Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
GREINARGERÐ
MORGUNBLAÐIÐ
JONSHUS-STARF-
• SEMI í KREPPU
Forseti Alþingis, Olafur G. Einarsson, hefur hafnað því með bréfí
til Félags íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn, að stjórn Jóns-
húss verði sett af, en þess krafðist stjórnin í opnu bréfí til forseta
Alþingis. Olafur G. Einarsson hefur óskað birtingar á bréfí sínu
til Hrafns Sveinbjarnarsonar, formanns Félags íslenskra stúd-
» enta í Kaupmannahöfn, og greinargerð formanns hússtjórnar,
KarlsM. Kristjánssonar, frá 13. nóvember 1998.
Bréf forseta Alþingis til
Féiags íslenski-a stúdenta
í Kaupmannahöfn
Mér hefur borist í hendur „Opið
bréf forseta Félags íslenskra stúd-
enta í Kaupmannahöfn til forseta Al-
þingis vegna Jónshúss" fyrst frá
íréttamanni Ríkisútvarpsins og í
pósti frá félaginu í dag 16. nóvember.
Vegna þessa bréfs er eftirfarandi
tekið fram:
1. Ekki verður orðið við tilmælum
um að leysa stjórn Jónshúss frá
störfum. Vantraust yðar á einstök-
um stjórnarmönnum gefur ekki til-
efni til slíkrar aðgerðar.
2. Frá sjónarhóli Alþingis er ekki
ástæða til á þessu stigi máls að Fé-
lag íslenskra stúdenta í Kaup-
mannahöfn fari „að leita sér að öðru
húsnæði".
3. Tekið er undir lokaorðin í bréfi
FRAMÚRSKARANDI, FJÖLVIRK DÍSELOLÍA
ESSO bœtir um betur
Fjölvirk bœtiefni í Gœðadisel ESSO „Premium Diesel"
Olíufélagið hf. ESSO býður nú aðeins díselolíu sem uppfyllir
Evrópustaðalinn EN 590 um umhverfisvemd - og til að
auka endingartíma og tryggja þýðan gang vélarinnar bætir
Olíufélagið fjölvirkum bœtiefnum í alla sína díselolíu.
Einstakt frostþol - allt að -24° C
Nú eru helstu kuldavandamálin einnig úr sögunni þar sem
ESSO Gæðadísel þolir að vetrarlagi allt að 24 stiga frosti.
ESSO Gæöadíselolía inniheldur:
• Dreifi- og hreinsiefni.
• Cetanetölubætiefni sem stuðiar að réttum
bruna eldsneytis við öll skiiyrði.
• Smur- og slitvamarefni.
• Tœringarvamarefni.
• Antioxidant stöðugieikaefni.
• Demuisifier vatnsútfellingarefni.
• Froðuvamarefni.
• Lyktareyði.
• Bakteríudrepandi efni.
£ssoj
ESSO gœðaeldsneyti á bílinn - af hreinni hollustu við vélina og umhverfið.
Olíufélagið hf
www.esso.is
VEISTU UM
AÐRA BETRI?
« Ver eldsneytiskerfið gegn sliti.
• Hindrar tœringu í
éldsneytiskerfinu.
# Kemur í vegfyrir að
freyði við áfyllingu tanka.
»Stenst ströngustu kröfur
vélaframleiðenda - oggott betur!
» Heldur kuldaþoii olíunnar í hámarki.
Héldur kerfum vélanna hreinum
og hreinsar upp óhrein kerfi.
• Fullkomnar eldsneytisbrunann **r
vegna hœkkaðrar cetanetólu.
* Fullkomnar bruna í vélum, hvort sem þœr
eru með eða án forbrunahóífs.
- innihéldur ékki klór.
• Dregur úr reyk- og hávaðamengun.
yðar að samskipti Alþingis og Stúd-
entafélagsins eigi eftir að batna í
nánustu framtíð. Því er sérstaklega
fagnað að sá sé ásetningur núverandi
stjómar Stúdentafélagsins. Alþingi
hefui' ekki nú né áður haft hug á að
ti-oða illsakir við Stúdentafélagið.
4. Undirritaður hefur rætt við
formann stjórnar Jónshúss í tilefni
bréfs yðar. Greinargerð hans fylgir
hér með.
