Morgunblaðið - 15.12.1998, Side 48
'SS ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Homopatísk meðferð
Hef opnað stofu í Heilsusetrinu, Skipholti 50c.
Lilja Steingrímsdóttir, homopati LCPH og
hjúkrunarfræðingur.
Heilsusetriö,
Skipholti 50c, símar 551 2332/8971909
AÐSENDAR GREINAR
■ ' Jl
/ c" ;
„ i
Hvenær skyldi
fjósbitinn brotna
undan þunga-
skattspúkanum?
Dagskráin þín er komin út
10. des.-23. des.
^ og •fcil vm tfl %w»týrtn<-
mn
/ allri sinni mynd!
í JÚNÍ sl. var lögum
um þungaskatt síðast
breytt. Fimm mánuð-
um síðar vill fjánnála-
ráðherra hækka skatt-
inn og hefur iagt fram
hækkunarfrumvarp á
Alþingi þó að enginn
hafi hugmynd um hvort
þungaskatturinn nægi
eða nægi ekki til að
standa undir vegaáætl-
un á næsta ári. Laga-
breytingin frá því í
sumar er ekki komin til
framkvæmda en menn
vilja greinilega hafa
vaðið fyrir neðan sig og
rukka fremur of en
Árni
Jóhannsson
van. Hækkun á þungaskatti getur
verið sýnd veiði en ekki gefm því
skattlagningin er orðin svo óhófleg
að frekari hækkanir munu ekki
lengur tryggja fleiri krónur í ríkis-
kassann, þéss í stað leita menn
nýrra leiða og hagræða rekstri og
þeir sem þannig eru innréttaðir
freistast til undanskota.
Lagabreytingin í vor var nokkuð
sérstök því nánast öll samtök þeirra
sem greiða þungaskatt í atvinnu-
skyni voru tilbúin að samþykkja
upptöku olíugjalds í stað þunga-
skatts, jafnvel þó að
finna mætti dæmi um
hækkun gjalda, því
brýnt væri að losna
undan gamaldags og
úreltri innheimtu
þungaskattsins. Ekki
er algengt að samstaða
náist um svo viðamikla
breytingu hjá breiðum
hópi gjaldenda. Kostir
nútímalegri skatt-
heimtu voru metnir
meiri en kostnaðarauk-
inn sem fólst í upptöku
olíugjalds. Þar með
gafst Alþingi einstakt
tækifæri til leggja af
úrelta skattheimtu og
HSM pappírstætarar
Leiðandi merki - Margar stærðir
Þýzk gæði - Örugg framleiðsla
} Kf
HSM 105 Kf
HSM 125 | Kr
HSM 386 Kr
HSM390
1Z388 m/vsk.
33.707 m/vsk.
52.544 m/vsk.
89.563 m/vsk.
Kr. 123.685 m/vsk.
)J. ÓSTVflLDSSON HF.
Skipholti 33,105 ReykjQvík, sími 533 3535
færa hana nær vestrænni gjaldtöku.
Ekki tókst þessum aðilum að sann-
færa Alþingi um ágæti olíugjalds.
Alþingi taldi ekki nauðsynlegt
fyrir íslenskt atvinnulíf að búa við
sambærilega skattheimtu og í sam-
keppnislöndunum.
Alþingi leit ekki svo á að álagning
olíugjalds væri umhverfismál og
hefði áhrif á losun gróðurhúsaloft-
tegunda.
Alþingi vildi ekki taka upp skatt-
heimtu sem eykur meðvitund um ol-
íunotkun og stuðlar að betri nýtingu
hennar og dregur ur sóun.
Alþingi taldi ekki nauðsynlegt að
breyta eðli skattheimtunnar og
Full búð af borðdúkum
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74, sími 552 5270.
Hækkun á þungaskatti
er fráleit, segir
Arni Jóhannsson,
meðan ekki liggja
fyrir niðurstöður um
innheimtu hans.
byrja aðlögun og endurnýjun úrelts
bifreiðaflota sem ella verður fyrr en
seinna settur í akstursbann af
reglugerðum Evrópusambandsins.
Þess í stað kaus Alþingi að lappa
enn einu sinni upp á þungaskatts-
kerfið, breyta kílómetragjaldi og
jafnframt leggja fast gjald (100.000
kr.) á þyngi'i ökutæki til viðbótar
við kílómetragjald. Til að kóróna
ennfrekar vinnubrögðin er nú
nokkrum mánuðum síðar lagt fram
frumvarp til að hækka gjöldin sem
ákveðin vora og væntanlega reikn-
uð og áætluð af færustu sérfræðing-
um í byrjun sumars.
I greinargerð með frumvarpinu
er vísað til vegaáætlunar og að hún
hafi gert ráð fyrir verðlagstengdum
hækkunum þungaskatts bæði í ár
og á næsta ári og ekki hafi verið
tekið tillit til þessara hækkana þeg-
ar lappað var upp á þungaskatts-
kerfið í vor. Hvort tekið var tillit til
þessara hækkana í vor eða ekki veit
að sjáifsögðu enginn, því öll sú
vinna fór fram fyrir luktum dyrum
og ekki þótti æskilegt að blanda ut-
anaðkomandi í þá vinnu. Ennfrem-
ur hefur ekki þótt ástæða til að
treysta öðrum en starfsmönnum
fjármálaráðuneytis fyrir því að
semja frumvarpið sem nú liggur
fyiir Alþingi.
Eins og áður sagði veit enginn
enn með vissu hverju breytingarnar
í vor munu skila ríkissjóði. Það
verður ekki ljóst fyrr en að loknu
fyrsta álestrartímabili að breyttum
lögum, en því tímabili lýkur í upp-
hafi næsta árs. Því er aldeilis frá-
leitt að leggja til prósentuhækkun
upp á einn aukastaf til hækkunar á
óþekktri stærð og ætlast til að út-
koman verði 3,5 milljarðar. Slíkt er
engum manni gerlegt, ekki heldur
starfsmönnum fjármáiaráðuneytis.
Hækkun á þungaskatti nú kemur
ekki tii gi'eina fyrr en niðurstöður
um innheimtu þungaskatts liggja
fyrir. Samkvænt fenginni reynslu
hafa allar kerfisbreytingar á þunga-
skatti, hin seinni misseri að minnsta
kosti, ávalltleitt til hærri tekna fyr-
ir ríkissjóð:;en lagt var upp með. Þáð
atriði eitt og sér á að firra menn
áhyggjum af að tekjur ríkissjóðs af
þungaskatti standi ekki undir vega-
áætlun.
Höfundur er viðskiptafræðingur hjá
Samtökum iðnaðarins.
Sparaðu
35.000
á ári með Severin
brauðgerðarvélinni!
Með því að baka eitt brauð á dag
spararðu allt að 35.000 á ári og
átt ailtaf nýtt og ilmandi brauð.
Hefurðu efni á að sleppa þessu?
///■ Einar Farestveit & Co. hf.
Borpartúni 28 2T 622901 op 622900