Morgunblaðið - 01.12.1998, Side 34

Morgunblaðið - 01.12.1998, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLADIÐ Olfldegt að hægt verði að lögsækja Pinochet í Chile London. Reuters, The Daily Telegraph. STJÓRNVÖLD í Bretlandi og Chile neituðu á sunnudag fréttum breskra fjölmiðla þess efnis að þau hefðu samið um að Bretar leystu Augusto Pinochet úr haldi gegn því að ein- ræðisherrann fyirverandi yi’ði sótt- ur til saka í Chile. Lögfræðingar og stjórnmálamenn í Chile segja mjög ólíklegt að hægt verði að draga Pin- ochet fyrir rétt í heimalandi sínu þar sem stjórnin hafi ekki bolmagn til að breyta stjórnarskránni, sem tryggir honum friðhelgi frá ákæru. Jose Miguel Insulza, utanríkisráð- herra Chile, sem var í London um helgina, sagði að stjóm sín vildi að mál Pinochet yrði leitt til lykta fyrir dómstólum í Chile og að „raunveru- legur möguleiki" væri á því að hann yrði sóttur til saka þar ef honum yrði leyft að snúa aftur til heimalandsins. Nýtur enn friðhelgi Nokkrh' breskh- ráðherrar vom sagðir hlynntir þeirri hugmynd að Pinochet yrði lögsóttur í Chile og telja það bestu leiðina til að draga hann fyrir rétt án þess að stefna lýð- ræðinu í landinu í hættu og skaða tengsl þess við Bretland. Lögfræðingar og stjórnmálamenn í Chile lögðu hins vegar áherslu á að Pinochet nyti enn friðhelgi frá ákæru í heimalandi sínu. Þeir sögð- ust efíns um að stjórn vinstri- og miðflokkanna gæti knúið fram nauðsyn- legar breytingar á stjórnarskránni til að hægt yrði að draga hann fyrir rétt í Chile. Hægrimenn og fyi’rverandi herfor- ingjar em í meiri- hluta í öldungadeild þingsins. Nokkrir þessara herforingja njóta einnig lagalegrar friðhelgi og eru tregir til að fallast á stjómai-skrárbreytingar sem gætu orðið til þess að þeir yrðu sjálfir sóttir til saka. „Það hafa ekki enn skapast skil- yrði fyrir réttlátum og ströngum réttarhöldum yfir Pinochet í Chile,“ sagði Ricardo Nunez, leiðtogi flokks Insulza, Sósíalistaflokksins. Ellefu aðilar hafa reynt að höfða einkamál gegn Pinochet vegna mannréttindabrota á 17 ára valda- tíma hans og Insulza gaf í skyn að hann ætti einnig yfir höfði sér opin- bera ákæm, sem næði til þeirra morða og pyntinga sem einræðis- hemann fyrrverandi er sakaður um í framsalsbeiðni Spánverja. Lögfræð- ingai’ í Chile sögðu hins vegar að yrði stjórnarskránni ekki breytt yi’ði ekki hægt að sækja Pinochet til saka þar þótt utanríkisráðherrann hefði neitað því að hann nyti algjörrar friðhelgi. Stjórn Pinochets gaf út tilskipun árið 1978 um að embættismenn hennar nytu friðhelgi frá ákæram fyiir mannréttindabrot, sem framin voru á áranum 1973-78, tímabilinu sem langflest morðanna voru framin. Pinochet knúði einnig fram stjórnar- skrárákvæði um friðhelgi áður en hann lét af embætti. Stjórnarskráin veitir Pinochet rétt til að sitja sem ókjörinn þingmaður í öldungadeildinni til lífstíðai’. Sem þingmaður nýtur hann einnig laga- legrar friðhelgi. Stjórn Chile hefur alltaf sagt að nauðsynlegt hafi verið að fallast á kröfur Pinochets og ann- arra leiðtoga hersins um friðhelgi til að tryggja að hægt yrði að koma á lýðræði í landinu. Insulza ræddi í gær við George Ro- bertson, vai’narmálaráðheiTa Bret- lands, sem áréttaði þá afstöðu bresku stjórnarinnar að hún gæti ekki skipt sér af máli Pinoehets þar eð það væri