Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Repúblikanar ósáttir við svör Clintons
Yilja afdráttar-
lausa játningu
Kveikt í moskum í Indónesíu
REPÚBLIKANAR og demókratar
í fulltrúadeild Bandaríkjaþings
deila enn um hvort svipta eigi Bill
Clinton forsetaembættinu en
nokkrir þingmenn
repúblikana sögðu
um helgina að
réttara væri að
samþykkja vítur á
forsetann ef hann
viðurkenndi af-
dráttarlaust að
hann hefði borið
ljúgvitni um sam-
band sitt við Mon-
icu Lewinsky,
fyrrverandi starfsstúlku í Hvíta
húsinu.
„Ef Clinton væri maður til að
koma fram og viðurkenna augljósar
misgerðir sínar þá myndi ég ef til
vill taka á máli hans með öðrum
hætti,“ sagði repúblikaninn Lindsey
Graham, sem á sæti í dómsmála-
nefnd fulltrúadeilarinnar. „En hann
er núna iðrunarlaus meinsærismað-
ur, sem ætti að missa embættið tali
hann ekki með öðrum tón til banda-
rísku þjóðarinnar og sætti hann sig
ekki við lögin.“
Varfæmisleg svör
Clinton svaraði á fóstudag 81
spumingu, sem dómsmálanefndin
hafði lagt fyrir hann, og áréttaði að
hann hefði hvorki gerst sekur um
meinsæri né villandi vitnisburð.
Svörin þóttu varfæmisleg og loðin
og repúblikanar sögðu að þau væm
ófullnægjandi. Forsetinn kvaðst
t.a.m. ekki muna hvort hann hefði
rætt við ritara sinn, Betty Currie,
um að ná í gjafir sem hann hafði
gefið Lewinsky, en neitaði að hafa
skipað henni að gera það. Hann
neitaði því einnig að hafa beðið
Lewinsky um að bera ljúgvitni.
Forsetinn áréttaði að hann sæi
eftir því að hafa villt um íyrir þjóð-
inni með því að neita að hafa átt í
kynferðislegu sambandi við Monieu
Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku
í Hvíta húsinu. „Slík svör villa um
fyrir fólki og ég hef beðist afsökun-
ar á því.“
David Kendall, lögfræðingur for-
setans, áréttaði hins vegar í bréfi
sem fylgdi svömnum að Clinton
hefði hvorki framið meinsæri, lagt
stein í götu réttvísinnar né misnot-
að vald sitt.
Aðstoðarmaður forsetans sagði
að Clinton hefði lagt fram „viðeig-
andi svör“ við „kiaufalegum og leið-
andi“ spumingum fulltrúadeildar-
innar. Embættismenn í Hvíta hús-
inu sögðu að Clinton hefði dregið
það eins lengi og mögulegt var að
svara spumingunum til að formaður
nefndarinnar, Henry Hyde, fengi
minni tíma til að leggja fram frekari
spurningar áður en nefndin tekur
afstöðu til þess hvort ákæra eigi
forsetann til embættismissis.
Repúblikaninn Peter T. King
sagði um helgina að a.m.k. 15-20
repúblikanar í fulltrúadeildinni
væm andvigir ákæra á hendur for-
setanum og því væri borin von að
hún yrði samþykkt.
TRÚARDEILUR blossuðu upp á
ný í Indónesfu í gær, er kristin
ungmenni lögðu eld að moskum
og öðrum byggingum múslima í
borginni Kupang. Fyrr um dag-
inn höfðu kristnir stúdentar mót-
mælt vaxandi deilum milli trúar-
hópa og kynþátta í Iandinu.
Klerkar hvöttu í gær múslima til
að reyna ekki að hefna harma
sinna.
Á sunnudag var haldinn fjöl-
mennur fundur fylgismanna Sa-
meinaða þróunarflokksins, sem
er stærsti stjómarandstöðuflokk-
ur múslima í Indónesíu, og veif-
uðuðu fylgismenn hans grænum
fánum við upphaf fundar.
Clinton
1 < mm
SéíSiíé*.
, - ■
< ‘ ■ 3
í eru alltaf
GREINILEG
Thomson samsteypan er fjórði stærsti framleiðandi
raftækja í heiminum og eru vörumerki hennar Thomson,
General Electric, Proscan, RCA, Saba og Telefunken.
Thomson er leiðandi í framleiðslu sjónvarps-,
myndbanda- og hljómtækjabúnaðar. Fyrirtækið var
meðal annars fyrst til að innleiða DVD spilara og
plasmatækni en sú tækni er undirstaða fyrir þynnri og
fyrirferðarminni skjái.
m ICVAL’
Skeifunni 11
Reykjavíkurvegi 64
TÖLVUN
Dreifing: Tæknival, heildsala
- ,
Atökin í Lýðveldinu Kongó
Efast um
vopnahles-
samkomulag
París, Kigali. Reuters.
EFASEMDIR em um að sam-
komulag um vopnahlé í Lýðveldinu
Kongó, sem undirritað var í Paris
um helgina, verði annað og meira en
orðin tóm, þar eð skæmliðar sem
berjast gegn Kongóstjórn voru ekki
hafðir með í ráðum.
Samkomulagið var undii’ritað af
Laurent Kabila, forseta Lýðveldis-
ins Kongós, og forsetum Rúanda og
Úganda, en bæði ríkin hafa sent
skæruliðum stjórnarandstæðinga í
Kongó liðsauka. Uppreisnarmenn
áttu hins vegar ekki aðild að sam-
komulaginu, sem náðist fyrir milli-
göngu Jacques Chiracs, forseta
Frakklands, og Kofis Annans, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna. Wamba dia Wamba, leiðtogi
skæmliða, sagði í samtali við
fíeuters-fréttastofuna á sunnudag
að hann vísaði samkomulaginu ekki
á bug, en skæmliðar myndu þó
halda áfram að berjast, þar sem
þeir væm undir stöðugum árásum.
Wamba sagði að skæruliðar væm
reiðubúnir að mæta til samninga-
viðræðna, en varaði við því að sam-
komulag án aðildar þeirra gæti ekki
leitt til varanlegs friðar.
Ráðgert er að viðræður um end-
anlegan friðarsamning fari fram í
Úagadúgú, höfðuborg Búrkína Fa-
só, um miðjan desember, undir for-
ystu Sameinuðu þjóðanna og Ein-
ingarsamtaka Afríkuríkja. Kabila
hefur hingað til neitað að ræða við
uppreisnarmenn, og ekki er vitað
hvort hann fellst á að gera það í
Úagadúgú, en skæruliðar hafa gert
það að skilyrði friðarsamninga. Kofi
Annan sagði í gær að komi vopna-
hléð til framkvæmda gæti reynst
nauðsynlegt að senda friðargæslulið
til Lýðveldisins Kongó og óska að-
stoðar frá ríkjum utan Afríku.
Borgarastríðið í Lýðveldinu
Kongó hefur nú staðið í fjóra mán-
uði, og óttast er að það kunni að
breiðast út til fleiri Mið-Afríkuríkja,
verði vopnahlé ekki að vemleika.
Úganda og Rúanda hafa opinber-
lega lýst yfir stuðningi við uppreisn-
armenn, en Zimbabwe, Angóla, Na-
mibía og Chad styðja ríkisstjórn
Kabilas.