Morgunblaðið - 01.12.1998, Page 88
MORGUNB LAÐIÐ
, 88 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
Jt ------------------------------
Framhaldslíf
bíómyndanna
Gamlar myndir fá ekki að hvíla í friði heldur eru gerð af þeim
ný og fínpússuð eintök, þeim breytt lítillega, í sumum
tilfellum talsvert, og þær síðan settar í endurdreifíngu í kvik-
myndahús segir í grein Arnaldar Indriðasonar. Myndir
eftir Welles, Fellini, Walt Disney, David Lean og James
Cameron hafa hlotið þessa meðferð
FIMM mínútna viðbót;
Cabiríunætur Fellinis.
Hitchcocks er Brian De Palma. Hann
hefur gert fleiri efth'líkingai- af
myndum meistai'ans en nokkur ann-
ar og ein af þeim er Systui' eða
„Sisters" frá árinu 1973. Snemma á
næsta ári sendir hann frá sér „sér-
staka útgáfu leikstjórans" á hinni
aldarfjórðungs gömlu mynd og má
búast við meira blóðbaði en áður.
Margot Kidder fer með aðalhlutverk-
in tvö og leikur geðsjúka tvíbura.
Fantasía og Titanic
Einhver glæsilegasta Dis-
neyteiknimynd sem gerð hefur ver-
ið heitir Fantasía sem kunnugt er.
Hún er samin við klassíska tónlist
höfunda á borð við Stravinskí, Bach,
Beethoven og fleiri en síðast var
hún sett í dreifíngu í kvikmyndahús
vestra árið 1991 og var þá sagt að
það yrði í síðasta sinn sem hún yrði
sýnd opinberlega. Það hefur breyst.
Nokkmm nýjum atriðum verður
skotið inn í myndina og gömul tekin
út úr henni. Nýir tónlistarhöfundar
eru Respighi og Edward Elgar.
Þá mun Galdrakarlinn í Oz frá
1939 væntanleg aftur í kvikmynda-
hús á svipaðan hátt og Á hverfanda
hveli. Engar breytingar hafa verið
gerðar á myndinni og er kvik-
myndahúsadreifíngin aðallega
hugsuð sem auglýsing fyiir nýja
myndbandaútgáfu; fílman hefur
verið lagfærð og hljóðrásin einnig.
Svo berast fregnir um að móðir
allra stórslysamynda, Titanic, komi
aftur í umferð þótt ekki sé hún
gömul eftir að leikstjórinn, James
Cameron, hefur átt betur við hana.
Cameron er reyndar þekktur fyrir
að frumsýna myndir og taka þær
síðan aftur í klippiherbergið og
bæta við þær og slípa þær og gefa
þær lítillega breyttar út á mynd-
bandi. Hann gerði það við „The
Abyss“ og ,Aliens“ og hann gerði
það við „Terminator 2: Judgement
Day“. Sagt er að einhvemtíman á
árabilinu 1999 til 2003 gæti hann vel
hugsað sér að gera það sama við
Titanic en óvíst sé hvort endurbætt
stórmyndin fari aftur í dreifingu í
kvikmyndahús. Ef Cameron bætir
atriðum inn í myndina er hugsan-
legt að þau gerist um borð í björg-
unarskipinu Karpatíu og svo gæti
farið að Molly Brown hin
ósökkvandi fái meira vægi. Allt eru
það getgátur en hitt er rétt að
Cameron fremur en nokkur
annar leikstjóri hefur sent
frá sér myndir á ný með
stimplinum sérstök útgáfa
leikstjórans.
KLUKKUTÍMI í
viðbót; úr Síðasta
keisaranum.
AFTUR í umferð; Galdrakarlinn í Oz frá 1939.
Sérstakar útgáfur
Annarri gamalli mynd vegnaði
ekki síður í miðasölunni síðastliðið
sumar. Kvikmyndafýrirtækið New
Line Cinema lét gera ný eintök af Á
hverfanda hveli eða „Gone With the
Wind“ sem það fékk að láni hjá
móðurfyrirtækinu, Warner Bros.,
annars af eiganda gömlu Metro
Goldwyn Meyer myndanna, og setti
í bíódreifingu. Áhuginn var þó
nokkur á gamla stórvirkinu með Cl-
ark Gable og Vivian Leigh í kvik-
myndahúsi og myndin græddi einar
6,4 milljónir dollara.
Margar fleiri myndir eru fyrir-
hugaðar í endurdreifingu, sumar
með viðbótum aðrar ekki, sumar
kallaðar sérstakar útgáfur, aðrar
kallaðar útgáfur leikstjórans. Hér
eru sex gamlar myndir sem flestall-
ar verða settar í kvikmyndahús á
næstunni og jafnvel á nýju árþús-
undi samkvæmt fregnum úr
Entertainment.
