Morgunblaðið - 06.01.1999, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1999 5£t
rj ÁRA afmæli. í dag,
I O miðvikudaginn 6.
janúar, verður sjötíu og
fimm ára Ester Kratsch, nú
til heimilis að Seljahlíð,
Iljallaseli 55, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum
sínum á heimili sonar síns,
Guðmundar Auðunssonar,
Kögurseli 22, Reykjavík, á
þrettándakvöldið.
BRIDS
llni.sjón (■uOinuiiiliir
I’áll Arnarson
Lesandinn er í suður, sem
sagnhafi í þremur gröndum,
og útspilið er hjartagosi í
innákomulit austurs:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
* DGIO
¥ K3
♦ ÁK72
*ÁG74
Suður
* 743
¥ Á95
* D64
* D632
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 1 hjarta 1 grand
Pass 2gröndPass 3grönd
Pass Pass Pass
Hvernig á að spila?
Það er enginn tími til að
sækja spaðaslag, því vömin
verður fyrri til að brjóta
hjartað, svo það verður að fá
sjö slagi á láglitina. Eina
legan sem gefur fjóra
laufslagi er kóngur annar í
vestur, en það er ekki tíma-
bært að spila laufi strax á
gosann. Fyrst þarf að kanna
tígulinn.
Best er að drepa á hjarta-
kóng blinds og spila þrisvar
tígli. Ef liturinn feilur ekki
verður að spila laufi á gos-
ann og treysta á fjóra slagi
þar. En ef tígullinn gefur
fjóra slagi -
Norður
* DGIO ¥ K3 * ÁK72 * ÁG74
Vestur Austur
* 9862 A ÁK5
¥ G4 ¥ D108762
♦ 1083 ♦ G95
♦ K1095 * 8
Suður A 743 ¥ Á95 ♦ D64 + Ð632
- er hægt að spila laufinu
af meiri nákvæmni til að
tryggja þar þrjá slagi: Sagn-
hafi endar heima á
tíguldrottningu og spilar
þaðan laufdrottningu.
Þannig hyggst hann verjast
4-1-legunni þegar austur er
með stakt millispil, áttu, níu
eða tíu. Laufdrottningin
mun kalla fram kóng, ás og
áttu; en siðan er litlu laufi
spilað úr borði á sexuna
heima. í jafnri legu skiptir
ekki máli hvenær slagurinn
er gefinn, en hér er þetta
nauðsynlegt til að geta svo
svínað laufsjöunni.
Árnað heilla
Ljósm.: Oddgeir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 8. ágúst sl. í Innri-
Njarðvíkurkirkju af sr.
Baldri Rafni Sigurðssyni
Aðalheiður Þ. Marinósdótt-
ir og Kristján V. Guð-
mundsson. Heimili þeirra er
að Hjallavegi 5, Reykjanes-
bæ.
Ljósmynd: Oddgeir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 1. ágúst sl. í Útskála-
kirkju af sr. Birni S. Björns-
syni Helga Hjálmarsdóttir
og Oliver Keller.
Með morgunkaffinu
Þú kannt kannski ekki að
mjólka, cn þú kannt sann-
arlega að fleyta rjómann.
Þessi náungi fær meira út
úr því að spila á gítar en
nokkur annar bæjarbúi.
SKAK
llmsjón Marjjeir
Pélurssnn
Staðan kom upp í fyrstu
umferð á Rilton mótinu í
Stokldiólmi sem nú stendur
yfir. Hannes Hlífar Stefáns-
son (2.535) hafði
hvítt og átti leik
gegn Jörgen
Norqvist (2.190),
Svíþjóð. 23. Rxf7!
- Dxa5 24. Bh6+ -
Kg8 25. Rg5+ -
Kh8 26. Dg8+!
(Gamla góða kæf-
ingarmátið í örlítið
breyttri útgáfu)
26. - Hxg8 27. Rf7
mát.
Staðan að lokn-
um sjö umferðum á
mótinu er þessi:
1.-2. Ulybin, Rúss-
landi og Shulman,
Hvíta-Rússlandi 6 v., 3.-7.
Hannes Hlífar Stefánsson,
Pia Cramling, Ralf Ákesson
og Björn Ahlander, Sviþjóð
og Mai-kovic, Júgóslaviu
v. Helgi Áss Grétarsson er í
8.-23. sæti með 5 v. I sjö-
undu umferð gerði Hannes
jafntefli við Piu Cramling,
en Helgi Áss tapaði fyrir
Shulman.
