Morgunblaðið - 04.11.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 43v-
SVEINN Guðmundsson fer hér með einhveijar fyrir-
bænir fyrir Leif Kr. Jóhannesson, framkvæmdastj óra
lánasjóðs landbúnaðarins og fyrrverandi formann LH.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
ÞINGFULLTRÚAR eru vel með á nótunum og fylgjast vel með þeim málum sem tekin voru fyrir á 49. ársþinginu.
ræða gamla LH eða Hestaíþrótta-
sambandið. Breytingar á keppnis-
reglum setti mjög svip sinn á þing-
haldið og fannst mörgum nóg um
þvargið kringum þann þátt. Gull-
merkishafinn Ingimar Sveinsson
frá Faxa sagðist ekki geta orða
bundist um þetta keppnis-
reglnaflóð og fannst honum þetta
komið út í skrípaleik. Hlutu þessi
orð hans góðar undirtektir og
mátti af því ráða að hann ætti sér
marga skoðanabræður og -systur í
þingheimi. Þegar langt var liðið á
afgreiðslu mátti heyra einn kunn-
an mann úr heimi hestamennsk-
unar dæsa og bæta við þeim orð-
um að þetta væri orðið lamandi
leiðinlegt og var þá verið að fjalla
um tillögur frá æskulýðsnefnd.
Þar má segja að þvargið hafí
náð hámarki þegar deilt var um
hvort standa ætti „áseta og stjórn-
un“ eða „stjórnun og áseta“. Þá
vakti ein tillaga undrun og spurn-
ingar um hve mikið þingfulltrúum
á að líðast að tefja störf þingsins. í
tillögunni segir að þegar fjallað sé
um málefni æskunnar eigi að taka
tillit til þarfa hennar. Næst kemur
sjálfsagt tillaga um að öll dýrin í
skóginum eigi að vera vinir.
TiIIögugleði
keppnisfólksins
Fullkomnunarárátta þeirra er
áhuga hafa á ýmiskonar keppnis-
greinum náði góðu flugi á þessu
þingi en eins og oft áður virðist
hlutur áhorfandans og markaðs-
setning mótahaldsins ekki eiga sér
neinn málsvara. Svo undra menn
sig á því hversu lítill áhuginn sé
fyrir hestamótum.
Astæður þess hversu teygðist á
dagskrá seinni daginn eru nokki-ar.
í fyrsta lagi mikill fjöldi tillagna
sem lágu fyrir þinginu. I öðru lagi
tillögugerðargleði þingfulltrúa á
sjálfu þinginu og að síðustu hvern-
ig tillögur voru afgreiddar. Nú í
fyrsta sinn hlutu allar tillögur af-
greiðslu í þingi, líka þær sem höfðu
verið felldar í nefnd. Venjan hefur
til þessa verið sú að aðeins hafa
verið bornar upp þær tillögur sem
hlutu brautargengi í nefndum.
Hins vegar hafa aðrar tillögur
fengið afgreiðslu í þinginu hafi ver-
ið sérstaklega eftir því óskað. Það
vekur athygli að svo til allar þær
tillögur sem felldar voru í nefndum
vora einnig felldar í þinginu.
Reynslan hefur verið sú á þingum
undanfarinna ára að til undantekn-
inga heyrir að tillögur sem felldai’
hafa verið í nefndum nái brautar-
gengi í þingi séu þær á annað borð
bornar þar upp.
Að flokka hismið frá kjarnanum
er eitthvað sem hestamenn mættu
tileinka sér í mun ríkari mæli en
þeir hafa gert til þessa.
Þá vakti einnig athygli gegndar-
laus pappírseyðsla á þinginu. End-
urprentaðar voru tillögur eftir
meðferð nefnda sama þótt aðeins
væri um að ræða mjög litlar eða
jafnvel engar breytingar.
Aður hefur verið á það bent í
hestaþætti Morgunblaðsins að
mikils óhófs gætir í pappírseyðslu
í gerð mótsskráa víða og virðist
það engu minna á þingum hesta-
manna. Full þörf er á að breyting
verði þar á.
Iðjusamir þingfulltrúar
Þá er við hæfi að geta þeirrar
breytingar sem orðið hefur á síð-
ustu árum á iðjusemi og þaulsetu
þingfulltrúa meðan á afgreiðslu
mála stendur. Vel var mætt strax í
upphafi vinnudags báða dagana og
sátu þingfulltrúar sem fastast
frameftir seinni daginn og tóku
þátt í atkvæðagreiðslu. Aðeins var
þó farið að gæta óþreyju undir lok-
in þegar afgreidd vora mál
æskulýðsnefndar og skyldi engan
undra eftir langdregið keppnis-
regluþras. Vel var staðið að fram-
kvæmd þingsins af hálfu Eyfir-
ðinga. Aðstaðan hin ákjósanlegasta
í íþróttahöllinni á Akureyri, vel
rúmt um alla og góð aðstaða fyrir
fjölmargar nefndir þingsins. í lokin
var svo haldinn veglegur og vel
heppnaðm- afmælisfagnaður hesta-
mannafélagsins Léttis sem varð
sjötugt á þessu ári.
Valdimar Kristinsson
Enn frestast
afgreiðsla-
met umsókna
KEPPNISNEFND LH kom
saman á ársþingi LH til að fjalla afc-<
um þrjár umsóknir um staðfest-
ingu á Islandsmeti 1 150 metra
skeiði. Ekki tókst nefndarmönn-
um að afgreiða málið þar sem
vantaði tvo nefndarmanna en
einnig hefur nefndin í hyggju að
fá frekari gögn um tímatöku en
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum þykir mikill munur á
klukkum á fyrstu hrossum á mót-
inu hjá Andvara þaðan sem tvær
umsóknir eru komnar.
Ætlunin hafði verið að afgreiða
þessi mál fyrir þing en ekki tókst
þá að kalla nefndina saman.
Stefnt er að því að nefndin komi
saman í vikunni og má því gera
ráð fyrir að eitt af fyrstu verkefn-
um nýrrar stjórnar verði að af-
greiða þessar metaumsóknir.
Er ein skemmtilegasta nýjungin í húsgögnum hin síðari dr
Er sérstaklega hannaður til að mœta krö/um nútímans
um aukin þœgindi
Er með innbyggðu skammeli í bdðum endasœtum
Er með niður/ellanlegu baki í miðju sem breytist í borð
með einu handtaki
Er með blaðageymslu þar sem þú gengur að
sjónvarpsdagskrdnni vísri
Er/áanlegur í mörgum tegundum, dklœðum og litum
Er húsgagn sem þú vilt ekki vera án
★★★★★★
tfilltlteai
JO
.
*★★
Kr122.460 >★
★
eða kr. 4.350 að meðaltali
* " v '. > \ - ir r , , r ^
a man. i 36 manuði
★ ★★★★★★★★★ *
★★★★★★★★★★★★
VISA
Fyrir/alleg heimiii
HUSGAGNAHÖLLIN
Bíldshöfðl 20-112 Rvlk - S;510 8000