Morgunblaðið - 02.03.1999, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
KOMIÐ með skipverjann á Sigurbáru VE til hafnar í gær.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Spítalar styrkja
hjúkrunarnema
15 nemar hafa samið um ráðningu við SHR
FIMMTÁN hjúkrunamemar, sem
útskrifast eiga í vor, hafa tekið tii-
boði Sjúkrahúss Reykjavíkur um
námsstyrk í þrjá mánuði gegn því
að starfa þar næstu tvö árin. Slíkur
samningur við hjúkranamema hef-
ur einnig verið í skoðun á Landspít-
ala.
Sjúkrahús Reykjavíkur bauð
hjúkranarnemum 50 þúsund króna
námsstyrk á mánuði í mars, aprfl og
maí gegn loforði þeirra um að starfa
hjá SHR næstu tvö árin. Fimmtán
hafa gengið frá slíkum samningi og
fleiri verða þeir ekki hjá SHR.
Tæplega 80 nemar
útskrifast í vor
tvö til þrjú ár. Ekki hefur verið
gengið frá neinum samningum í
þessa vera ennþá. Nærri 80 hjúkr-
unarfræðingar útskrifast í vor frá
Háskóla íslands og Háskólanum á
Akureyri.
Magnús sagði marga hjúkranar-
fræðinga vanta til starfa á sjúkra-
húsunum og væri það vandamál
erfitt viðureignar. Finna þyrfti út
við hverja spítalamir í Reykjavík
væra að keppa um þetta vinnuafl og
finna yrði leiðir til að ráða bót á
þessum vanda spítalanna.
Skipverji
fór með
hönd í spil
Vestmannaeyjum. Morgunbladið.
SKIPVERJI á Sigurbáru VE slas-
aðist á hendi í gærmorgun þegar
verið var að draga netin skammt
frá Eyjum. Maðurinn liafði farið
með hönd í spil og að sögn lög-
reglunnar í Eyjum var óskað eftir
aðstoð björgunarbátsins Þórs.
Hann sigldi til móts við Sigurbáru
en hún var þá komin Iangleiðina
til hafnar í Eyjum og sigldi sjálf
með manninn til lands.
Maðurinn var fluttur á sjúkra-
húsið í Eyjum en að sögn lögregl-
unnar lágu ekki fyrir upplýsingar
um hversu mikið slasaður hann
var en þó var talið að meiðslin
væru ekki eins alvarleg og óttast
var í fyrstu.
Tekist á um j arðgangagerð á
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Meirihluti studdi
Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson í 9. sæti
ÁTÖK urðu á fundi kjörnefndar
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um
helgina um hver skipa eigi níunda
sæti á framboðslista flokksins í al-
þingiskosningunum í vor. Skv.
heimildum Morgunblaðsins er sam-
komulag um að núverandi þing-
menn flokksins í Reykjavík skipi
átta efstu sætin en kjósa þurfti
tvisvar sinnum á milli Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar borgarfulltrúa og
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
starfsmanns þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins, um skipan í níunda sæti á
listanum. Fékk Vilhjálmur stuðning
meirihlutans þegar kosningin var
endurtekin.
14 manns vora á fundi kjörnefnd-
ar en einn fulltrúi var fjarstaddur.
Féllu atkvæði í fyrstu þannig að Vil-
hjálmur fékk sjö atkvæði og Hanna
Birna sjö. Var þá gert fundarhlé og
var atkvæðagreiðslan síðan endur-
tekin. Varð niðurstaðan sú að Vil-
hjálmur fékk átta atkvæði en
Hanna Bima sex.
Brynjólfur Bjarnason, formaður
kjörnefndar, vildi ekkert tjá sig um
þessi mál í gær.
Mikil óánægja og deilur
Óánægja og deilur hafa komið
upp innan flokksins vegna niður-
stöðu fundarins um helgina skv.
upplýsingum blaðsins. Halda stuðn-
ingsmenn Hönnu Birnu því fram að
sá kjömefndarfulltrúi sem var fjar-
staddur tilheyri stuðningshópi
hennar. Einn viðmælenda blaðsins
sagði að óánægja væri meðal
kvenna og ungra sjálfstæðismanna
með þessa niðurstöðu. Þar sem gert
værí ráð fyrir að núverandi þing-
menn yrðu í öruggum sætum og ní-
unda sætið yrði væntanlega bar-
áttusætið í vor hefði verið lagt kapp
á að nýr frambjóðandi úr röðum
kvenna skipaði það sæti.
Kjömefndin heldur áfram vinnu
við frágang tillögu um röðun á
framboðslistann á næstu dögum og
mun síðan leggja tillöguna fyrir full-
trúaráð flokksins í Reykjavík sem
gengur endanlega frá listanum.
