Morgunblaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðgert að hækka útsvar í Reykjavík úr 11,24% í 11,99% eða um 0,75 prósentustig
Tekjur borgar-
sjóðs hækka
um 970 millj-
ónir kr. á ári
Skattar Reykvíkinga munu lækka minna á
næsta ári en annarra landsmanna vegna
0,75% útsvarshækkunar, sem vegur veru-
lega á móti 1% tekjuskattslækkun ríkis-
stjórnarinnar um áramót.
MEIRIHLUTI borgarstjórnar í
Reykjavík hefur gert það að tillögu
sinni að útsvarsprósentan í borginni
hækki um 0,75 prósentustig úr
11,24% í 11,99% og mun það færa
borgarsjóði 970 milljónir króna í
auknar tekjur á næsta ári sam-
kvæmt áætlunum. Þar með hækkar
útsvarsprósentan úr leyfilegu lág-
marki samkvæmt lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga í nærfellt lög-
leyft hámark sem er 12,04%.
Utsvarsprósentan er mjög mis;
munandi á höfuðborgarsvæðinu. í
Reykjavík verður hún sú sama og í
Kópavogi 11,99% og er ennþá lægri
en í Hafnarfírði þar sem hún er í há-
markinu 12,04%. Utsvarsprósentan
er hins vegar enn í leyfilegu lág-
marki í Garðabæ og á Seltjarnar-
nesi, þar sem hún er 11,24%. Hún er
hins vegar 11,79% í Mosfellsbæ og
11,84% á Akureyri.
Samkvæmt 23. og 24. grein laga
um tekjustofna sveitai-félaga nr.
4/1995 ber sveitarstjórnum að
ákveða útsvarsprósentu vegna
næsta árs fyrir 1. desember ár hvert
og tilkynna niðurstöðuna til fjár-
málaráðuneytisins fyrir 15. desem-
ber. Til skamms tíma var einungis
kveðið á um í lögum hvert hámark
útsvars mætti vera og ekkert gólf
sett í þeim efnum, en fyrir nokkrum
árum var ákveðið iágmark einnig
lögboðið. Munurinn á lágmarksút-
svari og hámarksútsvari samkvæmt
lögunum er 0,8 prósentustig og hef-
ur útsvarsprósentan verið talsvert
mismunandi eftir einstökum sveitar-
félögum, eins og fyrr greinir. Þetta
getur skipt talsverðu máli sem
merkja má af því að íbúi í Hafnar-
fírði með 2,4 milljónir króna í árs-
tekjur eða 200 þúsund króna mánað-
artekjur borgar rúmlega 19 þúsund-
um króna meira í útsvar í ár heldur
en íbúi í Reykjavík eða Garðabæ.
Utsvarshækkun vænlegri
en niðurskurður
I greinargerð meirihlutans með til-
lögunni segir að hann telji ekki verj-
andi að auka skuldir borgarsjóðs og
því að velja á milli niðurskurðar og
þess að hækka útsvar. Sé það mat
meirihlutans við þær aðstæður sem
nú ríki í þjóðfélaginu að það sé væn-
legra að hækka útsvar en skera niður
þjónustu og fresta aðkallandi verk-
efnum eins og í skólamálum, leik-
skólamálum, gatnagerð og umhverf-
ismálum og vísa þeim til framtíðar.
Vísað er í nýbirta skýrslu um fjár-
málaleg samskipti ríkis og sveitarfé-
laga á árabilinu 1990 til 1997 að báð-
um árunum meðtöldum, en þar komi
fram að mjög hafí hallað á sveitarfé-
lögin í þeim efnum og þá ekki síst
Reykjavík. Samanlagður halli sveitar-
sjóðanna af þessum sökum er talinn
nema 15 milljörðum króna á tímabil-
inu „og er hér um að ræða eina helstu
skýringuna á hallarekstri sveitarfé-
laganna undanfarin ár, þótt vissulega
beri að meta til mótvægis þann ár-
angur sem almennt hefur náðst í
efnahagsmálum á þessum áratug eins
og bent er á í skýrslunni," segir í
greinargerð meirihlutans.
