Morgunblaðið - 01.12.1998, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
því ríkisstjórnin markaði sér stefnu
um framkvæmd loftslagssamnings-
ins hérlendis síðla árs 1995 hefur
meginmarkmið hennar verið að Is-
land fái rétt til að taka losun frá
stóriðju hérlendis út úr almennu
bókhaldi. Fyrir þrábeiðni íslenskra
stjórnvalda var fallist á það með
sérstakri bókun í Kyótó að taka mál
þetta til athugunar síðar. í aðdrag-
anda þingsins í Buenos Aires leitað-
ist ríkisstjórnin við að undirbyggja
þessa kröfu og á þinginu þai- snerist
vinna embættismanna mest um
þetta atriði að ósk ríkisstjórnarinn-
ar.
Niðurstaðan varð sú sem kunnugt
er að ekki var á tillögu Islands fallist
og málinu vísað til frekai'i meðferðar
með það fyrir augum að afstaða
verði tekin til tillögunnar að ári, án
efnislegra skuldbindinga þegar til af-
greiðslu kemur.
Fjölmörgum
spurninguin ósvarað
Skoðanir eru skiptar hérlendis um
þessa málafylgju stjórnvalda. Alls
ekki er ljóst að hald sé í þeh’ri rök-
semdafærslu sem borin hefur verið
fram til stuðnings kröfu ríkisstjórn-
arinnar. Vissulega er íslenskt hag-
kerfi lítið á mælikvarða stórþjóða, en
á fleira er að líta í samhengi við lofts-
lagsmálin. Með samþykktunum frá
Kyótó ætla flest velstæð ríki að axla
skuldbindingar um niðurskurð í los-
un gi'óðurhúsalofts. Island fær heim-
ild til nokkurrai' aukningar og það
meira en nokkrir aðrir í þessum
hópi. Hefðbundin stóriðja vegur ekki
aðeins þungt í losun gi'óðurhúsalofts
heldur einnig í útflutningstekjum á
mann hérlendis. Sá mælikvarði er
sjaldan nefndur á sama tima og rætt
er um um 500 þúsund tonna ál-
bræðslu til viðbótar þeirri stóriðju
sem fyrir er. Eðlilegt er að spyrja
hvers vegna íslendingar geta ekki
unað við þær almennu leikreglur
sem Kyótó-bókunin gerir ráð fyrii'. I
þeim er meðal annai's gert ráð fyrir
viðskiptum með losunarheimildir
landa í milli, jafnvel með beinni þátt-
töku fyi'irtækja. Ljóst er að verð-
mæti endumýjanlegra orkulinda
hefui’ hækkað vegna Kyótó-bókunar-
innar. Að mörgu er að hyggja í sam-
bandi við sérkröfu ríkisstjómarinn-
ar. Hvert er samhengi undanþágu-
heimilda fyrii' stóriðju hér á landi
með tilliti til fjölþjóðlegra viðskipta-
samninga? Hver verða áhrifin af
slíki-i undanþágu á viðleitni til að fá
aðrar atvinnugreinar hérlendis til að
draga úr losun, þar á meðal sjávarút-
veginn? Hvert er magn þeirrar orku
sem líklegt er að geti verið til ráð-
stöfunar á næstu öld og hversu stór-
an hluta þess telja menn rétt að
binda í málmiðnaði til langs tíma?
Hefur þjóðin ekki þörf á að nýta
orkulindimar til annarra þai'fa, að
svo miklu leyti sem það verðm' talið
ásættanlegt vegna umhverfissjónar-
miða? Og hvaða áhrif getur stóriðju-
stefna ríkisstjórnarinnar haft á
möguleika íslands til að gæta á al-
þjóðavettvangi annarra og þýðingar-
meiri hagsmuna, bæði á sviði við-
skipta og umhverfismála? Rækileg
úttekt á öllum þessum atriðum hefði
þurft að liggja fyrir áður en íslensk
stjórnvöld komu fram með undan-
þágukröfu sína, en það er þó enn
ekki um seinan að endurmeta málið
út frá heildstæðum sjónarmiðum.
