Morgunblaðið - 15.12.1998, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 57
Guðmundar
Arasonar mótið
hófst í gær
SKÁK
íþróttahnsið við
Strandgötu
4. GUÐMUNDAR
ARASONAR MÓTIÐ
íslenskir skákmenn eiga færi
á að vinna sér inn áfanga að
stórmeistaratitli og alþjóðlegum
meistaratitli á mótinu,
14.-22. desember.
FJÓRÐA Guðmundar Ara-
sonar mótið hófst í gær og lýkur
22. desember. Eins og nafn
mótsins gefur til kynna er Guð-
mundur Arason helsti styi-ktar-
aðili mótsins og tilgangur þess
hefur ávallt verið sá að gefa ung-
um íslenskum skákmönnum
tækifæri til að spreyta sig gegn
erlendum meisturum. I fyrra
náði Jón Viktor Gunnarsson
mikilvægum áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli á mótinu.
Það verður örugglega skemmti-
legt að fylgjast með honum og
öðrum upprennandi meisturum
okkar næstu daga. Þátttakendur
verða 28, þar af fjórir stórmeist-
arar. Tefldar verða níu umferðir
eftir svissnesku kerfi.
Fyrsta umferðin hefst klukk-
an 17 á mánudag. Eftirtaldir
skákmenn eru skráðir til leiks:
1 SM Aleksei Lugovoi 2.525
(Rússl.)
2 SM Ralf Ákesson 2.510
(Svíþj.)
3 SM Vasily Yemelin 2.510
(Rússl.)
4 AM Manuel Bosboom 2.490
(Holl.)
5 AM Jón Viktor Gunnai-sson
2.445
6 AM Alexander Raetsky 2.440
(Rússl.)
7 SM Heikki Westerinen 2.435
(Finnl.)
8 AM Albert Blees 2.430 (Holl.)
9 AM Tapani Sammalvuo 2.410
(Finnl.)
10 Jón Garðar Viðarsson 2.375
11 Róbert Harðarson 2.325
12 AM Sævai- Bjarnason 2.295
13 Áskell Örn Kái-ason 2.270
14 Matthías Kormáksson 2.235
15 Bragi Þorfinnsson 2.235
16 Stefán Kristjánsson 2.225
17 Kristján Eðvarðsson 2.220
18 Bergsteinn Einai-sson 2.210
19 Jón Árni Halldórsson 2.200
20 Einar Hjalti Jensson 2.185
21 Arnar E. Gunnarsson 2.180
22 Davíð Kjartansson 2.130
23 Einar Kr. Einarsson 2.125
24 Heimir Ásgeh-sson 2.115
25 Björn Þorfinnsson 2.115
26 Þorvarður F. Ólafsson 2.050
27 Kjartan Guðmundsson
28 Sigurður P. Steindórsson
Þar sem teflt er eftir sviss-
neska kerfinu er ljóst að viður-
eignir fyrstu umferðar verða
áhugaverðar, en þá tefla margir
af okkar efnilegustu unglingum
við erlendu meistarana.
Albert Blees (Hollandi, 2.430
AM) tók þátt í Guðmundar Ara-
sonar mótinu 1995 og sigi'aði þá
ásamt Þresti Þórhallssyni.
Hann tók einnig þátt í mótinu
1996 og lenti þá í 3.-7. sæti með
6 vinninga, eins og Áskell Örn
Kárason, sem náði bestum ár-
angi-i íslensku skákmannanna á
mótinu.
Þeir Alexander Raetsky
(Rússlandi, 2.440 AM ), Manuel
Bosboom (Hollandi, 2.490 AM )
og Heikki Westerinen (Finn-
landi, 2.435 SM) téku allir þátt í
mótinu í fyrra. Alexander Raet-
sky náði bestum árangri þeirra,
hlaut 6‘á vinning og lenti í 4.-6.
sæti. Westerinen er sannkallað-
ur „Islandsvinur" og hefur teflt í
fjölda móta hér á landi. Þannig
tefldi hann t.d. í þremur mótum
hér á landi 1997. Auk Guðmund-
ar Ai’asonar mótsins tefldi hann
í II. Alþjóðlega Hellismótinu og
í úrslitakeppni VISA-bikar-
keppninnar. Manuel Bosboom
vakti mikla athygli þegar hann
tók þátt í Deildakeppni SI nú í
haust og lagði m.a. bæði Jóhann
Hjartarson og Hannes Hlífar
Stefánsson.
