Morgunblaðið - 15.12.1998, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig. Fannar
GUÐMUNDUR Tryggvi Ólafsson, umhverfisfræðingur hjá Sorpstöð
Suðurlands.
Pappírssöfnun
á Suðurlandi
gengur vel
Selfossi - Pappú' hefur verið að-
greindur á Suðurlandi í tvö og hálft
ár. A þeim tíma hafa safnast 295
tonn af blönduðum pappír, aðallega
dagblöð, tímarit og gæðapappír.
Þessi pappír hefur allur verið fluttur
til Sorpu, þar er pappírinn baggaður
og sendur til Svíþjóðar. Áætlað er að
hver íslendingur noti um 150 kg af
pappír og pappa á hverju ári, þar af
u.þ.b. 75 kg af pappír ýmiskonar og
75 kg af pappa og pappaumbúðum
ýmiskonar.
Árið 1997 söfnuðust 130 tonn, eða
9 kg á íbúa, af pappír á Suðurlandi
og stefnir í svipað magn í ár. Þetta
er ágætur árangur og fyllilega sam-
anburðarhæfur við önnur svæði þar
sem söfnun pappírs fer fram. Á Suð-
urlandi safnast um það bil 385 tonn
af dagblaðapappír á ári, það gerir
um 27 kg á íbúa. Af þessu sést að
mikið af pappír fer saman við annan
úrgang til urðunar. Með því að end-
urvinna pappír er verið að spara
orku, hráefni og efnanotkun því
minni orku og kemísk efni þarf til að
vinna pappú- úr pappír heldur en
þarf til að vinna pappír úr trjám.
Með því að aðgreina pappú-inn eru
sköpuð verðmæti úr sorpi og sorp-
magn til urðunar minnkar.
Að sögn Guðmundar Tryggva
Ólafssonar, umhverfisfræðings hjá
Sorpstöð Suðurlands, er stefnt að
því að ná 199,9 tonnum árið 1999 en
það er rúmlega helmingur þess dag-
blaðapappírs sem fellur til á svæðinu
og yfú- 50% aukning frá því sem
safnað er í dag. Til að ná þessu
marki hafa KÁ, Sorpstöð Suðurlands
og Gámaþjónustan látið endurgera
söfnunarkassana. Kassar þessir eru
sambærilegir við kassana sem dreift
var 1996 en heldur breiðari og henta
því enn betur fyrir dagblöð. Kass-
arnir standa öllum til boða ókeypis í
verslunum KÁ.
Guðmundur segir að flokkunin
hafi verið þokkalega vönduð á svæð-
inu. Þó vilji það koma fyrir að annað
rusl slæðist með, þá sérstaklega
plastpokar, en slíkt auki kostnað við
ferlið og rýri gæði hvers farms. „Það
er rétt að taka það fram að flokkun-
arfyrirkomulagið er ekki alveg eins
og í Reykjavík. Hérna eru 2 ker hlið
við hlið, annað fyrir pappír og hitt
fyrir fernur, þannig að plastpokar
koma ekki við sögu eins og í Reykja-
vík. Sá pappír sem verið er að sækj-
ast eftir er dagblaðapappír, ljósrit-
unarpappú-, faxpappír, tölvupappír,
tímarit og sambærilegur pappír laus
við plast og lím,“ segir Guðmundur
Tryggvi.
Félagsstarf aldraðra á Blönduósi
Sálí
hverri skál
Blönduósi - Margt fallegra og hagnýtra muna var
að finna á basar sem eldri borgarar í A-Hún. héldu
í Hnitbjörgum á Blönduósi fyrir skömmu.
Handverk kvenna var í miklum meirihluta en
karlar áttu líka þarna sinn fulltrúa. Jökull
Sigtryggsson, löngum kenndur við Núp í Laxárdal,
var þarna með til sölu marga muni unna úr tré.
Mest bar á skálum hvers konar og kökudiskum en
umgjarðir um klukkur og blómavasa var þar líka
að finna.
Margur spýtukubburinn hefur fengið tilhlýðilega
meðferð hjá Jökli í gegnum tíðina og orðið að
nytsömum hlut með fáguðu yfirbragði. Það var
ekki bara það að spýturnar fengu nýtt útlit heldur
þekkir Jökull sögu þeirra flestra. Þarna var til
dæmis að finna skál sem unnin var úr tré sem hafði
vaxið í garði kunningja Jökuls. Tré sem lifað hafði
tímana tvenna en tók upp á því að drepast af
ókunnum ástæðum. Það má með fullkomnum sanni
segja að það sé sál í hverri einustu skál frá Jökli.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
MARGUR spýtukubburinn hefur orðið að
nytsömum hlut í höndum Jökuls Sigtryggssonar á
Blönduósi.
