Morgunblaðið - 01.12.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 39
Öðruvísi
indíánamynd
KVIKMYIVDIR
It e g n b o g i n ii
SMOKE SIGNALS
★★14
Leiksljóri: Chris Eyre. Handritshöf-
undur: Sherman Alexie. Aðalhlut-
verk: Adam Beach, Evan Adams,
Gary Farmer og Irene Bedard.
Miramax 1998.
FYRSTA kvikmyndin í fullri
lengd sem framleidd er af indíán-
um Norður-Ameríku er lítil, falleg
og skemmtileg. Þótt í bakgrunnin-
um sé tæpt á nútímavandamálum
þjóðflokksins, eins og óhófi í áfeng-
isdrykkju og slæpingshætti, fjallar
hún ekki um brotna sjálfsmynd
indíánanna. Það er frekar að gert
sé grín að gömlu ímyndinni um
grimma veiðimanninn og töfra-
lækninn alvitra. Sagnahefðinni eru
gerð góð skil í frásagnarhætti öll-
um og hin furðulega en fallega tón-
list indíána er notuð á mjög
skemmtilegan hátt. Sagan sjálf er
mjög sammannleg og gæti gerst
hvar sem er í heiminum. Þar segir
frá uppgjöri ungs manns við fortíð-
ina og föður sinn sem sveik hann.
Arnold Joseph deyr og þá ferð-
ast sonur hans Victor langa leið,
ásamt Thomasi, til að sækja jarð-
neskar leifar hans. Victor er fóður
sínum reiður fyrir að hafa yfirgefið
hann og móður hans fyrir tíu árum.
Arnold hafði hins vegar bjargað lífi
Thomasar þegar hann var nýfædd-
ur, og alltaf átt stórt pláss í hjarta
hans síðan.
Thomas er dásamlega hreinskil-
inn og ekki alveg eins og fólk gerist
flest. Hann er snilldarlega leikinn
af Evan Adams, og verður að segj-
ast að þetta hlutverk er mjög stór
hluti og að miklu leyti drifkraftur
myndarinnai’. Adam Beach leikur
unga töffarann Victor, sem er
skemmtileg andstæða við Thomas.
Samleikur þeirra er dásamlegur,
og þessir ungu leikarar gera sam-
band þessara sérstæðu félaga
ógleymanlegt.
Falleg og hugljúf kvikmynd sem
gefur skemmtilega nasasjón af nú-
tímaheimi indíána sem fáir þekkja.
Hildur Loftsdóttir
Lestur sígildra ljóðleika
Ofjarlinn í
Borgarleikhúsinu
OFJARLINN (Le
Cid) eftir Frakkann
Pierre Corneille, verð-
ur annar leiklestur Sí-
gildra ljóðleika í þýð-
ingu Helga Hálfdanar-
sonar hjá Leikfélags
Reykjavíkur. Lesið
verður á Litla sviði
Borgarleikhússins, á
morgun, miðvikudag,
kl. 20.
Pierre Corneille
(1606-1684) er eitt höf-
uðleikskálda Frakka
ásamt Jean Racine og
Jean Baptiste
Moli'ere. Hann lagði
grunninn að sígildri leikritun
Frakka. Þótt hann hafi einkum
samið harmleiki þá
skrifaði hann einnig
gamanleiki. Hann
varð afar vinsæll leik-
ritahöfundur í lifanda
lífi. Ofjarlinn er lang-
þekktastur af öllum 33
harmleikjum Corneil-
les.
Þátttakendur eru:
Bjöm Ingi Hilmars-
son, Halldór Gylfason,
Halldóra Geirharðs-
dóttir, Hjalti Rögn-
valdsson, Jón Hjartar-
son, Margrét Ólafs-
dóttir, Rósa Guðný
Þórsdóttir, Valgerður
Dan, Þórhallur Gunnarsson og
Þorsteinn Gunnarsson.
Pierre Corneille
Nýjar bækur
• SIGURÐUR drekabani er eftir
norska rithöfundinn Torill Thor-
stad Hauger í þýðingu Sólveigar
Brynju Grétarsdóttur.
Sagan er framhald af spennu-
sögunum I vík-
ingahöndum og
Flóttinn frá vík-
ingunum. Hér
er sögð saga
höfðingjasonar-
ins sem vingað-
ist við þræla í
fyrri bókunum.
Drengurinn á að
verða hraust og
huguð hetja en
veldur fóður sínum vonbrigðum
því hann er lítið gefinn fyrir
vopnaburð og víkingaferðh’. Nú
kemur að því að hann verður að
standa á eigin fótum.
Utgefandi er Mál og menning.
Bókina er 235 bls., prentuð í
Prentsmiðjunni Odda. Verð: 1.690
kr.
• MÁLFRÍÐUR og tölvu-
skrímslið er eftir Sigrúnu Eldjárn.
I kynningu segir: I bókinni segir
frá ævintýram Málfríðar og
Kuggs. í þessari
nýju sögu segir
frá því þegar
Kuggur fær dag
einn tölvubréf
frá Málfríði sem
býður honum að
koma og líta á
nýjan hugbúnað.
Kuggur vissi
ekki að gamlar
kerlingar gætu
lært á tölvu en kemst að því gagn-
stæða, og því að Tölfríður er engin
venjuleg tölva.
Sigrún Eldjám hefur samið á
annan tug barnabóka og hlotið
margvíslega viðurkenningu fyrir
verk sín. Fyrr á þessu ári var Sig-
rún tilnefnd til H.C. Andersen-
barnabókaverðlaunanna.
Útgefandi er Bókaútgáfan For-
lagið. Bókin er 37 bls. Kápuhönn-
un: Sigrún Eldjárn. Prentun: Nor-
haven, Danmörku. Verð 1.680 kr.
• GOSI - Bambi eru tvær sígildar
sögur í nýrri útgáfu. Pýðandi Stef-
án Júlíusson.
Útgefandi Setberg. Verð 399
hvor bók.
Torill Thorstad
Hauger
Sigrún
Elctfárn
Ný sending af drögtum frá Libra
Ný sending af buxna- og pilsdrögtum, ásamt blússum
Tilboð: Blazerjakkar kr. 8.900
og buxur kr. 4.800
Opið laugardag frá kl. 10 til 16
mraarion
Reykjavíkurvegi 64, sími 565 1147
free\Ykwiz
Sími 565 3900
Síðasti pöntunardagur (vöruvagn) fyrir jól er 4. des.
Þessar gjafír færðu FRÍAR ef
þú pantar hjá freemýý .
Snytiveskið fylgir öllum pöntunum og bakpoki
að auki ef pantað er fyrir 50 pund eða meira.
JDY
»k vttutte ttv v**o mooa
Mý jólasending
vikulega
VERO MODA
Laugavegi 95-97 simi 552 1444
Kringlan simi 568 6244