Rússarnir Aleksei Lugovoi
(2.525 SM) og Vasily Yemelin
(2.510 SM) eru ungir að árum,
Lugovoi er 23 ára og Yemelin 22
ára. Skákáhugamönnum er sér-
staklega bent á að fylgjast með
Yemelin, en hann tefldi með B-
sveit Rússa á Ólympíumótinu í
haust, en sveitin lenti þar í 8.-9.
sæti ásamt Ungverjum.
Spennandi verður að fylgjast
með hvort einhverjum íslensku
keppendanna tekst að næla sér í
titiláfanga á mótinu. I fyrra náði
Jón Viktor Gunnarsson síðasta
áfanganum að alþjóðlegum
meistaratitli.
Teflt verður í íþróttahúsinu
við Strandgötu í Hafnarfirði.
Áhorfendur eru velkomnir, en
aðgangur er ókeypis.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
Ung’ir framsóknar-
menn vilja breyta
stjórnarskránni
A FUNDI stjórnar Sambands
ungra framsóknarmanna á sunnu-
dag var fjallað um dóm Hæstarétt-
ar um fiskveiðistjórnun og úthlutun
veiðileyfa. í ályktun fundarins, sem
samþykkt var samhljóða, eru þing-
flokkar hvattir til að breyta stjórn-
arskránni þannig að réttur komandi
kynslóða verði tryggður til að njóta
arðsins af auðlindum hafsins.
í ályktun stjórnar SUF segir
meðal annars: „Auðlindir hafsins
fyi’ir utan Islandsstrendur eru sam-
eiginleg arfleið íslensku þjóðarinn-
ar. Tryggja verður rétt komandi
kynslóða Islendinga til að sækja í
þær um ókomna tíð. Af þessu verð-
ur öll löggjöf að taka mið af. Athygli
vekur hversu sjónarmiða um vernd-
un fiskistofnanna og sjálfbæra þró-
un gætir lítið í forsendum kvóta-
dómsins svokallaða. Skýi’ist það án
efa af þeirri staðreynd að ekki er í
stjórnarskránni kveðið á um skyldu
löggjafans til þess að vernda auð-
lindir hafsins. Það er á hinn bóginn í
senn sjálfsagt og eðlilegt að stjórn-
arskráin taki af öll tvímæli um að á
ríkisvaldinu hvíli sú skylda að
tryggja sjálfbæra nýtingu fiski-
stofnanna við íslandsmið. Stjórn
Sambands ungra framsóknarmanna
vill því hvetja alla þingflokka á Al-
þingi að ná samkomulagi um breyt-
ingar á stjórnarski’ánni sem tryggi
rétt komandi kynslóða til þess að
njóta arðsins af auðlindum hafsins.
Þannig geti stjórnskipunin best
tryggt framtíðarhagsmuni íslensku
þjóðarinnar."
FRÉTTIR
Úr dagbók lögreglunnar
Ofsa- og ölvunarakstur
meðal verkefna
11. til 14. desem-
ber 1998
FRAMHALD var á aðgerðum
lögreglu vegna ölvunaraksturs og
voru á annan tug ökumanna
stöðvaðir vegna gnms um slíkan
akstur um helgina.
Lögreglu var tilkynnt um 66
umferðaróhöpp um helgina. Ekki
urðu slys á fólki er vörubifreið
valt á hliðana á Gufunesvegi að
morgni fóstudags. Umferðarslys
varð um miðjan föstudag^ er tvö
ökutæki skullu saman í Armúla.
Báðir ökumenn voru fluttir á
slysadeiþd með áverka á hálsi og
brjósti. Árekstur varð með tveim-
ur ökutækjum á Bústaðavegi síð-
degis á föstudag. Annar öku-
manna grunaður um ölvun við
akstur. Þá varð áreskur tveggja
bifreiða á Bústaðavegi að morgni
laugardags. Þrennt var flutt á
slysadeild. Annar ökumanna er
grunaður er um ölvun og umferð-
arlagabrot. Ekið var á gangandi
vegfaranda í Bankastræti við
Lækjargötu eftir miðnætti á
laugardag. Hinn slasaði var flutt-
ur á slysadeild með áverka á
hálsi, hendi og fæti. Okumaður
yfirgaf brotavettvang án þess að
stöðva. Bifreiðin fannst skömmu
síðar. Það var í annað sinn á sól-
ai’hringnum sem lögreglan hafði
afskipti af viðkomandi bifreið
vegna aksturs hennar og umferð-
arlagabrota.
Hraðakstur
Höfð voru afskipti af 24 öku-
mönnum vegna hraðaksturs, þeir
sem hraðast óku munu sjá á eftir
skírteinum sínum tímabundið.