Undirritun þolir ekki bið
Sú sérkennilega staða er nú kom-
in upp að ísland hefur eitt velstæðra
ríkja enn ekki undirritað niðurstöð-
una frá Kyótó. Ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar hafa verið með yfirlýs-
ingar þess efnis að það komi ekki til
greina nema fallist verði á undan-
þágukröfuna fyrir stóriðju. Kyótó-
bókunin liggur frammi til undirrit-
unar til 15. mars 1999. Þótt unnt sé
að gerast aðili að bókuninni síðar tel
ég að íslensk stjórnvöld væru að
misstíga sig herfilega undhriti þau
ekki bókunina fyrir umræddan frest
og helst sem fyrst. Samkvæmt okk-
ar stjórnskipunarvenjum þarf sam-
þykki Alþingis að liggja fyrir áður
en bókunin yrði staðfest, en í undir-
ritun hennai' felst í reynd viður-
kenning viðkomandi stjórnvalds á
því að það stefni að staðfestingu, í
þessu tilviki að fylgja niðurstöðunni
frá Kyótó. Afar óráðlegt væri fyrir
Island að skilyrða væntanlega stað-
festingu við það að sérkrafan um
undanþágu fyrir losun frá stóriðju
nái fram að ganga, enda með öllu
óvíst að á hana verði fallist. Ég tel
það ekki aðeins óráðlegt heldur frá-
leitt með tilliti til heildarhagsmuna
Islendinga að standa utan við
Kyótó-bókunina, en með því yrðum
við viðskila við þróun og markmið
loftslagssamningsins.
Forsendur búsetu
gætu verið í húfi
Loftslagsbreytingar af manna-
völdum eru slíkt alvörumál fyrir
heimsbyggðina þar á meðal fyrir ís-
lendinga, að okkur ber siðferðisleg
skylda til að leggja okkar af mörk-
um til að hamla gegn þeim. Guð-
mundur Bjarnason umhverfisráð-
heira benti sérstaklega á það í grein
í Morgunblaðinu 29. ágúst 1997
hvaða áhrif hlýnun gæti haft á
straumakerfi Norður-Atlantshafsins
samkvæmt sumum spádómum sér-
fræðinga. Golfstraumurinn gæti
breytt verulega ferli sínu frá því
sem nú er og afleiðingin gæti orðið
kólnun á norðurslóðum. Slíkar
áhyggjur voru einnig viðraðar af
fræðimönnum á þinginu í Buenos
Aires. í þessu er enginn hræðsluá-
róður fólginn heldur aðeins bent á
að loftslagsbreytingar varða ekki
aðeins andrúmsloft heldur einnig
hafstrauma og geta þannig haft allt
önnur áhrif en halda mætti fljótt á
litið. Við Islendingar eigum að leggj-
ast fast á sveif með öðrum þjóðum
sem ætla nú og á næstu áratugum
að bregðast við hugsanlegri vá
vegna loftslagsbreytinga. Þar verða
minni hagsmunir að víkja fyrir því
sem meira máli skiptir byggt á víð-
tæku og vitrænu mati.
Höfundur er alþingismaður.
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 67
\ Pú sefitr hetur á Thermoflex
stgr. 4,465,-
Thermoflex
Hátækniþróaður
gervisvampnr scm veitir
fullkomna aðlögun við
höfuð og háls
heilsukoddanum
Opiá
Mán. - fös. 09-18
Lau. 10-16 • Sun. 13-17
Mörkinni 4 * 108 Reykjavík
Sími: 533 3500 ' Fax: 533 3510 • wwTv.marco.is
Við styðjum við bakið á þér!
Qjnirux
CðlllcaxLcUl
Eiginleikar Tempur felast
fyrst og fremst í þrýsti-
jöfnunareiginleikum
efnisins. Koddinn
logor sig oð hito og
þrýstingi höfuðs og hóls.
Þor af leiðondi myndast
engir þrýstipunktar og
blóðstreymi helst óheft.
Heilsúkoddinn sem
sjúkraþjólfaror,
kirópraktorar og iðjuþjólfar
um land allt mæla meó.
^ TERIPUR-PEDIC
Oýna (iróuð af MASA fyrir geimfara - nú fóanleg fyrir þig
Faxafeni 5 • 108 Rvk * Simi:5S8-8477