Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 25
Guðríður er
„leynivopnið
Ævi og örlög Guðríðar Þorbjarnar-
dóttur, viðförlustu konu miðalda, er
efni nýútkominnar skáldsögu
Jónasar Kristjánssonar og er ekki
seinna vænna að þessari merku
konu sem uppi var fyrir 1000 árum
séu gerð ítarleg skii.
Þegar forseti íslands átti fund með
páfa i Vatikaninu á dögunum voru
þeir sammála um að Guðriður væri
„leynivopn fslendinga“ þegar
minnst verður þúsund ára afmælis
kristnitöku og landafunda árið
2000.
Perlur í skáldskap Laxness hefur að
geyma talsvert á annað þúsund
tilvitnanir í verk nóbelsskáldsins og er
þeim skipt í um eitt hundrað flokka.
Þær eru ótrúlega fjölbreyttar og sýna
hversu ólík viðhorf rúmast t verkum
skáldsins en allar bera þær snilld hans
fagurt vitni.
Steingrímur
þorði
Ævisaga Steingríms
Hermannssonar er mest seida bókin
fyrir fullorðna samkvæmt
metsölulista Dags og
Bókabúðakeðjunnar. Önnur
prentun er nú komin í verslanir.
Dómar gagnrýnenda hafa verið afar
lofsamlcgir. „Mjög dramatísk og
átakanleg hjónabandssaga... bókin
er mjög sterk og má dást að
Steingrími fyrir að þora að segja
þessa sögu“, segir Kolbrún
Bergþórsdóttir á Bylgjunni.
„Dagur og Steingrímur færa
lesandanum mikla skcmmtan.
Bókin heldur spennu og flugi út í
gegn“, segir Össur Skarphéðinsson
ÍDV.
'inum
„Hún á það
skilið“
■
Flugnasuð í farangrinum er safn
nýrra smásagna eftir Matthías
Johannessen. Af einstöku næmi
fyrir blæbrigðum mannlegrar
tilveru fetar skáldið mjóan veg milli
veruleika og skáldskapar og máir út
hefðbundin mörk
svo að lífið verður list og listin líf.
„Það er auðvelt að mæla með
þessari bók og ég vona að hún nái
til sem flestra. Hún á það skilið“,
segir Margrét Tryggvadóttir í dómi
í DV í gær um nýjustu bók
Guðrúnar Helgadóttur, Aldrei að
vita. Hún er nú mest selda
barnabókin á markaðnum
samkvæmt mctsölulista Dags og
Bókabúðakeðjunnar. Það er ekki að
undra þar sem Guðrún hefur um
árabil verið einn vinælasti barna-
og unglingabókahöfundur landsins.
Ævintýrin gerast á siðum þessarar
bókar!
íslendingar dagsins er nýstárleg
afmælisdagabók og um leið handhægt
og fróðlegt uppflettirit.
Jónas Ragnarsson, höfundur
uppflettibókarinnar vinsælu, Dagar
fslands, tók þessa bók saman.
Hér skrifar fólk nöfn ættingja og vina á
viðeigandi afmæiisdaga en þar eru fyrir
prentuð nöfn nokkurra kunnra
Islendinga, lifs eða liðinna.
Við hvern dag í bókinni eru birt
snjallyrði eftir eitthvert af
afmælisbörnum dagsins.
Tilvitnun dagsins í dag,
1. desember, í bókinni
íslendingar dagsins, er fengin
frá Eggerti Stefánssyni,
óperusöngvara:
„Það er tignarstaða að vera
íslendingur."
VAKA- HELGAFELL
SÍÐUMÚLA 6, 108 REYKJAVÍK,
SÍMI 550 3000.