Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 15
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 15
FRÉTTIR
Sigurgeir Sigurðsson
bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi
Afram lág-
marksútsvar
SIGURGEIR Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Seltjai-narnesi, segist ekki
eiga von á því að breyting verði á út-
svarsprósentunni í
sveitarfélaginu að
svo stöddu, en á
Seltjarnarnesi er
lágmarksútsvar,
11,24%.
„Við erum búin
að Ieggja fram
fj árhagsáætlunina
miðað við óbreytt
útsvar, en ég get
svo sem fúslega játað það að okkur
vantaði um það bil hálft prósent í
viðbót. Við verðum bara að herða
sultarólina og gera minna. Við stönd-
um frammi fyrir því að við erum með
kennarasamninga í gangi og leik-
skólakennarasamninga væntanlega
þar á eftir, og síðan mjög líklega
starfsmannafélagið að einhverju
leyti, þannig að þetta eru óleyst
vandamál. Hækkun á útsvari er hins
vegar ekki inni í myndinni að svo
stöddu,“ sagði Sigurgeir.
Þjónustugjöld
hækkuð í Garðabæ
Borgarstjóri á átakafundi í borgarstjórn í gær
Rey kj avíkur listinn
hefur pólitískan kjark
BORGARFULLTRÚAR Reykja-
víkurlistans sökuðu borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins um að koma
ekki fram með neinar tillögur til
lausnar á fjárhagsvanda borgar-
innar þegar Sjálfstæðismenn gagn-
rýndu fyrirhugaða útsvarshækkun
meirihlutans og þá fyrirætlan
að færa niður eiginfjárhlutfall
nýs orkufyrirtækis sem til
verður með samrana Hita-
veitu- og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
„Reykjavfkurlistinn ætlar
ekki að stinga höfðinu í sand-
inn eins og Sjálfstæðismenn
kusu að gera 1990-1994.
Reykjavíkurlistinn ætlar
hvorki að ávísa skuldum né
brýnum verkefnum dagsins í
dag yfir á framtíðina. Reykja-
víkurlistinn ætlar að takast á
við þau verkefni sem Reykja-
víkurborg stendur andspænis í
fjármálastjórn, rekstri og
framkvæmdum og hefur til
þess þann pólitíska kjark sem
sjálfstæðismenn skorti,“ sagði
Ingibjörg Sóhún Gísladóttir
borgarstjóri í ræðu sinni á
aukafundi borgarstjómar í
gær.
„Eðli þess sem öllu vill
stjórna og öllu ráða.“
Ingibjörg Sólrún vitnaði til
umfjöllunar um fjármál á fundi
sveitarstjórnarmanna fyrir
helgina og sagði kaldhæðnis-
legt að fulltrúar ríkisvaldsins
skuli bæði óskapast yfir halla-
rekstri sveitarfélaga og messa
yfir sveitarstjórnarmönnum um að
þeir eigi, rétt eins og ríkið, að reka
sína sjóði hallalausa og greiða
skuldir, kvaðst hún hljóta að vísa
til Davíðs Oddssonar forsætisráð-
hema sem „hefur blandað sér í um-
ræðuna um fjármál Reykjavíkur-
borgar með þeim stóryrta hætti
sem best þjónar hans lund“. Hún
vitnaði til orða hans í DV þess efnis
að hanh væri reiður: „Veri hann
bara reiður. Þá afhjúpar hann sitt
rétta eðli sem er eðli þess sem öllu
Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokks-
ins töluðu um
kosningasvik
vill stjórna og öllu ráða. Helst ætti
hann þó að vera sjálfum sér reiður
því hann ber fulla og óskoraða
ábyi-gð á þeim böggum sem velt
hefur verið yfir á sveitarfélögin á
undanfórnum áram.“
Ingibjörg Sólrún sagði að halda
mætti því fram að forsætisráð-
herra væri að kasta steini úr gler-
húsi, hún bar saman þróun skatt-
tekna og rekstrargjalda ríkissjóðs
og borgarsjóðs milli áranna 1997
og 1999 og sagði heildar skatttekj-
ur ríkissjóðs hækka á þessum tíma
um 30,8% en heildarskatttekjur
borgarsjóðs hækka á sama tíma
um 23,9%. Þá sagði hún rekstrar-
gjöld ríkissjóðs hækka um 33,1%
en rekstrargjöld borgarsjóðs um
20,4%.
Helgi Hjörvar, borgarfull-
trúi R-listans, sagði það
óskammfeilni af æðsta yfir-
manni efnahagsmála landsins,
forsætisráðherra, að mótmæla
því að borgin nýtti sér mögu-
leika sína til tekjuöflunar.
Hann auglýsti eftir tillögum
frá sjálfstæðismönnum um
lausn á fjárhagsvanda borgar-
innar og tóku undir það Stein-
unn Valdís Oskarsdóttir og Al-
freð Þorsteinsson, borgarfull-
trúar R-listans.
