Morgunblaðið - 01.12.1998, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 01.12.1998, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 MORGUNBLADIÐ LISTIR Pétur Gautur sýnir í Galleríi Borg Einfaldleik- inn, kyrrðin og litirnir MYNDLISTARMAÐURINN Pét- ur Gautur sýnir nú 33 verk í Galleríi Borg í Síðumúla 34. Þau eru öll unn- in með olíulitum á striga á þessu ári. Þetta er fimmta stóra einkasýning Péturs Gauts hér á landi en hann hefur auk þess haldið þrjár einka- sýningar í Danmörku og tekið þátt í nokkrum samsýningum. „Þessi sýning er beint framhald af sýningu sem ég hélt hér í Galleríi Borg fyrir nákvæmlega einu ári. Eg var spurður á opnuninni hvort þetta væri þemasýning. Ég hafði eiginlega aldrei íhugað hvort það væri eitt- hvað þema á sýningunni. En kannski má segja það, því allar myndirnar eru uppstillingar og kannsld eru þær allar tilbrigði við sömu einfoldu hlutina. Þetta eru yf- irleitt sama skálin og sömu ávextirn- ir og sömu fjórir eða fimm litimir. Ætli ég sé ekki hreinlega að kafa dýpra í það sem ég hef verið að fást við undanfarin ár, þó svo að ég hafi kannski ekki gert mér grein fyrir því fyrr en eftir á. Það má segja að ég sé að vinna með einfaldleikann, kyrrðina og litina," segir hann. Pétur Gautur nam íslenska lista- sögu við Háskóla íslands, málun við Myndlista- og handíðaskóla Islands og leikmyndahönnun við Ríkisleik- listarskólann í Kaupmannahöfn. Hann hefur unnið að list sinni allt frá árinu 1992, á Islandi og í Dan- mörku. „Ég hef verið að mála upp- stillingar í fjögur ár og það er alltaf að koma til mín fólk sem spyr hvort ég ætli ekki að fara að skipta um mótív og mála eitthvað annað, lands- lag eða eitthvað. En eftir því sem ég kafa dýpra í þetta viðfangsefni finnst mér að það verði sífellt áhuga- verðara, því það er óþrjótandi upp- spretta. Mér finnst ég geta miklu meira í dag en í gær, kannski vegna þess að það er svo þægilegt að vera ekki alltaf að glíma við nýtt og nýtt viðfangsefni en geta helgað sig al- gerlega myndbyggingunni, formun- um og litnum, bara tæknin við litina er nóg til þess að ég gæti verið í þessu í tíu ár í viðbót. En eins og einhver sagði við mig þá er mjög skemmtilegt að mála uppstillingar, sérstaklega að því leyti að það er ákaflega mikill línudans, það eru all- ir málarar búnir að mála uppstilling- ar og það er mjög erfítt að skapa sér Morgunblaðið/Þorkell PÉTUR Gautur sýnir uppstillingar unnar með olíu á striga í Galleríi Borg. einhvern ákveðinn stíl í þessu formi,“ segir Pétur Gautur. Ekkert landslag til að máia í Danmörku „Ég byrjaði að mála uppstillingar úti í Danmörku, þar sem kyrralífs- myndahefðin er mjög sterk. Ég sagði það einhvem tíma í viðtali við danska útvarpið að ég hefði byrjað að mála uppstillingar í Danmörku af því að þar hefði ekki verið neitt landslag til að mála. Þeir klipptu það reyndar úr til þess að ég móðgaði ekki danska alþýðu, en það er nú -samt dálítið til í því,“ segir hann. Aður en hann fór að einbeita sér að uppstillingunum málaði Pétur Gautur abstrakt. „Þetta þróaðist allt án þess að ég gerði mér grein fyrir því. Ég byrjaði strax þegar ég var búinn með skólann að mála abstrakt- myndir og vann mikið með hringlaga form og ferhyminga. Þessai’ abstraktmyndir urðu alltaf einfaldari og einfaldari, þangað til að það var eiginlega ekkert eftir nema einhverj- ar abstrakt kúlur á fleti, þannig að fólk var alltaf að spyrja hvort þetta væru ávextir. Ég neitaði statt og stöðugt þangað til ég leyfði þessum hlutum að verða að ávöxtum á borði. Það var bara þróun sem gerðist mjög átakalaust og eðlilega.