Morgunblaðið - 15.12.1998, Síða 69

Morgunblaðið - 15.12.1998, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1998 FÓLK í FRÉTTUM Tónleikar til styrktar flogaveikum börnum í kvöld Orafmögnuð Nýdönsk í Iðnó í KVÖLD heldur hljómsveitin Nýdönsk hljómleika í Iðnó ásamt dúettinum Súkkati. Hljómleikarnir eru órafmagnaðir og er það í fyrsta sinn sem Nýdönsk spilar heila tón- leika án þess að vera í sambandi. Líklegt er að þetta sé eina tækifærið til að hlýða á Nýdönsk íyrir jól, en allur ágóði tónleikanna rennur til styrktar flogaveikum börnum. Jón Ölafsson og Björn Jörundur voru teknir tali í heita pottinum á Loft- leiðum og spurðir um tónleikana og jóiaundirbúninginn. - Eruð þið ekki komnir í jólaskap- ið? Jón: „Jú, það held ég nú. Ég byrj- aði að skrifa jólakortin í gærkvöldi, og hef aldrei verið jafn snemma í því og núna. Annars er ég farinn að fá jólakort í tölvupósti og finnst það frekar þunnur þrettándi miðað við gömlu góðu kortin.“ Björn Jörundur: „Ég fer aldrei í jólaskap fyrr en eftir kvöldmat á Þorláksmessu." - Nú eruð þið að styrkja flogaveik börn með tónleikunum í kvöld. Er einhver sérstök ástæða fyrír því að sá hópur er valinn? Jón: „Okkur datt bara í hug að gaman væri að styrkja góðan mál- stað.“ Björn: „Við vildum fínna saiptök sem ekki bæri mjög mikið á og væru kannski minna styrkt af þeim sök- um. Það eru ákveðin samtök sem hafa verið styrkt meira en önnur og okkur var bent á þessi samtök af starfsmanni í heilbrigðisgeiranum.“ Jón: „Ég hef verið að lesa mér til um málefni flogaveikra, og komst að því að í gegnum tíðina hefur verið ótrúleg fáfræði um flogaveiki. Það var t.d. ekki fyrr en 1968 sem floga- veikir máttu gifta sig á íslandi." - Verðið þið með lög af nýju plöt- unni eða eldra efni á tónleikunum? Björn: „Við tökum líklega flest lög- in af nýju plötunni. En svo verðum við með sérvalið efni í bland.“ Jón: „Það verður líka sérstakt fyrir okkm- að vera með órafmagnaða tón- leika, því við höfum aldrei haldið þannig tónleika áður. Þetta verða svona sitjandi tónleikar.“ Björn: „Við tókum nokkur óraf- mögnuð lög í Þjóðleikhúskjallaran- um þegar við vorum með útgáfutón- leika árið 1993, en það er það eina.“ Jón: „Við Björn spjöllum líka heil- mikið á milli laga og þá getur verið gott að sitja.“ - Verður það jólaboðskapur? Jón:‘Við vitum það ekkert fyrr en að því kemur." Björn: „Kannski verða bara jólin gagnrýnd.“ Jón: „Nei, nei. Við verðum frekar með kökuuppski-ifth- á milli laga, eða tillögur að laufabrauðsútskurði." Björn: „Já, maður veit aldrei hvað maður segir þegar maður opnar munninn. Þetta verður bara að koma í ljós.“ Eins og áður sagði eru þetta lík- Triumpk! náttkjólar náttföt sloppar gallar náttfatnaður fæst aðeins hja okkur lympía- Kringlunni 8-12, sími 553 3600. Morgunblaðið/Kristinn LÉTTKLÆDDIR í heita pottinum. lega síðustu tónleikar Nýdanskrar fyrir jól, en þeir hafa ekki staðið í miklu tónleikahaldi undanfarið. Hafa spilað á útgáfutónleikum og í menntaskólunum, en þeir hafa lítið spilað á böllum. - Eruð þið farnir að eldast? Björn: „Okkur finnst bara ekki eins skemmtilegt að spila á böllum og að halda tónleika. Fólk er drukkið og man ekkert hvað maður var að spila.“ Jón: „Þetta er líka spurningin um hvort þú vilt vera að spila þitt eigið efni, eða bara gamla „standarda“ eft- ir aðra. Við viljum frekar spila okkar eigin tónlist fyrir áheyrendur sem eru að hlusta.“ Þá vitum við það. dL oxur ÚTILIF 11 miir Útilíf Glæsibæ - Sími 581 2922 Lök/lakasett X Dýnuhl Ifar'’- oddar Góðor ektfb: Westpoint Stevens Rúmteppi/sett Pcrfect Fit Yfirdýnur Crosscill Þykk baðhandklæði margir litir a... / 4.465 lcr. stgr. The rmof1ex hei1sukoddar Værðarvoðir 100 % bómuU MARTEX Santas iök k Santas 100% bómullarlök fyrir þykkar dýnur, allt að 40 cm. djúpar. Allar amerískar stærðir, einnig FuU XL (1.35x2m.) og TUnn XL (97x2m.) Ooiá ntm. - fó&. m-ia iJIU Lmt. 10-17 ♦ Sun. 13-17 Mörk inni 4 • 108 ReyLjavík Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510 www.marco.is Við styðjum við bakið á þér

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.