Síðasti keisarinn eða „The Last
Emperor“ var þríi' klukkutímar og
fjörutíu mínútur að lengd þegar
ítalski leikstjórinn Bernardo Ber-
tolucci lauk við hana árið 1987. Ber-
tolucci fjallaði í henni um síðasta
keisara Kínaveldis, Pu Yi, og bjó til
volduga epíska frásögn af manni sem
fékk ekki ráðið örlögum sínum í
neinu. Það sama mátti segja um Ber-
toIucéPóg lengd myndarinnar. Col-
umbia Pictures, sem sá um dreifmgu
Keisarans, stytti sýningartíma
myndarinnar um eins og klukkutíma
og virtist það ekki koma að sök því
hún hreppti samt níu óskarsverð-
laun, sællar minningar. Hinn 25.
nóvember verður myndinni dreift
um Bandaríkin eins og Bertolucci
vildi hafa hana, með auka klukkutím-
anum, og kallast hún „sérstök útgáfa
leikstjórans". Hún mun hafa verið til
í upprunalegri lengd í Evrópu um
talsvert langt skeið.
EINS og Welles vildi hafa hana;
„Touch of Evil“.
Glugginn á bakhliðinni eða „Rear
Window“ eftir meistara Hitchcock
með Jimmy Stewart og Grace Kelly
verður sett í endurdreifingu á
næsta ári. Þau filmueintök sem enn
eru til af myndinni eru í besta falli
léleg og hafa tveir bráðflinkir menn
á sviði fílmulagfæringa verið fengn-
ir til þess að gera við myndina.
Þeir eru James Katz og Robert
Harris en þeir unnu samskonar
verk á myndunum Arabíu-
Lárens, Spartacus og „Vert-
ico“. Glugginn á bakhlið-
inni er bráðskemmtileg
úttekt á gægjufíkninni
sem blundar í mannin-
um.
Einn af lærisveinum
EF EINHVER heldur að
gerð bíómyndar sé að fullu
lokið þegar hún er frum-
sýnd í kvikmyndahúsum
er það hinn mesti misskilingur.
Sífellt er verið að lappa uppá mynd-
irnar, bæta við þær einhverju sem
áður var klippt úr þeim, búa til af
þeim ný og fín filmueintök og setja
aftur í dreifingu jafnvel áratugum
síðar. Slík hafa orðið örlög mynda á
borð við Arabíu-Lárens eftir David
Lean, Spartacus, sem Stanley Ku-
brick leikstýrði og „Vertigo" eftir
meistara Hitchcock, og svo nefnd
séu nýlegri dæmi, Náin kynni af
þriðju gráðu eftir Steven Spielberg
og „Blade Runner" eftir Ridley
Scott.
Fimm mínútur við Fellini
Það getur líka gerst áratugum
eftir að mynd er frumsýnd, að hún
er öll klippt upp á nýtt og sett aft-
ur í dreifingu og auglýst sem sú
mynd er leikstjórinn ætlaði sér
' alltaf að skila af sér en fékk ekki.
„Touch of Evil“ er dæmi um það.
Hún var endurklippt eftir leiðbein-
ingum sem leikstjórinn Orson
Welles skildi eftir sig en hann er
sem kunnugt er látinn fyrir mörg-
um árum. Eða það gerist að ein-
hver bætir fimm mínútúm við
gamla mynd og setur aftur í dreif-
ingu mannsaldri frá því hún var
fyrst frumsýnd. Eða bætt er heil-
um klukkutíma við mynd sem vann
til níu óskarsverðlauna á sínum
tíma. Hvernig svo sem fram-
kvæmdinni er háttað er mjög í
tísku núna að setja frægar myndir
lítillega breyttar aftur í umferð og
svo virðist sem þeim sé tekið
- fjarska vel af áhorfendum. Tískan
hefur ekki náð í kvikmyndahúsin
hér á landi enn sem komið er en
gaman væri t.d. að sjá nýju gerðina
af „Toueh of Evil“ eftir Orson
Welles, sem gengið hefur við tals-
verðar vinsældir vestur í Banda-
ríkjunum eftir að hún var end-
urunnin samkvæmt óskum hins
annálaða leikstjóra.
Nýtt eintak af mynd Federicos
Fellinis, Cabiríunætur eða „Li
notte de Cabiria", hefur verið sett í
umferð. Fellini gerði hana árið
1956 með eiginkonu sinni Giuliettu
Masinu. Hún er eitt af minniháttar
verkum leikstjórans, hann gerði
hana rétt á undan tveimur meist-
• arastykkjum, Hið ljúfa líf og Átta
og hálfum. I Cabiríunóttum fer
Masina með hlutverk gleðikonu
sem hefur það ekkert alltof gott en
með önnur hlutverk fara Francois
Perier og Amedeo Nazzari. Við
myndina hefur verið bætt fimm
mínútum sem ekki voru í henni áð-
ur og er óvíst hvað Fellini hefði
sagt við því væri hann á lífi; sið-
ferðilegar spurningar hljóta að
vakna þegar breytt er listaverkum
að höfundum þeirra gengnum.
Hins vegar hefði hann varla kvart-
að yfir viðtökunum í Bandaríkjun-
um í það minnsta því endurbætt
myndin gekk vonum framar og
græddi eitthvað um 700.000 doll-
ara, sem er stjarnfræðileg upphæð
sé litið til þess að myndin er gömul,
svart/hvít, með skýringatexta og
nánast ekkert auglýst eins og segir
í nýlegu hefti Entertainment
Weekly.