Morgunblaðið - 04.11.1998, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Leggja til að
Jökull hf.
og SR-mjöl
- sameinist
FULLTRÚAR frá stjórnum fyrir-
tækjanna SR-mjöls hf. og Jökuls
hf. á Raufarhöfn samþykktu á
fundi, sem haldinn var á mánudag,
að leggja tillögu um samruna fyrir-
tækjanna undir nafni SR-mjöls
fyrir stjórnir beggja félaganna síð-
ar í vikunni.
Sameiningin yrði með þeim
hætti að hluthafar SR-mjöls hf.
eignuðust 77% í sameinuðu félagi
og hluthafar Jökuls hf. 23%. Stefnt
er að sameiningu fyrir áramót.
Eftir að tilkynnt hafði verið um
samrunann í gær voru talsverð við-
skipti með bréf beggja félaga á
Verðbréfaþingi Islands og hækkaði
verð bréfa í Jökli um 66,7% í gær.
■ Sameinast undir/18
--------------
Jólatré
höggvin í
r , Kjarnaskógi
STARFSMENN Skógræktarfé-
lags Eyfírðinga í Kjarna eru
farnir að fella grenitré fyrir jdlin
en eins og undanfarin ár stendur
félagið fyrir sölu á jólatrjám af
ýmsum stærðum og gerðum. Fé-
lagið hefur selt á þriðja þúsund
tré fyrir jólin undanfarin ár,
bæði íslensk og innflutt tré.
Hallgrímur Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags-
ins, sagði að tíðarfarið síðustu
vikur hefði sett nokkurt strik í
reikninginn. „Þetta eru verstu
aðstæður sem ég man eftir en
veðrið getur verið fljótt að breyt-
ast. Við höfum verið að vinna við
(Lk þetta á auðri jörð undanfarin ár
en trén fara mjög illa í frostinu
og snjónum. Því er óvíst hversu
mörg tré við fellum þetta árið.
Við fáum einnig tré annars stað-
ar frá og því eiga allir að geta
fengið sitt jólatré."
A myndinni er Hallgrímur við
um sex metra hátt sitkagreni
sem sótt var í snjóskafl í gær.
Fyrir utan hefðbundna stærð eru
árlega felld 30-50 tré sem eru
6-10 metrar á hæð og eru vinsæl
á torg, að sögn Hallgríms.
Verðmæti
kolmunnans 1,3
milljarðar krdna
SAMTALS hefur verið landað um
100 þúsund tonnum af kolmunna
hjá íslenskum fiskimjölsverksmiðj-
um á árinu og er áætlað útflutn-
ingsverðmæti kolmunnaafurða um
1,3 milljarðar ki'óna.
Verðmæti upp úr sjó er hátt í 950
milljónir króna. Heildarmjölfram-
leiðsla úr kolmunnaaflanum er um
20 þúsund tonn og er áætlað verð-
mæti framleiðslunnar um 1,1 millj-
arður króna. Þá hafa um 2.800 tonn
af lýsi verið unnin úr kolmunnanum
og er áætlað verðmæti þess á bilinu
150 til 200 milljónir króna.
Kolmunni er um 10% af heildar-
móttöku fiskimjölsverksmiðja en afli
Islendinga á þessu ári er nú orðinn
um 60 þúsund tonn og hefur aldrei
verið mem. Verð fyrir kolmunnann
sem hráefni hefur verið misjafnt
milli verksmiðja en að jafnaði fá
skipin rúmar 9 þúsund krónur fyrir
tonnið. Því má áætla að verðmæti
kolmunnaafla íslenskra skipa sé nú
orðið um 550 milljónir króna. Afla-
hæstu skipin hafa landað um 12 þús-
und tonnum og má ætla að verðmæti
þess sé vel yfir 100 milljónir króna.
Finnbogi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar hf. í Nes-
kaupstað, segir nokkuð hátt verð
hafa verið borgað fyrir kolmunnann
til að stuðla að veiðum og hvetja til
meiri sóknar. Veiðireynsla íslend-
inga sé mjög lítil og mikilvægt að
hlutur þjóðarinnar stækki áður en
og ef veiðarnar verða kvótasettar.
■ Kolmunninn skilar/Bl
Morgunblaðið/Kristján
Góð loðnu-
Morgunblaðið/Kristinn
Blíða á
bryggjunni
ÞAÐ var stillt veður í Hafnarfirði í
gær og menn gátu speglað sig í
haffletinum. Stillur hafa einkennt
veðrið suðvestanlands síðustu vik-
ur og áfram er spáð hægum aust-
Iægum vindi næstu daga.