Vitnað er til haustskýrslu Seðla-
bankans um horfur í efnahagsmálum,
en þai’ segir meðal annars: „Þrátt fyi’-
ir öflugan hagvöxt og enn kröftugri
vöxt innlendrar eftirspurnar hefur
tekist að halda verðbólgu í lágmarki
að undanförnu sem telst mikilsverður
árangur. Núverandi uppsveifla hér á
landi er hin fyi’sta í nærri fímm ára-
tugi þai’ sem verðbólga er svipuð eða
lægri en í viðskiptalöndunum. Að-
haldssöm peningastefna á mikinn
þátt í þessum árangii en einnig hfa
hagstæð ytri skilyrði hjálpað til. Á
móti vegur mikill viðskiptahalli sem
verður meiri í ár en hægt er að skýra
með tímabundnum áhrifum stóriðju-
fjárfestingar. Undirliggjandi við-
skiptahalli er nú talinn 3% af lands-
framleiðslu en gæti orðið meiri ef
ytri skilyrði þjóðarbúsins versna. Því
er mjög brýnt að efla þjóðhagslegan
sparnað og draga þannig úr við-
skiptahallanum. Það eru því von-
brigði að afkomubati ríkissjóðs á
þessu og næsta ári virðist minni en
hagsveiflan gefur tilefni til og af-
koma sveitarfélaga er mun verri en
æskilegt getur talist. Mjög mikil-
vægt er að framlag opinbeira aðila
til þjóðhagslegs sparnaðar verði auk-
ið,“ segir í haustskýrslunni.
Einnig er vísað í forystugrein
Hagtalna mánaðarins í júní í sumar,
en þar segir að vaxandi viðskipta-
halli og ónógur þjóðhagslegur sparn-
aður bendi til þess að auka þurfi að-
hald ríkisfjármála að innlendri eftir-
spurn, annað hvort með hækkun
skatta eða niðurskurði útgjalda.
Ætla megi að bæta verði afkomu rík-
issjóðs um allt að 5 milljarða króna
til að tryggt sé að jöfnuður verði í
meðalárferði. Öruggasta leiðin til
þess að auka þjóðhagslegan sparnað
hér á landi og draga um leið úr við-
skiptahalla sé að bæta stöðu hins op-
inbera, annað hvort með skatta-
hækkunum eða niðurskurði útgjalda.
Síðan segir: „Hlutverk sveitarfé-
laga í þessu samhengi er vissulega
takmarkaðra en n'kisins en þó má
benda á að hlutur sveitarfélaganna í
opinberum rekstri er um 25% og
með auknum verkefnatilflutningi frá
ríki til sveitarfélaga mun hlutur
þeirra að sama skapi aukast. Sveit-
arfélög geta þó með vissum hætti
tekið þátt í því að efla þjóðhagslegan
sparnað, í meginatriðum með því að
draga frekar saman útgjöld eða
hækka álögur.
Á þeim tíma sem liðinn er frá
birtingu tilvitnaðrar greinar hafa
fjölmargir aðilar áréttað þessi við-
horf, sem hljóta að vera hin sömu
gagnvart sveitarfélögunum og rík-
inu, þar sem þessir aðilar deila með
sér framkvæmdavaldinu og gegna
sameiginlega hejtinu „hið opinbera"
í vitund fólks. Á fjármálaráðstefnu
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
sem haldin var í Reykjavík 26.-27.
nóvember sl. komu þessi sömu við-
horf m.a. fram í ræðum félagsmála-
ráðherra, fjármálaráðherra og for-
manns Sambands íslenskra sveitar-
félaga."
Síðan er í greinargerðinni rakið
að undanfarin ár og og raunar allt
Tekjuskattur og útsvar einstaklings 1998 og 1999 á höfuðborgarsvæðinu Reykjavík Reykjavík og Akureyri Garðabær (hækkað útsvap Seltj.nes Kópavogur Hafnarfjörður Mosfellsbær Akureyri Tekjur: 1.200.000 kr. otsvar 11,24% 11,99% 12,04% 11,79% 11,84%
Tekjuskattur (27,41 %) 328.920 328.920 328.920 328.920 328.920
Útsvar (11,24-12,04%) 134.880 143.880 144.480 141.480 142.080
Persónuafsláttur* 280.320 280.320 280.320 280.320 280.320
Samtals skattar 1998 183.480 « / 192.480 193.080 190.080 190.680
Tekjuskattur 1999 (26,41%) 316.920 316.920 316.920 316.920 316.920
Samtals skattar 1999 171.480 verður 1Q0.480 181.080 178.080 178.680
Tekjur: 2.400.000 kr.
