Morgunblaðið - 15.12.1998, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Upphaf ehf. á Akureyri kaupir 75% í Plastos-Umbúðum í Garðabæ
Oflugt fynrtæki á
umbúðamarkaði
Morgunblaðið/Kristján
SIGURÐUR Sigurgeirsson, svæðisstjóri Landsbanka íslands á Norður-
landi, og Daníel Árnason, framkvæindastjóri AKO-plasts, á fundi þar
sem kaup Upphafs á Plastos-Umbúðum í Garðabæ voru kynnt.
UPPHAF ehf., sem er í eigu þeirra
Daníels Amasonar, Eyþórs Jósefs-
sonar og Jóhanns Oddgeirssonar,
hefur fyrir milligöngu Fjármála-
ráðgjafar Landsbanka Islands
keypt 75,86% eignarhlut í fyrirtæk-
inu Plastos umbúðum í Garðarbæ.
Seljandi hlutabréfanna er fjölskylda
Sigurðar Oddssonar framkvæmda-
stjóra Plastos umbúða.
Upphaf ehf. á og rekur AKO-
Plast á Akureyri en auk þess á
félagið meinhluta í Kexsmiðjunni
ehf. Daníel Arnason sagði að stefnt
væri að því að sameina rekstur fyr-
irtækjanna tveggja, AKO-Plasts og
Plastos umbúða, undir einni yfir-
stjórn. Þeir félagar myndu nú á
næstunni kynna sér innviði síns
nýja fyrirtækis og í framhaldi af því
ákveða hvemig samrana þeirra
verður best háttað. Markmiðið með
sameiningunni væri að skapa öflugt
fyrirtæki á umbúðamarkaði og ná
fram hagræðingu með samrekstri
þeirra, en bæði fyrirtækin starfa að
framleiðslu og sölu plastumbúða. Þá
stefna þeir félagar að því að hið
sameinaða félag standi báðum ein-
ingum framar í plastframleiðslu,
prentun og markaðssókn.
Rekin með óbreyttum
hætti fyrst í stað
Fyrst um sinn verða félögin rekin
með óbreyttum hætti, en innan
skamms mun stjórn Plastos um-
búða boða til hluthafafundar þar
sem kosin verður ný stjórn, en fram
til þess verður framkvæmdastjóm í
höndum Odds Sigurðssonar og
Jóhanns Oddgeirssonar.
Fyrirtækið Plastos umbúðir var
stofnað árið 1974 af Oddi Sigurðs-
syni og hefur það frá upphafí verið í
meirihlutaeigu fjölskyldu hans. Hjá
félaginu starfa 59 manns við fram-
leiðslu og sölu á öllum tegundum
plastumbúða, plastfilmu og pökkun-
arfílmu. Félagið er annað stærsta
félagið á landinu í framleiðslu og
sölu plastumbúða. AKO-plast er
stærsta fyrirtækið í plastfram-
leiðslu utan höfuðborgarsvæðisins
og hefur lagt áherslu á plastfram-
leiðslu fyrir matvælaiðnað. Hjá
félaginu starfa um 20 manns. Þeir
Daníel, Eyþór og Jóhann hafa rekið
AKO-plast frá árinu 1991. Árið 1995
keyptu Plastprent og Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna hlut í fyrirtæk-
inu, en seldu hann aftur til þeirra
félaga í lok síðasta árs. Áætluð velta
beggja fyrirtækjanna, AKO-plasts
og Plastos umbúða, á næsta ári er
um 650 milijónir króna, en gert er
ráð fyrir að sameinað fyrirtæki
muni hafa um 40% hlutdeild á plast-
markaðnum.
Aukin starfsemi í framtíðinni
Starfsemi mun fara fram á báð-
um stöðum, Akureyri og Garðabæ,
og er gert ráð fyrir að hún muni í
kjölfar samruna fyrirtækjanna
aukast í framtíðinni. Erfiðleikar
hafa verið í plastiðnaði síðustu miss-
eri að sögn Daníels, en með hag-
ræðingu er stefnt að því að ná fram
hagnaði í rekstrinum.
Fjármálaráðgjöf Landsbanka Is-
lands var ráðgjafi Upphafs við
kaupin en auk þess tryggði bankinn
fjármögnun félagsins á kaupunum.
Stjórnendur Upphafs og Lands-
banka Islands hafa jafnframt undir-
ritað viljayfirlýsingu um áframhald-
andi stuðning við sameiningu AKO-
plasts og Plastos umbúða, sölu
hlutafjár og vinnu að undirbúningi
skráningar félagsins á verðbréfa-
markaði.