Hugsanlegt að starfs-
menn fái sæti í bankaráði
PÁlLMI Jónsson, formaður banka-
ráðs Búnaðarbankans, segir það
koma til greina að fulltrúi starfs-
mannafélags bankans fái sæti í
bankaráði bankans, eins og starfs-
mannafélagið hefur óskað eftir.
Málið er til athugunar hjá við-
skiptaráðherra en tillögur um það
liggja ekki fyrir.
Starfsmannafélagið óskaði enn-
fremur eftir því að árlegur aðal-
fundur bankaráðsins yrði fluttur af
virkum degi yfir á helgidag svo að
fulltrúi starfsmannafélagsins gæti
setið fundinn á frídegi sínum, en
Pálmi segir að erindið hafí borist
með of skömmum fyrirvara til að
unnt sé að breyta fundartímanum.
Hafl fundurinn verið ákveðinn með
margra vikna fyrirvara.
Starfsmannafélagið og aðrir eiga
15% hlutafjár í bankanum eftir
hlutafjárútboð í fyrra og á ríkissjóð-
ur 85% hlutafjár. Fimm manns sitja
í bankaráði.
Austurlandi eða Norðurlandi
Magnús Pétursson, forstjóri Rík-
isspítalanna, sagði að Landspítalinn
hefði boðið hjúkrunamemum
áþekkan samning gegn því að þeir
lofuðu því að starfa hjá spítalanum í
Gagna-
safnið á
mbl.is
FRÁ og með 1. mars mætir
áskrifendum Gagnasafns
Morgunblaðsins og Morgun-
blaðsins á Netinu nýtt útlit og
endurbætt framsetning á öllu
efni. Fyrirtækið Strengur hf.
hefur á síðustu árum haft um-
sjón með áskriftarþjónustu
Gagnasafnsins en nú verður öll
þjónusta innt af hendi af
starfsmönnum Morgunblaðs-
ins.
Aðgangur verður í gegnum
slóðina
http://www.mbl.is/gagnasafn
og geta áskrifendur notað
áfram sama notandanafn og
lykilorð.
Áskrifendur eru hvattir til
að senda ábendingar og at-
hugasemdir um þessa nýju
framsetningu en þær er hægt
að senda á ingvar@mbl.is.
Þessi yfirfærsla getur haft í
för með sér einhver óþægindi
fyrir áskrifendur og eru þeir
því beðnir að sýna þolinmæði á
næstu vikum.
Starfsfólk áskriftai'deildar
Morgunblaðsins er reiðubúið
að veita frekari upplýsingar í
síma (354) 569 1122.
MISMUNANDI sjónarmið eru
meðal efstu þingmanna Framsókn-
arflokksins á Norðurlandi um hvort
næstu jarðgöng eigi að koma á
Norðurlandi eða Austurlandi. Val-
gerður Sverrisdóttir, þingmaður
Norðurlandskjördæmis eystra og
formaður þingflokks Framsóknar-
flokksins, segir að komið sé að
Austfirðingum, en Páll Pétursson,
þingmaður Norðurlandskjördæmis
vestra og félagsmálaráðherra, segir
að næstu jarðgöng eigi að koma á
milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar.
Halldór Blöndal, samgönguráð-
herra og þingmaður Norðurlands-
kjördæmis eystra, sagði á fundi
með Siglfirðingum í síðustu viku
það sína persónulegu skoðun að
miða ætti við að hefja framkvæmdir
við göng milli Ólafsfjarðar og Siglu-
íjarðar innan þriggja ára.
Páll sagðist vera þeirrar skoðun-
ar að næstu jarðgöng ættu að koma
milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og
hann væri ekki aðili að samkomu-
lagi um neitt annað. „Ég held hins
vegar að það þurfi að skoða þetta
mál vandlega. Það liggur alveg fyrir
að það er ákaflega mikilvægt fyrir
Siglufjörð og reyndar Ólafsfjörð og
þessar byggðir á Miðnorðurlandi að
þarna opnist samgönguleið. Ég þarf
ekki að tíunda mörg rök fyrir því,
þau liggja f augum uppi. Ég tel
heppilegra að fara fyrst í það verk-
efni áður en farið er að bora í gegn-
um fjöll sem hægt er að komast
framhjá eða yfir eins og er fyrir
austan," sagði Páll.