dómsmál. Jack Straw, innanríkisráðherra Bretlands, á að ákveða fyrir 11. des- ember hvort undirréttur í London megi taka framsalsbeiðni Spánverja fyrir. Rúmlega 100 þingmenn Verka- mannaflokksins hafa sent Straw áskorun um að hindra ekki framsalið. Sagður lasburða og þunglyndur Haft var eftir systursyni Pin- ochets í gær að hann væri svo niður- dreginn vegna málsins að hann myndi frekar svipta sig lífi en að „ganga í gegnum þá auðmýkingu að verða framseldur og lögsóttm- á Spáni fyrir morð“. „Hershöfðinginn er ekki bjartsýnn,“ sagði Rafael Pin- ochet Savedra. „Hann telur að breska stjórnin muni ekki hindra framsal hans til Spánar." Pinochet er á sjúkrahúsi í London og eiginkona Pinochets, Lucia Hiri- art, kvartaði yfir því að hann væri „undir stöðugu eftirliti". „Hann er mjög lasburða og þunglyndur vegna aðstöðu sinnar," sagði hún. Prímakov frestar fjárlaga- umræðu Moskvu. Reuters. RÚSSNESKA stjórnin frestaði í gær fjárlagaumræðum um hálfan mánuð en þær áttu að hefjast í gær. Er það talið til marks um það hve ei’fiðlega stjórninni gengur að finna lausnir á efnahagskreppunni sem dundi yfir landið í lok sumars. Þótt stjórnin hafi kynnt aðgerðir sem hún hyggst grípa til gegn efna- hagsvandanum er ljóst að þær duga engan veginn. Mun meira fé verður að koma til eigi stjórnin að standa við skuldbindingar sínar gagnvart lánardrottnum, svo og laun- og elli- lífeyrisþegum. Því hefur stjórnin nú tekið sér frest til að kynna endanleg fjárlög, í fyrstu var hann til fimmtu- dags en seinnipartinn í gær var fresturinn framlengdur til 11. des- ember. Fresturinn sem stjórn Jevgenís Prímakovs tók sér til að vinna fjár- lagafrumvarpið var í fyrstu talinn tengjast komu Michels Camdessus, framkvæmdastjóra Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, IMF, til Moskvu en sjóðurinn neitar að greiða Rússum út 4,3 milljarða dala lán sem þeir hafa fengið fyrirheit um, fyrr en stjómin nái samkomulagi um efna- hagsaðgerðir sem IMF getur fallist á. Búist hefur verið við því að Prímakov muni reyna með öllum ráðum að fá hann til að fallast á að greiða Rússum út lánið. Þegar fresturinn var framlengdur vegna fyi’irhugaðra skattalækkana, þótti ljóst að hann tengdist ekki ein- göngu komu framkvæmdastjórans. Senda „reynslu- lausa krakka" Prímakov er mikill vandi á hönd- um. Honum er ætlað að setja saman fjárlög sem kommúnistar í dúmunni, neðri deild þingsins, geta fallist á, auk þess sem þau verða að hugnast IMF. Það kom þó ekki í veg fyrir harða gagnrýni Prímakovs á IMF um helgina en hann sakaði yfirmenn sjóðsins um að senda „reynslulausa krakka" til skipa rússneskum stjómvöldum fyrir í efnahagsmál- um. Afnám tollfijálsrar verzlunar innan ESB Þjóðverjar vilja frekari frest ÞÝZK stjórnvöld hyggjast á fundi fjármálaráðherra Evrópusambandsins í dag leggja til að gildistöku fyrirhug- aðs afnáms tollfrjálsrar verzlunar inn- an sambandsins verði frestað. Tals- maður stjórnarinnar staðfesti í samtali við brezka blaðið The Daily Telegraph að Gerhard Sehröder kanzlari hefði beðið fjármálaráðherrann Oskar Lafontaine að hvetja til frestunar, þai- sem hið fyrirhugaða afnám tollfrjálsrar verzlunar sé þegar farið að kosta störf í Þýzkalandi. Þýzka stjórnin gerir ráð fyrir að eiga sér bandamenn í frönsku stjórninni. I norður-þýzka sambandslandinu