Mikill
leikhús-
áhugi
MIKIL gróska virðist vera í
leiklistarlífi landsmanna um
þessar mundir og er framboð
á leiksýningum atvinnumanna
meira en menn muna dæmi til
áður. Alls eru 28 leiksýningar
í boði, leikið er í 11 leikhúsum
á 15 leiksviðum. Helmingur
sýninganna er ný íslensk leik-
verk.
7.000 í leikhús
um síðustu helgi
Mikill áhugi virðist vera á
leikhúsferðum meðal almenn-
ings en uppselt er á fjöida
leiksýninga nokkrar vikur og
jafnvel mánuði fram í tímann.
Af auglýsingum leikhúsanna
og samtölum við miðasölur
lætur nærri að um helgina 31.
okt. - 1. nóv. hafi nær 7.000
manns sótt leiksýningar á
Stór-Reykjavíkursvæðinu og á
Akureyri.
■ Allir í leikhús/36
VR-félagar gera um
30 vinnustaðasamninga
FÉLAGAR í Verzlunarmannafélagi Reykjavík-
ur hafa gengið frá tæplega 30 vinnustaðasamn-
ingum frá því að aðalkjarasamningar voru gerðir
á síðasta ári. Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar,
formanns VR, hafa samningarnir skilað félags-
mönnum kjarabótum og í sumum tilvikum veru-
legum bótum. Hann segir reynsluna hafa sýnt að
það hafí verið rétt ákvörðun að fara út á þessa
braut.
I kjarasamningunum sem gerðir voru í mars
í fyrra er ákvæði þar sem segir að einstök fyrir-
tæki geti gert vinnustaðasamning við starfs-
menn sína, enda sé markmið þeirra að ná fram
hagræðingu á vinnustað sem báðir aðilar njóti
góðs af. Magnús sagði að starfsmenn margra
fyrirtækja hefðu notfært sér þetta ákvæði og
reynslan af því hefði verið góð. Um margs kon-
ar samninga væri að ræða, m.a. hefðu nokkrar
dagvöruverslanir gert vinnustaðasamninga við
starfsmenn sína. Samningarnir hefðu m.a. haft
þau áhrif að meiri festa hefði komið á vinnu-
staði þar sem mikii hreyfing hefði verið á
starfsfólki.
Virkni félagsmanna eykst
Magnús sagði að samningarnir byggðust á því
að ná fram hagræðingu og ávinningnum væri síð-
an skipt á milli fyrirtækisins og starfsfólksins.
Samningarnir snertu m.a. vinnutíma og skipu-
lagningu vinnunnar. Hann sagði að í nokkrum
fyrirtækjum hefðu verið gerðir vinnustaðasamn-
ingar til skamms tíma til reynslu, en þeir hefðu
síðan verið framlengdir því fólk vildi ekki hverfa
til gamla skipulagsins.
Magnús sagði að ekki hefði verið mikið um
árekstra við gerð þessara samninga. Samning-
arnir væru gerðir af starfsfólkinu sjálfu, en ekki
VR. Einn af ávinningunum við samningana væri
sá að þeir kölluðu á umræður meðal starfsfólks
og ykju virkni þess. Umræðan snerist um af-
komu fyrirtækisins og getu þess til að borga laun
frekar en um almenna launastefnu í þjóðfélaginu
eins og yfirleitt þegar heildarkjarasamningar
væru gerðir. Þetta væri jákvætt.
Magnús sagði að þeir tæplega 30 vinnustaða-
samningar sem VR-félagar hefðu gert hefðu ver-
ið gerðir bæði á þessu og síðasta ári. Vinna við
gerð þeirra stæði því allt samningstímabilið.
veiði við
Langanes
FLEST loðnuskipin voru í gær á
landleið með fullfermi en góð veiði
var um 50 mílur norður af Langa-
nesi í fyrrinótt og aðfaranótt mánu-
dags. Að sögn Gísla Garðarssonar,
skipstjóra á Isleifi VE, er loðnan þó
enn nokkuð dreifð. „Skipin eru að fá
um 70 og upp í 100 tonn í kasti. Það
hefur verið skaplegt veður á þess-
um slóðum síðustu tvo daga og það
gerir gæfumuninn. Við höfum lítið
getað leitað vestur eftir og á Kol-
beinseyjarsvæðið vegna veðurs en
þar fékkst góð loðna um þetta leyti í
fyrra. En loðnan sem við fengum
núna er einnig mjög stór og góð,“
sagði Gísli.
Isleifur VE landaði í gær full-
fermi, eða um 1.100 tonnum, á
Seyðisfirði. Þá lönduðu Beitir BK
og Súlan EA sömuleiðis fullfermi í
Neskaupstað. Skipin höfðu þá verið
um tvo sólarhringa að veiðum.