Morgunblaðið - 06.01.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
BJORN Jónsson rekstrarstjóri með viðurkenningarskjalið. Þau Guð-
rún Bergmann og Skúli Alexandersson, formenn nefndanna, afhenda
Birni innrammað skjalið.
Viðurkenning’
fyrir vegabætur
Uthlutað úr Menningarsjóði
Sparisjóðsins í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
STYRKÞEGAR úr Menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja ásamt
stjórnarformanni Sparisjóðsins og sparisjóðsstjóra.
Vestmannaeyjum - Fyrir skömmu
var úthlutað úr Menningarsjóði
Sparisjóðs Vestmannaeyja en sjóð-
urinn var stofnaður til minningar
um Þorstein Þ. Víglundsson, íyrr-
verandi sparisjóðsstjóra. Arlega er
úthlutað úr sjóðnum og var nú út-
hlutað úr honum í ellefta skipti.
Þrír aðilar fengu styrk að þessu
sinni og gerði Arnar Sigurmunds-
son, stjórnarformaður Sparisjóðs-
ins, grein fyrir forsendum styrkveit-
inganna. Björgunarfélag Vest-
mannaeyja, sem á 80 ára afmæli á
þessu ári, fékk styrk til starfsemi
sinnar en Björgunarfélagið var
brautryðjandi í slysavörnum á Is-
landi. Það safnaði fyrir, keypti og
rak í nokkur ár björgunar- og varð-
skipið Þór sem var fyrsta skip sem
sinnti þessum störfum á Islandsmið-
um. Með kaupunum á Þór lagði
Björgunarfélagið grunninn að stofn-
un Landhelgisgæslu íslands. Björg-
unarfélagið og Hjálparsveit skáta í
Eyjum sameinuðust fyrir nokkrum
árum undir nafni Björgunarfélags-
ins og síðan hefur félagið vaxið og
eflst til muna.
Athafnaverið í Vestmannaeyjaum
fékk styrk til starfsemi sinnar. At-
hafnaverið er fyrir ungt fólk og tók
það til starfa á þessu ári að frum-
kvæði bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja. Bæjarstjórnin fól Þróunarfé-
laginu að koma á fót starfsemi fyrir
ungt fólk þar sem áhersla væri lögð
á upplýsinga- og tölvutækni. Þróun-
arfélagið keypti húsnæði undir
starfsemi Athafnaversins og bjó það
tölvubúnaði af fullkomnustu gerð.
Ottó Björgvin Oskarsson, nem-
andi í Framhaldsskólanum í Eyjum,
hlaut verðlaun fyrir góðan námsár-
angur í íslensku en Ottó lauk stúd-
entsprófí frá framhaldsskólanum
fyrir jólin. Stjórn Sparisjóðsins
ákvað fyrir skömmu að framvegis
yrðu veittar viðurkenningar úr
menningarsjóðnum fyrir góðan
námsárangur í íslensku í framhalds-
skólanum í Eyjum og í 10. bekk
barnaskólans og Hamarsskóla og
varð Ottó fyrstur til að hljóta þessa
viðurkenningu. Eftir að Arnar hafði
gert grein fyrii- styrkveitingum úr
sjóðnum afhenti Benedikt Ragnars-
son sparisjóðsstjóri styrkina og tóku
Adolf Þórsson, formaður Björgunar-
félagsins, Páll Marvin Jónsson, for-
stöðumaður Athafnaversins, og Ottó
Björgvin Óskarsson við þeim úr
hendi Benedikts.
s
Alfabrenna á
Heimalandi
Hvolsvelli - Álfar, tröll og for-
ynjur gengu fylktu liði í kring-
um álfabrennu Fljótshlíðinga á
Heimalandi sl. sunnudagskvöld.
Púkar hrekktu og jólasveinar
spjölluðu og skemmtu sér og
öðrum. Flugeldar skreyttu
nýárshimininn og bálið yljaði í
norðankulinu. Það er skemmti-
Iegt að Fljótshlíðingar skuli enn
viðhalda þessari gömlu hefð. Á
hveiju ári mæta áifakóngur og
drottning og ganga prúðbúnir
„piltar" með íslenska fánann
fremstir og allir syngja jóla- og
áramótalög. Ávallt koma Ijöl-
margir og fylgjast með álfa-
brennunni og er siðan farið inn í
félagsheimilið og frumlegustu
og fallegustu búningarnir fá
verðlaun og menn gæða sér á
veitingum.
Hellissandi - Ferðamenn sem ferð-
ast um Snæfellsnes og leggja lykkju
á leið sína niður að Djúpalónssandi
og niður í Dritvík komast ekki hjá
því að sjá að þar hefur umhverfí allt
tekið miklum stakkaskiptum. Á
hluta vegarins hefur verið lagt
bundið slitlag til að draga úr ryk-
mekki í hrauninu og gera ferða-
mönnum komuna ánægjulegri. Ofan
Djúpalóns hefur síðan verið komið
upp hringtorgi og bflastæðum til að
auðvelda umferð um svæðið. Frá-
gangur er þar allur til íyrirmyndar.
Það er Vegagerð ríkisins undir
umsjón Björns Jónssonar rekstrar-
stjóra sem á allan heiður af þessu
mannvirki. Björn Jónsson hefur ver-
ið mikill áhugamaður um umhverfís-
mál og að bæta og auðvelda aðkomu
ferðamanna á fjölfarna ferðamanna-
staði á Snæfellsnesi síðan hann tók
við rekstri Vegagerðarinnar fyrir
u.þ.b. 10 árum. Mætti nefna fleiri
staði til viðbótar sem hann hefur lát-
ið stórbæta eða endurgera.
Tveimur nefndum Snæfellsbæjar,
umhverfis- og náttúruverndarnefnd
og atvinnu- og ferðamálanefnd, þótti
fyrir áramótin ekki mega draga
lengur að veita Birni Jónssyni og
Vegagerð ríkisins viðurkenningu
fyrir þetta virðingarverða framtak
hans og manna hans.
Formenn nefndanna, ásamt fleir-
um, komu saman ofan Djúpalóns-
sands og á Hellnum og afhentu
Birni Jónssyni rekstrarstjóra og
starfsmönnum hans viðurkenningu
fyrir þetta framtak þeirra. Að lok-
inni afhendingunni buðu hjónin Guð-
rún og Guðlaugur Bergmann upp á
kaffiveitingar í húsi sínu í Brekku-
bæ á Hellnum.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
TOLVUTÆKNI FRAMTIÐAR TOLVUTÆKNI FRAMTIÐAR TOLVUTÆKNI FRAMTIÐAR TOLVUTÆKNI FRAMTIÐAR TOLVUTÆKNI FRAMTIÐAR
sac
Vt
Tölvufæhní
framTTdar
MMI
MARGMJÐLM
L ÞlilVIIIIIAIt
GRAFIK
^jfcRKEAí^j.
H fl H S fl M H L IÐ R S Tfl R F I
VI
RAFIÐNAÐARSKÓLINN
Skeifan 11 b * Sími 568 5010
Margmiðlunar- og þrívíddarnámið
er 260 kennslustundir.
Kennt er tvö kvöld í viku
frá kl. 18:00-21:30
og aðra hverja helgi einn dag í senn
frá kl. 8:30-16:30.
Námið er að fullu lánshæft.
Pl
s
o'
>
90
Pt
Z
O
S»
90
UVailWVUJ INMVinAIOl UVOIIWVUJ INMVinAlOL UVOILWVUJ INMJTLnAlOL UVQILWVMJ INMSfLnAlOL MVOILWVMJ INMVLnATOL
* • • # *• # M # • • M ••