Morgunblaðið - 01.12.1998, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Um upp-
lýstan orð-
ræðuhátt
„Að enn séu draugar upplýsingarinnar á
sveimi haldandi dauðahaldi í Ijós skynsem-
innar andspænis myrkri óljósra kennda;
hugsandi menn, menntaðir menn sem segj-
ast trúa á vísindin frekar en næmi hjart-
ans, að tilfinningar séu góðar og gildar en
það verði að reiða sig á rökin. “
JÓNAS Hallgrímsson
skrifaði ekki ýkja mikið
um skáldskap eða fag-
urfræðileg efni en það
sem hann þó lét frá sér
fara á því sviði er talið hafa haft
mikil áhrif - og það raunar með
endemum. Hinn frægi rímna-
dómur Jónasar, sem birtist í
þriðja árgangi Fjölnis árið 1837,
er þannig stundum talinn hafa
riðið þessar gömlu kveðskapar-
grein að fullu. Vafalaust er það
ofsögum sagt því, eins og ýmsir
hafa leitt í ljós, höfðu menn tek-
ið að agnúast út í rímurnar
strax upp úr siðaskiptunum og á
VIÐHORF
Eftir Þröst
Helgason
síðari hluta
átjándu aldar
var að segja
má farið að
vinna mark-
visst að niðurrifí þeirra. Auk
þess hafa áhrif dómsins verið
ýkt stórum vegna þess að menn
héldu áfram að geí'a út rímur
eftir að hann birtist.
Líkast til gekk Magnús
Stephensen konferensráð harð-
ast fram í þessari gagnrýni á
rímurnar og er Jónas í raun ein-
ungis sporgöngumaður hans. Að
vissu leyti mætti reyndar líta á
Magnús sem nokkurs konar
upphafsmann rómantíkurinnar.
Franski fræðimaðurinn,
Michel Foucault (1926-1984),
bendir á það í grein sinni,
„Hvað er höfundur?" („Qu’est-
ce qu’un auteur?“, birtist 1969),
að á nítjándu öldinni hafí mót-
ast algerlega nýtt höfundarhug-
tak sem á ekkert skylt við það
höfundarhugtak sem við notum
í bókmenntaumræðunni. Þess-
um tiltekna höfundi má þannig
alls ekki ragla saman við hina
miklu höfunda bókmenntaverk-
anna, höfunda ritningartexta
eða vísindakenninga. Þetta er
höfundur sem er upphafsmaður
að ákveðnum orðræðuhætti.
Hann skapar því ekki aðeins
sitt eigið verk heldur einnig
grundvöll og reglur sem aðrir
geta byggt á. I þessum skiln-
ingi er hann algerlega ólíkur
skáldsagnahöfundinum, svo
dæmi sé tekið, sem er nánast
aldrei höfundur annarra verka
en hans eigin. Freud er til
dæmis ekki aðeins höfundur að
bók sinni um túlkun drauma og
Marx er ekki einungis höfundur
að Kornmúnistaávarpimi heldur
lögðu þeir grundvöllinn að
ótakmörkuðum möguleikum á
orðræðumyndun. Skáldsagna-
höfundur getur vissulega haft
áhrif á aðra höfunda, sagði
Foucault, en aðeins að því
marki að til verða ýmiss konar
eftirlíkingar og hliðstæður að
verkum hans. Höfundar orð-
ræðuhátta hafa mun víðtækari
áhrif; það verða ekki aðeins til
verk sem líkja eftir eða styðjast
við texta þeirra heldur stuðla
þeir einnig og ekki síður að
hinu gagnstæða, það er að
segja að andsvörum við textum
sínum (sem eru þó engu að síð-
ur ætíð byggð á grundvelli þess
orðræðuháttar sem andmælt
er).
Þessi hugmynd um höfund
orðræðuháttar á líkast til ekki
fyllilega við um neinn íslenskan
höfund. Að sumu leyti gæti hún
þó átt við um Magnús Stephen-
sen. I valdi menntunarlegra yf-
irburða og menningarlegrar
(prentunarlegrar) einokunarað-
stöðu sinnar hér á landi um og
eftir aldamótin átjánhundruð
mótaði Magnús í vissum skiln-
ingi nýjan orðræðuhátt sem
rómantíkerarnir tóku upp eftir
honum. Frá og með veldistíma
Magnúsar varð með öðrum orð-
um til orðræðusamfélag
menntamanna hér á landi sem
stóð utan við klerkaveldið og
tók raunar að sér það boðunar-
og kennarahlutverk sem ein-
göngu klerkastéttin hafði gegnt
áður. Þessi nýi orðræðuháttur
einkenndist einkanlega af fjöl-
breytilegri menntun tiltekinna
höfunda en einnig af því að í
honum birtist ákveðið heim-
spekilegt viðhorf, það er að
segja viðhorf gagnrýnandans.
