér nokk-
urra klukkustunda frí í fyrradag
og John Glenn notaði þá tímann til
að leika sér. „Mér fínnst það ein-
staklega afslappandi að standa á
höfði og horfa á hlutina frá nýju
sjónarhorni eða að horfa á vatns-
sopann fljóta við nefíð á mér,“
sagði Glenn.
Eiginkona tískukóngsins Maurizio Gucci fundin sek um
að hafa skipulagt morðið á manni sínum
„Svarta ekkjan“ fékk
29 ára fangelsi
Mílanó. Reuters.
PATRIZIA Reggiani Gucci, ekkja
tískukóngsins Maurizio Gucci, var
dæmd í gær í 29 ára fangelsi fyrir
að leggja á ráðin um morðið á
manni sínum fyrir þremur árum.
Hafa réttarhöldin í þessu máli
staðið í hálft ár og vakið gífurlega
athygli á Ítalíu enda hafði það flest
til að bera, frægt fólk, auðæfi og af-
brýðisemi, og ekki vantaði alls kon-
ar uppákomur og yfirlýsingar hjá
aðalsakborningnum.
Reggiani, sem er fimmtug að
aldri, kom fyrir rétt í Mílanó í gær
og áður en hann dró sig í hlé til að
vega og meta málavöxtu las hún
upp yfirlýsingu þar sem hún sakaði
vinkonu sína og sjáandann Pina
Auriemma um að hafa skipulagt
morðið til að komast yfir auðæfi sín.
„Hleypið aldrei brosandi úlfi inn
í sauðahjörðina. Fyrr eða síðar
kemur hungrið upp í honum,“ sagði
Reggiani. „Ég man það núna, að
milljónir, auðæfi og völd voru orð-
in, sem Auriemma hafði oftast á
vörum, og hún ætlaði að nota mig
til öðlast þau. Ég flæktist inn í
þetta en án þess að taka þátt í því.“
Gamall draumur
Reuters
PATRIZIA Reggiani Gucci,
ræðir við lögfræðing sinn í rétt-
arsalnum í júlí.
þeirra hjóna. 1983 erfði Maurizio
helming fyrirtækisins og honum
var farið að leiðast að standa í
skugga konu sinnar. Hann fór að
heiman og kom ekki aftur.
Hafnaði „smáaurunum"
LEIGUMORÐINGJANS meinta,
Benedetto Ceraulo, var vand-
lega gætt við upphaf réttar-
haldanna í maí.
m
w
Bill Clinton í sjónvarpsviðtali
Er að leita sátta
við fjölskylduna
Washington. Reuters.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í sjónvarpsviðtali í fyrra-
dag, að hann væri enn að reyna að
bæta fyrir þann miska, sem hann
hefði gert fjölskyldu sinni með sam-
bandinu við Monicu Lewinsky.
Kvaðst hann telja, að hann ætti skil-
ið að fá dálítinn frið til að takast á við
það, sem aflaga hefði farið.
„Ég get aðeins sagt það, að ég
legg mig allan fram við að Iaga það,
sem aflaga hefur farið,“ sagði Clint-
on í viðtali á sjónvarpsstöðinni Black
Entertainment. „Þetta er það mikil-
vægasta, sem ég er að fást við, en ég
held, að því minna, sem ég segi um
það, því betra.“
Talsmaður Hillary, eiginkonu
Clintons, sagði í september sl„ að hún
hefði fyrii’gefið manni sínum en Clinfi
on kvaðst vona, að þetta mál allt
sýndi meðal annai-s, að ,jafnvel fólk í
opinberu lífi á skilið að fá dálítinn frið
til að njóta ánægjustundanna og
takast á við ei-fiðleikana í einkalífinu".
I viðtali við Amerícan Urban Radio
sagði Clinton, að hann héfði reynt að
losa sig við og gleyma „sársaukanum,
niðurlægingunni og reiðinni“, sem
umræðan um Lewinsky-málið hefði
valdið honum. „Ég vil aðeins, að fólk
viti, að ég er að gera mitt besta til að
sættast við fjölskyldu mína, konu
mína og dóttur, og sjálfa þjóðina.“
Vilja völdin valdanna vegna
Clinton sagði að í Washington væri
„harðsnúinn hópui- stjórnmála-
manna“, sem þiifist á persónulegum
árásum. Fyrir hann væru völdin
markmið í sjálfum sér en ekki til
hvers ætti að nota þau. „Eg hef aldrei
tilheyrt þessum hópi. Ég er enginn
innanbúðarmaður hér í Washington
og verð það ekki eftir að ég læt af
embætti,“ sagði Clinton og bætti því
við, að öfund væri eitt af því, sem
ræki hatursmenn hans og konu hans
áfram. Þessir menn teldu sig borna til
valda. Hann lagði þó áherslu á, að í
Repúblikanaflokknum væri margt
„ágætra manna“.
á Hótel Kirkjubæjarklaustri,
laugardagskvöldin 7. og 21 nóvember n.k. _
Lifandi tónlist og dansleikur eftir borðhald. |
Verð 3.600 kr. fyrir mamiimi.
Gistitilboð: Verð frá 2.500 kr. fyrir manninn í
tveggja manna herbergi með morgunverði
Vinsamlega pantið tímanlega -
í fyrra var uppselt bæði kvöldin
HOTEL KIRKJUBÆJARKLAUSTUR
Sími: 487 4799
Vellíðan
villíbráö