„Eyðslustefna borgarstjórn-
armeirihlutans mikil“
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins töluðu margh- um
kosingasvik, sökuðu fulltrúa
Reykjavíkurlistans um að
koma aftan að kjósendum og
leggja á þá álögur að upphæð
nærri einn milljarður króna,
með hækkun útsvarsins, án
þess að hafa nefnt það einu
orði fyrir kosningar.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, sagði boðað til þessa
aukafundar sem hann kallaði
neyðarfund til að samþykkja
að leggja auknar álögur á
borgarbúa. Inga Jóna Þórðar-
dóttir, oddviti sjálfstæðis-
manna, sagði undarlegt að boða til
fundarins til þess að hækka álögur
á borgarbúa. Hún sagði málið illa
undirbúið og sagði að fyrir löngu
hefði verið ljóst að ekki yrði hægt
að ljúka við fjárhagsáætlun nema
með stórauknum álögum og sagði
eyðslustefnu borgarstjórnarmeiri-
hlutans mikla, hún spurði af hverju
ekki væra frekar lækkuð orkugjöld
í stað þess að ætla að taka 3,5 millj-
arða út úr hinu fyrirhugaða sam-
einaða orkufyrirtæki.
Sigurður Geirdal bæjar-
stjóri Kópavogs
Kópavogur
með 11,99%
útsvar
BÆJARSTJÓRN Kópavogs sam-
þykkti síðastliðinn fóstudag að út-
svar yrði óbreytt á næsta ári, en það
er nú 11,99%. Að
sögn Sigurðar
Geirdal bæjar-
stjóra hefði hins
vegar verið þörf á
hækkun útsvars-
ins.
„Nú á eftir að
koma þessu end-
anlega saman, en
þessi mismunur er ennþá til, úr 11,99
upp í 12,04 sem er heimilt. Ég skal
ekki segja hvað verður gert en það
var ekki talið á þessu stigi að það
þyrfti," sagði Sigurður.
Jóhann Sigurjónsson
bæjarstjóri Mosfellsbæ
Engin um-
ræða um
hækkun í
Mosfellsbæ
í MOSFELLSBÆ er útsvarið
11,79% og að sögn Jóhanns Sigur-
jónssonar bæjarstjóra hefur ekki
verið tekin nein
ákvörðun um
hækkun og sagði
hann enga um-
ræðu hafa átt sér
stað um það.
„Eins og staðan
er núna er því
óbreytt útsvar, en
það er auðvitað
augljóst að það er töluverður út-
gjaldaauki hjá okkur eins og öðrum
sveitarfélögum. Við erum að reyna
að mæta því með aðhaldi og niður-
skurði á rekstri eins og við mögulega
getum, og síðan verður bara minna
fé til framkvæmda. Við erum í fjár-
hagsáætlunargerðinni núna og við
gerum ráð fyrir að fyrstu drög að
henni verði lögð fyrir bæjarstjórn á
fundi 9. desember. Ég get því í sjálfu
sér ekkert sagt hver endirinn verður
og það kemur bara í ljós á þessum
fundi,“ sagði Jóhann.
Dulbúin
skattheimta
í Reykjavík
EKKI stendur til að hækka útsvar í
Garðabæ þar sem það verður áfram
lægst, 11,24%, eins og á Seltjarnar-
nesi og í Vest-
mannaeyjum.
Ingimundur Sigur-
pálsson, bæjar-
stjóri í Garðabæ,
segir að afkoma
bæjarsjóðs sé
knöpp vegna auk-
inna verkefna og
steftit er að hækk-
un þjónustugjalda,
þ.ám. leikskólagjalda og aðgangs-
eyris á sundstaði, snemma á næsta
ári. Hann segir að dulbúin skatt-
heimta felist í arðgreiðslum frá orku-
fyrh-tælyunum í Reykjavík.
„Því er ekki að neita að staðan er
knöpp og spurning hvort undan læt-
ur, telq'm'nar eða þjónustan. Við höf-
um markað okkur þá grundvallaraf-
stöðu að hækka ekki útsvar og reyna
að sníða okkur stakk eftir vexti. Það
verður því ekki aukning á þjónust-
unni í sama mæli og við höfðum
áætlað. Rekstrarafgangurinn verður
heldur ekki eins mikill ur.
Reiknað er með að skuldir bæjar-
sjóðs Garðabæjar verði greiddar nið-
ur á næsta ári um 100 milljónir kr.
Þjónustugjöldin verða í auknum
mæli látin standa undir þeirri þjón-
ustu sem þar er veitt. „Við horfum til
þess að leikskólagjöld hækki á næsta
ári og aðgangseyrir að sundstöðum.
Ég á von á því að hækkun á leik-
skólagjöldum komi til framkvæmda
á fyrri hluta næsta árs. Þau hafa
ekki hækkað í tvö ár svo það má bú-
ast við því að þau hækki í takt við
aðrar verðbreytingar að minnsta
kosti,“ sagði Ingimundur.
Hann sagði að með yfirtöku
grunnskólans hefðu útgjöld Garða-
bæjar aukist meira en hjá öðrum
sveitarfélögum sem hlutfall af þeim
tekjum sem fylgdu frá ríkinu.
Kennsluframboð sé 23-25% umfram
það sem lög geri ráð fyrir. Það kalh á
töluverð útgjöld. Liðlega 40% af
heildarrekstrarfé Garðabæjar fari til
grunnskólans.
Ingimundur segir að aðrar tekjur
sveitarfélaga skipti einnig miklu
máli. Reykjavíkurborg hafi umtals-
verðar tekjur af fasteignum á hvem
íbúa umfram það sem Garðabær
hafi. Einnig sé dulin skatttekja í
formi arðgreiðslna frá orkufyrir-
tækjunum.
Morgunblaðið/Þorkell
MINNIHLUTINN í borgarstjdrn gagn-
rýndi R-listann harðlega.