Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 88

Morgunblaðið - 01.12.1998, Síða 88
MORGUNB LAÐIÐ , 88 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998 Jt ------------------------------ Framhaldslíf bíómyndanna Gamlar myndir fá ekki að hvíla í friði heldur eru gerð af þeim ný og fínpússuð eintök, þeim breytt lítillega, í sumum tilfellum talsvert, og þær síðan settar í endurdreifíngu í kvik- myndahús segir í grein Arnaldar Indriðasonar. Myndir eftir Welles, Fellini, Walt Disney, David Lean og James Cameron hafa hlotið þessa meðferð FIMM mínútna viðbót; Cabiríunætur Fellinis. Hitchcocks er Brian De Palma. Hann hefur gert fleiri efth'líkingai- af myndum meistai'ans en nokkur ann- ar og ein af þeim er Systui' eða „Sisters" frá árinu 1973. Snemma á næsta ári sendir hann frá sér „sér- staka útgáfu leikstjórans" á hinni aldarfjórðungs gömlu mynd og má búast við meira blóðbaði en áður. Margot Kidder fer með aðalhlutverk- in tvö og leikur geðsjúka tvíbura. Fantasía og Titanic Einhver glæsilegasta Dis- neyteiknimynd sem gerð hefur ver- ið heitir Fantasía sem kunnugt er. Hún er samin við klassíska tónlist höfunda á borð við Stravinskí, Bach, Beethoven og fleiri en síðast var hún sett í dreifíngu í kvikmyndahús vestra árið 1991 og var þá sagt að það yrði í síðasta sinn sem hún yrði sýnd opinberlega. Það hefur breyst. Nokkmm nýjum atriðum verður skotið inn í myndina og gömul tekin út úr henni. Nýir tónlistarhöfundar eru Respighi og Edward Elgar. Þá mun Galdrakarlinn í Oz frá 1939 væntanleg aftur í kvikmynda- hús á svipaðan hátt og Á hverfanda hveli. Engar breytingar hafa verið gerðar á myndinni og er kvik- myndahúsadreifíngin aðallega hugsuð sem auglýsing fyiir nýja myndbandaútgáfu; fílman hefur verið lagfærð og hljóðrásin einnig. Svo berast fregnir um að móðir allra stórslysamynda, Titanic, komi aftur í umferð þótt ekki sé hún gömul eftir að leikstjórinn, James Cameron, hefur átt betur við hana. Cameron er reyndar þekktur fyrir að frumsýna myndir og taka þær síðan aftur í klippiherbergið og bæta við þær og slípa þær og gefa þær lítillega breyttar út á mynd- bandi. Hann gerði það við „The Abyss“ og ,Aliens“ og hann gerði það við „Terminator 2: Judgement Day“. Sagt er að einhvemtíman á árabilinu 1999 til 2003 gæti hann vel hugsað sér að gera það sama við Titanic en óvíst sé hvort endurbætt stórmyndin fari aftur í dreifingu í kvikmyndahús. Ef Cameron bætir atriðum inn í myndina er hugsan- legt að þau gerist um borð í björg- unarskipinu Karpatíu og svo gæti farið að Molly Brown hin ósökkvandi fái meira vægi. Allt eru það getgátur en hitt er rétt að Cameron fremur en nokkur annar leikstjóri hefur sent frá sér myndir á ný með stimplinum sérstök útgáfa leikstjórans. KLUKKUTÍMI í viðbót; úr Síðasta keisaranum. AFTUR í umferð; Galdrakarlinn í Oz frá 1939. Sérstakar útgáfur Annarri gamalli mynd vegnaði ekki síður í miðasölunni síðastliðið sumar. Kvikmyndafýrirtækið New Line Cinema lét gera ný eintök af Á hverfanda hveli eða „Gone With the Wind“ sem það fékk að láni hjá móðurfyrirtækinu, Warner Bros., annars af eiganda gömlu Metro Goldwyn Meyer myndanna, og setti í bíódreifingu. Áhuginn var þó nokkur á gamla stórvirkinu með Cl- ark Gable og Vivian Leigh í kvik- myndahúsi og myndin græddi einar 6,4 milljónir dollara. Margar fleiri myndir eru fyrir- hugaðar í endurdreifingu, sumar með viðbótum aðrar ekki, sumar kallaðar sérstakar útgáfur, aðrar kallaðar útgáfur leikstjórans. Hér eru sex gamlar myndir sem flestall- ar verða settar í kvikmyndahús á næstunni og jafnvel á nýju árþús- undi samkvæmt fregnum úr Entertainment. Síðasti keisarinn eða „The Last Emperor“ var þríi' klukkutímar og fjörutíu mínútur að lengd þegar ítalski leikstjórinn Bernardo Ber- tolucci lauk við hana árið 1987. Ber- tolucci fjallaði í henni um síðasta keisara Kínaveldis, Pu Yi, og bjó til volduga epíska frásögn af manni sem fékk ekki ráðið