Slésvík-Holtseta- landi, þaðan sem fjölmargar ferjur leggja upp í áætlunar- siglingar yfir Norðursjó og Eystrasalt, er óttazt að allt að 3.000 störf kunni að tapast ef staðið verður við að af- nema tollfrjálsa verzlun um mitt næsta ár. Akvörðun var tekin um afnámið árið 1991, sem þáttur í aðgerðum til að brjóta niður höft og samræma sam- keppnisaðstöðu fyrirtækja á innri markaðnum en síðan hefur gildistöku ákvörðunarinnar verið ítrekað frestað. Fulltrúar framkvæmdastjórnar ESB telja ólíklegt að fleiri en Frakkar og írar styðji tillögu Þjóðverja um frekari frest. Háttsettir menn í Brassel telja að Schröder og Lafontaine leggi þetta til núna til að uppfylla loforð sem þeir gáfu í kosn- ingabaráttunni fyrir þingkosningarnar í september. Ferjurekendur eru nú þegar farnir að láta sér detta ýmislegt í hug til að reyna að bæta sér að einhverju leyti upp það gífurlega tekjutap sem þeir verða fyrir við afnám tollfrjálsu verzlunarinnar um borð. Ein hugmyndin er sú, að ferjur sem ganga milli Dan- merkur og Þýzkalands selji vörar um borð sem aðeins er greiddur þýzkur virðisaukaskattstaxti af, sem er mun lægri en sá danski. Onnur leið er sú að láta ferjur sem t.d. fara frá Jót- landi til Englands koma við í Noregi, þar sem hinar nýju ESB-reglur um tollfrjálsa verzlun munu ekki ná til Nor- egs frekar en íslands, þar sem þau lönd eru utan tolla- bandalags ESB. Eins munu ferjurnar sem ganga á milli ESB-landanna Svíþjóðar og Finnlands geta bjargað sín- um viðskiptum með því að koma við á Alandseyjum, þar sem eyjarnar eru líka utan tollabandalagsins. Persson um hugmyndir um EMU-aðild Fleiri forsendur en efnahagslegar Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. „ÞAÐ ER ekkert launungarmál að sem fjármálaráðherra var ég hallur undir sænska aðild að EMU, því þá hafði ég aðeins efnahagslegar for- sendur í huga. Sem forsætisróðheiTa skipta fleiri forsendur máli“, sagði Göran Persson forsætisráðherra Svía er hann spjallaði við gesti í sænska sendiráðinu í Kaupmanna- höfn á föstudaginn. Hann vildi ekki láta uppi hvort hann hefði í huga þjóðaratkvæðagreiðslu um EMU-að- ild Svía, eða hvort málið yrði afgreitt í þingkosningum, en rætt hefur verið um að málið yrði á einhvern hátt borið undir kjósendur, til dæmis í kosningum til Evrópuþingsins, sem verða á næsta ári. „Eg geri mér ljóst að ákvörðunin um sænska EMU-aðild er veiga- mesta ákvörðun, sem ég mun taka á stjómmálaferli mínum,“ sagði Pers- son og velti upp ýmsum þeim atrið- um, sem honum þykja vafamál varð- andi EMU-aðild. „Hvernig á til dæm- is að ákvarða vexti?“ spurði hann. „Það er ekki hægt að taka bæði mið af vexti í Bretlandi og samdrætti í Þýsklandi," sagði hann, en benti um leið á að Svíum tækist til dæmis að hafa sömu vexti í Kiruna og á Skáni. Innan hvers lands væri drjúgur mun- ur milli landshluta, sem dregið væri úr með margvíslegum aðgerðum. „En eru til tæki og stofnanir í ESB, sem geta gert það sama?“ Persson benti á að þar sem staðið væri frammi fyrh’ svo mörgum og flóknum spurningum gæti hann ekki þóst hafa öll svörin á reiðum höndum. Hlutverk sitt og annan-a stjómmála- manna nú væri að ræða málin ítar- lega og benda á sem flestar hliðar EMU. „Við verðum að segja frá hlutr unum eins og þeir era, svo fólk geti ekki komið eftir á og sagt við okkur stjómmálamennina að þetta og hitt hafi því ekki verið sagt,“ sagði Pers- son og minnti á að eftir þjóðarat- kvæðagreiðsluna um ESB-aðild hefðu margir haldið því fram að ákvörðunin hefði bara verið tekin af „þeim þama í Stokkhólmi. Það sama má ekki ger- ast aftur með EMU-aðild.