Morgunblaðið - 15.12.1998, Side 66
MORGUNBLAÐIÐ
^66 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998
áífe ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Sýnt á Stóra sóiði kl. 20.00:
BRÚÐUHEIMILI — Henrik Ibsen
Frumsýning 26/12 kl. 20 uppselt — 2. sýn. 27/12 uppselt — 3. sýn. sun. 3/1
örfa sæti laus.
TVEIR TVÖFALDIR - Ray Cooney
9. sýn. miö. 30/12 uppselt — 10. sýn. lau. 2/1 nokkur sæti laus.
SOLVEIG — Ragnar Arnalds
Fös. 8/1.
BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA — Astrid Lindgren
Þri. 29/12 kl. 17 nokkur sæti laus — sun. 3/1 kl. 14.
Sýnt á Litla sóiSi:
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric Emmanuel-Schmitt
Mið. 30/12 kl. 20 uppselt — lau. 2/1. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýning hefst.
Sýnt á Smíðai/erkstœði kl. 20.30:
MAÐUR í MISLITUM SOKKUM
Þri. 29/12 uppselt — mið. 30/12 örfá sæti laus — lau. 2/1 nokkur sæti laus —
sun. 3/1.
Miðasalan er opin mánud.—þriðiud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanir frá íd. 10 virka daga. Sími 551 1200.
Gjafakort í Þjóðteikfuísið — qjöfiti sem íifnar Oið
■SLKNSKA OPLRAN
__iini
J ].j j ,j
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
mán. 28/12 kl. 20 uppselt
þri. 29/12 kl. 20 uppselt
mið. 30/12 kl. 20 uppselt
Miðaverð kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Ö Pv"ln Ö
sun. 27/12 kl. 14 örfá sæti laus
sun. 10/1 kl. 14
Leikhúsmiði í jólapakkann!
Georgfólagar fá 30% afslátt
Miðasala alla daga frá kl 15-19, s. 551 1475
Gjafakort á allar sýningar
I
/esturgotu
Tískuskáldin smörtu
8í Andrea Gylfadóttir
þriðjud. 15. des. kl. 20.30
Jkemmtiaagskrá á vegum
Kristskirkju mið. 16. des. kl. 20.30.
RÚSSIBANA-
ÚANSLEIKUR/
Gamlárskvöld kl. 00.30
Sala hafin!!
Miðapantanir allan sólarhringinn í síma
551 9055. Miðasala fim.-lau. milli 16 og 19
og símgreiðslur alla virka daga.
I
i
I
i
MiAasala opin kl. 12-18 og
fram að sýningu sýnlngardaga
ósóttar pantanir seldar daglega
Sími: 5 30 30 30
Gjafakoit í leikhúsið
Tllvaiin jólagjöf!
KL. 20.30
sun 27/12 jólasýning
ÞJONN
T s ii p u fch I
fös 18/12 kl. 20
Nýársdansleikur
Ósóttar pantanir í sölu núna!
Tónleikaröö Iðnó
þri. 15/12 kl. 20.30
Nýdönsk og Súkkat
fim. 17/12 kl. 21.00
Jóel Pálsson
Tilboð til leikhúsgesta
20% afsláttur af mat fyrir
leikhúsgesti í Iðné
Borðapöntun í síma 582 8700
Nemendaleikhúsið
sýnir í Lindarbæ
IVANOV
eftir Anton Tsjekhov.
sýn. mið. 16. des. kl. 20
sýn. fim. 17. des. kl. 20
sýn. lau. 19. des. kl. 20 uppselt
-AHra gíðastg sýninc|:
Ath. sýningar verða ekki teknar upp aftur
eftir jól vegna annarra verkefna.
MIÐAVERÐ KR. 500. MIÐAP. í SÍMA
552 1971 ALLAN SÓLARHRINGINN.
mb l.is
AL.LiyKf= €=I7~TH\SA-Ef NÝTl
LEIKSTJÓRINN Joan Chen og aðalleikkonan Lulu Li
með gullhestana sína á hátíðinni.
Joan Chen hreppti gullhestinn
► KÍNVERSKA leikkonan og
leikstjárinn Joan Chen kom, sá
og sigraði þegar gullhesturinn
var afhentur í Taipei um helgina.
Verðlaunin eru veitt í tengslum
JK. ið kvikmyndahátíð sem haldin
er ár hvert í Asíu. Kvikmynd
Chen „Xiu Xiu The Sent Down
Girl“ vann til sjö verðlauna, þar
á meðal sem besta mynd, fyrir
bestu leikstjórn og besta leik í
aðalkarl- og kvenhlutverki.
FÓLK í FRÉTTUM
Valgerður Jónsdóttir og Fitl í stuði.
Frábær skemmtan
TÓNLIST
Akranes
Tónleikar á Akranes sl. laugardag.
Fram komu Anna Halldórsdóttir og
Vefararnir, Ummhmm og Fitl.