Einn ökumaður var stöðvaður
eftir að hafa mælst aka bifreið
sinni á 103 km hraða á Gullinbrú
þar sem 50 km hámarkshraði er
leyfður. Annar ökumaður var
stöðvaður á Breiðholtsbraut í
Víðidal að kvöldi laugardags eftir
að hafa mælst aka bifreið sinni á
141 km hraða. Okumaður var
stöðvaður á Bústaðavegi að
morgni sunnudags eftir að hafa
mælst aka bifreið sinni á 108 km
hraða. Hann er einnig grunaður
um ölvun við akstur.
Á sunnudag hafði lögi’eglan
nokkurn viðbúnað til öryggis
meðan reykháfur í Laugarnesi
var sprengdur niður. Loka varð
umferð á Sæbraut meðan aðgerð
stóð yfir sem tók skamma stund.
Bifreiðastöður í íbúagötum
hvimleitt vandamál
Því miður er nokkuð um það að
eigendur vöru-, flutninga- og
hópbifreiða leggi bifreiðum sín-
um í íbúðargötur en ekki á sér-
stök stæði sem fyrir þær eru ætl-
aðar. Ekki þarf að hafa mörg orð
um þá slysahættu sem þessar bif-
reiðar geta skapað og ónæði
vegna hávaða. Um þetta málefni
er sérstaklega getið í 19. gr. lög-
reglusamþykktar þar sem segir
að vörubifreiðai’, sem eru 3,5
tonn að leyfðri heildarþyngd eða
meira og fólksflutningabifreiðar
sem flytja mega 10 fai-þega eða
fleiri megi ekki standa á götum
eða almennum bifreiðastæðum á
tímabilinu milli 22 og 06. Bann
þetta gildir einnig um hvers kon-
ar vinnuvélar og dráttarvélar án
tillits til þyngdar þeirra. Kvartað
var undan því við lögreglu í ein-
hverjum tilvikum um helgina að
þessu banni væri ekki framfylgt.
Höfð voru afskipti af akstri vöru-
flutningabifreiðar á Grandagarði
um hádegisbil á laugardag vegna
lestunar hennar. Við skoðun kom
í ljós að bifreiðin var yfirlestuð
svo nam 3 tonnum.
Eftirlit með
vínveitingahúsum
Um helgina hafði lögregla sér-
stakt eftirlit með nokkrum vín-
veitingahúsum borgarinnar. Að
aðgerðunum komu þrír tugir lög-
reglumanna úr ýmsum deildum
embættisins auk útlendingaeftir-
lits Ríkislögreglustjóra. I aðgerð-
unum voru könnuð almenn atriði
á veitingahúsunum eins og aldur
gesta og starfsmanna. Kannað
var með ástand gesta og ólöglega
vímugjafa. Höfð vom afskipti af
tæplega 60 einstaklingum í að-
gerðunum og lagt hald á um 30
gr. af ætluðu amfetamíni og 40
skammta af LSD. Þá voru gerðar
athugasemdir við starfsleyfi hjá
nokkrum erlendum starfsmönn-
um veitingahúsanna.
Barna- og unglingamál
Lögreglan varð að hafa afskipti
af nokkrum hópum ungmenna í
borginni um helgina. Lagt var
hald á landa sem ungmenni voru
með í Breiðholti og bjórkassi tek-
inn af ungmennum í Grafarvogi.
Fjögur ungmenni voru flutt í At-
hvarf í miðbænum. Gott ástand
var á þessum málum í Mosfells-
bæ um helgina enda hafa foreldr-
ar sýnt mikinn áhuga og samstarf
við lögreglu undanfarið.
TILKYNNING
frá Vmf. Hlíf og Vkf. Framtíðinni
DESEMBERUPPBÓT
(samkvæmt kjarasamningi félaganna við VSI og VMS)
Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið í sama fyrirtæki og eru
við störf í fyrirtækinu í síðustu viku nóvember eða í fyrstu viku
desember skulu eigi síðar en 15. desember ár hvert fá greidda
sérstaka eingreiðslu sem nú í ár er kr. 26.100.
Starfsfólk í hlutastarfi, sem uppfyllir sömu skilyrði,
skal fá greitt hlutfallslega.
Uppgjörstímabil er almanaksárið, en fullt starfsár telst í þessu sambandi
45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Starfsfólk með skemmri
starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma sinn.
Hafið samband við skrifstofu félaganna á Reykjavíkurvegi 64,
Hafnarfirði, um nánari upplýsingar.
Símar 555 0987, 555 0944 og 555 0307.
Verkamannafélagið Hlíf Verkakvennafélagið Framtíðin
vp mbl.is
S\LLT-Af= e/TTH\SA£> A/ÝTT
Fasteignir á Netinu