Morgunblaðið - 01.12.1998, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Verulega aukin þjónusta á vegum Sorpu
Greitt verður fyrir skila-
gjaldsskyldar umbúðir
HJÁ þremur endurvinnslustöðvum
Sorpu, við Jafnasel, Bæjarflöt og
Dalsel í Kópavogi, hefui’ verið opnað
fyrir móttöku á skilagjaldsskyldum
einnota umbúðum í umboði Endur-
vinnslunnar hf. Um eða upp úr mán-
aðamótum munu allar endurvinnslu-
stöðvamar hafa tekið upp þessa
þjónustu.
Að sögn Rögnu Halldórsdóttur,
sem sér um fræðslu- og kynningar-
mál hjá Sorpu, verður greitt skila-
gjald við móttöku umbúða. „Eins og í
öðrum móttökustöðvum Endur-
vinnslunnar er ætlast til að við-
skiptavinir hafí talið og flokkað um-
búðirnar í poka eftir tegundum, s.s.
áldósir, plastflöskur og glerflöskur.“
Skilagjald verður ekki greitt fyrir
glerumbúðir undan öðrum glervör-
um en skilagjaldsskyldum og fer
slíkt gler í jarðvegsgám, s.s. gler-
knikkur, flöskur undan ávaxtasafa,
orkudrykkjum og slíku. Sambærileg-
ar plastumbúðir fai'a í heimilisruslið.
Móttaka á skilagjaldsskyldum um-
búðum fer saman við afgi'eiðslutíma
endurvinnslustöðvanna. Stöðvai'nar
við Jafnasel, Dalsel, Bæjarflöt og við
hesthúsabyggð í Mosfellsbæ eru
opnar kl. 12.30-19.30 alla daga vik-
unnar yfir vetrartímann. Stöðvamar
við Ánanaust, Sævai'höfða og í Mið-
hrauni í Garðabæ eru opnar kl. 8-
19.30 virka daga en lokaðar um helg-
ar.
Nýtt
Krem fyrir
mjólkandi mæður
KOMIÐ er á markað nýtt krem, Kamillosan,
sem ætlað er til notkunar á bleiusvæði og geir-
vörtum kvenna með böm á brjósti, en einnig á
útbrot, þrútin húðsvæði og exem.
I frétt fi'á innflytjanda, Isfarm ehf., segir að
kremið sé mjög milt og þolist því vel á húð
barna og jafnvel ungbama. Ki'emið sé græðandi
og róandi fyrir húðina og aukaverkanir séu
sjaldgæfar, þótt ki'emið sé notað á stór húð-
svæði í langan tíma. Einu þekktu aukaverkan-
imar eru ofnæmisviðbrögð við innihaldsefnum
kremsins, s.s. rotvamarefnum en þau era úr
flokki parabena. Kremið fæst í apótekum.
ítölsk jólakaka
ÍTALSKA jólakakan
panetone er komin til Is-
lands. Að sögn innflytj-
andans, Franks A.
Cassata hjá Kísli hf. eru
engin jól á Italíu án
panettone og vill hann
gera Islendingum kleift
að komast á bragðið.
Kakan kemur með mis-
munandi bragði og fæst í
öllum verslunum Nóa-
túns og verður afgreidd ,í
aðrar verslanir strax og
pantanir berast. Kakan
er borðuð eins og hún
kemur fyrir eða með
kaffi, hvítvíni og marsala,
sem er ítalskt púrtvín.
Kakan er í tveimur
stærðum, í 50 g skreytt-
um málmdósum, sem má nota und-
ir krydd og annað og í 500 g
skreyttum umbúðum.
E( |>ú
liolui' stuakUad
vJ olasíldina
frá Islenskum matvælum
vvistu að jólin eru
vkki langt uuclan
-fní kenutt
í ,<annka llaðJólaakap!
IS L C N S K MATVÆ LI
iJoly
Coiiim'/
CoJors
Nýju Poly Country Colors hárlitirnir innihalda virk efni unnin
úr býflugnavaxi og hveitipróteinum sem vernda og styrkja
hárið og hársvörðinn við litunina. Þeir eru ammoníakslausir
og henta vel til heimalitunar.
Poly Country Colors litírnir fást á eftirtöldum stöðum:
Hagkaup snyrtivörudeild, Kringlunni, Smáratorgi og Akureyri • Holts-Apótek, Glæsibæ • Engihjalla-Apótek, Kópavogi • Perla,
Akranesi • Apótek Blönduóss • Sauöárkróksapótek • Húsavikurapótek • Hafnarapótek, Höfn • Selfossapótek • Apótek Keflavíkur
ARABIA
<jVA«iPHUN
MUsÍAIl'áuSKÉA
Helldversliin Kjartans Magnússonar
Hátelgsvegl 20 • Simi 561 7222
Morgunblaðið/HMÁ
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður FFSI, á formannaráðstefnu sam-
bandsins sem haldin var á Höfn í Hornafirði.
„Vinnubrögð
útvegsmanna
með ólíkindum“
Urskurðarnefnd gagnrýnd á
formannaráðstefnu FFSI
Á FORMANNARÁÐSTEFNU
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands, sem haldin var á Höfn í
Hornafirði fyrir helgina, komu fram
skiptar skoðanir á störfum úrskurð-
arnefndar sjómanna og útvegs-
manna og var nefndin m.a. gagn-
rýnd fyrir að taka ekki nægilegt til-
lit til afurðaverðsþróunar sjávar-
afla.