Á AKRANESI hefur löngum verið
líflegt tónlistarlíf og þaðan hafa
komið fjölmargir eftirtektarverðir
tónlistarmenn. Fyrir þessi jól vill
svo til að þrjár plötur koma út með
tónlist Skagamanna, plata Onnu
Halldórsdóttur sem kallast Undra-
vefurinn, plata Ummhmm sem heit-
ir Haust og plata Fitls, sem heitir
Undur, en báðar síðastnefndu sveit-
irnar eru að gefa út sínar fyrstu
skífur. Einnig komu fram á tónleik-
unum tveir bókamenn að sunnan,
Hallgrímur Helgason og Huldar
Breiðfjörð.
Anna Halldórsdóttir vakti mikla
og verðskuldaða athygli fyrir fyrstu
breiðskífu sína, Villta morgna, sem
kom út fyrir tveimur árum. Á nýrri
skífu hennar má heyra að henni hef-
ur enn farið fram og kafar dýpra af
enn meiri metnaði en forðum. Það
mátti og vel heyra á flutningi henn-
ar í Bíóhöllinni á Akranesi þetta
kvöld, því ásamt Vefurum sínum fór
hún hreinlega á
kostum og á köfl-
um varð tónlistin
sannkallaður
undravefur
hljóma og hljóða
sem afbragðs
söngur hennar gaf
merkingu og vægi.
Flutningur á upp-
hafslagi tónleik-
anna, Ramopante,
var vel til þess
fallinn að heilla
viðstadda, lagið
vel mótað og flutt,
sérstakalega
lokakaflinn sem
var heillandi í ein-
faldleika sínum,
aðeins píanó og
rödd. Akvarell á 5.
hæð var og af-
skaplega gott, sér-
staklega var
skemmtileg
trumbuveisla í
lokin, Fröken fjall
og Á Grænlandi.
Frábær skemmtan.
Leiðtogi Ummhmm, Jónas Björg-
vinsson, fer nokkuð aðrar leiðir en
Anna sveitungi hans því hans tónlist
flokkast frekar undir rokk og hrein-
an blús en innhverfa framúrstefnu.
Þannig var fyrsta lagið, Vináttu-
bönd, hreinræktaður blús sem Þór-
unn P. Jónsdóttir söng hreint frá-
bærlega vel. Hún hefur einkar geð-
þekka kontralto-rödd og beitir henni
skemmtilega. Hún átti og góðan
sprett í Plastkortablús og sérdeilis í
lokalagi Ummhmm að þessu sinni,
Samband. Birgir Baldursson var
frábær á trommurnar eins og hans
var von og vísa og einnig vakti at-
hygli lipurt og smekklegt gítarspil
Ragnars Arnar Emilssonar.
Þórunn P. Jónsdóttir söngkona Ummhmm.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Anna Halldórsdóttir.
Lokaorð á þessum tónleikum átti
hljómsveitin Fitl sem sendi frá sér
sína fyrstu skífu fyrir skemmstu,
fimm laga plötu sem kallast Undur.
Sú plata bendir til þess að sitthvað
sé í sveitina spunnið og frammi-
staða hennar renndi frekari stoðum
undir það. í framlínu Fitls eru
söngkonurnar Valgerður Jónsdóttir
og Anna S. Þorvaldsdóttir. Valgerði
hefur áður borið fyrir eyru tónlist-
arunnenda, var til að mynda kjörin
besta söngkona Músíktilrauna fyrir
átta árum og söng inn á skífur með
Orra Harðarsyni. Hún var í essinu
sínu með félögum sínum í Fitli,
röddin hrein og þróttmikil eins og
forðum og féll vel að hamagangi í
framúrskarandi gítarleikara sveit-
Lagalisti
Anna Halldórsdóttir
og Vefararnir
Rampante
Akquai-ella í risinu
Aldan
Heimkynni fagurgalans
Hringsól
Fröken fjall
Á Grænlandi
Ummhmm
Vináttubönd
Haustið
Brosið
Plastkortablús
Sunnudagspabbar
Skjárinn
Svip og piott
Samband
Fitl
Aðstoð
Krossfesting
Venjuleg stelpa
Hættu
Fríða Brá
arinnar. Besta lag Fitls þetta kvöld,
Hættu, rataði ekki á nýútgefinn
disk sveitarinnar sem er synd því
það er einkar skemmtilegt kraft-
mikið lag. Vissulega efnileg sveit og
skemmtileg.
Á milli hljómsveita tróðu þeir upp
Huldar Breiðfjörð og Hallgrímur
Helgason. Huldar las skemmtilega
úr nýútkominni ferðasögu sinni, en
Hallgi-ímur Helgason stal senunni
með frábærlega skemmtilegum lestri
úr Ijóðabók sinni og brá sér séðan í
gervi Is-té í lokin og flutti magnaða
þýðingu; minnti á orð Ice-T við
blaðamann Morgunblaðsins fyrir
nokkrum ánim: „Island ... mitt land.“
Árni Matthíasson