TAL hf. býður síma-
samband til útlanda
Nokkur dæmi um verð á talsímaþjónustu til útlanda
hjá TALI GSM, Símanum GSM og Landssímanum
Kostnaður við einnar mínútu símtal til nokkurra landa
A dagtaxta
Grunnverð Landssíminn Síminn GSM TAL GSM
Verð-
lækkun
TALS
Til Danmerkur 33,00 kr. 36,30 kr. 47,90 kr. 41,40 kr. -14%
Til Spánar 38,00 kr. 41,30 kr. 52,90 kr. 45,40 kr. -14%
Til Bandaríkjanna 47,00 kr. 50,30 kr. 61,90 kr. 52,60 kr. -20%
Til Sviss 55,00 kr. 58,30 kr. 69,90 kr. 59,00 kr. -16%
Til Japans 73,00 kr. 76,30 kr. 87,90 kr. 73,40 kr. -17%
Til Tælands 120,00 kr. 123,30 kr. 134,90 kr. 111,00 kr. -18%
Morgunblaðið/Þorkell
ÞÓRÓLFUR Árnason, forstjóri TALs, hringir fyrsta millilandasimtal
TALs um sæstreng til Bryndísar Schram, sendiherrafrúar í Washington,
á blaðamannafundi í gær.
Boðar 14-20%
lækkun á milli-
landasímtölum
FARSÍMAFYRIRTÆKIÐ TAL hf.
hyggst verða fyrsta einkafyrirtækið
til þess að bjóða upp á símasamband
til útlanda um sæstreng, en útlanda-
símstöð fyrirtækisins verður tekin í
notkun á sunnudag. Forsvarsmenn
TALs ætla að bjóða upp á allt að
20% ódýrari millilandasímtöl miðað
við GSM-gjald Landssíma Islands.
Utlandasímstöð TALs verður í
húsakynnum fyrirtækisins, en hún
er tengd með ljósleiðara um Cantat-
3 sæstreng við símstöð bandaríska
fyrirtækisins Passport Telecom Inc.
í New Jersey. Þaðan geta viðskipta-
vinir TALs fengið símasamband um
heim allan. Hringt er á sama hátt og
úr almennum síma.
Hagstæðir samningar
Að sögn Arnþórs Halldórssonar,
framkvæmdastjóra sölu- og
markaðssviðs TALs, náði fyrirtækið
hagstæðum samningum við Pas-
sport Telecom sem gerir því kleift
að bjóða símtöl frá íslandi með tals-
vert lægri gjaldskrá en hingað til
hefur þekkst. Hann segir að GSM-
símtöl frá íslandi verði 20% ódýrari
til Bandaríkjanna og í sumum tilfell-
um væri ódýrara að hringja til
útlanda úr GSM-síma TALs en um
landlínu Landssímans.
„Gæði símtala verða eins og best
verður á kosið enda fer símtalið um
hefðbundna símalínu en ekki um
Netið. Kerfið ber mikla fiutnings-
getu og því þurfa notendur ekki að
hafa áhyggjur af því að ná ekki sam-
bandi.“
Þórólfur Árnason, forstjóri
TALs, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sú ákvörðun að bjóða upp
á tengingu á símtölum til útlanda
væri þáttur í þeirri áætlun fyrir-
tækisins að vera öflugur valkostur í
fjarskiptum hér á landi. Hann sagði
að fyrst um sinn ætti að kynna
millilandasímtöl fyrir notendurh
TALs en fyrirtækið hefði áform um
að bjóða öðmm símnotendum upp á
sömu þjónustu.
Olafur Stephensen, talsmaður
Landssímans, segir að fyrirtækið
fagni aukinni samkeppni á síma-
markaði. „Samkeppnin hvetur okk-
ur enn frekar til dáða og gefur okk-
ur tækifæri til þess að sýna hvað í
okkur býr. Þróun á heimsvísu er sú
að gjaldskrá fyrir millilandasímtöl
lækki um 10-15% á ári.“
Landssíminn hyggst taka í notk-
un eigin netsímaþjónustu á næst-
unni. Ólafur sagðist gera ráð fyrir
að netsímaþjónustan yrði 20-30%
ódýrari en núverandi gjaldskrá
Landssímans fyrir millilandasímtöl.
Arnar Sigurðsson, sölu- og
markaðsstjóri Íslandssíma hf., sagði
að sér fyndist verðlækkun TALs
fyrir millilandasímtöl ekki mikil
enda hefði orðið lítil verðlækkun í
GSM-símtölum að undanförnu.
„Varlega áætlað má segja að um
70% símtala úr almenna símkerfinu
sé í GSM-kerfið. Verðið er nú um 22
krónur og hefur það lítið lækkað.