Hann sagði að þetta yrði hins
vegar allt að meta með tölulegum
og raunhæfum hætti og þá hefði
hann trú á því að það hagræði sem
yrði að göngum fyrir norðan væri
meira en það hagræði sem yrði að
göngum fyrir austan, en auðvitað
Mismunandi sjón-
armið í Fram-
sóknarflokknum
yrði að verða sátt um þetta. Gera
þyrfti heildstæða áætlun í þessum
efnum um það í hvaða röð yrði bor-
að og eins hvernig staðið yrði að
fjármögnun þessara framkvæmda,
því þessu hefði verið slegið á frest
við gerð langtímaáætlunar um
vegagerð.
Páll sagði aðspurður að það væri
alveg einboðið að fara þyrfti í svona
samgöngubætur á landsbyggðinni.
Spumingin snerist eingöngu um fé
til framkvæmda í þessum efnum og
hvað væri mest áríðandi. „Er það
mest áríðandi að stytta leiðir eða
gera þær þægilegri þar sem leiðir
era fyrir eða er það mest áríðandi að
opna nýjar leiðir þar sem er ófæra?“
Hann sagði að auðvitað yrði bor-
að í framtíðinni bæði fyrir austan og
vestan, en hann sæi ekki að Aust-
firðingar væru búnir að koma sér
saman um hvar ætti að byrja, þ.e.
hver forgangsröðin ætti vera í fjórð-
ungnum.
„Það hefur ekkert slíkt sam-
komulag verið gert í þingflokki
Framsóknar sem ég er aðili að,“
sagði Páll aðspurður hvort ekki
hefði verið gert samkomulag um
það þegar ráðist var í Vestfjarða-
göngin að Austfírðingar yrðu næst-
ir. „Það getur verið að einhverjir
einstakir þingmenn hafi komið sér
saman. Ég þori ekkert að sverja
Valgerður Páll
Sverrisdóttir Pótursson
fyrir það að þingmenn Austfirðinga
sem studdu jarðgangagerð fýrir
vestan á sínum tíma hafi gert sam-
komulag við þingmenn Vestfirð-
inga. Það er vel hægt að hugsa sér
það, en það hefur ekki verið gert
neitt samkomulag á flokksgrund-
velli sem ég veit um,“ sagði Páll að
lokum.
Austfirðingar á undan
Norðlendingum
Valgerður Sverrisdóttir, formað-
ur þingflokks Framsóknarflokksins,
segir að fara þui'fí í markvissa vinnu
varðandi gerð jarðganga og reyna
að gera sér grein fyrir einhverri
framkvæmdaröð og hvemig fara
ætti í þetta. „Það þýðir ekkert að
fara um landið og mæta á fundum
og vera með fyrirheit um jarðgöng
án þess að það hafi verið rætt hér í
þinginu. Við erum nýbúin að sam-
þykkja hér vegaáætlun þar sem
ekki er tekið á þessum þætti sam-
göngumála," sagði Valgerður.
Aðspurð sagðist hún telja að
Austfirðingar ættu að vera á undan
Norðlendingum hvað jarðgöng
varðar. „Ég tel að það hafi orðið
samkomulag um það hér fyrir all-
nokkrum áram, þegar farið var í
göngin fyrir vestan, að næstu göng
yrðu á Austurlandi og mér finnst að
þingið geti ekkert hlaupið frá því.
Hins vegar geri ég mér fulla grein
fyrir þörfmni varðandi Siglufjörð,
en það er bara á þessari stundu
ekki hægt að segja til um hvenær
það verður,“ sagði Valgerður.
Hún sagði einnig að sem þing-
maður Norðurlands eystra gæti
hún ekki réttlætt það fyrir Norður-
Þingeyingum, sem hefðu mjög lé-
legt vegakerf, að fara í jarðgöng til
Siglufjarðar áður en þeir hefðu
fengið lausn sinna mála.
Hún sagði einnig að það hlyti að
verða eitt fyrsta verkefni nýrrar
ríkisstjórnar að setja upp áætlun og
forgangsraða jarðgangafram-
kvæmdum.
Aðspurð sagði hún að göng milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
virtust skynsamleg út frá hag-
kvæmnissjónarmiði. „Ég tel líka svo
mikilvægt að það myndist sterkur
byggðakjarni á miðju Austurlandi
og lít á það sem lið í því, að þarna
verði farið í þessar framkvæmdir.
Við Norðlendingar verðum bara að
sætta okkur við það,“ sagði Val-
gerður.
Hún benti á að jarðgöngin til
Ólafsfjarðar, sem væru gífurleg
samgöngubót, hefðu verið lögð fyrir
nokkrum árum og þess vegna fynd-
ist henni ekki erftt að réttlæta það
fyrir Norðlendingum að Austfirð-
ingar ættu að vera næstir.