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigiu-ðsson
Kveikt á jólatrénu á Hellissandi
Hellissandi - MikiII mannfjöldi, aðallega börn, var
samankominn þegar kveikt var á jólatrénu á Hell-
issandi nú fyrir þessi jól.
Ævinlega er mikil tilhlökkun í börnunum að fá
jólatréð sett upp og sjá það Ijóma í skammdegis-
myrkrinu.
Jólatréð stendur beint fyrir framan aðalskrifstof-
ur Snæfellsbæjar í Röst og er hið myndarlegasta og
fagurlega prýtt. Ekki var það til að spilla þessari
uppákomu að jólasveinar komu náttúrlega í heim-
sókn, dönsuðu með börnunum kringum jólatréð og
sungu dátt.
Nýr sóknar-
prestur
settur í
embætti
Geitagerði - Aðventuguðsþjónusta
var haldin í Valþjófsstaðarkirkju í
Fljótsdal 6. desember sl. þar sem
sr. Lára G. Oddsdóttir var sett í
embætti.
Prófasturinn sr. Einar Þór Þor-
steinsson sóknarprestur á Eiðum
flutti ávarp og þjónaði jafnframt
fyrir altari ásamt fyrrverandi
sóknarpresti á Valþjófsstað, sr.
Bjama Guðjónssyni. Þá predikaði
hinn nýi sóknarprestur og þjónaði
fyrir altari að predikun lokinni.
Kór Valþjófsstaðarkirkju söng
undir stjórn Kristjáns Gissm-arson-
ar. Nemendur úr HalloiTnsstaða-
skóla undir stjórn Suncana Stamn-
ing, tónmenntakennara. Sunginn
var aðventusálmur eftir Hákon Að-
alsteinsson við lag Þórarins Rögn-
valdssonar.
Fjölmennt var við athöfnina sem
var öll hin virðulegasta. Alls voru
sjö prestar viðstaddir kirkjuat-
höfnina. Að lokinni messu var öll-
um boðið til veislu í félagsheimilinu
Végarði þar sem nokkur ávörp
voru flutt.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
SR. Einar Þór Þorsteinsson setti sr. Láru G. Oddsdóttur í embætti.
NEMENDUR úr Hallormsstaðaskóla sungu við athöfnina.
Morgunblaðið/KVM
JÓHANNA Gústafsdóttir tekur við gjöfum úr hendi Guðmundar
Smára Guðniundssonar, Lionsmanns.
10 ára vígsluafmæli
Grundarfirði - Haldið var upp 10 ára
vígsluafmæli Dvalar- og hjúkrunar-
heimilisins Fellaskjóls í Grundarflrði
nýverið. Opið hús var, þar sem gest-
um og gangandi var boðið upp á kaffi
og meðlæti.
Heimilinu bárust góðar gjafir,
bæði í formi peninga og ýmissa hluta
svo sem tækja í eldhús, sófa í setu-
stofu, fallegi-a skreytinga og blóma.
Jóhanna Gústafsdóttir, sem hefur
verið forstöðumaður heimilisins
þessi tíu ár tók við gjöfunum með
góðum þökkum.
Á Fellaskjóli er búið í öllum her-
bergjum en rými er fyrir 14 vist-
menn. Starfsmenn heimilisins eru
níu í rúmlega sex stöðugildum. Efri
hæð hússins var nýlega tekin í notk-
un. Þar er aðstaða til föndurs og
tómstundastarfs fyrir vistmenn en
Félag eldri borgara í Grundarfirði
hefur haft aðgang að heimilinu og
haldið spilakvöld, föndurdaga og
kóræfingar bæði niðri og nú í nýju
aðstöðunni á efri hæðinni.
Á aðalfundi dvalarheimilisins sem
haldinn var fyrir skömmu voru
kjörnir í stjórn þess Arnór Kristjáns-
son formaður, Gunnar Jóhann Elís-
son, Hallgrímui' Magnússon, Hjördís
Bjarnadóttir og Ólafur Guðmunds-
son. Jóhanna Gústafsdóttir hefur
verið forstöðumaður heimilisins frá
upphafi og hefur rekstur þess gengið
mjög vel undir umsjón hennar.