Tekjuskattur (27,41%) 657.840 657.840 657.840 657.840 657.840
Útsvar (11,24-12,04%) 269.760 287.760 288.960 282.960 284.160
Persónuafsláttur* 280.320 280.320 280.320 280.320 280.320
Samtals skattar 1998 647.280 « i; 665.280 666.480 660.480 661.680
Tekjuskattur1999 (26,41%) 633.840 633.840 633.840 633.840 633.840
Samtals skattar 1999 623.280 verður 641.280 642.480 636.480 637.680
Tekjur: 3.600.000 kr.
Tekjuskattur (27,41%) 986.760 986.760 986.760 986.760 986.760
Útsvar (11,24-12,04%) 404.640 431.640 433.440 424.440 426.240
Hátekjuskattur** 33.600 33.600 33.600 33.600 33.600
Persónuafsláttur* 280.320 280.320 280.320 280.320 280.320
Samtals skattar 1998 1.144.680 « 1.171.680 1.173.480 1.164.480 1.166.280
Tekjuskattur 1999 (26,41%) 950.760 950.760 950.760 950.760 950.760
Samtals skattar 1999 1.108.680 JlM 1.135.680 1.137.480 1.128.480 1.130.280
Tekjur: 4.800.000 kr.
Tekjuskattur (27,41%) 1.315.680 1.315.680 1.315.680 1.315.680 1.315.680
Útsvar (11,24-12,04%) 539.520 575.520 577.920 565.920 568.320
Hátekjuskattur** 117.600 117.600 117.600 117.600 117.600
Persónuafsláttur* 280.320 280.320 280.320 280.320 280.320
Samtals skattar 1998 1.692.480 va 1.728.480 1.730.880 1.718.880 1.721.280
Tekjuskattur 1999 (26,41%) 1.267.680 1.267.680 1.267.680 1.267.680 1.267.680
Samtals skattar 1999 1.644.480 erður 1.680.480 1.682.880 1.670.880 1.673.280
* Persónuafsláttur á árinu 1999 verður kr. 279.948 "Leggst á tekjur umfram kr. 3.120.000
Útsvar í sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri 1998
GARÐABÆR
REYKJAVÍK
SELTJARNARNES
MOSFELLSBÆR
AKUREYRI
KOPAVGUR
HAFNARFJORÐUR
11,24%
11,24%
11,24%
II, 79%
III, 84%
11,99%
12,04%
frá árinu 1990 hafi sveitarstjórnir
þurft að glíma við umtalsverðan
hallarekstur á sveitarsjóðum og hafí
borgaryfirvöld ekki farið varhluta
af því. Einkum hafi ástandið verið
alvarlegt á árunum 1990-1994 þeg-
ar hallinn á borgarsjóði hafi farið
allt upp í 32% af skatttekjum.
Skuldir borgarinnar hafi aukist úr 4
milljörðum króna í um 12 milljarða
á þessum árum og þessi skuldsetn-
ing hafi haft í för með sér vaxandi
greiðslubyrði lána. Síðan hafi dregið
úr skuldasöfnun og skuldir borgar-
sjóðs lítið breyst síðustu 3 ár, en
veruleg hagi-æðing og sala eigna
hafí gert borginni kleift að halda
uppi góðri þjónustu og umtalsverð-
um framkvæmdum án þess að
skattar hafi verið hækkaðir. Nánast
öll sveitarfélög í landinu hafi hins
vegar fullnýtt eða nánast fullnýtt
útsvarsheimild tekjustofnalaganna,
sem í dag sé 12,04% og aðeins þrjú
sveitarfélög fyrir utan Reykjavík
með fleiri íbúa en 1.000 hafa lagt á
lágmarksútsvar 11,24%, en það séu
Seltjarnarnes, Garðabær og Vest-
mannaeyjar. Álagningarstuðli út-
svars hafi vei’ið haldið í lágmarki í
Reykjavík, en af framansögðu megi
ljóst vera að forsendur fyrir því hafí
í raun ekki verið til staðar um langt
árabil. Verði ekkert að gert stefni í
verulegan hallarekstur borgarsjóðs
á næstu árum.