Jónshús í Kaupmannahöfn
Greinargerð Karls M. Kristjáns-
sonar, formanns hússtjórnar:
Stúdentafélagið í Kaupmannahöfn
(áður FÍNK) hefur sent forseta Al-
þingis opið bréf. I bréfinu er þess
farið á leit að stjórn Jónshúss verði
sett af. Stúdentafélagið hefur
starfsaðstöðu í Jónshúsi ásamt fleiri
félögum. Það er ekki sérstakur full-
trúi notenda hússins og talar sem
slíkt einungis fyrir sína hönd. Hér á
eftir fer greinargerð sem fyrst og
fremst er ætlað að varpa ljósi á
stöðu mála í Jónshúsi frá sjónarhóli
formanns stjórnar hússins. Stjórn
Jónshúss er skipuð af forsætisnefnd
Alþingis og ber hún ábyrgð á dag-
legum rekstri hússins.
Forsaga
Cai’l Sæmundsen stórkaupmaður
gaf Alþingi Jónshús í Kaupmanna-
höfn, þann 17. júní 1967. Húsið er
upphaflega byggt árið 1849^ og er
því tæplega 150 ára gamalt. I gjafa-
afsali Carls kemur fram að Alþingi
Islendinga ráðstafí eigninni jafnan
sem virðulegum minnisvarða um
Jón Sigurðsson en hann hafði búið í
húsinu frá árinu 1852 til dauðadags
árið 1879.
Allt til ársins 1991 var skipan i
húsinu á þann veg að á fyrstu hæð
var rekið félagsheimili, á annarri
hæð var íbúð fræðimanns, á þriðju
hæð var minningarsafn um Jón Sig-
urðsson og bókasafn Islendinga, en
á fjórðu hæð var íbúð sendiráðs-
prests, sem jafnframt gegndi starfi
umsjónarmanns. Námsmannafélag-
ið og Islendingafélagið höfðu skrif-
stofuaðstöðu í kjallara.
Lengi vel var líflegt félagslíf í
Jónshúsi þar sem Islendingafélögin
höfðu aðstöðu í kjallara hússins og á
fyrstu hæð. Félögin stóðu m.a. íyrh'
kaffisölu og ýmsum samkomum.
Húsið var oft á tíðum nokkuð vel sótt
en þó liggja ekki fyrir neinar tölur
um aðsókn á þessu tímabili. Starf-
seminni var stjómað af félagsheimil-
isnefnd, sem var skipuð fulltrúum
Islendingafélagsins og Námsmanna-
félagsins sem ráku félagsheimilið á
eigin kostnað en voru styrkt af Al-
þingi með því að þau fengu endur-
gjaldslaus afnot af húsnæðinu og Al-
þingi greiddi ljós og hita. Félags-
heimilisnefnd réð veitingamann sem
sá um daglegan rekstur.
Erfiðleikar í rekstri
Undir lok síðasta áratugar hafði
dregið úr aðsókn í Jónshús og komu
upp kröfur á hendur Alþingis um
beinan fjárstuðning til rekstrarins
pg einnig um aukna starfsaðstöðu
íslendingafélaganna í húsinu. Til að
koma til móts við kröfur félaganna
hóf Alþingi að greiða styrk til fé-
lagsheimilisnefndar. Styrkurinn
mun hafa gengið beint til veitinga-
mannsins, en rökin fyrir styrknum
voru m.a. þau að veitingamaðurinn
þyrfti að sinna ýmiss konar skipu-
lagningu og félagsþjónustu, sem
ekki væri beint í hans verkahring
en leiddi af stöðu hússins.
Litið var á þessar gi-eiðslur sem
tímabundna aðstoð. Keypt var íbúð
fyrir fræðimann, sem áður hafði
dvalið í húsinu, og um leið fengu ís-
lendingafélögin aðstöðu fyrir skrif-
stofur á annarri hæði og þangað var
bókasafn Islendingafélagsins flutt
en sendiráðsprestur fékk aðstöðu á
þriðju hæð fyrir sig og söfnuð.
Einnig var salurinn á fyrstu hæð og
aðstaða í eldhúsi bætt verulega. Til-
gangurinn með breytingum á skip-
un mála í húsinu var til að reyna að
auka aðsóknina og var það allt sam-
kvæmt óskum félaganna. Ekki
tókst að koma frekara lífi í starf-
semina og erfiðleikarnir í rekstri
hússins héldu áfram, þrátt fyrir til-
raun til að bæta hana á ýmsan hátt.
Um þetta leyti eða 1994 var stjórn