Hlutirnir voru ekki aðeins skoð-
aðir í ljósi kristinnar kenningar
heldur voru þeir settir í verald-
legt og sögulegt samhengi og
skoðaðir í gagnrýnu ljósi skyn-
seminnar. FoiTnbirting þessa
nýja orðræðuháttar var ritgerð-
in eða tímaritsgreinin en hún
var helsta vopn Magnúsar og
annarra upplýsingarmanna í
boðun hinnar nýju stefnu -
raunar varð ritgerðin til sem
sjálfstæð bókmenntagrein á
upplýsingaröld hér á landi enda
ekki gefín út nein tímarit fyrir
þann tíma.
Fjölnismenn voru arftakar
Magnúsar í þessum efnum. Þeir
héldu uppi hinum menntaða
orðræðuhætti í tímariti sínu og
fylgdu raunar stefnu Magnúsar
í flestu, bæði í boðun skynsem-
istrúarinnar og í bókmennta-
skrifum þar sem þeir útfærðu
hugmyndir hans, sem birtust í
þriðja árgangi Klausturpósts-
ins, um tilfinningalegan skáld-
skap, skáldskap sem byggist á
andríki og ímyndunarkrafti.
Þannig mætti í vissum skilningi
líta á Magnús sem upphafs-
mann rómantíkurinnar.
Það er svo ekki úr vegi að
halda því fram að þessi orð-
ræðuháttur hinnar upplýstu
skynsemi hafí verið við lýði ailt
fram á þessa öld og sé kannski
enn. Að enn séu draugar upp-
lýsingarinnar á sveimi haldandi
dauðahaldi í ljós skynseminnar
andspænis myrkri óljósra
kennda; hugsandi menn, mennt-
aðir menn sem segjast trúa á
vísindin frekar en næmi hjart-
ans, að tilfínningar séu góðar og
gildar en það verði að reiða sig
á rökin.
Norðurlönd Ungir Norðurlandabúar báru saman menningu sína
á námstefnu sem Verslunarskólinn hélt í nóvember. Sigrún Odds-
dóttir spurði þá um niðurstöður og forvitnaðist um alþjóðabraut.
, „ ^ Morgunblaðið/Ásdís
HOPURINN á alþjóðabrautinni í VI sem vann að námsstefnunni: Eva Sigrún Óskarsdóttir, Helga Iluld
Bjarnadóttir, Elín Jónsdóttir og Jón Bjarni Magnússon.
„Mér finnst Svíarnir
eiginlega líkastir okkur“
• Fyrirsögnin er niðurstaða Elínar og
Helgu, nemenda í Verslunarskólanum.
• Sjálfsmynd Norðurlandabúa var við-
fangsefni námstefnunnar.
HINN 3.-13. nóvember var
haldin námstefna í
Reykjavík á vegum
Nordplus-junior, sem er
styrkt af Norrænu ráðherranefnd-
inni. Nafn hennar var Sjálfsmynd
Norðurlandabúa eða Nordisk
identitet Kirsten Friðriksdóttir
dönskukennai-i í Verslunarskóla ís-
lands hafði veg og vanda að undir-
búningi námstefnunnar. Kirsten
sagði að upphaf umræðunnar um
þetta starf hefði verið á fundi skóla-
stjóra. Fundurinn var að vísu hald-
inn af öðru tilefni, en þeir hefðu
óskað eftir meira samstarfí á milli
skóla á Norðurlöndunum. Verslun-
arskólinn kom ekki strax að þessu
máli. Fyrsta námstefnan var haldin
í Stokkhólmi fyrir fimm árum, sú
næsta var haldin í Osló og þangað
sendum við fulltrúa, síðan tókum
við þátt í námstefnum sem haldnar
voru í Helsinki og Kaupmannahöfn
og nú hér í Reykjavík. Þetta er sem
sagt fímmta árið og nú er verið að
undirbúa námstefnu í Færeyjum á
næsta ári. Það land sem tekur að
sér að halda námstefnuna hverju
sinni, sér um alla framkvæmd. Sæk-
ir um styrki og gerir fjárhagsáætl-
un. Þetta er mikil vinna, en veitir
manni líka heilmikla ánægju, sagði
Kirsten. Þema næsta árs verður
samskipti og samgöngur og mikil-
vægi þess fyrir Norðurlönd.
Alþjóðabrautin í VÍ
Verið er að þróa nýja braut innan
Verslunarskóla íslands. Þróunin
hófst í haust og heitir brautin al-
þjóðabraut. Kirsten sagði að þrír
bekkir hefðu hafíð nám á þessari
nýju braut í haust, það væri kannski
heldur mikið til að byija með, en
þetta nám hefði vakið svo mikla at-
skólar/námskeið
ýmislegt
■ Tréskurðarnámskeið
Fácin pláss laus í janúar nk.
Hannes Flosason, sími 554 0123.
hygli að aðsóknin varð mjög mikil.