„Meirihluti borgarstjórnar telur
ekki verjandi að auka skuldir borg-
arsjóðs og því þurfi að velja milli
þess að skera niður í rekstri og
framkvæmdum eða að hækka út-
svar. Það er mat meirihlutans að við
þær aðstæður sem nú ríkja í þjóðfé-
laginu sé vænlegra að hækka útsvar
en að skera niður þjónustu og fresta
aðkallandi verkefnum, s.s. í skóla-
málum, leikskólamálum, gatnagerð
og umhverfismálum og vísa þeim
þannig til framtíðar. I nýlegi’i könn-
un sem Félagsvísindastofnun gerði
fyrir BSRB kemur skýrt fram sú af-
staða að fremur beri að efia en
draga úr þjónustu á velferðarsvið-
inu og þar kemur einnig fram and-
staða við að skattar séu lækkaðir en
þáttur þjónustugjalda í velferðar-
kerfínu aukinn í staðinn. Borgar-
stjórnarmeirihlutinn er í meginat-
riðum sammála þessum áherslum
og vill fremur efla en skera niður
þjónustu í þeim málum sem hann
leggur mesta áherslu á, í grunnskól-
um og leikskólum og á sviði félags-
þjónustu í víðtækri merkingu, auk
þess að rækja skyldur Reykjavíkur
sem höfuðborgar allra lands-
manna,“ segir einnig í greinargerð
meirihlutans.
Skattar Reykvíkinga
lækka minna
Þessi ákvörðun meirihlutans gerir
það að verkum að skattar Reykvík-
inga lækka minna en annarra lands-
manna á næsta ári, en frá áramótum
lækkar tekjuskattsprósentan um eitt
prósentustig samkvæmt ákvörðun
ríkisstjómarinnar úr 27,41% í
26,41%. Vegna hækkunar út-
svarsprósentunnai’ lækka skattar
Reykvíkinga um 0,25 prósentustig á
sama tíma og skattar annama lækka
um 1 prósentustig að því gefnu að
önnur sveitarfélög breyti ekki út-
svarsprósentu sinni til hækkunar
eða lækkunar. Það þýðir til dæmis
að tekjukattur og útsvar Reykvík-
ings með 1,2 milljónir í árstekjur eða
100 þúsund krónur á mánuði lækkar
um 3 þúsund krónur, en lækkar um
12 þúsund krónur í öðrum sveitarfé-
lögum. Með sama hætti lækka skatt-
ar Reykvíkings með 2,4 milljónir ki’.
í árstekjur um 6 þúsund krónur, en
skattar manns sem býr í öðru sveit-
arfélagi lækka um 24 þúsund krónur.
Skattar Reykjavíkurbúans verða
með öðrum orðum 18 þúsund ki’ón-
um hærri á næsta ári en þeir hefðu
verið væri útsvarið óbreytt.
Á hinn bóginn má benda á að íbú-
ar Reykjavíkur hafa í ár og síðustu
ár verið að borga lágmarksútsvar
eins og íbúar Seltjarnarness, Garða-
bæjar og hafa því borgað minna í
skatta en aðrir íbúar á höfuðborgar-
svæðinu. Þannig borgar maður með
2,4 milljónir í árstekjur og býr í
Kópavogi 18 þúsund krónum meira í
skatta í ár en sá sem býr í Reykjavík
eða Garðabæ og sá sem býr í Hafn-
arfirði borgar nærfellt 20 þúsund
krónum meira. Þessi munur milli
íbúa á höfuðborgarsvæðinu eftir því
hvort þeir búa í Garðabæ eða á Sel-
tjarnarnesi eða í hinum sveitarfélög-
unum þai’ helst á næsta ári hvað
þetta snertir.
I