“ Þegar hann ber þessa sýningu saman við þá síðustu er hann ekki frá því að hann hafi verið meira leit- andi í fyrra. „Núna veit ég nokkurn veginn hverju ég er að sækjast eftir og að því leyti er ég ánægðari með sýninguna í ár,“ segir Pétur Gautur. En þegar hann er beðinn um að lýsa því nánar hverju hann sækist eftir vefst honum tunga um tönn. Segir svo að það sé einhver innri þögn, innri kyrrð og innri fullkomnun, sem hann geti ekki almennilega lýst. Sýningin stendur til 6. desember og er opin alla virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 12-16 og sunnudaga kl. 14-17. YFRLITSMYND af sýningu Gláru, Guðrúnar Láru. Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins er stuðningur við mikilvægt forvarnarstarf 4hiftu staSfimQ - nieiff ($/'eiiiÓ24. c/. w 1 Krahbameinsfélagsins t58skattfrjálsirvlnnlngar að verðmæti <18,3 milljónir króna ... _ igii MIÐINR. 001998 s 'Vi/**>**&***'' 1 Opel Astra 1 600 Station Club. ] sjálfsklptur, árgerö 1999. Verðmæti 1.700.000 kr. simuitt 562 1516 httprfWWW krabb.isihapp/ t Bifreið eða greiðsla upp iibOð. Verðmæti 1.000.000 kr. I»» Úttektir hjá ferðaskrifsl eða verslun. Hver að v« 100.000 kr. ALLEGORÍUR MYJVDLIST Gallerf Ilorn, Ilafnarstræti MÁLVERK GUÐRÚN LÁRA HALLDÓRSDÓTTIR (GLÁRA) Til 2. desember. Opið all daga frá kl. 11-23.30. MÁLVERK Guðrúnar Láru - Glára - búa eins og öll list yfir ákveðnum möguleikum. Þegar við tölum um „góða“ list eða „slæma“ er í því mati ávallt fólgin spurningin; í hvaða átt er hægt að þróa það sem fyrir augu ber? Hið góða við list Gláru er hve skammt hún er komin á leið tæknilega; hið slæma er kúrsinn sem hún velur sér. Ef verk hennar væru betur máluð væri henni vart viðbjargandi, ekki frekar en tilrækt- uðum konunglegum postulínsmálara með gjörspillta línugerð. En Glára er rétt að byrja og stíll- inn er ennþá nægilega ómótaður til að flytja hana til allra átta, svo fremi hún átti sig á því sjálf. Því þó svo verk hennar séu rúin öllu ætluðu inn- taki og fjalli flest um þá almennu út- jöfnun táknrænnar merkingar sem kölluð er allegoría - mannvera með látbragði eða hljóðfæri er látin standa fyrir hugtök á borð við „frelsi“, „þey“, „þjóðlag“ og „hvíld“ - leynir sér ekki að depurð og magn- leysi ásækja táknrænar gyðjur henn- ar. Það er eins og þær séu af öðrum heimi en þeim sem við byggjum. Það er þessi, ef til vill ómeðvitaði, sannleiksvottur sem ber með sér möguleikana í máiverkum Gláru. Hennar er svo að átta sig á hvort hún vOl skerpa á slíkum dýpri gild- um eða hvort henni nægir að mála sætar og innihaldsrýrar sófamyndir til að borga með liti og léreft. Én ef svo er; hví ætti hún þá að leita í smiðju til Jóhönnu heitinnar Yngva- dóttur, sem einmitt kunni svo vel að fórna sætleikanum fyrir birtingu sársaukans? Væri ég í sporam Gláru mundi ég varpa allegoríunni fyrir róða og sækja á gjöfulli mið. En það þarf manndóm til að kafa undir yfir- borðið því slíkt leiðir ætíð til minni vinsælda. Halldór Björn Runólfsson Nýjar bækur • STAKIR jakar er fyrsta ljóða- bók af fjórum eftir Árna Larsson sem áætlað að gefa út fram að ár- inu 2001. I bókinni eru 54 sjálfstæð Ijóð sem gerð hafa verið á síðari ár- um. í kynningu segir: Hugsjónir eru eins og smokkar. Við blásum þær ekki upp heldur „fíl- um“ hugsjónir í botn meðan þær eru í notkun. Ljóð eftir Árna hafa birst í safnritum hér á landi, í Bandaríkj- unum og nú síðast í Kína á þessu ári. Útgefandi er Ljóðasmiðjan sf. Bókin er 73 bls., myndskreytt. Prentun og bókband: Oddi hf. Ljós- myndi á kápu er eftir Erling Ó. Að- alsteinsson. Verð: 1.680 kr. • KEIKÓ - hvalur í heimsreisu er efth• Kristínu Helgu Gunnarsdótt- ur rithöfund. Höfundar myndmáls eru Hallgrímur Ingólfsson og Aðalsteinn Svan- ur Sigfósson. I kynningu segir: „í bókinni er saga frægasta hvals í heimi reif- uð í máli og myndum. Bókin er sérstaklega ætluð börnum á aldrinum 6-12 ára. Ferðalag Keikós hefur yfir sér ævintýrablæ og bókin hefst með heimsókn í dýragarðinn í ævintýraríkinu Lúmínu." Útgefandi er Vöxtur. Bókin er 34 bls. í stóru broti. Prentuð í Odda. Verð: 1.980 kr. Árni Larsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.