Er það stefna Íslandssíma að bjóða
enn meiri verðlækkun en nú er í
boði.“
Sigurður Oddsson
Enn öflugra
fyrirtæki
„ÉG ER mjög ánægður með kaup
ÁKO-Plasts á 75% hlut í Plastos-
Umbúðum hf. Eigendur AKO-Plasts
eru ungir og öflugir menn og ég
treysti þeim vel til að halda upp-
byggingu Plastos áfram og auka
getu þess til að standast erlenda
samkeppni,“ segir Sigurður Odds-
son, framkvæmdastjóri Plastos en
hann selur nú ásamt fjölskyldu
sinni 75,86% þeirra f fyrirtækinu.
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað í rekstri Plastos á undanförn-
um misserum. Á síðasta ári var
starfsemi fyrirtækisins skipt í tvö
hlutafélög, Plastos-Umbúðir hf. og
Plastos-Miðar og tæki. Plastos-Um-
búðir hf., sem framleiðir plastpoka
og aðrar plastvörur, flutti starfsemi
í nýbyggingu í Garðabæ á síðasta
ári. Sigurður Oddsson og fjölskylda
selja nú 75,86% hlut sinn í fyrirtæk-
inu en eiga áfram Plastos-Miðar og
tæki við Krókháls í Reykjavfk.
Plastos-Umbúðir hf. liefur ekki
farið varhluta af þeim þrengingum
sem ríkt hafa á umbúðamarkaði að
undanfornu og segir Sigurður að
m.a. megi rekja söluna til þeirra.
„Við slíkar aðstæður er eðlilegt að
menn ræði saman og kanni mögu-
leika á samstarfi eða sameiningu.
Fyrr á árinu átti íslandsbanki
frumkvæði að því að fá okkur til að
sameinast Plastprenti og gerði til-
boð í öll hlutabréf Ijölskyldunnar
með það að markmiði að fyrirtækin
gætu runnið saman. Þessar viðræð-
ur leiddu hins vegar ekki til niður-
stöðu. Nú fékk ég hins vegar mjög
gott tilboð frá AKO-Plasti og ákvað
að ganga að því. Það skiptir mig
mestu máli að fyrirtækið heldur
áfram í nokkuð óbreyttum rekstri
og mér sýnist það áfram hafa þörf
fyrir allflesta starfsmennina. Ég er
mjög ánægður með niðurstöðuna
þrátt fyrir að hún liafi ekki verið
alveg miðað við upphaflegar áætl-
anir. Hið sameinaða fyrirtæki verð-
ur mjög öflugt og ég er viss um að í
stað tveggja góðra fyrirtækja kem-
ur eitt sem verður enn betra.“
Plastos verður 25 ára á næsta
ári. Sigurður hefur starfað við fyr-
irtækið frá upphafi og er því orðinn
öllum hnútum kunnugur í þessum
rekstri. „Það hafa vissulega skipst
á skin og skúrir í þessum rekstri en
við vorum komnir yfir erfiðasta
hjallann í rekstri Plastos-Umbúða.
Nú mun ég einbeita mér að rekstri
Plastos-Miða og tækja hf. sem sinn-
ir Iímmiðaframleiðslu og sölu á vél-
um fyrir verksmiðjur. Við munum
einnig auka þann þátt starfseminn-
ar að bjóða heildarlausnir í svo-
kallaðri verksmiðjuskipulagningu,
allt frá því að hanna hús utan um
ákveðna framleiðslu til þess að út-
vega einstakar vélar í framleiðslu-
ferlið. Þá eru barnabörnin orðin
sex og ég hlakka einnig til að fá
tíma til að sinna fjölskyldunni bet-
ur, spila golf og jafnvel renna fyrir
lax en maður hefur því miður haft
lítinn tíma til þess síðustu árin.“
--------------------
Eysteinn Helgason
Virk sam-
keppni
„ÞAÐ ER lítið um þetta að segja á
þessu stigi. Samkeppni á plast-
markaði er mjög virk og verður
það eflaust áfram. Við fögnum því í
sjálfu sér og niunum halda okkar
striki,“ segir Eysteinn Helgason
framkvæmdastjóri Plastprents hf.
um fyrirhugaða sameiningu AKO-
Plasts hf. og Plastos-Umbúða hf.
Fyrr á árinu áttu sér stað
viðræður um hugsanlega samein-
ingu Plastos-Umbúða hf. og Plast-
prents hf. en þeim var slitið í
síðasta mánuði án þess að niður-
staða fengist. Eysteinn segir að
tiðindin nú séu honum ekki von-
brigði í sjálfu sér enda hafi verið
orðið fullreynt með sameiningu fyr-
irtækjanna. Hann segir að Plast-
prent eigj engan hlut að viðskiptun-
um nú, hvorki beinan né óbeinan.