örlögum sínum í neinu. Það sama mátti segja um Ber- toIucéPóg lengd myndarinnar. Col- umbia Pictures, sem sá um dreifmgu Keisarans, stytti sýningartíma myndarinnar um eins og klukkutíma og virtist það ekki koma að sök því hún hreppti samt níu óskarsverð- laun, sællar minningar. Hinn 25. nóvember verður myndinni dreift um Bandaríkin eins og Bertolucci vildi hafa hana, með auka klukkutím- anum, og kallast hún „sérstök útgáfa leikstjórans". Hún mun hafa verið til í upprunalegri lengd í Evrópu um talsvert langt skeið. EINS og Welles vildi hafa hana; „Touch of Evil“. Glugginn á bakhliðinni eða „Rear Window“ eftir meistara Hitchcock með Jimmy Stewart og Grace Kelly verður sett í endurdreifingu á næsta ári. Þau filmueintök sem enn eru til af myndinni eru í besta falli léleg og hafa tveir bráðflinkir menn á sviði fílmulagfæringa verið fengn- ir til þess að gera við myndina. Þeir eru James Katz og Robert Harris en þeir unnu samskonar verk á myndunum Arabíu- Lárens, Spartacus og „Vert- ico“. Glugginn á bakhlið- inni er bráðskemmtileg úttekt á gægjufíkninni sem blundar í mannin- um. Einn af lærisveinum EF EINHVER heldur að gerð bíómyndar sé að fullu lokið þegar hún er frum- sýnd í kvikmyndahúsum er það hinn mesti misskilingur. Sífellt er verið að lappa uppá mynd- irnar, bæta við þær einhverju sem áður var klippt úr þeim, búa til af þeim ný og fín filmueintök og setja aftur í dreifingu jafnvel áratugum síðar. Slík hafa orðið örlög mynda á borð við Arabíu-Lárens eftir David Lean, Spartacus, sem Stanley Ku- brick leikstýrði og „Vertigo" eftir meistara Hitchcock, og svo nefnd séu nýlegri dæmi, Náin kynni af þriðju gráðu eftir Steven Spielberg og „Blade Runner" eftir Ridley Scott. Fimm mínútur við Fellini Það getur líka gerst áratugum eftir að mynd er frumsýnd, að hún er öll klippt upp á nýtt og sett aft- ur í dreifingu og auglýst sem sú mynd er leikstjórinn ætlaði sér ' alltaf að skila af sér en fékk ekki. „Touch of Evil“ er dæmi um það. Hún var endurklippt eftir leiðbein- ingum sem leikstjórinn Orson Welles skildi eftir sig en hann er sem kunnugt er látinn fyrir mörg- um árum. Eða það gerist að ein- hver bætir fimm mínútúm við gamla mynd og setur aftur í dreif- ingu mannsaldri frá því hún var fyrst frumsýnd. Eða bætt er heil- um klukkutíma við mynd sem vann til níu óskarsverðlauna á sínum tíma. Hvernig svo sem fram- kvæmdinni er háttað er mjög í tísku núna að setja frægar myndir lítillega breyttar aftur í umferð og svo virðist sem þeim sé tekið - fjarska vel af áhorfendum. Tískan hefur ekki náð í kvikmyndahúsin hér á landi enn sem komið er en gaman væri t.d. að sjá nýju gerðina af „Toueh of Evil“ eftir Orson Welles, sem gengið hefur við tals- verðar vinsældir vestur í Banda- ríkjunum eftir að hún var end- urunnin samkvæmt óskum hins annálaða leikstjóra. Nýtt eintak af mynd Federicos Fellinis, Cabiríunætur eða „Li notte de Cabiria", hefur verið sett í umferð. Fellini gerði hana árið 1956 með eiginkonu sinni Giuliettu Masinu. Hún er eitt af minniháttar verkum leikstjórans, hann gerði hana rétt á undan tveimur meist- • arastykkjum, Hið ljúfa líf og Átta og hálfum. I Cabiríunóttum fer Masina með hlutverk gleðikonu sem hefur það ekkert alltof gott en með önnur hlutverk fara Francois Perier og Amedeo Nazzari. Við myndina hefur verið bætt fimm mínútum sem ekki voru í henni áð- ur og er óvíst hvað Fellini hefði sagt við því væri hann á lífi; sið- ferðilegar spurningar hljóta að vakna þegar breytt er listaverkum að höfundum þeirra gengnum. Hins vegar hefði hann varla kvart- að yfir viðtökunum í Bandaríkjun- um í það minnsta því endurbætt myndin gekk vonum framar og græddi eitthvað um 700.000 doll- ara, sem er stjarnfræðileg upphæð sé litið til þess að myndin er gömul, svart/hvít, með skýringatexta og nánast ekkert auglýst eins og segir í nýlegu hefti Entertainment Weekly.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.