Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 37

Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 37 LISTIR Nýjar bækur Með helgum hljóm • HEFURÐU faríð á hestbak? er fyrsta skáldsaga Önnu Dóru Antons- dóttur, myndskreytt af Freydísi Kristjánsdóttur. I kynningu segir að þótt sagan sé einkum ætluð böm- um á aldrinum 8-13 ára eigi hún erindi til fólks á öllum aldri. Saga Onnu Dóm Antonsdóttur er „ævisaga" Reykj avíkurpilts, bráðskemmtileg frásögn af pilti sem býr einn með móður sinni og fær að þola með henni súrt og sætt. Það er líka ýmislegt í háttum hinna fullorðnu sem reynist erfitt fyr- ir ungan pilt að átta sig. Pilturinn verður á vegi ævisagnaritara nokkurs sem fegins hendi grípur tækifærið til að hnýsast í hagi piltsins og ski-á sögu hans jafnóðum og hún gerist. Útgefandi erÆskan. Bókin er 160 bls. Verð: 1.890 kr. • EINS og skugginn er eftir Andre's Indriðason. I kynningu segir að saga Andrésar sé spennusaga sem gæti átt sér hlið- stæðu í íslenskum vemleika. Vera, 18 ára stúlka í Reykjavík, er yfirheyrð af lögreglunni vegna slyss sem verður um hánótt. Yfir- heyrslan leiðir í ljós margt óþægilegt sem hefúr fylgt Vem eins og skugg- inn. I þessari sögu kveður við nýjan tón í skrifum Andrésar. Útgefandi erÆsk- an. Bókin er 160 bls. Verð: 1.980 kr. • SOSSA sönn hetja er eftir Magneu frá Kleifum. Þetta er fjórða og síðasta bókin um Sossu. I kynningu segir: „Sossa er að verða fullorðin, oft skella á henni brotsjóir en alltaf birtir á ný, enda er hún hörð af sér. Lýst er lífi barna og unglinga í upphafi aldar á raunsæjan hátt en þetta er ástar- og átakasaga fyrir 10-14 ára lesendur.“ Útgefandi er Mál og menning. Bók- in er 156 bls., prentuð hjá Grafík. Verð: 1.880 kr. TONLIST Hallgrímskirkja KÓRTÓNLEIKAR Aðventutónleikar Kvennakórs Reykjavíkur. Einsöngur: Björk Jónsdóttir; orgel: Þórhildur Björnsdóttir. Upplestur: Arnar Jónsson. Stjórnandi: Sigrún Þor- geirsdóttir. Hallgrimskirkju, sunnudaginn 29. nóvember kl. 17. ÁRVISSIR aðventutónleikar Kvennakórs Reykjavíkur runnu upp fyrir þéttsetinni Hallgríms- kirkju á sunnudaginn var. Að vanda samanstóð efnisskráin af hefðbundnum jólalögum, innlend- um og erlendum, en nokkur nýleg verk fengu og að fljóta með eftir Busto, Hjálmar Ragnarsson og Zoltán Kodály. Meðal eftirtektarverðustu laga var hið fagra gamla íslenzka jóla- lag „Með gleðiraust og helgum hljóm“, hið bráðskemmtilega og hóflega móderníska Salve Regina eftir J. Busto frá 1995, hið lotn- ingarfulla samnefnda verk Hjálmars H. Ragnarssonar frá árinu síðar, „Engill fór í fátækt hús“ (úts. D. Willcocks; bráðsnot- urt frönskulegt jólalag frá 15. öld), „While shepherds watched their flocks" (úts. Willcocks) úr saltara Estes frá 1592, hið ódauð- lega „Nóttin var sú ágæt ein“ eft- ir Kaldalóns (radds. Marteins H. Friðrikssonar), franska 17. aldar- lagið Jólaklukkur (Hosanna in excelsis) og lokalagið „Frá ljósanna hásal“ (Adeste fideles) úr Cantus Diversi frá 1751. Auk fyrrgetinna tveggja laga var hinn nafntogaði kórstjóri Kings College í Cambridge, Da- vid Willcocks, einnig útsetjari lokalagsins góðkunna. Björk Jónsdóttir söng vel útfærðan ein- söng við orgelundirleik Þórhildar Björnsdóttur í lagi Jóns Þórarins- sonar frá 1996, „Hin fyrstu jól“ og raunar víðar með kórnum, þótt ekki væri nánar tilgreint í tón- leikaskrá hvar. Arnar Jónsson leikari las þrjú innslög milli söng- atriða úr jólaguðspjöllum af al- kunnri snilld. Tónleikaski-áin var fremur spör á upplýsingar, burtséð frá söng- textum sem allir voru skilmerki- lega tilgreindir; hinir erlendu bæði á frummáli og í íslenzkri þýðingu. Kvennakór Reykjavíkur söng flestallt mjög fallega og í góðu jafnvægi undir öruggri stjórn hins nýja kórstjóra, en hefði ef til vill á stöku stað mátt skerpa ögn undir tónhæð, sér- staklega á veikari stöðum. Ungu stúlkurnar úr Kórskóla kvenna- kórsins sungu Nóttin var sú ágæt ein af mikilli prýði, nema hvað neðri röddin var áberandi óhrein. Engu að síður tókust tónleikarnir í heild með ágætum, og gengu þakklátir áheyrendur heim vel andlega búnir undir aðsteðjandi jólahátíð. Ríkarður O. Pálsson Andrés Indriðason Magnea frá Kleifum BALENOj SUZUKI SOLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hl, Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- oq búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 5$5 15 50. Isafjörður: Bílaqarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. Aflmiklir, rúmgóðir, öruggir og einstaklega hagkvæmir í rekstri SUZUKI BALENO nansaB SWIFT BALENO WAGON R+ JIMNY VITARA TEGUND: VERÐ: GRAND VITARA TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: GLS 3d 980.000 KR. l,3GL3d 1.140.000 KR. GL 1.079.000 KR. Beinskiptur 1.379.000 KR. JLX SE 3d 1.580.000 KR. GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR. GLX 5d 1.020.000 KR. l,3GL4d 1.265.000 KR. l,6GLX4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX4x4 4d 1.495.000 KR. 1.6GLXWAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. GL4x4 1.259.000 KR. Sjálfskiptur 1.499.000 KR. JLX SE 5d 1.830.000 KR. DIESEL 5d 2.180.000 KR. GR. VITARA 2,5 L V6 2.589.000 KR. Komdu og sestu inn! Sjúdu rýmið og alúðina við smáatriði. Skoðaðu verð o^ gerðu samanburt EUUn fMHElHI wm ALUR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ • aflstýri • 2 loftpúðar • aflmiklar vélar • samlæsingar > rafmagn i rúðum og speglum • styrtarbitai hurðum • • samlitaða stuðara • $ SUZUKI SUZUKIBILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.