“ Ráðherrafundur EFTA Fríverzlun- arsamning- ur við PLO RÁÐHERRAR utanríkisviðskipta- mála EFTA-ríkjanna fjöguma, ís- lands, Noregs, Sviss og Liechten- stein, undirrituðu í gær fríverzlunar- samning við heimastjórn Palestínu- manna. Fonnlegar viðræður um sambærilegan samning við Egypta hefjast í dag en ráðherrarnir lýstu því yfir að búizt væri við að viðræður um fríverzlunarsamning EFTA við Kanada verði til lykta leiddai’ um mitt næsta ár. Ennfremur er stefnt að því að fljótlega verði teknar upp sams konar viðræður við Mexíkó, en í síðustu viku fór fram fyrsta lota viðræðna um fríverzlunarsamning Mexíkó við Evrópusambandið (ESB). í lokaályktun fundarins er greint frá því að samningurinn við Palest- ínumenn muni ganga í gildi í júlí 1999. Þetta er 14. fríverzlunarsamn- ingur EFTA við ríki utan ESB. Gengið var frá slíkum samningi við Israel 1992, en þar að auki eru í gildi samningar við Marokkó, Tyrkland og tíu ríki Mið- og Austur-Evrópu. Morðingja enn leitað LÖGREGLUMENN í Texas leita enn fanga sem flýði af dauðadeildinni svokölluðu í Huntsville fyrir helgi. Ýfir sextíu ár eru liðin frá því að dauða- dæmdum fanga tókst að sleppa úr fangelsi í Texas. Fang- inn Martin Gurale, var dæmdur til dauða árið 1992 fyrir að myrða veit- ingahúsaeiganda. Auður Irlands lokkar AUKIN velsæld á írlandi hef- ur orðið til þess að fleiri flutt- ust til landsins á fyrsta árs- fjórðungi en dæmi era um. Innflytjendur voru þá 22.800, miðað við 15.000 í fyíra. Flest- ir þeirra eru af írsku þjóðerni, en öldum saman hafa frar flutt af landi brott í stórum stíl. Hagvöxtur er nú meiri á írlandi en í nokkru öðru ríki Evrópusambandsins. 13 blaða- menn myrtir á árinu ÞRETTÁN blaðamenn hafa verið myrtir víðs vegar um heim það sem af er árinu, og nær hundrað til viðbótar hafa verið fangelsaðir fyrir að birta óþægilegar staðreyndir eða neita að hlýða ritskoðun, sam- kvæmt alþjóðlegum samtök- um sem berjast fyrir frelsi fjölmiðla. Samtökin segja að blaðamönnum sé mest hætta búin í Mexíkó og Kólombíu, en ástandið sé einnig slæmt í ýmsum Afríkuríkjum. Sexburar að óvörum SEXBURAR komu í heiminn í Indónesíu á fóstudag, fimm drengir og ein stúlka. Foreldr- arnir, sem voru bamlausir fyr- ir, áttu von á fimmburum, en ekki varð gleði þeirra minni þegar sjötta bai’nið kom í ljós. Móður og börnum heilsast vel að sögn lækna, en þetta munu vera fyrstu sexburarnir í Suð- austur-Asíu sem allir lifa af. Klæðskipting- ur rekinn úr embætti bæjarstjóra ÍBUAR bæjarins Quellendorf í Þýskalandi samþykktu á sunnudag að víkja bæjarstjór- anum Norbert Lindner úr embætti, vegna þess að hann væri klæðskiptingur. Lindner, sem er kvæntur og tveggja barna faðir, hóf fyrr á þessu ári að klæðast kvenfötum og tók upp nafnið Michaela. Hann bíður þess nú að gangast undir kynskiptaaðgerð. Lindner segir bæjarbúa skorta um- burðarlyndi og hyggst flytjast frá bænum og jafnvel úr landi. Hann er þó sagður ráðgera að kæra atkvæðagreiðsluna til æðsta dómstóls Þýskalands. Gurule.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.