Á fomannaráðstefnunni var því
m.a. haldið fram að úrskurðarnefnd
hafi litlum árangri skilað í verðlagn-
ingu sjávarafla, enda hafi vinnu-
brögð útvegsmanna og oddamanns í
nefndinni verið með ólíkindum svo
vart verði við unað. Komu m.a. upp
hugmyndir um að fulltrúar FFSI í
úrskurðarnefnd segðu sig úr nefnd-
inni. Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður FFSÍ, sagði í því sambandi
að gefa þyrfti nefndinni meiri tíma.
Ef hinsvegar raunþróun fiskverðs
yrði ekki í samræmi við afurðaverð
og markaðsþróun þyi'fti að endur-
skoða þessi mál til hlítar.
Guðjón vék m.a. að úrskurðar-
nefnd í setningarræðu sinni á ráð-
stefnunni. Sagði hann að þrátt fyrir
að ýmislegt mætti gagnrýna í störf-
um nefndarinnar hafi merk tímamót
orðið í afstöðu fulltrúa útgerðar og
fiskvinnslufyrirtækja til markaðs-
verðsviðmiðunar á ferskfiski í ný-
legum úrskurðum nefndarinnar og
stefnu oddamanna sem komi að
málum þegar ekki er samstaða í
nefndinni. Nefndi Guðjón mál
Fróða ÁR og Ásbjarnar RE í máli
sínu til stuðnings þar sem sam-
þykkt var markaðsviðmiðun í verð-
lagningu á afla. „Við hljótum að líta
til þess að þarna séu að birtast
verulega breytt viðhorf fyrirtækis
eins og Granda hf. sem vill verða
leiðandi í þeirri þróun að stórfyrir-
tæki í fiskveiðum og vinnslu sem
starfa á opnum hlutabréfamarkaði
þurfi að horfa til framtíðar í verð-
myndunarmálum ferskfiskaflans og
treysta sér til að starfa með og á
sömu verðum og gerast á opnum
ferskfiskmörkuðum."
Guðjón lagði áherslu á að sjó-
menn og útgerðarmenn næðu sátt
um starfsumhverfi sitt. Hinsvegar
hefðu komið fram merki um aftur-
hvarf til fortíðar í síðustu ákvörðun
í úrskurði dómara og útgerðar þar
sem ákvörðun i hörpuskelsmáli við
Breiðafjörð var ekki í neinu sam-
ræmi við raunverulega þróun á af-
urðaverði. Sagði Guðjón slík vinnu-
brögð ekki við hæfi og vonandi
aldrei endurtekin.
Fullyrðingum LÍÚ mótmælt
Á ráðstefnunni var harðlega mót-
mælt þeim fullyrðingum formanns
LÍÚ að hlutaskiptakerfi sjómanna
standi í vegi fyrir endurnýjun fiski-
skipaflotans og tækniþróun fiski-
skipa. Þær séu settar fram án nokk-
urs rökstuðnings og taki ekki mið af
því af því að við endurnýjun fiski-
skipa kosti úrelding tugi eða hund-
rað milljóna króna. Þar að auki hafi
komið fram opinberlega að vextir af
Iánsfé til atvinnurekstrar á Islandi
séu 2,5 til 3,5 prósentustigum hærri
en í nálægum löndum sem þýði að
miðað við núverandi skuldastöðu út-
gerðarinnar nemi útgjöldin millj-
örðum króna á ársgrundvelli. Þá
var það áréttað á ráðstefnunni að á
undanförnum áram hafi vel rekin
útgerðarfélög endurnýjað skipakost
sinn miðað við núverandi aðstæður,
þrátt fyrir hlutaskiptakerfi sjó-
manna.
Sameiningarhugmyndum
vísað til aðildarfélaga
Á stjómarfundi FFSÍ í vor var
kosin þriggja manna nefnd til að
vinna að undirbúningi sameiningar
allra aðildarfélaga sambandsins í
eitt stéttarfélag. Nefndin hefur
kynnt hugmyndir um sameiningu
fyrir flestum aðildarfélögum og á
formannaráðstefnunni var þeim til-
mælum beint til aðildarfélaganna að
kynna sjónarmið vel fyi'ir sínum fé-
lagsmönnum hvaða möguleikar eru
til aukinnar samvinnu og samein-
ingar félagana í eitt öílugt stéttarfé-
lag. Á ráðstefnunni var sameining-
arhugmyndum þannig vísað til að-
ildarfélaga FFSÍ til kynningar og
afgreiðslu og var samstaða um að
niðurstaða um sameiningu féiag-
anna lægi fyrir á vordögum.
Guðjón Á. Kristjánsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að gild-
andi lög um stéttarfélög og vinnu-
deilur hamli FFSÍ að kjósa um
verkfallsheimild þó samningsum-
boðið liggi hjá sambandinu, beldur
verði að kjósa í hverju félagi fyrir
sig.
Þarf að svara auglýsingum LÍÚ
Á ráðstefnunni urðu einnig mikl-
ar umræður um auglýsingaherferð
þá sem LÍÚ hefur staðið fyrir síð-
ustu mánuði. Voru menn sammála
um að margt í auglýsingunum sé
beinlínis villandi og sammæltust um
að finna þyrfti leiðir til að svara
þeim. Guðjón segir FFSÍ ekki hafa
burði til að leggja tugmilljónir
króna í auglýsingar líkt og LÍÚ en á
næstunni verði skoðað hvemig
þessi mál verði lögð fram. „Menn
eru alls ekki samþykkir því að
kvótakerfið hafi fært þjóðinni eins
stórkostlega ávinninga og LIÚ vill
vera láta. Þvert á móti hefur kerfið
fært miklar deilur og illindi inn í
sjávarútveginn. Atvinnuöryggi fisk-
verkafólks og sjómanna er lítið í
þessu kerfi og ítrekað brotið á rétt-
indum þeirra," sagði Guðjón A. Kri-
stjánsson.