Einn hópurinn undirbjó og vann
að þessu Norðurlandastarfi. Annar
bekkur, sem ég kenni, er í tölvu-
samskiptum við Bretland, Dan-
mörku, Finnland og Frakkland. Svo
er þriðji hópurinn vonandi að byija
á samstarfí við Ítalíu. Heimurinn
minnkar svo hratt að það er alveg
ótrúlegt, sagði Kirsten. Með þessu
móti erum við að reyna að koma til
móts við kröfur samtímans. Við
undirbúning alþjóðabrautarinnar
skoðuðum við m.a. Frans Schartaus
Gymnasium í Stokkhólmi. Þar er
svipuð braut og við erum að koma
af stað hér.
Skólarnir sem nemendur nám-
skeiðsins koma frá eru allt mennta-
skólar. Varðandi tungumálaþátt
námskeiðsins þá er til dæmis
sænskan mjög framandi þeim Finn-
um sem koma frá finnskumælandi
hluta landsins. Þegar krakkaniir
grípa til enskunnar til að gera sig
skiljanleg, þá eru það aðallega
fínnsku og íslensku krakkarnir sem
hafa ekki náð umræðunni.
Menningarfræði
Mér sýnast íslensku krakkarnir
samt vera betri í dönskunni en
fínnsku nemendurnir í sænskunni,
segir Kirsten, en í báðum tilvikum
er um fyrsta erlenda tungumálið að
ræða hjá viðkomandi nemendum.
Hún sagði líka að oft væri sagt á
meðal Norðurlandabúa að það væri
svo stórkostlegt að geta talað sam-
an á sínu tungumáli, en það gleym-
ist að það gildir ekki um íslendinga
og Finna, sem eru að tala erlent
tungumál.
Kirsten taldi námstefnuna hafa
tekist vel og það væri mjög jákvætt
og gaman að sjá hvernig hefðu
myndast tengsl á milli unglinganna
á uppbyggjandi og jákvæðan hátt.
Sigrún Sigurðardóttir aðstoðar-
maður Kirstenar á ráðstefnunni
kennir menningarfræði við Verslun-
arskólann. Menningarfræði er ný
skyldunámsgrein á mála- og al-
þjóðabraut. Þessi námsgrein kemur
inn á sagnfræði og félagsfræði og
þar er einnig mikil heimspeki. „Við
erum að vinna verkefni þessa dag-
ana um það hvernig einstaklingur-
inn mótast af umhverfinu og menn-
ingunni,“ sagði Signin. Smátt og
smátt er svo farið út í menningu
ákveðinna hópa. Við erum að byrja
að fjalla um Austur-Evrópu á næst-
unni. Sigrún er sagnfræðingur að
mennt og er að móta þessa nýju
námsgrein, en námsefnið samdi hún
sjálf.
Víkkar sjóndeildarhringinn
Helga Huld Bjarnadóttir og Elín
Jónsdóttir eru báðar á öðru ári í
Verslunarskóla íslands á hinni nýju
alþjóðabraut. Helga Huld sagði al-
þjóðabrautina vera nýjan valmögu-
leika innan Verslunarskólans, ekki
málabraut og ekki viðskiptabraut
heldur braut þar sem fjallað er um
alþjóðasamskipti og viðskipti milli
þjóða, - í sambandi við útlönd, bætti
Elín við.
Helga Huld: Þetta er mjög
áhugavert. Við eigum eftir að vinna
á Netinu og í sambandi við tölvu-
póst og fleira. Þetta er mjög spenn-
andi, svo við erum í svolitlu til-
raunabrölti. Þetta er ánægjuleg til-
breyting innan skólans og víkkar
óneitanlega sjóndeildarhringinn.
Elín: Fyiár utan stærðfræðibraut
var bara viðskipta- og málabraut
hér áður, svo alþjóðabrautin er eins
konar millivegur. Nú ei-u komin til
miklu meiri samskipti á tölvum og
netinu og öllu þessu. Þannig að
námsbrautin fylgir þróuninni.
Helga Huld: A þessu námskeiði
voru krakkar frá öllum Norðurlönd-
unum, nema Grænlandi, þau voru
28, þannig að með Islendingunum
vorum við 32. Þau koma flest af
hagfræðibrautum. Þetta eru versl-
unarskólar, sem krakkarnir eru í,
sum eru eldri en við, alveg upp í 29
ára, til dæmis frá Finnlandi. Þar er
hægt að sækja þessa skóla frá 16
ára og alveg til fimmtugs.
Hvað eiga unglingarnir
sameiginlegt?
Elín: Verkefnið sem við unnum
að fjallar um það hvort við Norður-
landabúar eigum okkur sameigin-
lega sögu og menningu.
Við enim búin að vera að vinna
verkefni núna síðustu daga um krist-
indóminn og bárum hann saman á
Norðurlöndunum. Bárum saman
tungumálin, menntakerfíð, unglinga-
menninguna og á þann hátt reynd-
um við að komast að því hvort við
eigum sameiginlega menningu (kult-
ur) og hvort við séum líkar þjóðir.
Sjá bls. 54