HVÍTUR leikur og vinnur
HÖGNI HREKKVÍSI
% § //Vo e II ©1996 Tribune Media Services, Inc. All Rights Reserved.
„LhHu afa eéfrisiá buhútLuhkuna, suúna..' ‘
c ■& L §
// i/'sí/ éisé."
STJÖRNUSPA
eftir Frances llrake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins: Þótt
þú sért upptekinn afefnis-
legum gæðum geturþú um
leið veríð gjafmiidur. Þú
ert athugull og nærfærni
þín vekur aðdáun annarra.
Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Það er ekki alltaf rétta ráðið að grípa inn í líf annarra þótt aðstæður séu til þess. Hugs- aðu um sjálfan þig fyrst og fremst.
Naut (20. apríl - 20. maí) Þú hefur lag á að koma að hlutunum úr óvæntri átt og það laðar að þér samstarfs- menn sem kunna að meta hæfileika þína.
Tvíburar (21. maí - 20. júní) ÞÁ Þótt þekking þín á ákveðnum hlutum sé mikil eru þeir þó til sem neita að hlusta á rök þín. Þá er ekki um annað að ræða en að drífa hlutina af.
Krabbi (21.júní-22.júlí) Það er ekki nóg að hafa svör- in á reiðum höndum ef mað- ur getm ekki unnið rétt úr þeim. Treystu eðlisávísun þinni betur.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það kann að kosta þig mikla vinnu að komast fyrir allar staðreyndir málsins. Vertu viðbúinn því að komast að ýmsu óvæntu.
Meyjci _ (23. ágúst - 22. september) vtmL Það getur verið auðvelt að eignast vini og aðdáendur en mundu bara að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
(23. sept. - 22. október) A 4* Reyndu að líta til lengri tíma þegar þú skipuleggur að- gerðir þínar því það sem lít- ur vel út nú kann að reynast skammgóður vermir.
Sþorddreki (23. okt. - 21. nóvember) '*ísfc Forðastu að taka þátt í hlut- um sem eru einskis virði og því hrein tímasóun. Notaðu heldur tímann til að byggja þig upp á jákvæðan hátt.
Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. desember) ííS/ Nú hefur þú það í hendi þinni að láta mikil umskipti yfir þig ganga. Óttastu ekki nýjungar og vertu ekki fast- heldinn á foma siði.
Steingeit (22. des. -19. janúar) •S? Það getm- reynt á þolinmæð- ina að þurfa að endurtaka sjálfan sig oft svo allir skiiji. En gefðu þér tíma til þess því án skilnings annarra verður þér ekkert úr verki.
Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Cánl Það er oftast auðveldara að láta stjómast af atburða- rásinni heldur en hafa sjálfur áhrif. Reyndu samt að láta til þín taka.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Sýndu sveigjanleika og vertu viðbúinn óvæntum uppákom- um. Þær þurfa ekki að vera til tjóns ef þér tekst að bregðast rétt við.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
á horni Laugavegar og
Klapparstígs, s. 552 2515.
Utsalan
er hafín
Útsala
Allar vörur á útsölu
Allt að 60% afsláttur
Silfurbúðin
Kringlunni, sími 568 9066.
VIÐ BJÓÐUM •• >
HEILDSOLUVERÐ R
CORETTE'
Nikótínlyfjum 5-9 janúor
ttæaumaoieyhja...
NICCRETTE
Dregur úr löngun
HOLTS APOTEK
Álfheimum 74 - Glæsibæ
S. 553-5212
...
Ásmundur
Daníel
Bergmann
Efni:
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni.
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
kvíða og fælni að striða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða
leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og
lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga
nauðsynleg.
Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 7. jan.
Yoga - breyttur lifsstill
7 kvölda grunnnámskeið með
Daníel Bergmann.
Mán. og mið. kl. 20-21.30. Hefst 6. jan.
Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri, reynsla af
jóga er ekki nauðsynleg. Frír aðgangur að tækja-
sal og opnum jógatímum fylgir meðan á nám-
skeiðinu stendur.
★ jógaleikfimi (asana)
★ mataræði og lífsstíll
★ öndunaræfingar
★ slökun
★ andleg lögmál
sem stuðla að
velgengni, jafnvægi
og heilsu.
Y06A#»
STUDIO
Auðbrekku 14, Kópavogi, ______
sími 544 5560. QB3 CD